Póstmannablaðið - 01.05.1994, Side 18

Póstmannablaðið - 01.05.1994, Side 18
Glæsileg sveit bréfbera í Reykjavík vorið 1953 fyrir utan gamla þósthiísið. félagsins eins og þetta dæmi sýnir. Næstu árin fór mikill tími í þóf á milli stjórnar félagsins og póststjórn- arinnar. Afangasigur vannst árið 1923 þegar póstmenn fengu greiðslu fyrir það sem þeir unnu fram yfir tvo tíma á helgidögum! Hvorki gekk né rak í þessu réttinda- máli næstu árin en 1931 var sett reglugerð um vinnutíma póstmanna, sem þó gekk engan veginn eins langt og upphatlegar kröfur þeirra kváðu á um. Loks árið 1942, réttum tuttugu árum eftir ræðu Egils Sandholts, fengu póstmenn loks ítarlega reglu- gerð um vinnutíma, yfirvinnugreiðsl- ur, sumarfrí og veikindagreiðslur. Póstmannablaö með hléum Þegar hér er komið sögu hafði nafni félagsins verið breytt í Póstmannafé- lag Islands, en það hafði verið gert árið 1932 og voru félagsmenn þá 73 að tölu, 66 karlar og 7 konur. Það sama ár ákváðu stórhuga stjórnendur þess að stofna með sér blað og var það nefnt Póstmannablaðið. í inn- gangsorðum ritnefndarinnar í 1. tölu- blaðinu er lit kom í ágústmánuði þetta ár segir m.a.: „Það hefir nú verið ákveðið, að Póstmannfélagið geri tilraun til lit- gáfu hlaðs, þar sem félagsmenn geti rætt áhugamál sín og þau atriði er snerta hag þessarar fámennu stéttar. Ekki mun þurfa að fœra rökfyrir því liér, hver nauðsyn útgáfa hlaðs er fyrir póstmenn. Ónnur stéttarfélög, er sum mumt varla fjölmennari en Póstmannafélagið, hafa orðið vör við þá nauðsyn og hqfist Itanda til þess að hœra úr henni, að svo miklu leyti er ástœður hvers félags hafa leyft. Félagið gaf út fjölritað blað um skeið. Komu út 2 tölublöð árið 1932, 4 blöð árið 1933, 3 blöð árið 1934 og í júní 1935 kom út síðasta blaðið að sinni. Þráðurinn var aftur tekinn upp í desember 1941 með prentuðu Póst- mannablaði í minna broti og var í upphafi stelnt að árstjórðungslegri útgáfu. Var Sveinn G. Björnsson val- inn ritstjóri og ábyrgðarmaður. Gaf hann út fjögur blöð á árinu 1942 en þá kom aftur hlé á útgáfuna, „en þar sem tekjur þess voru næstum engar, nema af auglýsingum, var fjárhagur þess þröngur er hér var komið sögu, enda var allt prentverk kostnaðar- samt, eins og segir í grein Kristjáns Sigurðssonar í 25. ára afmælisblaði PFÍ í júlí 1944, en þá var útgáfa blaðsins hafin á ný eftir nokkurt hlé. Kom þó aðeins út eitt tölublað og síðan liðu heil 18 ár þar til Póst- mannablaðið sá dagsins ljós á ný. Við það tækifæri reit Gunnlaugur Briem, þáverandi Póst- og símamála- stjóri ávarp til póstmanna: „Það er mjög ánœgjulegt, að póst- menn skuli á ný hefja útgáfu póst- mannahlaðs. Er þess að vœnta að til þess verði vel vandað, svo að það geti orðið póstmönnum til sœmdar og vegsauka. Slíkt hlað mun efla sam- starf meðal póstmanna og glæða áhuga þeirra á starfinu og veita þeim ýmiss konar fróðleik. Með því móti getur það jafnframt orðið stofnun þeirra til mikils góðs. Þrátt fyrir góð orð Gunnlaugs kom aðeins út eitt tölublað í þessari út- gáfuhrinu árið 1962. Þrjú blöð komu út árið 1968 er næst var farið af stað með útgáfuna. Árið 1969, þegar Póstmannafélag íslands varð 50 ára, komu út tvö tölublöð af Póstmanna- blaðinu og svo eitt tölublað árið 1973. Það var svo ekki fyrr en undir lok 8. áratugarins sem blaðið hóf að koma reglulega út eins og það gerir í dag. Litið um farinn veg Nú, þegar Póstmannafélag íslands hefur náð 75 ára aldri, er ljóst að það hefur aldrei verið sterkara til átaka en einmitt nú og gildir þá einu hvort lit- ið er til félagsstarfsins almennt eða útgáfu- og áróðursmála. Félagið er ein öflugasta stoðin í Bandalagi starfsmanna ríkis og bæja enda einn stofnaðili samtakanna. Það er við hæfi á þessum tímamótum að forráðamenn PFÍ hugi að útgáfu myndarlegrar sögu félagsins því ljóst er að þar er ýmislegt merkilegt að 18

x

Póstmannablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Póstmannablaðið
https://timarit.is/publication/802

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.