Morgunblaðið - 24.03.2011, Side 14
14 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 24. MARS 2011
*Verð á mann miðað við flug fram og til baka til Reykjavíkur, Egilsstaða, Akureyrar eða Ísafjarðar.
SKEMMTUM OKKUR
INNANLANDS
FLUG OG GISTING
Í EINA NÓTT
FRÁ AÐEINS 21.030 KR.*
FLUGFELAG.IS
ÍS
LE
N
SK
A/
SI
A.
IS
/F
LU
53
86
4
03
/1
1
Hringdu í 570 3030 og skelltu þér á skíði.
SVIÐSLJÓS
Rúnar Pálmason
runarp@mbl.is
„Við erum mjög slegin og svo til orð-
laus yfir þessari niðurstöðu sem horf-
ir algjörlega framhjá öllum sanngirn-
issjónarmiðum,“ segir Arney Einars-
dóttir, ein þeirra sem höfðuðu mál
gegn Reykjavíkurborg, þar sem hún
og eiginmaður hennar fengu ekki að
skila lóð í Úlfarsárdal. Þau töpuðu
málinu í Héraðsdómi Reykjavíkur,
eins og greint var frá í Morgun-
blaðinu í gær. Arney segist ekki síður
slegin yfir háttalagi núverandi borg-
arstjórnarmeirihluta, en borgar-
fulltrúar Samfylkingarinnar hafi á
sínum tíma staðið með lóðarhöfum og
m.a. bókað um það tvívegis í borg-
arráði.
Fjölskylda Arneyjar og sex aðrar
fjölskyldur fóru í mál gegn Reykja-
víkurborg og kröfðust þess að þau
fengju að skila lóðum (bygging-
arrétti) undir eitt einbýlishús og þrjú
parhús í Úlfarsárdal. Lóðirnar voru
seldar í útboði en ekki úthlutað.
Hefðu þau hins vegar fengið lóðirnar
úthlutaðar hefðu þau átt tvímæla-
lausan rétt á að skila þeim og fá end-
urgreitt með verðbótum.
Fengu ekki lóð í Kópavogi
Arney og eiginmaður hennar eiga
samtals fjögur börn. Arney segir að
þau hafi byrjað að sækjast eftir
byggingarlóðum í Kópavogi, þar sem
þau búa enn, árið 2005. „Við fengum
náttúrlega aldrei lóð af því að ríka og
fræga fólkið fékk þær. Síðan hélt
verð á lóðum áfram að hækka og
hækka. Þetta var hluti af bólunni og
sveitarfélögin tóku þátt í að búa hana
til með því að selja lóðir á upp-
sprengdu verði. Borgin er ekki að
axla sinn hluta af ábyrgð sinni á ból-
unni með því að koma svona fram við
okkur,“ segir hún.
Þau keyptu loks lóðina í Úlfarsár-
dal vorið 2007 en voru ekki byrjuð að
byggja þegar efnahagskerfi landsins
hrundi haustið 2008. Arney segir að
nú séu allar forsendur fyrir því að
byggja á lóðinni brostnar. Verð á
íbúð þeirra í Kópavogi, sem átti að
fjármagna bygginguna að stórum
hluta, hafi lækkað. Hún hafi raunar
verið til sölu frá ársbyrjun 2008 en
ekkert tilboð borist. Á sama tíma hafi
byggingarvísitala snarhækkað, verð-
bólga aukist og skattar hækkað.
Sumir í hópi þessara sjö fjölskyldna
hafi misst vinnuna, sumir þurft að
flytja út á land til að sækja vinnu og
ein fjölskylda sé flutt úr landi. „Það
væri glapræði af okkar hálfu að ætla
að byggja.“
Tóku við úthlutuðum lóðum
Meðal þess sem kemur fram í
dómnum, sem er langur og ítarlegur,
er að 15. maí 2007, sex dögum eftir að
Arney og eiginmaður hennar keyptu
lóðina, voru nýjar reglur um úthlutun
íbúðarhúsalóða samþykktar í borg-
arstjórn. Samkvæmt þeim á að hætta
að bjóða út lóðir heldur skal þeim út-
hlutað á föstu verði. Jafnframt er til-
greint að ef lóðarhafi hætti við að
byggja skuli hann skila lóðinni aftur
til borgarinnar og fá endurgreitt með
verðbótum. Í reglum sem voru sam-
þykktar 20. nóvember 2008 var sam-
þykkt að þeim sem hefði verið út-
hlutað lóðum á föstu verði á árunum
2007 og 2008 yrði áfram heimilt að
skila lóðum og fá endurgreiðslu.
Einnig var samþykkt ályktun undir
yfirskriftinni „Útboðslóðir 2006“ þar
sem kemur fram að lóðarhafi sem
hefði fengið lóð á grundvelli útboðs
gæti ekki skilað henni „enda hefði
slíkt ekki [verið] í upphaflegum skil-
málum“. Arney bendir hins vegar á
að hvergi komi fram í skilmálunum
að ekki sé heimilt að skila lóðum.
