Morgunblaðið - 24.03.2011, Side 40

Morgunblaðið - 24.03.2011, Side 40
„Þetta verkefni leggst vel í mig. Það verður krefjandi en jafnframt afar spennandi,“ sagði Ágúst Jóhannsson sem í gær var ráðinn tímabundið í starf landsliðsþjálfara kvenna í hand- knattleik. Ágústi er ætlað að búa ís- lenska landsliðið undir tvo leiki við Úkraínu í júní þar sem bitist verður um keppnisrétt á HM sem haldið verður í Brasilíu í desember. »1 Ágúst stýrir landsliðinu inn á HM í Brasilíu FIMMTUDAGUR 24. MARS 83. DAGUR ÁRSINS 2011 VEÐUR » 8 www.mbl.is 5 6 9 1 1 0 0 Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is Auglýsingar: augl@mbl.is Áskrift: askrift@mbl.is | sími 5691100 mbl.is: netfrett@mbl.is Í LAUSASÖLU 350 ÁSKRIFT 3990 HELGARÁSKRIFT 2500 PDF Á MBL.IS 2318 1. Partístelpan þénar milljónir 2. Andlát: Þorsteinn Pálmi … 3. Elizabeth Taylor látin 4. Hafa reynt að eignast barn í 13 ár »MEST LESIÐ Á mbl.is FÓLK Í FRÉTTUM  Orgelkvartettinn Apparat verður með tvenna tónleika á Sódómu Reykjavík, í kvöld og á morgun. Kvartettinn gaf út aðra plötu sína fyrir síðustu jól og var hún lofuð í há- stert af gagnrýnendum. Apparat Organ Quartet á Sódómu  Kunnur rúss- neskur fiðluleik- ari, Vladimir Spivakov, kemur fram ásamt fjór- um löndum sínum á tónleikum í Kristskirkju á morgun, föstu- dag, og hefjast þeir klukkan 20. Á efnisskránni eru verk eftir J.S. Bach. Kaþólska kirkjan á Íslandi hefur umsjón með tónleik- unum. »34 Spivakov og félagar leika verk eftir Bach  ÍT-ferðir, með málmhausinn Sigurð Sverrisson í broddi fylkingar, standa fyrir hópferð á þungarokkshátíðina Sweden Rock Festival í sumar. Judas Priest, White- snake og Ozzy Os- bourne verða á meðal listamanna sem þar koma fram en alls leika 60 sveitir á þrem- ur dögum. Ekki amalegt hausa- skak það. Hópferð á Sweden Rock Festival Á föstudag Hægviðri og skýjað, en dálítil rigning eða slydda suð- austantil. Hiti 0 til 7 stig, hlýjast syðst. Á laugardag, sunnudag og mánudag Hæg vestlæg átt með súld á vestanverðu landinu, en björtu eystra. Hiti 3-10 stig að deginum. SPÁ KL. 12.00 Í DAG Austan 8-13 m/s og víða dálítil væta, en snjómugga fyrir norðan og austan. Hlýnandi veður. VEÐUR Valsmenn tryggðu sér í gærkvöldi sæti í úrvals- deild karla í körfuknattleik í fyrsta sinn í átta ár þeg- ar þeir lögðu Þórsara í hreinum úrslitaleik sem háður var á Akureyri. Þar með léku strákarnir í Val sama leik og stelpurnar sem í fyrrakvöld tryggðu sér sæti í deild þeirra bestu eftir sigur á Stjörnunni. »3 Valsmenn upp í úrvalsdeildina „Kýpurbúar eru flestir af grísku bergi brotnir, blóð- heitir og áhuginn er mik- ill. Fótboltinn er eins og trúarbrögð hjá þeim,“ segir Haraldur Freyr Guðmundsson, fyr- irliði Keflavíkur, sem er eini íslenski knatt- spyrnumaðurinn sem leikið hefur í efstu deild knattspyrn- unnar á Kýp- ur. Íslenska landsliðið sækir Kýpurbúa heim í und- ankeppni EM á laugar- daginn. »4 „Fótboltinn er eins og trúarbrögð hjá þeim“ ÍÞRÓTTIR Skannaðu kóðann með símanum þínum og fylgstu með veðrinu á Guðni Einarsson gudni@mbl.is Króatíski skíðakappinn Ivica Koste- lic og „tengdasonur Íslands“ var krýndur heimsbikarmeistari karla í alpagreinum á skíðum á laugardag- inn var. Hann var á