Morgunblaðið - 26.03.2011, Blaðsíða 35

Morgunblaðið - 26.03.2011, Blaðsíða 35
MINNINGAR 35 Messur á morgun MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 26. MARS 2011 AÐVENTKIRKJAN: Aðventkirkjan Reykjavík | Samkoma í dag, laugardag, kl. 11 hefst með biblíu- fræðslu fyrir alla. Einnig er boðið upp á biblíufræðslu á ensku. Guðsþjónusta kl. 12. Manfred Lemke prédikar. Aðventkirkjan Vestmannaeyjum | Sam- koma í dag, laugardag, kl. 11. Boðið upp á biblíufræðslu fyrir alla. Guðsþjónusta kl. 12. Bein útsending frá kirkju aðventista í Reykjavík. Manfred Lemke prédikar þar. Aðventsöfnuðurinn Suðurnesjum | Sam- koma í dag, laugardag, kl. 11 í Reykja- nesbæ hefst með biblíufræðslu. Guðs- þjónusta kl. 12. Einar Valgeir Arason prédikar. Aðventsöfnuðurinn Árnesi | Samkoma á Selfossi í dag, laugardag, kl. 10, hefst með biblíufræðslu fyrir alla. Messa kl. 11. Þóra Jónsdóttir og Steinunn Theódórs- dóttir prédikar. Aðventsöfnuðurinn Hafnarfirði | Sam- koma í Loftsalnum í dag, laugardag, hefst með fjölskyldusamkomu kl. 11. Birgir Ósk- arsson prédikar. Biblíufræðsla fyrir alla kl. 11.50. Boðið upp á biblíufræðslu á ensku. Samfélag aðventista á Akureyri | Sam- koma í Gamla Lundi í dag, laugardag, hefst kl. 11 með biblíufræðslu fyrir alla. Guðsþjónusta kl. 12. AKRANESKIRKJA | Fermingarguðsþjón- ustur kl. 10.30 og 14. AKUREYRARKIRKJA | Fjölskyldumessa kl. 11. Umsjón hefur sr. Svavar Alfreð Jónsson og Sunna Dóra Möller. Yngri barnakór kirkjunnar syngur, organisti er Sigrún Magna Þórsteinsdóttir. Æðruleys- ismessa kl. 20. Prestur er sr. Solveig Lára Guðmundsdóttir. Baldvin Ringsted, Eiríkur Bóasson og Inga Eydal annast tónlistina. ÁRBÆJARKIRKJA | Guðsþjónusta kl. 11. Sr. Þór Hauksson þjónar fyrir altari og pré- dikar, organisti er Kristina Kallo Szklenár og kirkjukórinn leiðir almennan safn- aðarsöng. Sunnudagaskóli á sama tíma í safnaðarheimili. Veitingar á eftir. ÁSKIRKJA | Fjölskyldumessa kl. 11 í umsjá sr. Sigurðar, Ásdísar djákna og Magnúsar organista. Brúðuleikhús o.fl., fermingarbörnin taka þátt. Messaá hjúkr- unarheimilinu Skjóli kl. 13 í umsjá sr. Sig- urðar Jónssonar sóknarprests, organisti er Magnús Ragnarsson. Sjá askirkja.is. ÁSTJARNARKIRKJA | Messa kl. 11. Leik- menn úr söfnuðinum taka til máls. Fé- lagar úr kirkjukórnum syngja undir stjórn Helgu Þórdísar Guðmundsdóttur, prestur er sr. Kjartan Jónsson. Veitingar á eftir. BESSASTAÐASÓKN | Sunnudagaskóli kl. 11 í Brekkuskógum 1. Umsjón hefur Heiða Lind Sigurðardóttir ásamt yngri leið- togum. BORGARNESKIRKJA | Barnaguðsþjón- usta kl. 15. Taize-guðsþjónusta kl. 14. BRAUTARHOLTSKIRKJA Kjalarnesi | Fjöl- skylduguðsþjónusta kl. 11. Sr. Kristín Þór- unn Tómasdóttir og Rannveig Iðunn þjóna. Páll og Brynhildur leika undir söng og spila á orgel, flautu og gítar. BREIÐHOLTSKIRKJA | Fjölskyldumessa kl. 11. Sr. Bryndís Malla Elídóttir þjónar ásamt Nínu Björgu Vilhelmsdóttur djákna. Hressing á