Morgunblaðið - 24.03.2011, Blaðsíða 30

Morgunblaðið - 24.03.2011, Blaðsíða 30
30 DAGBÓK MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 24. MARS 2011 Sudoku Frumstig 8 4 9 2 7 8 4 7 8 5 6 1 5 9 7 5 2 6 4 9 1 5 2 7 4 4 8 3 1 8 2 4 6 9 6 2 8 6 9 2 6 8 1 2 3 5 2 3 5 8 3 4 2 8 1 5 7 1 3 2 7 6 5 2 7 4 6 6 8 5 5 1 3 6 7 1 3 1 9 4 3 6 2 8 7 5 5 7 6 9 8 1 3 2 4 2 3 8 5 4 7 9 1 6 4 1 9 6 7 3 5 8 2 3 5 2 8 1 4 6 9 7 8 6 7 2 5 9 4 3 1 6 2 3 1 9 5 7 4 8 9 4 5 7 2 8 1 6 3 7 8 1 4 3 6 2 5 9 5 3 1 7 2 9 6 4 8 4 8 2 1 6 3 9 7 5 6 7 9 5 8 4 2 3 1 1 9 5 4 3 7 8 6 2 8 4 3 2 9 6 1 5 7 7 2 6 8 1 5 4 9 3 9 5 8 3 4 2 7 1 6 2 6 7 9 5 1 3 8 4 3 1 4 6 7 8 5 2 9 5 1 8 7 6 4 3 2 9 4 7 6 2 9 3 5 1 8 3 2 9 1 8 5 4 7 6 6 8 2 5 1 9 7 4 3 1 9 5 3 4 7 6 8 2 7 3 4 6 2 8 1 9 5 2 5 1 9 7 6 8 3 4 8 6 7 4 3 2 9 5 1 9 4 3 8 5 1 2 6 7 Efsta stigMiðstig Lausn síðustu sudoku Þrautin felst í því að fylla út í reitina þannig að í hverjum 3x3-reit birtist tölurnar 1-9. Það verður að gerast þannig að hver níu reita lína bæði lárétt og lóðrétt birti einnig tölurnar 1-9 og aldrei má tvítaka neina tölu í röðinni. Í dag er fimmtudagur 24. mars, 83. dagur ársins 2011 Orð dagsins: Enn sagði hann við þá: „Gætið að, hvað þér heyrið. Með þeim mæli, sem þér mælið, mun yður mælt verða og við yður bætt.“ (Mk. 4, 24.) Víkverji gerði sér í gær mat úrviðtali við rithöfundinn Sjón í þýska blaðinu der Freitag. Þar er Sjón spurður um Besta flokkinn og hvort allt sé á annan veg undir hans stjórn í Reykjavík: „Of snemmt er að segja til um það. Hann hefur ekki verið ár í embætti og á erfitt vegna misheppnaðra fjárfestinga forvera síns, hann ætti að fá meiri tíma. At- hyglisvert er hins vegar að kjós- endur ákváðu að reynslan, sem mað- ur fengi sem frjáls listamaður, gerði mann alveg jafn hæfan til að stjórna borg og að hafa lært lögfræði eða viðskiptafræði. Það er sú mikla hug- myndafræðilega breyting, sem við upplifum nú í kjölfar kreppunnar. Þarna gæti Ísland mögulega einnig orðið fyrirmynd annarra landa.“ x x x Athyglisvert er að skoða þessiorð út frá svari hans við spurn- ingunni um gagnrýnina í bókum hans um að Íslendingar séu of upp- teknir af sjálfum sér: „Það er að minni hyggju stærsta vandamál ís- lensks samfélags. Þegar ég kom heim eftir dvöl í London 1997 hugs- aði ég með mér: hvað gengur nú á? Þá hafði fyrirtækið Erfðagreining verið stofnað, sem ætlaði að búa til stóran erfðagagnabanka með upp- lýsingum um alla Íslendinga. Með þessu verkefni átti einhvern tímann að lækna alla verstu sjúkdóma mannkyns. Þetta höfðar til hug- myndar, sem margir Íslendingar eru haldnir – að við höfum mik- ilvægt, sögulegt hlutverk í að bjarga heiminum.