Morgunblaðið - 24.03.2011, Blaðsíða 6

Morgunblaðið - 24.03.2011, Blaðsíða 6
Morgunblaðið/RAX Gott ástand „Í langan tíma hefur ekki verið jafn mikið af svo stórum fiski í stofninum.“ Ágúst Ingi Jónsson aij@mbl.is Fregnir af góðum þorskafla og góðu ástandi fisksins koma fiskifræðingum ekki á óvart. „Þetta er það sem stefnt hefur verið að með nýt- ingarstefnu og aflareglu og við erum að byrja að sjá árangur af því,“ segir Björn Ævarr Stein- arsson, sviðsstjóri á veiðiráðgjafarsviði Haf- rannsóknastofnunar. Togararalli er nýlokið, stofnmælingu að vori, og er fyrstu niðurstaðna að vænta í aprílbyrjun. Björn segir að með nýtingarstefnu í þorsk- veiðum sé miðað við að ná hámarksafkastagetu úr þorskstofninum til lengri tíma litið. Til skemmri tíma hafi stjórnvöld miðað við að hrygningarstofn verði ekki undir ákveðinni stærð 2015. Gert hafi verið ráð fyrir því í fyrra að aukning yrði í stofnstærðinni á þessu ári og það myndi væntanlega þýða einhverja aukn- ingu í aflamarki samkvæmt aflareglu næsta fiskveiðiár. „Samkvæmt okkar gögnum hefur veruleg aukning orðið á stærri fiski í stofninum á síð- ustu árum og fréttir að undanförnu af góðum aflabrögðum eru í samræmi við það,“ segir Björn Ævarr. „Í langan tíma hefur ekki verið jafn mikið af svo stórum fiski í stofninum. Þrátt fyrir að árgangar hafi verið tiltölulega litlir þá skilar eldri og stærri fiskur sér í veiðinni vegna þess að verulega hefur verið dregið úr sókn. Samkvæmt stofnmati hefur magn eldri fisks tvö- til þrefaldast á síðustu fimm árum eða svo.“ Björn sagði að engar nýjar vísbendingar væru um Grænlandsþorsk sem talið er að hafi aukið stofnstærð um 50 þúsund tonn á Íslands- miðum í fyrra. Talið væri að rek hefði orðið yfir til Grænlands úr árganginum frá 2003. Búist hefði verið við honum til baka 2009 og 2010 og virtist það hafa gengið eftir. Meira af karfa á Íslandsmiðum Aðspurður um fréttir frá sjómönnum um aukinn gullkarfa á Íslandsmiðum sagði Björn að hann útlokaði ekki að þær ættu við rök að styðjast. Einhver nýliðun væri greinilega í karfastofninum og þar virtist vera karfi á ferð- inni sem ekki hefði vaxið upp sem ungviði við Ís- land. Hugsanlega væri eitthvert flæði á milli Ís- lands og Grænlands. Fleiri atriði spiluðu þó inn í fréttir um aukna karfagengd. Þessi atriði skýrðust væntanlega betur þegar niðurstöður úr togararalli lægju fyrir og önnur gögn sem notuð eru við mat á stærð stofnsins. Veruleg aukning á stærri fiski  Fregnir af góðum þorskafla undanfarið og góðu ástandi fisksins koma fiskifræðingum ekki á óvart  Talið að Grænlandsþorskur hafi aukið stofnstærð á Íslandsmiðum um 50 þúsund tonn í fyrra 6 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 24. MARS 2011 Una Sighvatsdóttir una@mbl.is „Okkur hjá CCP finnst gaman að geta haldið þessa hátíð hér og kynnt þetta fyrir samlöndum okkar þannig að fólk fái aðeins nasaþef af því út á hvað þetta gengur og geti verið stolt af því hvað þetta er ár- angursríkt og skemmtilegt fyrir- tæki,“ segir Diljá Ámundadóttir, framleiðandi hjá tölvuleikjafyrir- tækinu CCP. Hið árlega EVE Fanfest, hátíð og ráðstefna CCP, hefst í Reykjavík í dag og eru yfir 1.200 erlendir gest- ir komnir hingað til lands af því til- efni, bæði spilarar sem blaðamenn. Við þetta bætast íslenskir gestir, en met var slegið í miðasölu í ár og bú- ist við allt að 3.000 manns á fjöl- mennustu viðburðina. Diljá áætlar að viðburðurinn skili um 300 milljónum inn í þjóðarbúið. „Við stefnum alltaf á hærri tölur hvað varðar erlenda gesti og erum í samstarfi við Icelandair um að bjóða þessu fólki upp á þessar hefð- bundnu ferðir, Gullna hringinn og í Bláa lónið til dæmis. Því vilj- um líka að fólk sé hér í lengri tíma, upplifi landið og skilji eftir sig peninga,“ segir Diljá og hlær. Fjölmargir viðburðir eru um allan bæ en aðal- dagskráin fer fram í Laug- ardalshöll, sem hefur verið skreytt ríkulega. Hátíðinni lýkur svo með allsherjar partíi þar sem aðalnúmerið í ár verður þýska plötusnúðateymið Booka Shade. „Við tökum nýja hlutann af Laug- ardalshöll og breytum honum í helj- arinnar næturklúbb. Það er rosa- lega mikið lagt upp úr þessu.