eftir. Tómasarmessa kl. 20. Tónlist, fyrirbæn og máltíð Drottins. Kaffi á eftir. DIGRANESKIRKJA | Messa kl. 11. Prestur er sr. Magnús Björn Björnsson, tónlist er í umsjá Þorvaldar Halldórssonar. Sunnu- dagaskóli á sama tíma í kapellu. Veitingar á eftir. Sjá www.digraneskirkja.is. DÓMKIRKJAN | Messa kl. 11. Sr. Anna Sigríður Pálsdóttir prédikar og þjónar fyrir altari. Dómkórinn syngur, organisti er Kári Þormar. Kaffi á eftir. EMMANÚELS-BAPTISTAKIRKJAN | Messa og sunnudagaskóli (Mass & Sundayschool) kl. 12 í stærðfræðistofu 202 í Fjölbrautaskólanum í Garðabæ á Skólabraut 6. Veitingar á eftir. Prestur er sr. Robert Andrew Hansen. Guðsþjónusta á ensku og íslensku (in English & Ice- landic). Þurfi að sækja er hringt í síma 847-0081. FELLA- og Hólakirkja | Guðsþjónusta kl. 11. Sr. Sigurjón Árni Eyjólfsson héraðs- prestur prédikar og þjónar fyrir altari. Kór Fella- og Hólakirkju leiðir almennan safn- aðarsöng undir stjórn Guðnýjar Ein- arsdóttur organista. Sunnudagaskóli kl. 11 í umsjá Þóru Sigurðardóttur og Daríu Rudkovu. Kirkjuvörður og meðhjálpari er Kristín Ingólfsdóttir. FRÍKIRKJAN Hafnarfirði | Barna- og fjöl- skyldumessa kl. 11. Æðruleysismessa kl. 20. Fríkirkjubandið leiðir sönginn og fluttur verður vitnisburður. Kaffi á eftir. FRÍKIRKJAN Kefas | Sunnudagaskóli kl. 11 og snarl í lokin. Almenn samkoma kl. 13.30. Margrét S. Björnsdóttir prédikar, tónlistarhópurinn leiðir lofgjörð, boðið upp á barnastarf. Brauðsbrotning og fyr- irbænir fyrir þá sem vilja. Kaffi á eftir. FRÍKIRKJAN Reykjavík | Ferming- armessa kl. 14. Aðalheiður Þorsteins- dóttir orgelleikari og Kór Fríkirkjunnar leiða tónlistina. Prestar eru sr. Hjörtur Magni Jóhannsson og sr. Bryndís Val- bjarnardóttir. GLERÁRKIRKJA | Messa kl. 11. Sr. Gunn- laugur Garðarsson þjónar, félagar úr Kór Glerárkirkju leiða almennan safn- aðarsöng undir stjórn Valmars Väljaots. Barnastarf í safnaðarheimili á sama tíma, sameiginlegt upphaf. Fundur með for- eldrum fermingarbarna að messu lokinni. GRAFARVOGSKIRKJA | Ferming kl. 10.30. Sr. Vigfús Þór Árnason og sr. Guð- rún Karlsdóttir. Kór Grafarvogskirkju syng- ur, organisti Hákon Leifsson. Ferming kl. 13.30. Sr. Vigfús Þór Árnason og sr. Lena Rós Matthíasdóttir. Kór Grafarvogskirkju, organisti er Hákon Leifsson. Sunnudags- skóli kl. 11. Sr. Lena Rós Matthíasdóttir, undirleikari er Stefán Birkisson. Borgarholtsskóli Guðsþjónusta kl. 11. Sr. Bjarni Þór Bjarnson prédikar og þjónar fyrir altari, organisti er Guðlaugur Vikt- orsson. GRENSÁSKIRKJA | Morgunverður kl. 10 og bænastund kl. 10.15. Barnastarf kl. 11 í umsjá Erlu Rutar. Messa kl. 11. Alt- arisganga og samskot til Hjálparstarfs kirkjunnar. Messuhópur þjónar. Kirkjukór Grensáskirkju syngur, organisti er Árni Ar- inbjarnarson, prestur er sr. Ólafur Jó- hannsson. Molasopi eftir messu. Hvers- dagsmessa með Þorvaldi Halldórssyni á fimmtudag kl. 18. GRUND dvalar- og hjúkrunarheimili | Guðsþjónusta