“ x x x Sjón segir að David Bowie hafiverið mótefni sitt gegn þessari sjálfsupphafningu Íslendingsins. „Ég man þegar ég var 12 ára og heyrði Starman í fyrsta skipti hjá ættingja. Þessi lína: „There’s að starman waiting in the sky.“ Ég sat með heyrnartólin og horfði út um gluggann. Það var myrkur og snjó- aði – og skyndilega fékk ég þessa tilfinningu að tengjast einhverju stærra, einhverju, sem næði út fyrir minn litla heim.“ víkverji@mbl.is Víkverjiskrifar Krossgáta Lárétt | 1 ræfilslegt, 8 end- ar, 9 spjald, 10 þegar, 11 virki, 13 skynfærin, 15 hafa í hávegum, 18 mjög gott, 21 gagn, 22 rengla, 23 land- spildu, 24 mikill þjófur. Lóðrétt | 2 rækta, 3 málms, 4 ganga hægt, 5 tigin, 6 ókjör, 7 þráður, 12 tangi, 14 ótta, 15 veiti húsaskjól, 16 fisks, 17 lyktum, 18 spilið, 19 eðlinu, 20 fréttastofa. Lausn síðustu krossgátu Lárétt: 1 stolt, 4 þylur, 7 offur, 8 rjúpu, 9 táp, 11 tonn, 13 ótta, 14 óláns, 15 falt, 17 auka, 20 ata, 22 ræpan, 23 gabba, 24 reisa, 25 arðan. Lóðrétt: 1 skolt, 2 orfin, 3 tært, 4 þorp, 5 ljúft, 6 rausa, 10 áfátt, 12 nót, 13 ósa, 15 firar, 16 Lappi, 18 umboð, 19 asann, 20 anga, 21 agga. 6 8 11 15 22 1 24 12 3 10 17 21 4 9 13 18 23 14 5 19 7 20 2 16 Skák Helgi Áss Grétarsson | ritstjorn@mbl.is 1. d4 d5 2. c4 c6 3. Rf3 Rf6 4. Rc3 e6 5. e3 Rbd7 6. b3 Bb4 7. Bd2 De7 8. Be2 b6 9. 0-0 Bb7 10. cxd5 exd5 11. He1 0-0 12. Bd3 Hfe8 13. Dc2 Df8 14. Rg5 h6 15. Rh3 a6 16. Rf4 Hac8 17. Bf5 g6 18. Bh3 Hcd8 19. Rd3 Bd6 20. f4 c5 21. Re5 b5 22. Re2 De7 23. Rg3 Rf8 24. Ba5 Ha8 25. dxc5 Bxc5 26. Hac1 Ba3 27. Hcd1 Bc8 Staðan kom upp á MP Reykjavík- urskákmótinu í Ráðhúsi Reykjavíkur. Guðmundur Gíslason (2.291) hafði hvítt í lokaumferð mótsins gegn skoska al- þjóðlega meistaranum Eddie Dearing (2.412). 28. b4! Bxh3 29. gxh3 Hac8 30. Db3 R8d7 31. Dxa3 Rxe5 32. fxe5 Rd7 33. Hxd5 Rxe5 34. e4 Hc2 35. Hf1 Hec8 36. De3 Hxa2 37. Hf2 Ha4 38. Rf1 Hc6 39. Df4 He6 40. Bd8 De8 41. Bf6 og svartur gafst upp. Með sigrinum náði Guðmundur sínum þriðja áfanga að al- þjóðlegum meistaratitli. Hvítur á leik. Brids Guðmundur Páll Arnarson | ritstjorn@mbl.is Grandást. A-Enginn. Norður ♠107 ♥G54 ♦ÁK6 ♣ÁD642 Vestur Austur ♠G8653 ♠ÁD ♥632 ♥ÁD1098 ♦D42 ♦10983 ♣109 ♣85 Suður ♠K942 ♥K7 ♦G75 ♣KG73 Suður spilar 3G. Svo er að sjá sem Fantoni og Nunes opni á grandi með flestallar 12-14 punkta hendur. Fimm spila hálitur er engin fyrirstaða. En hversu skyn- samleg er þessi mikla grandást? Spil dagsins er frá sýningarleik Deutsch og Monako í Vanderbilt, þar sem Jón Baldursson og Þorlákur Jóns- son voru í miklu stuði. Trúr kerfinu vakti Nunes í austur á 1G. Fantoni yf- irfærði í spaðann með 2♥ og Jón í norður doblaði. Gegn sterku grandi sýnir dobl á yfirfærslu viðkomandi lit, en eftir veikt grand er betra að láta do- blið sýna almennan styrk. Nunes sagði 2♠ við doblinu og Þorlákur stökk ein- faldlega í 3G! Út kom spaði og Þorlák- ur lagði fljótt upp níu slagi. Í hinum salnum vakti Deutsch í aust- ur á 1♥. N-S enduðu í einu grandi, út kom hjarta og sagnhafi fékk átta slagi. 