Morgunblaðið - 24.03.2011, Side 29

Morgunblaðið - 24.03.2011, Side 29
MINNINGAR 29 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 24. MARS 2011 Raðauglýsingar Nauðungarsala Uppboð Framhald uppboðs á eftirfarandi eign verður háð á henni sjálfri, sem hér segir: Ás, fnr. 210-5365, Hvalfjarðarsveit, þingl. eig. Sigurbjörn Þ. Guð- mundsson, gerðarbeiðendur Frjálsi fjárfestingarbankinn hf., Hval- fjarðarsveit og Vörður tryggingar hf., þriðjudaginn 29. mars 2011 kl. 10:00. Sýslumaðurinn í Borgarnesi, 23. mars 2011. Stefán Skarphéðinsson, sýslumaður. Uppboð Framhald uppboðs á eftirfarandi eignum verður háð á þeim sjálfum, sem hér segir: Ármúli 23, 201-2771, Reykjavík, þingl. eig. Neðrihlíð ehf., gerðar- beiðendur Arion banki hf. ogTryggingamiðstöðin hf., mánudaginn 28. mars 2011 kl. 14:30. Bergstaðastræti 25b, 200-7067, Reykjavík, þingl. eig. Völundur Björns- son, gerðarbeiðandi Lífeyrissj. starfsm. rík. B-deild, mánudaginn 28. mars 2011 kl. 13:30. Blöndubakki 20, 204-7556, Reykjavík, þingl. eig. Valur Júlíusson og Aðalbjörg Jóna Björnsdóttir, gerðarbeiðandi Íslandsbanki hf., mánu- daginn 28. mars 2011 kl. 10:30. Jörfabakki 6, 204-8257, Reykjavík, þingl. eig. Eva Dögg Steingríms- dóttir, gerðarbeiðendur Íslandsbanki hf. og Jörfabakki 6, húsfélag, mánudaginn 28. mars 2011 kl. 11:00. Lindargata 14, 200-3040, Reykjavík, þingl. eig. Sigurður Rúnar Ásgeirsson, gerðarbeiðendur Mekka Wines & Spirits hf. og Vörður tryggingar hf., mánudaginn 28. mars 2011 kl. 14:00. Sýslumaðurinn í Reykjavík, 23. mars 2011. Uppboð Uppboð munu byrja á skrifstofu embættisins að Skógar- hlíð 6, Reykjavík, sem hér segir, á eftirfarandi eignum: Brautarholt 18, 201-0740, Reykjavík, þingl. eig. Brautarholt 20 ehf., gerðarbeiðandi Reykjavíkurborg, mánudaginn 28. mars 2011 kl. 10:00. Brautarholt 20, 201-0742, Reykjavík, þingl. eig. Brautarholt 20 ehf., gerðarbeiðandi Reykjavíkurborg, mánudaginn 28. mars 2011 kl. 10:00. Brúnastaðir 10, 224-0053, Reykjavík, þingl. eig. Hjörtur Líndal Jóhannsson og Bergþóra Andrea Hilmarsdóttir, gerðarbeiðendur Byko ehf., Íbúðalánasjóður og NBI hf., mánudaginn 28. mars 2011 kl. 10:00. Eyjabakki 14, 204-7347, Reykjavík, þingl. eig. Bjarni Bjarnason og Hrefna Björk Pedersen, gerðarbeiðandi Íbúðalánasjóður, mánudaginn 28. mars 2011 kl. 10:00. Seljabraut 24, 205-5653, Reykjavík, þingl. eig. Guðrún Sigríður Stefánsdóttir og Garðar Birgir Þorvaldsson, gerðarbeiðendur Frjálsi fjárfestingarbankinn hf., Seljabraut 24, húsfélag ogTrygginga- miðstöðin hf., mánudaginn 28. mars 2011 kl. 10:00. Skriðusel 6, 205-4268, Reykjavík, þingl. eig. Axel Örn Bragason, gerðarbeiðendur Halldór Jónsson ehf., Íslandsbanki hf. og Söfnunarsjóður lífeyrisréttinda, mánudaginn 28. mars 2011 kl. 10:00. Sólheimar 23, 202-1530, Reykjavík, þingl. eig. GÖH ehf., gerðar- beiðendur Íbúðalánasjóður og SpKef sparisjóður, Ísafirði, mánu- daginn 28. mars 2011 kl. 10:00. Stórhöfði 33, 224-7491, Reykjavík, þingl. eig. S33 ehf., gerðarbeið- endur Frjálsi fjárfestingarbankinn hf. ogTryggingamiðstöðin hf., mánudaginn 28. mars 2011 kl. 10:00. Strandasel 6, 205-4669, Reykjavík, þingl. eig. María Ósk Jónsdóttir, gerðarbeiðendur Íbúðalánasjóður og Reykjavíkurborg, mánudaginn 28. mars 2011 kl. 10:00. Tjarnarmýri 13, 206-8499, Seltjarnarnesi, þingl. eig. Brynja Björg Bragadóttir, gerðarbeiðandi Lífeyrissj. starfsm. rík. A-deild, mánu- daginn 