heilsuhóteli í Króatíu, ásamt Elínu Arnarsdóttur unnustu sinni, þegar Morgunblaðið náði tali af þeim. „Þetta eru mestu verðlaun sem hægt er að vinna í alpagreinum að mínu mati og keppikefli allra skíða- manna,“ sagði Kostelic. Hann kvaðst hafa stefnt að því undanfarið að sigra í heildarstigakeppni heimsbik- arkeppninnar. Á árum áður einbeitti hann sér meira að sviginu og tækni- legum atriðum skíðaíþróttarinnar. Eftir meiðsli sem hann varð fyrir lagði hann hraðagreinar á hilluna um tíma. Svo þegar hann fór að stefna að sigri í samanlögðu fór hann aftur að æfa brun og risasvig. „Eftir framfarir í þessum greinum sáum við að ég átti möguleika á að vinna heildarhnöttinn,“ sagði Koste- lic. Hann vann heimsmeistaratitil í svigi 2003 og silfurverðlaun í svigi á Ólympíuleikunum 2010 og eins í alpatvíkeppni 2006 og 2010. Hann hefur sigrað 18 sinnum í mótum til heimsbikarsins. Kostelic var mikið fagnað þegar hann sneri heim til Króatíu eftir sig- urinn í Lenzerheide í Sviss á laug- ardaginn var. „Fólk kom til mín úti á götu og óskaði mér til hamingju. Það var allt frá leikskólabörnum upp í háaldraða sem óskuðu mér til hamingju. Það virð- ast allir hafa fylgst með mér allt keppnis- tímabilið. Fólkið í hverfinu mínu sló upp móttökuhátíð og það kom mér mjög á óvart. Það var alveg frábært,“ sagði Kostelic. Hann sagði að Króatar gleddust með honum. Aðstaða til skíðaiðkunar í Króatíu er heldur dapurleg um þessar mund- ir og eina skíðalyftan sem var í lagi í vetur er nú biluð. Kostelic kvaðst vona að úr því yrði bætt og að sigur hans yrði ungum Króötum hvatning til að leggja sig fram við æfingar. Hann sagði að undanfarin ár hefðu fleiri börn og unglingar æft skíði í Króatíu en þegar hann og Janica systir hans, sem er margfaldur verð- launahafi í skíðaíþróttum, voru börn. „Það er ekkert ómögulegt í íþrótt- um,“ sagði Kostelic. „Vonandi eigum við eftir að eignast fleiri meistara í framtíðinni.“ Hann kvaðst stefna að þátttöku í vetrarólympíuleikunum í Sochi í Rússlandi árið 2014. „Það er ekkert ómögulegt“  „Tengdasonur Íslands“ er heims- bikarmeistari Reuters Heimsbikarmeistari Króatinn Ivica Kostelic kyssti verðlaunahnöttinn eftir að hann sigraði í heildarstigakeppni heimsbikarkeppni karla á skíðum. Hann á íslenska unnustu, Elínu Arnarsdóttur, og er því „tengdasonur Íslands“. „Króatar tóku rosa vel á móti hon- um. Það var fullt af fólki á flugvell- inum og þegar við komum heim var búið að skipuleggja óvænt- an gleðskap fyrir hann í hverf- inu. Það er mikið í blöðunum um þetta, enda frábær árangur fyrir Króata að vinna þessa mótaröð,“ sagði Elín Arnarsdóttir um heimkomu Ivica Kostelic, unnusta síns, eftir heimsbikarsigurinn í Sviss á laugardaginn var. Ivica og Elín búa í Zagreb í Kró- atíu. „Hann kann að segja „ég er tengdasonur Íslands“ á íslensku,“ sagði Elín og hló. Hún æfði sjálf og keppti á skíð- um á yngri árum og var m.a. í landsliði Íslands 2003-2005. Elín kvaðst hafa kynnst því hversu gríðarleg vinna liggur að baki góð- um árangri í skíðaíþróttinni. „Frábær árangur fyrir Króata“ IVICA KOSTELIC Á ÍSLENSKA UNNUSTU, ELÍNU ARNARSDÓTTUR Ivica Kostelic og Elín Arnarsdóttir.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.