24. mars 1931 Fluglínutæki voru notuð í fyrsta sinn við björgunarstörf hér við land þegar franski tog- arinn Cap Fagnet strandaði austan Grindavíkur, undan Skarfatanga á Hraunsvík. Tókst að bjarga allri áhöfn- inni, 38 mönnum. Skömmu síð- ar valt togarinn á hliðina og sökk. 24. mars 1959 Sett var reglugerð um stefnu- ljós á bifreiðum, sem áttu ann- aðhvort að vera „ljósker“ eða „hreyfanlegur armur“. Ljósið átti að „vera sýnilegt, einnig í sólskini, í 30 metra fjarlægð“. 24. mars 1973 Kjarvalsstaðir, myndlistarhús Reykjavíkurborgar á Mikla- túni, voru formlega teknir í notkun og opnuð stór sýning á verkum Jóhannesar S. Kjarval listmálara. Hann tók sjálfur fyrstu skóflustunguna í ágúst 1966. 24. mars 1987 Albert Guðmundsson sagði af sér sem iðnaðarráðherra vegna ásakana um vantaldar greiðslur frá Hafskipum. Í kjölfarið stofnaði hann Borg- araflokkinn sem bauð fram í öllum kjördæmum í kosn- ingum 25. apríl. 24. mars 2005 Skákmeistarinn Bobby Fisc- her kom til landsins frá Japan en Alþingi hafði veitt honum ríkisborgararétt þremur dög- um áður. Hann lést 17. janúar 2008, 64 ára að aldri. Dagar Íslands | Jónas Ragnarsson. Þetta gerðist … Vinnufélagar Hildar Helgudóttur, hjúkrunarfræð- ings og innlagnarstjóra Landspítalans, eiga von á góðu í dag því hún ætlar að færa þeim góðgæti í morgunmat í tilefni þess að hún er nú orðin fimm- tug. Um kvöldið býður hún nánustu fjölskyldu og vinum í mat. Hún hélt rækilega upp á 45 ára af- mælið og því eru veisluhöldin tiltölulega hófstillt að þessu sinni. Hildur gerðist friðargæsluliði í Bosníu og skrif- aði um það bók árið 2007. Sama ár tók hún við starfi innlagnarstjóra á Landspítalanum sem hún segir að sé reyndar betur lýst með heitinu flæði- stjóri; starfið felst einkum í að gæta að því að sjúklingar komist á rétt- an stað, þurfi t.d. ekki að bíða of lengi á bráðavaktinni. Það þýðir því ekki að hringja í Hildi, vanti mann að komast í aðgerð. „En ef þú ert inni á spítalanum og veist ekki hvert þú átt að fara næst, þá gætir þú þurft á mér að halda.