Morgunblaðið - 24.03.2011, Side 11
DAGLEGT LÍF 11
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 24. MARS 2011
Fylltir smjördeigsbögglar koma sér víða mjög vel og
mér finnst stór kostur við þá hvað þeir eru auðveldir
í flutningum, það þarf ekki að raða þeim á bakka
heima, krossleggja svo puttana og vona að ekkert
raskist – nei, það er hægt að henda þeim ofan í
poka og raða þeim þegar komið er á veislustaðinn
(nema reyndar ef einhver hefur sest ofan á pokann,
það hefur komið fyrir mig).
Fylling í svona böggla getur verið næstum hvað
sem er og ef þeir eru alveg lokaðir er engin hætta á
að hún renni út. Ég vil reyndar oftast hafa bögglana
svolítið opna svo sjáist hvað er í þeim, finnst það
fallegra, og þess vegna klíp ég bara saman bláhornin
á deigferningunum. Þá opnast þeir dálítið þegar
deigið fer að þenjast út en samt yfirleitt ekki svo að
neitt renni úr þeim.
Þessi réttur er upplagður til að gera fyrirfram og
frysta en gera má ráð fyrir að hver uppskrift passi í
20-30 böggla.
Smjördeigsbögglar
smjördeig
egg til penslunar
Hitaðu ofninn í 200°C. Skerðu deigið í ferhyrninga,
um 8x8 cm (ef þú ert með frosnar deigplötur er
hæfilegt að fletja þær út þar til breiddin er 16 cm og
skera þær svo í tvennt). Settu um 1 tsk. af fyllingu á
miðjuna á hverjum deigbút, taktu um öll fjögur horn-
in og klíptu þau saman. Penslaðu bögglana e.t.v.
með eggi og bakaðu þá í miðjum ofni í um 15 mín-
útur.
Fylling í laxaböggla
100 g kotasæla
100 g reyktur lax
2 vorlaukar, grænu blöðin
nýmalaður pipar
svolítið salt
Settu kotasæluna í sigti eða grisju og láttu renna
vel af henni. Skerðu laxinn í litla bita og saxaðu vor-
laukinn smátt. Blandaðu kotasælu, laxi og vorlauk
saman í skál og kryddaðu með pipar og salti.
Fylling í kjúklinga- og beikonböggla
3-4 beikonsneiðar
50 g sveppir
1 lítill hvítlauksgeiri
100 g kjúklingakjöt, soðið eða steikt
75 g rifinn ostur, t.d. mozzarella
nýmalaður pipar
Steiktu beikonsneiðarnar þar til þær eru stökkar,
kældu þær og myldu eða saxaðu. Skerðu sveppina í
bita og steiktu þá í beikonfeitinni eða svolítilli olíu
ásamt smátt söxuðum hvítlauk. Skerðu kjúklinginn í
litla bita. Blandaðu köldum kjúklingi, beikoni, sveppum
hvítlauk og rifnum osti saman í skál og kryddaðu með
pipar.
Ljósmynd/Gísli Egill Hrafnsson
Bögglar Þægilegir og vel hægt að gera með góðum fyr-
irvara fyrir veisluna.
Bögglar
Á opinberu vefsíðu danska Sam-
keppnis- og neytendaráðsins er að
finna ítarlegar upplýsingar um neyt-
endarétt og hvaðeina annað sem
gæti gagnast hinum almenna neyt-
anda.
Til dæmis er góð umfjöllun um
hverju er mikilvægt að huga að áður
en ráðist er í innkaup á stórum sem
smáum hlutum eða þjónustu. Hægt
er að fletta upp í lista yfir þjónustu-
og vöruflokka og þegar komið er inn
á viðkomandi flokk má þar finna góð
ráð um það hverju ber að huga að,
gæðakannanir og -prófanir, umfjöllun
um notkun hlutarins og svo fram-
vegis.
Dæmi um þetta eru barnavagnar
en undir þeim flokki er að finna
greinar um hvernig best er að halda
slíkum vögnum við, hvaða gallar eru
algengastir í barnavögnum, að hverju
beri að huga áður en ráðist er í slík
kaup, öryggi barnavagna og ráðlegg-
ingar varðandi kaup á þeim í gegnum
netið. Sambærilega umfjöllun má
finna um allt milli himins og jarðar,
s.s. rafmagnstæki, barnavörur, útfar-
ir, apótek, netöryggi og svo mætti
lengi telja.
Þá er á síðunni ítarleg umfjöllun
um neytendarétt sem og kvörtunar-
og kærumöguleika þegar innkaupin
fara ekki eins og ætlað var í upphafi.
Sömuleiðis má finna á síðunni alls
kyns tengla sem gagnast geta hinum
almenna neytanda.
Vefsíðan www.forbrug.dk
Neytendur Að mörgu er að hyggja þegar ráðast á í innkaup á stóru sem smáu.
Léttir neytandanum innkaupin
Skannaðu kóðann
til að fara inn á
www.forbrug.dk
FERÐ ÞÚ FRÍTT Í
SÓLINA Í SUMAR?
LUKKUPOTTUR ÚRVALS ÚTSÝNAR
Þeir sem bóka sumarferðina sína fyrir 31. mars, eða hafa nú þegar
bókað, fara sjálfkrafa í Lukkupott Úrvals Útsýnar. Dregið verður
þann 31. mars og mun einn heppinn aðili og ferðafélagar hans í
bókuninni fá ferðina endurgreidda að fullu!*
*Ganga þarf frá greiðslu á bókun fyrir 31. mars til að vera með í Lukkupottinum. Verð miðast við að bókað sé á netinu.
Skelltu þér út!
Bókaðu ferðina þína á urvalutsyn.is
TENERIFE
á mann m.v. 2 fullorðna
og 2 börn í íbúð með 1
svefnherbergi á Parque
De Las Americas.
99.100kr.*
VERÐ FRÁ AÐEINS:
26. maí - 2. júní
ALMERÍA
á mann m.v. 2 fullorðna
og 2 börn í tvíbýli á 4 stj
Barcelo Cabo De Gata
með hálfu fæði!
108.577kr.*
VERÐ FRÁ AÐEINS:
17. - 24. júní
KANARÍ
á mann m.v. 2 fullorðna
í stúdíóíbúð á Las
Arenas um Páskana í
10 nætur.
128.550kr.*
VERÐ FRÁ AÐEINS:
16. - 26. apríl (Páskar)
BÓKAÐU FERÐINA ÞÍNA
FYRIR 31. MARS OG ÞÚ ERT
KOMIN(N) Í POTTINN!