28. mars 2011 kl. 10:00. Vesturberg 100, 205-0534, Reykjavík, þingl. eig. Þórdís Þorvaldsdóttir, gerðarbeiðandi Íbúðalánasjóður, mánudaginn 28. mars 2011 kl. 10:00. Sýslumaðurinn í Reykjavík, 23. mars 2011. það besta var nú samt að þú sparaðir aldrei hrósin, þú slóst manni gullhamra alveg hægri vinstri og jafnvel þótt maður ætti þá ekki skilda, þú ert til dæmis eini maðurinn sem hefur sagt að ég sé góður bílstjóri, sagðir alltaf að þér liði svo vel í bíl með mér, ég væri svo örugg. Það er sárt að hugsa til þess að ég hitti þig ekki fljótt aftur, elsku afi, en það er huggun að vita að nú eruð þið amma sam- an á ný. Ég kveð þig með mikl- um söknuði í hjarta, afi minn. Takk fyrir allt og við sjáumst síðar. Þín Inga Rún. Afi minn tók að sér miklu stærra hlutverk en bara afa- hlutverkið þegar ég fæddist. Hann tók að sér tvö hlutverk, hann varð í senn afi og ímynd föður. Frá afa hef ég skapið, hvort sem því er að kenna að við vor- um bæði fædd í ljónsmerkinu eða þeirri gömlu sögn að ungur nemur gamall temur. Afi var maðurinn sem dekraði mig þeg- ar ég sætti mig ekki við það sem mamma eða amma sögðu, hann var maðurinn sem tók á þeim sem datt í hug að stríða mér, með góðum árangri, og hann var maðurinn sem synti með mig á bakinu í utanlands- ferðinni þegar ég var fjögurra ára. Afi minn var einstakur mað- ur fram á síðasta dag. Hann var lífsglaður og hlakkaði til hvers dags, sem gerir það hlutverk að kveðja hann ennþá erfiðara. Hann og amma höfðu ákveðið hlutverk í hjónabandinu, amma sá um heimilið og afi um bíl- skúrinn og bílinn. Þegar amma féll frá sá afi um heimilið eins vel og hann hafði hugsað um bílskúrinn. Hann ákvað að læra að elda rúmlega 85 ára gamall og naut þess að læra nýjar upp- skriftir. Afi minn var maður sem margur gæti tekið sér til fyr- irmyndar, hann var jákvæður og kvartaði aldrei. Hann dans- aði með gamla fólkinu, hann heimsótti vini sína reglulega og gekk heilsubótargönguna sína nokkrum sinnum í viku, beinni í baki og léttari á fæti en menn mörgum árum yngri en hann. Afi sannaði það að aldur er af- stæður. Afi eyddi nokkrum dögum af síðasta sumri ævi sinnar á því að keyra einsamall hringinn í kringum landið, hann var stolt- ur þegar hann lauk förinni. Mamma beið við símann áhyggjufull seint að kveldi á síðasta degi fararinnar, spennt eftir að heyra í gamla mann- inum. Þegar afi hringdi og sagðist vera kominn heim spurði mamma hann hvort hann væri ekki þreyttur eftir að hafa keyrt frá Egilsstöðum, þá svar- aði afi því að hann væri ekki þreyttur og ætlaði að drífa sig að þrífa bílinn áður en hann færi að sofa. Ég hringdi alltaf í afa nokkr- um mínútum áður en American Idol byrjaði í sjónvarpinu til að minna hann á einn af hans uppáhaldsþáttum, síðan var þátturinn ræddur við matar- borðið næsta kvöld. Afa verður sárt saknað við matarborðið á laugardagskvöldum og erfitt verður að fylla skarð hans. Afi minn óskaði þess að fá að deyja í stólnum sínum og hann komst ansi nálægt því. Í dag kveð ég afa minn og vil þakka honum fyrir mig, manninum sem var mér sem faðir. Þín dótturdóttir, Kristín Stefanía. Mér finnst eitthvað svo skrít- ið að rita þessi orð, eitthvað svo ótímabært, að hugsa til þess að afi sé farinn. Það var ekkert sem benti til þess að þessi kafli í okkar lífi væri að ganga í garð, að það væri komið að því að kveðja hann afa, því