Póstmannablaðið - 01.05.1994, Blaðsíða 14

Póstmannablaðið - 01.05.1994, Blaðsíða 14
Árni P. Jónsson, fyrrum formaður PFI: „Ég minnist með ánægju öflugs taflfélags og skemmtana sem við efndum til. En kjarabaráttan var þó aðalatriðið". Þetta var harður slagur Rætt við Árna Þ. Jónsson, formann PFÍ1962-1964 Hóf störf í febrúar árið 1946 í skráningardeild Póststofunnar í Reykjavík. Skipaður fulltrúi þar árið 1954, varðstjóri 1956, yfirdeildar- stjóri bréfapóststofu 1970 og að lok- um póstrekstrarstjóri við Póststofuna í Reykjavík árið 1980. Hætti störfum árið 1987 m.a. vegna veikinda eigin- konu sinnar og var auk þess kominn á svonefnda 95 ára reglu og með rétt til fullra eftirlauna. Svo stuttlega er hægt að spanna á prenti allan starfsferil og rúmlega helftina af lífsferli eins fyrrverandi póstmanns. Póstmanns sem á að baki rúmlega tjögurra áratuga starfsferil hjá Pósti og síma, þar sem hann gegndi trúnaðarstörfum bæði fyrir stofnunina og samtök starfsmanna. Hvernig var vegferð Arna Þ. Jóns- sonar, sem fæddist í Kelduhverfi í Suður-Þingeyjarsýslu og situr nú á friðarstóli að lokinni starfsævi suður I Reykjavík? Þessu verður á engan hátt svarað í stuttu viðtali hér í blað- inu og mun ekki undra neinn. Við heimsóttum Arna hinsvegar á dögun- um að glæsilegu heimili hans í Mið- leiti. Þar býr hann nú einn en við góðar aðstæður, orðinn ekkjumaður og börnin sex komin til manns. Hér á eftir koma nokkrir punktar úr samtali okkar við Arna: - Þú varst formaður Póstmannafé- lags íslands árin 1962 til 1964? „Já, ég varð það eftir að hafa starfað töluvert að félagsmálum póstmanna um nokkurra ára bil. Um það leyti sem ég settist í formannssætið stóðu yfir grundvallarbreytingar á öllu launakerfi ríkisins. Launaflokkum, sem fram til þessa höfðu verið um það bil 10 var nú tjölgað upp í 28. Má með sanni segja að þarna hafi verið um byltingu að ræða með lil- heyrandi uppröðun í launaflokka og jafnvel undir nýjum starfsheitum. Mér er það minnisstætt að við fulltrú- ar póstmanna áttum meðal annars all- nokkrar viðræður við þáverandi tjár- málaráðherra dr. Gunnar Thorodd- sen, sem tók okkar ávallt vel eins og hans var von og vísa. Hitt fór hins vegar ekkert á milli mála að róðurinn í kjarabaráttunni var erfiður á þessum tímamótum eins og oftar. Samkvæmt nýju launalögunum var það svonefnt Kjararáð, sem annast átti um niðurröðum starfsmanna rík- isins í launatlokka. Samhliða því hót'st hið harðasta stríð um flokkun starfa ásamt meðfylgjandi mati. Fram til þessara tímamóta hafði staða póst- manna verið nokkuð sterk að því ég tel, kjaralega séð. Svo fór að röðun póstmanna í launaflokka tók nokkur misseri. Þegar yfir lauk hafði Kjara- ráðið, sem skipað var bæði fulltrúum BSRB og ríkisins gefið út þrjár eða tjórar niðurstöður um launakjör póst- manna. - Já þetta var harður slagur. - Var Póstmannafélag Islands sterkt félag á þessum árum? „Já það tel ég hafa verið. Við stóðurn nokkuð framarlega meðal félaga starfsmanna ríkisins á þessum árum, enda meðal þeirra elstu. Upp úr þessu, eða á síðari hluta sjöunda ára- tugarins, fóru aðstæður að breytast og starfsmenn póstsins fóru að skipt- ast niður á fleiri félög. Það fylgdi aukinni sérhæfingu í þjóðfélaginu al- mennt, tölvuvæðingu og þess háttar. Póstmannafélagið stóð svo sem ekki eingöngu í kjarabaráttu, þó svo hún hafi verið meginmálið í formannstíð minni og misserin þar í kring. Ég minnist með ánægju öflugs taflfé- lags, fjöltetla og skemmtana sem við efndum til víða um bæinn. Þannig mætti margs minnast úr félagslífi póstmanna á fyrri tíð en ég get ekki neitað því að það yljar mér í minn- ingunni að rétt um það leyti sem fyrra kjörtímabili mínu sem for- manns var að ljúka stóðu nokkrir starfsfélaga minna fyrir því að safna undirskriftum undir þessum texta: „Þar sem við undirritaðir teljum að mörg og þýðingarmikil mál varðandi póstmannastéttina bíði úrlausnar, á- lítum við nauðsynlegt að fráfarandi 14

x

Póstmannablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Póstmannablaðið
https://timarit.is/publication/802

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.