kl. 14. Sr. Jakob Ágúst Hjálmarsson messar og söngstjóri er Kjartan Ólafsson. GUÐRÍÐARKIRKJA Grafarholti | Biskup Íslands, herra Karl Sigurbjörnsson, vísi- terar söfnuðinn í Grafarholti og Úlfars- árdal um helgina. Messa og sunnudaga- skóli kl. 11. Sr. Sigríður og sr. Karl Valgarður þjóna fyrir altari en biskup pré- dikar og lýsir blessun. Árni Þorlákur sér um sunnudagaskólann. Kór Guðríð- arkirkju leiðir söng og syngur stólvers, nýr sálmur sr. Sigríðar verður sunginn undir stjórn Hrannar Helgadóttur. Veitingar á eftir. HAFNARFJARÐARKIRKJA | Messa kl. 11. Prestur sr. Þórhallur Heimisson, organisti Guðmundur Sigurðsson. Barbörukórinn leiðir söng. Sunnudagaskóli á sama tíma í safnaðarheimilinu. Messa kl. 8.15 á miðvikudag. Tíðasöngur föstudaga kl. 10. HALLGRÍMSKIRKJA | Fræðslumorgunn kl. 10. Hjalti Hugason prófessor flytur er- indi. Messa og barnastarf kl. 11. Sr. Jón Dalbú Hróbjartsson prédikar og þjónar fyr- ir altari. Hópur messuþjóna aðstoðar. Fé- lagar úr Mótettukór Hallgrímskirkju syngja, organisti er Björn Steinar Sól- bergsson. Ensk messa kl. 14 í umsjá sr. Bjarna Þórs Bjarnasonar. Forsöngvari er Guðrún Finnbjarnardóttir og organisti Björn Steinar Sólbergsson. HÁTEIGSKIRKJA | Messa kl. 11. Máríuerl- urnar og Litli drengjakórinn syngja undir stjórn Berglindar Björgúlfsdóttur. Barna- starf í umsjá Páls Ágústs og Báru. Org- anisti Douglas Brotchie, prestur sr. Helga Soffía Konráðsdóttir. Veitingar á eftir. HJALLAKIRKJA Kópavogi | Messa kl. 11. Sr. Íris Kristjánsdóttir þjónar, félagar úr kór kirkjunnar syngja og leiða safn- aðarsöng, organisti er Jón Ólafur Sigurðs- son. Aðalsafnaðarfundur að messu lok- inni. Léttur hádegisverður. Sunnudagaskóli kl. 13. Orgeltónleikar kl. 17. Helga Þórdís Guðmundsdóttir, org- anisti í Ástjarnarsókn, leikur. Sjá www.hjallakirkja.is. HJÁLPRÆÐISHERINN Akureyri | Bæna- stund kl. 16.30 og samkoma kl. 17. HJÁLPRÆÐISHERINN Reykjavík | Sam- koma kl. 14. Umsjón Arney og Konni. HRAFNISTA Reykjavík | Messa kl. 14 í samkomusalnum Helgafelli, 4. hæð. Org- anisti Magnús Ragnarsson, félagar úr kór Áskirkju syngja ásamt söngfélögum Hrafnistu. Ritningarlestra lesa Kristín Guðjónsdóttir og Birna Frímannsdóttir, sr. Svanhildur Blöndal prédikar og þjónar. Hvalsneskirkja | Messa kl. 17. Strætó- kórinn syngur undir stjórn Guðmundar Ómars Óskarssonar. Barn borið til skírn- ar. Organisti Steinar Guðmundsson, prestur sr. Sigurður Grétar Sigurðsson. HVÍTASUNNUKIRKJAN Fíladelfía | Sam- koma í umsjá barnastarfsins kl. 11. Ásta Hjálmarsdóttir prédikar. Kaffi á eftir. Al- þjóðakirkjan með samkomu á ensku kl. 14. Helgi Guðnason prédikar. Sunnudaga- skóli kl. 14.25. ÍSLENSKA Kristskirkjan | Barnastarf kl. 11 í aldursskiptum hópum. Kennsla á sama tíma fyrir fullorðna, Friðrik Schram kennir. Samkoma kl. 20. Lofgjörð og fyr- irbænir, Edda Matthíasdóttir Swan predik- ar. Sjá www.kristskirkjan.is. KAÞÓLSKA kirkjan: | Péturskirkja, Akureyri | Messa kl. 11 og laugardag kl. 18. Þorlákskapella, Reyðarf. | Messa kl. 11 og 19. Virka daga er messa kl. 18. Jósefskirkja, Hafnarfirði | Messa kl. 10.30 og virka daga kl. 18.30 (nema föstudaga). Karmelklaustur, Hafnarfirði | Messa kl. 8.30 og virka daga kl. 8. Barbörukapella, Keflavík | Messa kl. 14. Kristskirkja, Landakoti | Messa kl. 10.30 og á ensku kl. 18. Virka daga kl. 18. Maríukirkja við Raufarsel, Rvk. | Messa kl. 11 og virka daga kl. 18.30. Laug- ardaga er messa á ensku kl. 18.30. Stykkishólmur | Messa kl. 10 og virka daga kl. 18.30. Ísafjörður | Messa kl. 11. Flateyri | Messa laugardag kl. 18. Bolungarvík | Messa kl. 16. Suðureyri | Messa kl. 19. Riftún í Ölfusi | Messa kl. 16. KEFLAVÍKURKIRKJA | Guðsþjónusta kl. 11. Félagar úr kór Keflavíkurkirkju syngja undir stjórn Arnórs Vilbergssonar, prestur er sr. Skúli S. Ólafsson. Sr. Erla Guð- mundsdóttir og leiðtogarnir stýra barna- starfinu. Messuþjónar taka þátt í helgi- haldinu. Súpa á eftir. KÓPAVOGSKIRKJA | Ferming kl. 11. Prestar: sr. Sigurður Arnarson og sr. Bern- harður Guðmundsson. Sunnudagaskóli í safnaðarheimilinu kl. 11 í umsjón Þóru Marteinsdóttur og Sólveigar Aradóttur. LANDSPÍTALI | Guðsþjónusta á Landakoti kl. 14 á stigapalli á 2. hæð. Organisti er Ingunn Hildur Hauksdóttir og prestur er Gunnar Rúnar Matthíasson. LANGHOLTSKIRKJA | Messa og barna- starf kl. 11. Björk Andersen flytur hug- vekju, Söngfélagið Góðir grannar syngur. Einsöngur. Prestur er sr. Jón Helgi Þór- arinsson, organisti er Ólafur W. Finnsson. Barnastarfið hefst í kirkjunni en síðan í safnaðarheimilinu með Rut, Steinunni og Kristínu. Tekið við framlögum í Líknarsjóð Langholtskirkju. Kaffisopi. LÁGAFELLSKIRKJA | Fermingarmessa kl. 10.30 og 13.30. Kór Lágafellskirkju syng- ur, einsöngvari er Heiða Árnadóttir, Greta Salóme Stefánsdóttir spilar á fiðlu. Prest- ar eru sr. Ragnheiður Jónsdóttir og sr. Skírnir Garðarsson, meðhjálpari Hreiðar Örn. Sunnudagaskóli verður í dag, laug- ardag, kl. 11. Sjá www.lagafellskirkja.is. LINDAKIRKJA Kópavogi | Sunnudaga- skóli kl. 11 í Lindakirkju og Boðaþingi. Messa kl. 14. Óskar Einarsson, tónlistar- stjóri safnaðarins, leiðir safnaðarsöng ásamt Áslaugu Helgu og Matta sax. Tón- leikar kl. 20.30 með Kór Lindakirkju ásamt Áslaugu Helgu og Óskari Einars- syni. Gospeltónlist í bland við frumsamin lög. Ókeypis fyrir 14 ára og yngri. Ágóðinn rennur til hljóðfærakaupa í Lindakirkju. NESKIRKJA | Messa og barnastarf kl. 11. Sameiginlegt upphaf. Félagar úr Há- skólakórnum leiða söng, organisti er Steingrímur Þórhallsson, sr. Sigurður Árni Þórðarson prédikar og þjónar fyrir altari. Messuþjónar aðstoða. Umsjón með barnasarfi: Sigurvin, Katrín og Ari. Veit- ingar á eftir. ÓHÁÐI SÖFNUÐURINN | Fermingarguðs- þjónusta kl. 14 og barnastarf á sama tíma. Fermd verða 10 börn. Sr. Pétur Þor- steinsson þjónar fyrir altari. Barnastarfið er í umsjón Hildar og Elíasar. Kór