Morgunblaðið - 26.03.2011, Page 12

Morgunblaðið - 26.03.2011, Page 12
Rau›arárstígur 14, sími 551 0400 · www.myndlist.is Opið virka daga 10–18, laugardaga kl. 11–16 og sunnudaga kl. 14–16 Síðasta sýningarhelgi Ingimar Waage Listmunauppboð Næsta listmunauppboð verður 11. apríl Erum að taka á móti verkum núna í Galleríi Fold Opnun kl. 15 • Allir velkomnir Karólína Lárusdóttir Sumarið er komið • • • Jóhannes Frank Birtuskil Vefuppboð www.uppbod.is Fyrsta vefuppboð Gallerís Foldar lýkur sunnudaginn 27. mars Fjöldi listaverka eftir marga af helstu listamönnum þjóðarinnar er að finna á uppboðinu. Jóhannes S.Kjarval 12 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 26. MARS 2011 VIÐTAL Helgi Bjarnason helgi@mbl.is Fiskur gengur kaupum og sölum út um allan heim fyrir milligöngu starfsmanna í gamla pósthúsinu í Stykkishólmi. Hjá Marz Sjávaraf- urðum eru sjö starfsmenn, allt kon- ur, og fimm þeirra vinna í höfuð- stöðvum fyrirtækisins í Stykkishólmi. Erla Björg Guðrúnardóttir stofn- aði Marz Sjávarafurðir ásamt manni sínum, Sigurði Ágústssyni, þegar hún var að ljúka námi í viðskipta- fræði við Háskólann í Reykjavík, vorið 2003. Hún var raunar búin að koma fyrstu viðskiptunum á, áður en hún lauk námi. Ánægja með gamla pósthúsið „Ég fór að læra eftir að ég kynnt- ist manninum mínum og flutti í Stykkishólm. Ég sá ekki mörg tæki- færi fyrir mig hér og hugmyndin varð til heima í stofu við þetta borð,“ segir Erla sem situr nú við gamla stofuborðið á skrifstofum Marz Sjáv- arafurða í gamla pósthúsinu. Þar er raunar ekki margt sem minnir á fyrri starfsemi. Fyrirtækið keypti póst- húsið fyrir rúmu ári og lét gera það allt upp. Starfsemi fyrirtækisins var flutt á nýja staðinn síðastliðið sumar og er rúmt um starfsmennina fimm sem vinna hjá fyrirtækinu á Íslandi. Tveir starfsmenn til viðbótar eru í sölu- deild í Álaborg í Danmörku. „Það var tekið afar vel á móti okkur hér í mið- bænum. Fólk er ánægt að sjá ein- hverja uppbyggingu og þá ekki síst á pósthúsinu sem er á áberandi stað í hjarta bæjarins. Við fundum líka til ábyrgðar að standa vel að verki svo húsið félli vel að gömlu bæjarmynd- inni í Stykkishólmi,“ segir Erla Björg. Á efri hæðinni, þar sem Árni Helgason póstmeistari bjó lengi, hafa verið innréttaðar fjórar skrif- stofur með sameiginlegu funda- herbergi og eldhúsi. Til stendur að leigja þetta pláss út til lítilla fyrir- tækja og nú þegar hefur Umferðar- stofa komið sér fyrir í einu þeirra. Aldrei unnið í fiski Erla Björg hafði aldrei unnið í fiski þegar hún hóf reksturinn. Hún hefur þó kynnst verslun með fisk í gegnum eiginmann sinn, Sigurð Ágústsson, framkvæmdastjóra Agustson, sem er með útgerð og fiskverkun í Stykk- ishólmi og fiskverksmiðjur í Dan- mörku. „Ég hef kynnst fjölda fólks sem vinnur í fiskiðnaði um allan heim þegar ég hef farið með Sigurði á sýn- ingar og fundi. Það hefur nýst mér vel við uppbygginguna,“ segir Erla. „Ég ákvað að stökkva út í djúpu laugina því þó ég hafi ekki haft þekk- ingu á fiskvinnslu í upphafi þá hef ég í gegnum tíðina getað leitað til fjölda fólks með þekkingu og reynslu í greininni,“ bætir hún við. Fyrsta salan var eitt bretti af létt- söltuðum þorskflökum sem seld voru til Ítalíu. Eitt leiddi af öðru. Erla var ein í upphafi og hafði aðstöðu í salt- fiskverkun Agustson. Viðskiptin hafa aukist með hverju ári og fjölgað um einn starfsmann á ári. Nú eru seld um sex þúsund tonn af sjávaraf- urðum á ári. Vöxturinn kemur ekki af sjálfu sér. „Við þurftum að vinna okkur traust, hjá seljendum og kaup- endum. Frá upphafi höfum við lagt áherslu á að standa við