þrátt fyrir háan aldur var hann alltaf svo hress. Hann afi minn var flottur kall, ef ekki sá allra flottasti. Rúntaði um á nýbónuðum bíln- um, klæddur í Hugo Boss, mjög líklega að fara að dansa. Þetta lýsir honum afa mínum nokkuð vel, hann var einn mesti snyrti- pinni sem ég hef á ævinni kynnst. Ég man það vel þegar ég var lítill og fór til ömmu og afa í hádegismat eftir skóla, það var sama hvað var á boðstólum, þá var aldrei langt í hann afa og ryksuguna hans, það mátti sko alls ekki skilja eftir sig mylsnu á gólfinu, nei, það kom sko ekki til greina. Þessi snyrti- mennska sást hvað best á bíl- unum hans, sem hann dekraði við eins vel og hægt er að dekra við bíla, þeir voru alltaf eins og nýir, hann meira að segja gekk svo langt að bóna þá reglulega með Mjallarbóni, sem meira að segja mér, 25 ára gömlum stráknum, finnst fullmikið púl. Mér finnst rosalega skrítið að hugsa til þess að það verði enginn afi við matarborðið á laugardaginn, að sætið verði tómt. Hann afi var góður mað- ur, maður sem ég gat alltaf treyst á, sama hvað, maður sem á eftir að skilja eftir sig stórt skarð í mínu lífi, maður sem ég leit upp til. „Sæll elskan mín“ er sú kveðja sem afi notaði mest, og með þessum orðum vil ég kveðja þennan meistara, Og þó það reynist sárt að skilja við þig hér, ég þakka vil þér. Ljúflingslundina, gleðistundirnar. (Ásgeir Aðalsteinsson.) Sæll, elskan mín. Karl Daníel. Öðlingurinn Magnús Þór hef- ur nú yfirgefið okkur á 93. ald- ursári. Ekki er öllum gefið langlífi og því síður að vera svona heilsuhraustur eins og hann var. Laugardaginn 12. mars vor- um við Lúlli að koma úr Há- holtinu og beygðum sem leið lá inn á Hringbrautina og á móti okkur kom Magnús á sínum fína bíl og ég hafði á orði hvað hann liti vel út eins og alltaf. Kynni okkar eru orðin ansi löng og alltaf faðmaði hann mig og kyssti og spurði um börnin þegar maður hitti hann. Hann var maðurinn sem hjúkraði Kristínu sinni í hennar veikindum eins lengi og auðið var. Á lífsleiðinni kynnist mað- ur mörgum og við fjölskyldan þökkum löng kynni við Magnús sem við kveðjum í dag og Krist- ínu sem farin er á undan, þau voru einstök bæði tvö og skilja eftir sig stóran hóp afkomenda. Elsku Einar, Grétar, Gauja og fjölskyldur, innilegar samúðar- kveðjur frá okkur öllum. Sigrún, Lúðvík og fjölskylda. Hjartkær vinur okkar Magn- ús Þór er látinn og skilur eftir sáran söknuð í hjörtum allra sem þekktu hann. Falleg sál í hraustum líkama, og ótrúlega unglegur þrátt fyrir árin rúm- lega 92. Brosandi breitt með blik í augum heilsaði hann með því að spyrja, hvað segirðu elskan mín, eru ekki allir frísk- ir? Þessu fylgdi ávallt hlýtt faðmlag og koss á kinn, Maggi alltaf jákvæður og hress. Rúm þrjátíu ár eru síðan við kynntumst þeim sæmdarhjón- um Magnúsi og Kristínu, er við gerðumst leigjendur í húsi þeirra, Sólvallagötu 9. Kristín var húsmóðir af gamla skólan- um, bakaði pönnsur og kleinur af einstakri list og á undra- hraða, meðan Maggi horfði kankvís á líkt og enskur lord, kallaði eftir meira tei í bollann sinn og spurði tíðinda. Síðan var hann þotinn út til að þvo bílinn, því bíladellan var hans ástríða og hann mikill Saab- maður. Árin liðu, hjónin fluttu í Hornbjarg, hús eldri borgara og undu vel sínum hag. Maggi gerðist umsjónarmaður á tann- læknastofu Einars sonar síns. Var tíður gestur í Sparisjóðn- um, dáður af starfsfólkinu