safn- aðarins leiðir söng undir stjórn Árna Heið- ars Karlssonar. Sjá ohadisofnudurinn.is. SALT kristið samfélag | Samkoma kl. 17 í safnaðaheimili Grensáskirkju. Ræðu- maður Hermann Bjarnason. SAUÐÁRKRÓKSKIRJA | Sunnudagaskóli kl. 11. Umsjón hafa Guja og Ólöf Rún. Þjóðlagamessa kl. 20.30. Kirkjukórinn syngur við undirleik Rögnvaldar Valbergs- sonar. Gestasöngvari er Guðbrandur Ægir Ásbjörnsson. Fermingarbörn lesa ritning- arlestra. Á eftir er fundur með ferming- arbörnum og foreldrum þeirra. SELFOSSKIRKJA | Messa og sunnudaga- skóli kl. 11. 55 ára vígsluafmæli kirkj- unnar. Stúlknakórinn Graduale Nobili syngur ásamt kirkjukórnum, prestur er sr. Óskar Hafsteinn Óskarsson. Graduale Nobili heldur tónleika í kirkjunni kl. 14. Stjórnandi kórsins er Jón Stefánsson. Sjá www.selfosskirkja.is. SELJAKIRKJA | Barnaguðsþjónusta kl. 11. Fermingarguðsþjónusta kl. 14. Sr. Valgeir Ástráðsson prédikar og þjónar ásamt sr. Ólafi Jóhanni Borgþórssyni. Kór Seljakirkju leiðir safnaðarsönginn, org- anisti er Tómas Guðni Eggertsson. Guðs- þjónusta í Skógarbæ kl. 16. Sr. Ólafur Jó- hann Borgþórsson prédikar og þjónar ásamt Aase Gunn djákna. Félagar úr kór Seljakirkju leiða safnaðarsönginn, org- anisti er Tómas Guðni Eggertsson. SELTJARNARNESKIRKJA | Tónlistarguðs- þjónusta kl. 11. Flugfreyjukór Icelandair syngur undir stjórn Magnúsar Kjart- anssonar tónlistarmanns. Félagar úr kammerkór kirkjunnar flytja einnig tónlist, organisti er Friðrik Vignir Stefánsson. Sunnudagaskólinn á sama tíma. Erla Jónsdóttir lögfræðingur les ritningartexta dagsins, prestur er sr. Sigurður Grétar Helgason. Kaffi á eftir. SJÓMANNAHEIMILIÐIÐ Örkin | Sam- koma kl. 17. Kaffi á eftir. SKÁLHOLTSDÓMKIRKJA | Messa kl. 11. Sr. Kristinn Ólason annast prestsþjón- ustuna, organisti er Jón Bjarnason. ÚTSKÁLAKIRKJA | Messa kl. 20. Strætó- kórinn syngur undir stjórn Guðmundar Ómars Óskarssonar, organisti er Steinar Guðmundsson og prestur sr. Sigurður Grétar Sigurðsson. VEGURINN kirkja fyrir þig | Fjölskyldu- samkoma kl. 14. Barnastarf, lofgjörð, predikun og fyrirbæn. Högni Valsson pre- dikar. VÍDALÍNSKIRKJA | Messa eldriborgara og sunnudagaskóli kl. 11. Kristín J. Sig- urðardóttir, ljósmóðir og formaður eldri borgaranefndar safnaðarins, prédikar og tvö börn verða skírð. Garðakórinn syngur, stjórnandi er Jóhann Baldvinsson org- anisti. Steinn Lárusson, varaformaður Fé- lags eldri borgara í Garðabæ, kynnir fé- lagið. Sr. Friðrik J. Hjartar þjónar fyrir altari. Hressing á eftir. Gospelsveifla kl. 20. Söngur og hugleiðingar. Sr Jóna Hrönn, Ingvar Alfreðsson og félagar úr gospelkórnum í tali og tónum. VÍÐISTAÐAKIRKJA Hafnarfirði | Tónlistar- guðsþjónusta kl. 11. Stúlknakór Reykja- víkur syngur undir stjórn Margrétar Pálmadóttur. Organisti er Arngerður María Árnadóttir og prestur er Bragi J. Ingibergsson sóknarprestur. Samvera með fermingarbörnum og foreldrum á eft- ir. Jesús rak út illan anda. (Lúk. 