“ Þetta er í sjöunda sinn sem EVE Fanfest fer fram í Reykjavík. Fyrst og fremst er um að ræða fögnuð og uppskeruhátíð leikmanna en auk þess verður hulunni svipt af fram- tíðaráætlunum fyrirtækisins, í lyk- ilræðu forstjórans, Hilmars Veigars Péturssonar. „Þetta er orðinn svo stór bransi þessi leikjaiðnaður og margir bíða eftir tíðindum. Þessi heimur lá alveg á hliðinni á síðasta Fanfesti, þegar við kynntum nýja tækni til að tengja saman tvo sýnd- arveruleika.“ 1.200 erlendir gestir á tölvuleikjahátíð CCP  300 milljónir í þjóðarbúið  Framtíðaráætlanir kynntar Ýmsir sérstakir viðburðir eiga sér stað í tengslum við EVE Fanfest- hátíðina, þar á meðal verða svonefndir skákhnefaleikar haldnir í fyrsta sinn á Íslandi. Tveir starfsmenn í þrívíddarteymi CCP, þeir Björn Jónsson og Daníel Þórðarson, ætla að keppa í skákhnefa- leikum í Laugardalshöll á föstudaginn og verður frítt inn á þennan lokaviðburð. Markmiðið með leikunum er m.a. að safna fyrir Sjón- arhól, sem veitir ráðgjöf fyrir aðstandendur barna með lang- varandi fötlun eða veikindi, og geta áhorfendur heitið á leik- mennina. Keppt verður í lotum og er byrjað á skáklotu í 4 mínútur og því næst er hnefaleikalota í 3 mínútur. Skákhnefaleikarnir verða sendir út beint á netinu og talið líklegt að 10 til 20 þúsund Eve-spilarar um allan heim muni fylgjast með bardaganum. Keppt í skákhnefaleikum SKÁKMEISTARI OG ÍSLANDSMEISTARI Í HNEFALEIKUM MÆTAST Morgunblaðið/Árni Sæberg Búningar Sýndarveruleikinn í EVE Online er hannaður allt frá klæðnaði upp í heilu pláneturnar. Það fyrrnefnda tekur einnig á sig fast form í raunheimum eins og þessir búningar sem leikmenn skoðuðu í Laugardalshöll í gær. Skannaðu kóðann til að sjá myndskeið af skákhnefaleikum Kristján Jónsson kjon@mbl.is Grétar Eiríksson, yfirkjörstjórnar- fulltrúi í Reykjavíkurkjördæmi suður, hefur sent allsherjarnefnd Alþingis samantekt um ágalla á kosningum til stjórnlagaþings en Vigdís Hauksdóttir, þingmaður Framsóknarflokksins, vitnar í þessa samantekt í grein í Morg- unblaðinu á mánudag. Grétar gagnrýnir hart ýmis atriði í grein sinni. Hann segir m.a. að ógerlegt hafi reynst fyrir kjörstjórn að framfylgja 5. gr. laga um rafræna kjörskrá og fylgjast með því hvort kjósandi hefði kosið bæði utan kjörfundar og á kjörstað. Grétar ræðir um kjörkassana sem hverfis- og undirkjörstjórnir hafi séð um að setja saman. „Inn- siglum á kjörkassa var dreift og fyrirmæli gefin um að innsigla bæri kjörkassa að ofan. Ekki var tilgreint að kassinn væri einnig opnanlegur neðan frá. Sumar kjör- stjórnir gripu til þess að eigin frumkvæði að innsigla kjörkassa að neðan líka, en það var mikill minnihluti. Megnið af kjörseðlun- um var því sennilega óvarið frá upphafi kosninga uns þeir voru komnir í hendur landskjörstjórn- ar.“ Grétar segir mikið hafa verið um vafaatkvæði. „Ástæðan var fyrst og fremst tækni- leg en skannarn- ir náðu ekki að lesa mjög stóran hluta atkvæða. Af þeim sökum bárust afar mörg vafaatkvæði kjörstjórnum til fyrsta úrskurðar. Þetta skapaði mikil vandræði, enda vorum við ekki á neinn hátt und- irbúin fyrir þessa holskeflu.“ „Skapandi“ úrlestur á tölum Hann ræðir einnig um innslátt- arfólk sem hafi verið látið skrifa undir trúnaðareiða en Grétar efast um að fólkið hafi fengið mikla kennslu áður en það hófst handa. Þekkingarleysi þess hafi komið niður á vönduðum vinnubrögðum. „Sumt innsláttarfólkið stundaði „skapandi“ úrlestur, giskaði á töl- ur, og breytti jafnvel svo að pass- aði við frambjóðanda,“ segir Grét- ar. „Fyrir kom að eingöngu síðasta tala var „misskráð“ hjá kjósanda og tók innsláttarfólkið sér þá stundum vald til að setja inn „rétta“ tölu.“ Ástráður Haraldsson, formaður landskjörstjórnar, sagðist aðspurð- ur hafa heyrt um samantekt Grét- ars en ekki lesið hana og ekki heldur grein Vigdísar. Hann vildi því ekki tjá sig um málið í gær. „Holskefla vafaatkvæða“ Settu þig í stellingar 20% afsláttur af stillanlegum heilsurúmum Faxafeni 5 • Sími 588 8477

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.