þar sem saknar hans nú sárt. Fyrir allnokkrum árum lést Stína eft- ir nær sextíu ára farsæla sam- búð og varð honum harmdauði. Maggi lét þó ekki bugast held- ur hélt áfram af bjartsýni og dug. Fór í sína daglegu göngu- túra snemma morguns og teyg- aði dýrmætt súrefnið. Við vin- irnir tókum að ferðast saman, tveir jafningjar og sálufélagar, þrátt fyrir nærri fjörutíu ára aldursmun. Ókum til skiptis, hann hratt en ég hægt og vor- um ætíð sammála. Þarna sagði hann mér margt frá gömlum tíma og trúði mér jafnframt fyrir söknuðinum yfir að hafa ekki kynnst móður sinni, en hann var gefinn í fóst- ur tveggja ára gamall. Eins minntist hann þeirrar djúpu sorgar er yngri bróðir hans dó af slysförum í fangi hans. Sú lífsreynsla markaði hann mjög og var sár sem aldrei greri að fullu. Við fórum Strandirnar í yndislegu veðri og nutum ang- anar sumarsins og fegurðar Húnaflóa þar sem fjöllin spegl- uðust í sjónum og himinn og haf urðu eitt. Þessa nótt er við sváfum saman í herbergi á Hólmavík vorum við sammála um að Guð væri til og að hann væri góður. Seinna fórum við tvisvar saman til Barcelona og hann smakkaði Sangria og varð ennú léttstígari. Maggi var frá- bær ferðafélagi og hafði ynd- islega nærveru, lifði vel og naut lífsins. Við sjáum hann fyrir okkur svo beinan í baki, glerfínan líkt og klipptan út úr tískublaði. Hallmælti engum og var óspar á hrós og hvatningu. Skrifaði fagrar greinar um látna sam- ferðamenn og betri hugvekjur en flestir prestar. Nýja svarta bílinn, sem hann keypti sl. haust, með einkanúmerinu M Þór dásamaði hann. Þá birtist grein í Morgunblaðinu. „92 ára gamall maður fór hringveginn á þremur dögum,“ aleinn, stopp- aði bara til að borða, leggja sig og taka bensín. En nú hefur vinur okkar stillt krúsið í hinsta sinn og haldið til eilífðarlands- ins, sem bíður okkar allra. Við biðjum Guð að styrkja ástvini hans og treystum á endurfundi og nýtt ferðalag þegar okkar tími kemur. Minningin lifir um yndislegan vin. Ingi, Erla og fjölskylda. Það er mér ljúft að minnast Magnúsar Þórs Helgasonar eða Magga eins og við í Hornbjargi kölluðum hann. Ég er búinn að þekkja Magga síðan ég man eftir mér, en kynntist honum ekki náið fyrr en við hjónin fluttum í Hornbjarg fyrir rúm- um fimm árum. Maggi og kon- an hans, Kristín Magnúsdóttir, fluttu í húsið nýtt. Maggi var kosinn í fyrstu hússtjórnina ásamt Hjálmtý Jónssyni og kom það á þá að velja innbúið í salinn okkar og það var vel val- ið, því að húsgögnin eru næst- um eins og ný ennþá. Kristínu konu sína missti Maggi 7. júní 2005. Við sem eftir erum eigum Magga margt að þakka, marga hugvekjuna hefur hann flutt okkur á samkomum sem við höldum á aðventunni, þorranum og á góunni. Hann verður vand- fundinn sá sem flytur þær jafn vel og Maggi, jafn hugljúfar og vel valin bæði ljóð og erindi, sem áttu vel við hvert tímabil. Maggi ætlaði að hætta að flytja okkur hugvekjurnar sínar, þeg- ar hann varð níræður, en við fengum hann til að halda áfram, og þá síðustu flutti hann á síð- ustu góugleði. Nú þegar við kveðjum Magnús Þór að sinni vottum við afkomendum hans okkar dýpstu samúð og óskum þeim velfarnaðar. Fyrir hönd íbúa í Horn- bjargi, Arnbjörn Ólafsson. Bridsdeild Breiðfirðingafélagsins Sunnudaginn 20/3 var fyrsta kvöld í þriggja kvölda tvímenningskeppni. 20 pör mættu til leiks. Hæsta skor í Norður/Suður Magnús Sverriss. – Halldór Þorvaldss. 