“ Hildur segist þakklát fyrir að hafa fengið að verða fimmtug. Það sé ekki sjálfgefið að ná þeim aldri. „Það er ekki sjálfgefið að vera við góða heilsu. Ég ætla að njóta dagsins og fagna afmælinu út allt árið,“ segir hún. runarp@mbl.is Hildur Helgudóttir innlagnarstjóri er 50 ára Þakkar fyrir aldurinn Flóðogfjara 24. mars Fjara m Flóð m Fjara m Flóð m Fjara m Sólaruppr. Sólsetur Reykjavík 3.26 0,3 9.35 3,6 15.39 0,5 22.03 3,7 7.15 19.54 Ísafjörður 5.36 0,1 11.31 1,9 17.45 0,2 7.18 20.01 Siglufjörður 1.36 1,3 7.41 0,0 14.12 1,2 19.59 0,2 7.01 19.44 Djúpivogur 0.36 0,2 6.30 1,9 12.39 0,2 18.58 2,1 6.44 19.24 Sjávarhæð miðast við meðalstórstraumsfjöru Sjómælingar Íslands/Morgunblaðið (21. mars - 19. apríl)  Hrútur Einhver náinn þér finnst hann þurfa að keppa við þig. Þú skalt forgangsraða. (20. apríl - 20. maí)  Naut Þú þráir andlega örvun á einhverju sviði og áhugaverðar samræður við maka og fé- laga. Losaðu þig við allt það sem þú þarft ekki lengur á að halda. (21. maí - 20. júní)  Tvíburar Þú ert uppfull/ur af háleitum hug- sjónum og rómantískum hugmyndum varð- andi samband þitt við þína nánustu. Gerðu góðlátlegt grín að sjálfum þér og öðrum. (21. júní - 22. júlí)  Krabbi Það eru nokkur mál sem þola enga bið og þú gerir aðeins illt verra með því að slá þeim á frest. Mundu að það skilar oft bestum árangri að fara vel að fólki. (23. júlí - 22. ágúst)  Ljón Það er ósiður að svara ekki skilaboðum. Allt sem tengist fasteignum, heimilinu og fjöl- skyldunni ætti að ganga vel á þessu ári. (23. ágúst - 22. sept.)  Meyja Þú skalt hlusta vel á það sem vinur segir um hlutverk þitt í lífi hans. Viljir þú hafa áhrif skaltu byrja á sjálfum þér og sýna gott fordæmi. (23. sept. - 22. okt.)  Vog Nú er góður tími til þess að leggja síð- ustu hönd á rannsóknir sem þú hefur lagt stund á að undanförnu. Nýttu þér þetta til að bæta samskipti við systkini og aðra ættingja. (23. okt. - 21. nóv.) Sporðdreki Einhver atburður verður til þess að gamlar minningar leita aftur á hugann. Leggðu í námsferðalag – eitthvað létt og skemmtilegt sem gerir þig skapandi enn á ný. (22. nóv. - 21. des.) Bogmaður Þú munt sjá að eitt er um að tala og annað í að komast. Ein af þínum vöggu- gjöfum er vitundin um þessa hæfileika, viss- an innra með þér og innsæi. (22. des. - 19. janúar) Steingeit Þótt ekkert virðist geta komið í veg fyrir góðan árangur þinn er rétt að hafa varaáætlun í bakhöndinni. Jóga, líkamsrækt og hlátrasköll með vinum draga úr streitu. (20. jan. - 18. febr.) Vatnsberi Temdu þér hófsemi. Margir taka ímyndunarafl þitt alvarlegar þegar í ljós kem- ur að í því leynist hagnaðarvon. (19. feb. - 20. mars) Fiskar Þú ert tilbúin/n að hjálpa vini þínum í dag. Farðu þér samt hægt og brjóttu málin til mergjar áður en þú ákveður nokkuð. Stjörnuspá Nýbakaðir foreldrar? Sendið mynd af barninu til birtingar í Morgunblaðinu Frá forsíðu mbl.is er einfalt að senda mynd af barninu með upplýsingum um fæðingarstað, stund, þyngd, lengd, ásamt nöfnum foreldra. Einnig má senda tölvupóst á barn@mbl.is

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.