Morgunblaðið - 24.03.2011, Side 4
4 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 24. MARS 2011
Karl Eskil Pálsson
Eigendur Sjafnarhússins svokallaða
á Austursíðu 2 á Akureyri hafa óskað
eftir viðræðum við ríkið um hugsan-
lega leigu á húsinu undir fangelsi.
Þetta staðfestir Halldór Jensson,
forstöðumaður sölusviðs fasteigna-
félagsins Reita, eiganda hússins.
„Við teljum að Sjafnarhúsið henti
vel undir slíka starfsemi, enda er
gólfflötur hússins hátt í 5.000 fer-
metrar. Fangelsið gæti því verið á
einni hæð og auk þess er stórt úti-
svæði norðan við bygginguna sem
getur fylgt með í leigunni. Húsið er
allt í mjög góðu standi, en auðvitað
þarf að ráðast í töluverðar breyting-
ar ef því verður breytt í fangelsi.
Ég álít þetta hagkvæman kost,
einmitt þess vegna höfum við sett
okkur í samband við ríkið og óskað
eftir viðræðum,“ segir Halldór.
Fangelsi landsins eru yfirfull, en
yfir 300 manns bíða þess að geta af-
plánað. Samkvæmt innanríkisráðu-
neytinu hafa á undaförnum mánuð-
um fjölmargar ábendingar borist um
hugsanlegt húsnæði undir fangelsi.
Verið sé að vinna að gerð útboðs-
gagna, þau verði líklega tilbúin eftir
eina til tvær vikur.
Halldór segir að Akureyri hljóti
um margt að teljast vænlegur staður
undir fangelsi, samgöngur séu góðar
bæði um þjóðveginn sem og flugsam-
göngur og þjónustustigið mjög hátt.
„Þannig að í mínum huga er land-
fræðileg staðsetning nokkuð góð. Í
bænum er fangelsi fyrir, þannig að
innan lögreglunnar í bænum er góð
þekking á starfsemi slíkra stofnana.“
Sjafnarhúsið á Akureyri
boðið ríkinu undir fangelsi
5.000 fermetra
hús í góðu standi
Sjafnarhúsið Reitir telja að hús-
næðið henti vel undir fangelsi.
22 millj-
arða átak
Þingmenn Sjálf-
stæðisflokksins
hafa lagt fram
þingsályktunar-
tillögu á Alþingi
um að ríkis-
stjórninni verði
falið að efna til
framkvæmda-
átaks í vegamál-
um á árunum
2011-2013. Á því tímabili verði 22
milljörðum kr. varið til verkefn-
isins sem viðbót við þau verkefni
sem hafa verið ákveðin meðfjár-
lögum 2011.
Jón Gunnarsson alþingismaður
er fyrsti flutningsmaður tillögunn-
ar. Til að fjármagna verkefnið
verði gefin út ríkisskuldabréf sem
verði greidd á árunum 2016-2026.
„Nauðsynlegt er að setja aukinn
kraft í [...] framkvæmdir en í til-
lögu þessari er átt við vegafram-
kvæmdir að jarðgangagerð undan-
skilinni,“ segir í greinargerð.
„Eðlilegt er að samhliða þessu
átaki hefjist framkvæmdir við
jarðgangagerð eins og rætt hefur
verið. Fjölmörg verk eru tilbúin til
útboðs, mörg þeirra var búið að
bjóða út árið 2008 en framkvæmd-
um var frestað og öðrum sem voru
tilbúin til útboðs var slegið á
frest.“
Vikið er að hugmyndum um veg-
gjöld og segjast flutningsmenn
vera sammála um að ekki verði
gengið lengra í skattaálögum til
samgöngumála en nú er orðið.
Tillaga um
stórframkvæmdir
Jón
Gunnarsson
Alls þáðu 580 fjölskyldur aðstoð á
matarúthlutun Fjölskylduhjálpar í
Reykjavík í gær. Að sögn Ásgerðar
Jónu Flosadóttur, formanns Fjöl-
skylduhjálpar Íslands, hefur nánast
tekist að útrýma röðunum sem jafn-
an hafa myndast á miðvikudögum
með innleiðingu nýs miðakerfis.
„Við byrjum að úthluta númerum
kl. 10 um morguninn og fólk veit að
við úthlutum til 230 fjölskyldna á
klukkutíma.“ Óskað er eftir að
framvísað sé greiðsluáætlun frá
Tryggingastofnun og segir Ásgerð-
ur að í gær hafi komið í ljós að hjón
á staðnum fengu í sameiningu ríf-
lega 800.000 frá Tryggingastofnun.
Þeim var vísað frá. Fjölskylduhjálp
hefur óskað eftir að fá fisk að gjöf
frá útgerðarfyrirtækjum og ítrekar
Ásgerður þá ósk fyrir næstu viku.
Vísað frá Fjöl-
skylduhjálp
vegna tekna
Hin vinsælu afródansnámskeið í dans- og listasmiðju
Kramhússins eru í fullum blóma nú sem endranær.
Eins og sjá má nýta Íslendingarnir þennan sjóðheita
kost til að hrista af séryfirstandandi vetrarhret. Með
kraftmiklum dansinum leysist orka og gleði úr læð-
ingi við taktfastan trommuslátt.