256 Ragnar Haraldsson – Bernhard Linn 237 Örn Einarss. – Björn Árnason 230 Austur/Vestur Ingibj. Guðmd. – Sólveig Jakobsd. 269 Sigurj. Björgvinsd. – Karólína Sveinsd. 246 Snorri Markúss. – Ari Gunnarsson 242. Spilað er í Breiðfirðingabúð, Faxafeni 14, á sunnudögum kl. 19. Fjórtán borð í Gullsmára Spilað var á 14 borðum í Gullsmára mánudaginn 21. mars.Úrslit í N/S Gunnar Alexanderss. – Elís Helgas. 324 Þórður Jörundss. – Þorleifur Þórarinss. 298 Birgir Ísleifss. – Ásgrímur Aðalsteinss. 295 Jón Bjarnar – Katarínus Jónsson 289 A/V Þorsteinn Laufdal – Páll Ólason 340 Sigurður Njálsson – Pétur Jónsson 320 Aðalh. Torfad. – Ragnar Ásmundss. 311 Ernst Backman – Stefán Ólafsson 298 Samúel Guðmss. – Jón Hanness. 298 Bridsfélag Siglufjarðar Úrslit í sveitarkeppni, sem nýlega er lokið. Sveit Hreins Magnússonar 281 Hreinn Magnússon, Friðfinnur Hauksson, Bogi Sigurbjörnss. og Anton Sigurbjörnss. Sveit Guðlaugar Márusd. 260 Guðlaug Márusdóttir, Ólafur Jónsson, Reynir Karlss. og Þorsteinn Jóhannsson. Sveit Þorsteins Jóhanness. 237 Þorsteinn Jóhannesson, Birgir Björnsson, Sigurður Hafliðason, Björn Ólafsson, Smári Víglundsson og Marinó Steinarsson. Mánudaginn 28. mars og 4. apríl verður spilaður tveggja kvölda tví- menningur. Spilað er í Shell-húsinu við Tjarnargötu. Bridsdeild Félags eldri borgara í Reykjavík Tvímenningskeppni spiluð í Ás- garði, Stangarhyl 4, mánudaginn 23. mars. Spilað var á 15 borðum. Með- alskor: 312 stig. Árangur N-S: Albert Þorsteinsson – Bragi Björnsson 392 Ólafur Gíslason – Guðm. Sigurjónsson 372 Auðunn Guðmss. – Hlynur Antonsson 372 Magnús Oddsson – Oliver Kristóferss. 364 Árangur A-V: Ægir Ferdinandss. – Helgi Hallgrímss.382 Oddur Jónsson – Óskar Ólafsson 373 Höskuldur Jónss. – Elías Einarsson 358 Sigurður Tómass. – Guðjón Eyjólfss. 342 Súgfirðingaskálin Fimmta lota í keppni um Súgfirð- ingaskálina var spiluð á Góuþræl. Fjórtán pör mættu til leiks og urðu úrslit eftirfarandi, meðalskor 110 stig. Már Hinrikss. – Þorvarður Ragnarss. 128 Jón Óskar Carlss. – Karl Ómar Jónss. 126 Valdimar Ólafss. – Karl Bjarnason 124 Þorsteinn Þorsteinss. – Rafn Haraldss. 121 Már og Þorvarður eru fimmtu sig- urvegararnir í keppninni en ávallt hefur verið nýtt par á toppnum í hverri lotu. Heildarstaðan er eftirfarandi. Þorsteinn Þorsteinss. – Rafn Haraldss. 491 Jón Óskar Carlsson – Karl Ó. Jónsson 490 Guðbj. Björnss. – Steinþór Benediktss. 467 Gróa Guðnad. – Guðrún Jóhannesd. 464 Ólafur Karvel Pálss. – Kristján Pálss. 462 Ásgeir Sölvason – Sölvi Ásgeirss. 458 Alls hafa 17 pör spilað í keppninni. Það stefnir í hörkueinvígi á milli tveggja efstu para um skálina en fimm bestu loturnar gilda. Sjötta og síðasta lota verður spil- uð í síðari hluta einmánaðar, hinn 18. apríl, og hefst keppnin um mið- aftan. Frá eldri borgurum í Hafnarfirði Þriðjudaginn 22. mars var spilað á 18 borðum. Úrslit urðu þessi í N/S. Bragi Björnsson – Bjarnar Ingimars371 Albert Þorsteinss. – Björn Árnason 368 Sverrir Jónsson – Óli Gíslason 354 Auðunn Guðmss. – Lúðvík Ólafsson336 A/V Ólafur Ingvarss. – Sveinn Snorrason 366 Kristján Björnsson – Júlíana Sigurðard. 355 Tómas Sigurjss. – Jóhannes Guðmannss.351 Kristrún Stefánsd. – Sverrir Gunnarss. 346 BRIDS Umsjón Arnór G. Ragnarsson| norir@mbl.is - nýr auglýsingamiðill  569-1100finnur@mbl.is

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.