Póstmannablaðið - 01.05.1994, Síða 4
Árnaðaróskir
til póstmanna
Ávarp Leu Þórarinsdóttur,
fyrrum formanns PFÍ
Við póstmenn höfum nýlega haldið
75 ára afmæli félags okkar. Á
þeim þrem aldarfjórðungum sem
liðnir eru síðan PFI var stofnað hafa
átt sér stað miklar breytingar á ís-
lensku samfélagi og margt af því sem
átti við um daginn í gær á ekki leng-
ur við í dag.
En þótt margt hafi breyst þá er annað
sem ekki hefur tekið breytingum. Og
það á vissulega við um þann grund-
völl sem þetta félag okkar, Póst-
mannafélag Islands var reist á fyrir
75 árum. Þau meginmarkmið sem
frumkvöðlarnir höfðu að lciðarljósi
eru hin sömu nú og þau voru árið
1919: Að beita sér fyrir bættum
kjörum, traustari réttindum og öryggi
starfsfólkinu til handa. Ofar öllu öðru
var sú hugsun að taka félagslega á
málum.
Menn fundu að með því að efla með
sér samvinnu - bindast samtökum -
fengu þeir meira áorkað fyrir bættum
kjörum en þegar þeir voru einir á
báti. Að þannig ntynduðu þeir afl
sem var margfalt sterkara en einstak-
lingarnir bjuggu yfir hver um sig.
Þótt meginmarkmið Póstmannafé-
lagsins séu fyrst og fremst þau að
bæta kjörin og standa um þau vörð,
þá ber að hafa í huga að kjör eru ekki
Lea Þórarinsdóttir
einvörðungu krónur og aurar. Þess
vegna hafa markmið Póstmannafé-
lagsins jafnan verið þau - og eigum
við það sammerkt með bestu hug-
sjónum verkalýðshreyfingarinnar -
að stuðla að félagslegu réltlæti og
hlúa að mannlegum verðmætum.
Með nokkrum sanni má segja að
þessir þættir tengist þeim vettvangi
sem við störfum á. Því þegar allt
kemur til alls er það meginhlutverk
og tilgangur Pósts og síma að koma á
sambandi milli fólks. Til að ná þessu
markmiði tökum við sífellt meiri
tækni í okkar þjónustu. Gætum að
því að tæknin verði okkur aldrei yfir-
sterkari, svo allsráðandi að mannleg
samskipti víki fyrir tæknivæðingu.
Minnumst þess að hversu stórfengleg
sem tæknin kann að verða þá eru hin
mannlegu verðmæti mikilvægari.
I Póstmannafélaginu er nýlokið kjöri
til nýrrar stjórnar félagsins. Sjálf
hætti ég nú að gegna formennsku í
félaginu og vil ég á þessum tímamót-
um færa póstmönnum þakkir fyrir
gott samstarf og margar ánægju-
stundir á liðnum árum. Ég óska ný-
kjörinni forystu PFI alls góðs og að
við póstmenn berum gæfu lil að
standa sameinuð til góðra verka.
Póstmannafélagi Islands óska ég
bjartrar framtíðar.
Póstmanna-
félag
íslands
75 ára
Sjötíu og fimm ára félag
er framsækið enn í dag,
það hefur verið skjöldur og skjól
og skapað þegnunum hag.
Þeim sem að stofnun þess stóðu
sendum við þakklætis brag.
Félagar frjálsir og hraustir
fagna sigrum í dag,
því margt hefur unnist á langri leið,
sem laðar að bættum hag,
þótt gatan væri oft grýtt og breið
var hún gengin og fundið lag.
Þótt tölvum og tækjum Ijölgi
sem tryggja og létta störf,
þá telja margir að hugur og hönd
sé í höfuðatriðum þörf,
því vélmenni vilja bila
er vandfyllt í þeirra skörð.
Baráttumenn og baráttukonur,
sem berjast við sterkan hramm,
þið megið engu tapa
en alltaf sækja fram,
því lífið er enginn leikur
fyrir láglauna félagsmenn.
Við óskum félaginu alls hins besta
að auðna því gangi í hag,
á minningarspjöldin megi festa
manndóm opg bræðralag.
Áfram til starfa engu má fresta
það er óvíst um næsta dag.
Dýrmundur Olafsson
4