Morgunblaðið/Ómar
Stíga afródansinn
af mikilli innlifun
Ráðgert er að nýr vígslubiskup í
Skálholtsumdæmi verði vígður á
Skálholtshátíð hinn 17. júlí. Frestur
til að tilnefna vígslubiskupsefni
rann út síðdegis í fyrradag og fór
kjörnefnd yfir tilnefningar á fundi
sínum í gær. Morgunblaðið greindi
frá því í byrjun mánaðar að fimm
prestar væru í kjöri. Að sögn Ragn-
hildar Benediktsdóttur, skrif-
stofustjóra Biskupsstofu, hefur
ekki bæst við þann lista. Ekki sé
loku fyrir það skotið að tilnefn-
ingar séu á leið til nefndarinnar í
pósti, en það sé hins vegar ólíklegt.
Póstkosning fer fram í byrjun
næsta mánaðar, og ráðgert að taln-
ing atkvæða fari fram 13. apríl.
Fimm í kjöri til
vígslubiskups
„Þetta er áfellisdómur yfir stjórnsýslu forsæt-
isráðuneytisins,“ segir Anna Kristín Ólafsdótt-
ir um úrskurð kærunefndar jafnréttismála.
Nefndin úrskurðaði að Jóhanna Sigurðar-
dóttir forsætisráðherra hafi brotið gegn
ákvæðum jafnréttislaga þegar karl var tekinn
fram yfir Önnu Kristínu í starf skrifstofustjóra
í ráðuneytinu. „Ég bíð bara eftir viðbrögðum,“
segir Anna Kristín. Kveðst hún ekki búin að
taka ákvörðun um framhald málsins af sinni
hálfu. Skaðabótamál sé einn möguleiki.
Hvorki náðist í forsætisráðherra né ráðu-
neytisstjóra forsætisráðuneytisins í gær til að
veita viðbrögð við úrskurðinum. Hins vegar
gaf ráðuneytið út tilkynningu þar sem sagði að
faglega hefði verið staðið að undirbúningi og
skipun skrifstofustjórans. Ráðuneytið hafi
unnið málið út frá þeirri forsendu að skylt
væri að ráða hæfasta umsækjandann, en kær-
andi hafi verið fimmti í röð í hæfnismati eftir
tvær umferðir viðtala við umsækjendur.
Hörð gagnrýni á þingi
Þingmenn Sjálfstæðisflokks gagnrýndu for-
sætisráðherra harðlega á Alþingi í gær vegna
málsins. Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir
sagði að staða Jóhönnu væri ekki aðeins neyð-
arleg heldur grafalvarleg. „Því er eðlilegt að
spyrja: Hvað verður gert annað en að senda
frá sér hrokafulla og aumingjalega yfirlýsingu
sem er ekkert annað en húmbúkk og yfir-
klór?“
Árið 2008 var Jóhanna, sem þá var félags-
málaráðherra, dæmd fyrir brot á stjórnsýslu-
lögum vegna ólögmætrar uppsagnar Sigurjóns
Arnar Þórssonar úr stöðu formanns stjórn-
arnefndar um málefni fatlaðra. Voru honum
dæmdar hálfrar milljónar krónu bætur.
Í kjölfar umræðunnar í gær sendi Arndís
Ósk Jónsdóttir, sjálfstætt starfandi mann-
auðsráðgjafi sem vann að ráðningarferlinu og
hæfismati umsækjenda, frá sér greinargerð
þar sem hún gagnrýnir úrskurðinn harðlega.
Hún segir að kærunefnd jafnréttismála hafi
mat embættismanna ráðuneytisins, umsagn-
araðila umsækjenda og ráðgjafa að engu.
Kærunefndin hafi kosið að líta alfarið framhjá
faglegum rökum og rannsóknum og telji sig
geta metið sjálfstætt hvers konar reynsla og
menntun henti þeim verkefnum sem skrifstof-
an sinnir.
Þannig hafi rannsóknir margstaðfest að það
að leggja huglægt mat á tegund menntunar og
reynslu og telja árin sem liggi þar að baki, spái
ekki fyrir um framtíðarframmistöðu í starfi.
Þá gagnrýnir Arndís skilgreiningu nefndar-
innar á hugtakinu „forystuhæfni“ sem og um-
fjöllun um tungumálakunnáttu.
„Þar til kærunefnd jafnréttismála getur
sýnt fram á hvaða fræðilegi bakgrunnur
stendur að baki mati nefndarinnar má líta svo
á að skilaboð hennar séu þau að á Íslandi eigi
ekki að vinna faglega að undirbúningi ráðn-
inga hjá hinu opinbera,“ segir Arndís.
„Ég bíð bara eftir viðbrögðum“
Staða forsætisráðherra „grafalvarleg“ Kærandi íhugar skaðabótamál Ráðuneytið segir faglega
staðið að ráðningu Kærunefnd jafnréttismála líti hjá faglegum rökum og niðurstöðum rannsókna
Þú tryggir fjölda fólks atvinnu
með því að lesa þetta blað!
SPILUM
SAMAN
www.spilumsaman.is
Takk!