orð okkar, við tökum vöruna á umsömdum tíma, af- hendum hana og greiðum á réttum tíma,“ segir Erla. Marz Sjávarafurðir selja mikið til Evrópu, Suður-Ameríku og Asíu og kaupa fisk frá öllum helstu fiskfram- leiðslulöndum. Stór hluti vörunnar kemur þó enn frá Íslandi. Afurðirnar eru fjölbreyttar því þær eru framleiddar til sölu í stórmörk- uðum og veitingahúsum og til full- vinnslu. „Markaðir sveiflast eftir efna- hagsástandi og þess vegna getur verið gott að hafa fjölbreytta starfsemi, að hafa ekki öll eggin í sömu körfunni,“ segir framkvæmdastjórinn. Mikilvægur þáttur starfseminnar er að þróa afurðir með fiskframleið- endum. Dæmi um slíkt þróunarverk- efni hjá Marz Sjávarafurðum er beit- arfiskur (e. tilapia) frá Indónesíu sem er heitreyktur í verksmiðju Agust- son í Danmörku. Erla Björg segir að afurðin hafi fengið góðar viðtökur alls staðar þar sem hún hafi verið kynnt. Sala er að hefjast í stórmörk- uðum í Danmörku og Þýskalandi. Heitreyktir tilapiuhnakkar eru í úr- slitum í keppni Evrópsku sjávar- útvegssýningarinnar í Brussel um bestu nýju fiskafurðirnar. Niður- stöður keppninnar verða kynntar við upphaf sýningarinnar í maí. Grunnur til vaxtar Erla telur vel hugsanlegt að starf- semin vaxi áfram enda sé starfs- mannahópurinn kröftugur og sam- heldinn. Fyrirtækið hafi því góðan grunn til frekari vaxtar. Hún tekur þó fram að það verði að vera á for- sendum fyrirtækisins. „Við viljum hafa stjórn á vextinum þannig að við getum alltaf sinnt viðskiptavinunum á persónulegan hátt.“ Sjö konur selja fisk Morgunblaðið/Helgi Bjarnason Frískir starfsmenn Erla Björg Guðrúnardóttir og Íris Huld Sigurbjörnsdóttir sitja við borðið og fyrir aftan þær standa Áslaug Ingibjörg Kristjánsdóttir, Sigríður Elísabet Elísdóttir og Ásta Valdís Guðmundsdóttir.  Fisksölufyrirtækið Marz Sjávarafurðir hefur byggst upp á átta árum í Stykkishólmi  Höndlað með fisk um allan heim  Höfuðstöðvarnar eru komnar í endurnýjað gamla pósthúsið „Ég er séð. Með þessu fæ ég frískara starfsfólk. Eig- inmennirnir hafa líka grennst og allir eru glaðari heimafyrir. Allt skilar þetta sér inn á vinnustaðinn,“ segir Erla Björg Guðrúnardóttir. Starfsmenn Marz Sjávarafurða tóku þátt í maraþonhlaupi í Amsterdam í fyrra og æfa nú stíft fyrir þríþrautarkeppni sem haldin verður í Barcelona í haust. Allir sjö starfsmenn fyrirtækisins eru konur. „Við höfum bara enn ekki fundið þann rétta,“ segir Erla Björg þegar hún er spurð um það hvers vegna engir karlmenn eru í starfsmannahópnum. Hún segir að það eina sem skipti máli sé að hafa gott og samhent starfsfólk og segist hafa verið afar heppin með það. Væntanlega myndast öðruvísi samstarfsandi á hreinum kvennavinnustað en blönduðum eða þar sem karla ráða ríkjum. Stúlkurnar hjá Marz vinna vel sam- an. Maraþonið og þríþrautin eru dæmi um það. Erla segir að Áslaug hafi misst það út úr sér fyrir tveimur árum að hún hefði áhuga á að hlaupa maraþon áður en hún yrði fimmtug. Þá var allt sett í gang og þær tóku allar þátt í maraþonhlaupinu í Amsterdam í fyrrahaust. Í framhaldinu var viðruð sú hugmynd að gera eitt- hvað annað og meira að ári. Stefnan var tekin á þrí- þrautarkeppni og byrjað að æfa og nú taka eigin- mennirnir þátt í keppninni í Barcelona. Þríþraut er erfið keppnisgrein og er því mikið æft. „Þetta hefur þjappað liðsheildinni saman og við höfum alltaf um nóg að spjalla þegar við berum saman bækurnar í há- deginu,“ segir Erla Björg. Höfum alltaf umræðuefni í hádegishléinu SAMSTARFSKONURNAR ÆFA AF KRAFTI FYRIR ÞRÍÞRAUTARKEPPNI Í BARCELONA

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.