Póstmannablaðið - 01.05.1994, Side 21

Póstmannablaðið - 01.05.1994, Side 21
Nú má segja að Björn sé kominn „hinum megin við borðið sem um- dæmisstjóri. Hvernig er að gegna einu æðsta embættinu hjá Pósti og síma fyrir mann sem um árabil barð- ist fyrir bættum kjörum póstmanna bæði varðandi laun og veg stéttarinn- Nú, þegar Póstmannafélag íslands heldur upp á 75 ára afmælið á sér stað mikil breyting í störfum póst- manna. Ur stefnuskrá Póstsins, P- 2000 er verið að undirbúa ný þjón- ustutilboð. Eitt vcrkefnið þar er fyrir- tækjaþjónustan. A henni var byrjað á síðasta ári til reynslu á Akureyri og R-12. Fleiri pósthús bætast við á næstunni. Segja má að verkum sé snúið við með þessari þjónustu. Nú er það pós- tmaðurinn sem l'er og sækir það sem viðskiptavinurinn vill senda en um leið fer hann einnig með póst til fyrirtækisins. í fyrirtækjaþjónustunni eru kynntar tvær nýjungar. Annars vegar boð- póstur, sem er hraðsendingarþjónusta innan ákveðinna póstnúmerasvæða. Boðið er upp á tvo möguleika, þ.e. að sending verði komin til viðtak- „Ég finn í raun og veru engan mun þar á. Við póstmenn þurfum ávallt að vinna að stöðugt betri póstþjónustu, sem auðvitað er orðin fjölbreyttari og að mörgu leyti betri en áður var. Sú viðleitni er og verður ávallt grund- völlur þess að við póstmenn verjum og bætum starfskjör okkar í heild, segir Bjöm Björnsson að lokum. enda innan 2ja eða 4ra tíma frá við- töku hennar. Hins vegar er þar kynnt sú nýjung að viðkomandi geti greitt burðargjald fyrir bögglapóst innan- lands. Meginmarkmið með fyrirtækjaþjón- ustunni er að vera í stöðugum sam- skiptum við fyrirtæki og þjónusta þau enn betur en gert hefur verið hingað til. Viðskipti fyrirtækja standa undir langstærstum hluta tekna póstsins þannig að mikilvægt er að sinna þessum viðskiptavinum vel. Breytt þjóðfélag og aukin samkeppni gerir þá kröfu að hver Póst- og símstöð verður að vera vakandi yfir þeim viðskiptum sem möguleg eru á hverju svæði fyrir sig. Hver stöð þekkir best sína viðskiptavini eða fyrirtæki á hverju svæði og getur þannig best metið hvaða þjónustu hver og einn þarf mest á að halda. GJALLARHORNID Afmælisgjöf S/L Þeir félagsmenn sem verða 40, 50 og 60 ára á árinu og hyggja á ferðalög með Samvinnuferðum /Landsýn á árinu I994,fá 5000 kr. afsláttar-ávísun frá þeim í ferðir til Mallorca, Benidorm, Orlando, Túnis og í sumarhús í Hollandi. Einnig íferðir S/L til Irlands í sumar og haust. Þeir sem eiga rétt á þessum pappírsglaðning frá Samvinnuferðum/Landsýn og hyggja áferðalög, hafi samhand við skrifstofu Póst- mannafélagsins sem mun sjá um að viðkomandi fái ferðaávísunina senda. Ábo farar athugið! Póstmannafélag Islands hefur ákveðið að styrkja þœr konur sem hyggjast fara á kvennaráðstefn- una í Aho í sumar með allt að 10.000 krónum. Aho farar eru því vin-samlegast heðnir að snúa sér til skrif-stofu PFI þar sem þeirfá greiddan styrkinn með framvísun farmiða. Viðtalstími formanns Þuríður Einarsdóttir, formaður Póstmannafélags Islands er með viðtalstíma á skrifstofu PFI að Grettisgötu 89 á þriðjudögum og fimmtudögum frá kl. 13:00-16:00. Símar eru 91-626052 og 936560. Veikindi í orlofi Enn einu sinni er athygli félags- manna vakin á því að veikist þeir í orlofi, skal það strax tilkynnt yfirmanni símleiðis og telst sá tími ekki til orlofs, enda sanni starfsmaður með lœknisvottorði að hann hafi ekki getað notið þess. ar' Jón Bender á R-5 er einn þeirra sem þjónustar fyrirtækin í landinu. Nýjung hjá Póstinum: Fyrirtækjabiónusla 21

x

Póstmannablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Póstmannablaðið
https://timarit.is/publication/802

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.