Hún segir að hvorki sér né öðrum
lóðarhöfum hafi verið kunnugt um
þennan mikla mun á réttarstöðu
þeirra sem fengu úthlutað og þeirra
sem keyptu útboðslóðir. Í dómnum
virðist þó sem að vissu leyti sé tekið
undir málflutning Arneyjar og hinna
lóðarhafanna. Segir svo í honum:
„Ljóst er að hér er aðeins um tvær
mismunandi aðferðir að ræða við sölu
byggingarréttar og skiljanlegt að
fyrir kaupendur slíks réttar sé erfitt
að gera sér grein fyrir af hverju mis-
munandi reglur eigi að gilda um
þessi atriði. Enn skiljanlegra er það
þegar þessum ólíku aðferðum hefur
verið beitt við úthlutun lóða í sama
hverfi þannig að sumum lóðum [sé]
skilað en [Reykjavíkurborg] hafni
viðtöku annarra lóða.“
Arney bætir við að sér finnist sér-
lega athugavert að þeir sem höfðu
keypt lóðir í útboði og gefið út
skuldabréf til Reykjavíkurborgar, en
ekki staðið í skilum, hafi fengið að
skila lóðunum án frekari eftirmála.
„Það borgar sig ekki að borga borg-
inni,“ segir Arney. Lóðarhafar eru að
íhuga áfrýjun til Hæstaréttar. Máls-
kostnaður Arneyjar og fjölskyldu er
nú þegar orðinn um 1,5 milljónir.
Blés í bóluna en
axlar ekki ábyrgð
Sjö fjölskyldur sem keyptu útboðslóðir fá ekki að skila þeim til borgarinnar samkvæmt dómi
Morgunblaðið/Golli
Réttur Fjölskyldurnar vilja fá að skila fjórum lóðum við Iðunnarbrunn í Úlfarsárdal. Borgin segir nei.
Keyptu útboðslóð í Úlfarsárdal og fá því ekki að skila
Borgin hafi ýtt undir fasteignabólu en þau sitji í súpunni
Fleiri en lóðarhafarnir sjö við Iðunn-
arbrunn eru í málaferlum vegna
lóðaskila og málefnið hefur töluvert
verið til umræðu í borgarstjórn og
borgarráði. Hinn 20. maí 2010,
nokkrum dögum fyrir borgarstjórn-
arkosningar, bókaði Samfylkingin
út af málinu í borgarráði. Flokk-
urinn hefði alla tíð setið hjá þegar
meirihlutinn hefði neitað fólki og
fyrirtækjum um lóðaskil og bókað
fyrirvara sína á þeim vinnubrögðum
sem viðhöfð hefðu verið, sem væru
afar hæpin út frá jafnræðisreglu.
„Það brýtur gegn almennri réttlæt-
iskennd að sum fyrirtæki og sumir
einstaklingar hafi haft möguleika á
að skila lóðum og fengið endur-
greiðslur, en aðrir hafi fengið synj-
un og verið vísað á dýra og tíma-
freka dómstólaleið,“ segir þar. Ekki
hefði verið farið að úrskurðum sam-
gönguráðuneytisins sem taldi
ákvarðanir Reykjavíkurborgar
ólögmætar. Fjárhagslegir skamm-
tímahagsmunir borgarinnar væru
taldir ofar hagsmunum þeirra sem
vísað væri á dómstólana.
Fulltrúar þáverandi meirihluta
Sjálfstæðisflokks og Framsókn-
arflokks bókuðu á móti að það væri
ábyrgðarhluti ef Reykjavíkurborg
tæki við og endurgreiddi lóðir án
þess að það væri skylt.
Arney Einarsdóttir segir að hún
hafi reynt að ná í Dag B. Eggerts-
son, oddvita Samfylkingarinnar, frá
því eftir kosningar, bæði með því að
senda honum tölvuskeyti og hringja,
en ekki tekist. Hún hefur heldur
ekki fengið svar við bréfi sem hún
afhenti Jóni Gnarr borgarstjóra á
fundi með honum í fyrrasumar.
Ekki náðist í Dag B. Eggertsson,
oddvita Samfylkingarinnar í borg-
arstjórn, vegna málsins í gær.
Dómstólaleiðin var farin
Í byrjun júní 2010, eftir borg-
arstjórnarkosningarnar sagði Einar
Örn Benediktsson, þá verðandi
borgarfulltrúi Besta flokksins, í út-
varpsþætti á Bylgjunni að hann væri
fylgjandi því að leyfa kaupendum út-
boðslóða að skila þeim. Í samtali við
Morgunblaðið í gær sagði hann að
þetta hefði verið svar við spurningu
konu sem hefði hringt. Hann hefði
sagst vera fylgjandi skilum en málið
þyrfti að fara í þann farveg sem
þyrfti. „En ef dómstólaleiðin er far-
in, þá er búið að fara dómstólaleið-
ina. Það er lítið sem ég get bætt við
það,“ sagði hann. „Þetta er nið-
urstaðan.“
Braut gegn réttlæt-
iskennd í maí 2010
Dagur B. Eggerts-
son
Einar Örn Bene-
diktsson
Lágmark 10,5 millj.
» Lóð Arneyjar og fjölskyldu
var auglýst í janúar 2006.
» Reykjavíkurborg leitaði þá
eftir kauptilboðum í bygging-
arrétt.
» Lágmarkssöluverð var 10,5
milljónir.
» Lóðin var fyrst seld á 11,8
milljónir.
» Arney og eiginmaður hennar
keyptu lóðina af fyrsta kaup-
anda um ári síðar á 14 millj-
ónir.
» Lánið vegna lóðarinnar hef-
ur verið í frystingu frá haustinu
2008 og Arney segir allar for-
sendur brostnar.
Nýbygging Hús hafa risið í Úlfars-
árdal en ekki er búið að klára öll.