11) Morgunblaðið/Sverrir Brautarholtskirkja á Kjalarnesi. ✝ Ásgeir Krist-insson fæddist í Reykjavík 23. maí 1946. Hann lést 27. febrúar 2011. Foreldrar Ás- geirs voru Kristinn Hafliðason tré- smiður, fæddur 1915, og Anna Margrét Guð- mundsdóttir fædd 1917 sem eru bæði dáin. Systk- ini Ásgeirs eru Ingveldur Kristinsdóttir, Steinunn Krist- insdóttir Walter, Kristín Krist- insdóttir, Guð- mundur Kristinsson og Hafliði Kristinsson. Eftirlifandi son- ur Ásgeirs er Guð- mundur Þorsteinn Ásgeirsson. Ásgeir starfaði sem sjó- maður frá unga aldri en síðustu starfsárin var hann í bygging- arvinnu í Reykjavík. Útförin fór fram í kyrrþey hinn 4. mars 2011 í Fossvogs- kapellu. Ásgeir frændi var einstaklega hjartahlýr og sjaldan hef ég kynnst manni sem var jafn ein- lægt góður við okkur litlu frænd- systkinin sín. Hann byrjaði snemma á sjónum og sem börn þekktum við hann aldrei öðruvísi en skemmtilegan sjómanns- frænda sem kom einstaka sinn- um í land. Og mikið var alltaf gaman þegar hann var í landi. Hann átti fullt af dóti og nammi sem hann fékk í siglingunum og var óhræddur við að deila því með okkur. Hann eignaðist víd- eótæki á undan flestum öðrum og við krakkarnir vorum reglulega í teiknimyndamaraþoni heima hjá Ásgeiri, japlandi á útlensku nammi og drekkandi kók úr dós. Löngu seinna komumst við að því að Ásgeir var öflugur íþrótta- maður á yngri árum og einn al- efnilegasti handboltamaður sem Víkingar áttu á þessum árum. Enda spilaði hann sinn fyrsta meistaraflokksleik með silfurliði Víkinga aðeins sextán ára. Og jafnvel þótt Ásgeir hafi þurft að gefa íþróttirnar upp á bátinn var hann ávallt dyggur stuðnings- maður Víkinga, reglulega niðri í Vík og alltaf til í að ræða um Vík- ingana sína við okkur. Þótt Ásgeir hafi átt erfitt lífs- hlaup skyggði það aldrei á sam- skipti okkar og við minnumst hans sem yndislegs ljúfmennis sem gerði alltaf vel við okkur, litlu frændsystkini sín. Vertu blessaður, elsku Ásgeir frændi. Kristinn, Daníel, Lára og Lísa Hafliðabörn. Ungur steig hann öldurnar hann Ásgeir mágur minn. Sextán ára gamall fór hann til sjós og var sjómennskan hans ævistarf. Hann hætti skólagöngu ungur og gaf upp efnilegan handbolta- feril með Víkingum. Ásgeir var mikill dýravinur og hlúði að smáfuglunum og fóðraði þá reglulega þegar harðnaði í ári en spurði jafnframt alltaf um kis- urnar okkar og hafði gaman af sögum um þær. Hann var herramaður mikill og var óspar að skjalla okkur mæðgur og skreyta okkur falleg- um gullhömrum. Hann kunni það. Ásgeir hafði einstakan áhuga á velgengni barna okkar. Hann fylgdist með námi þeirra en ekki síður árangri þeirra í fótbolta í Víkinni. Þau mátu það mikils og töluðu oft um það. Ásgeir var dyggur stuðnings- maður Víkings og var alltaf á Víkingsvellinum að styðja liðið sitt. Þú fagnandi floginn ert burt til framandi heillandi landa. Þar spyr enginn hvort eða hvurt né hverskonar drykk ert að blanda. Þú stefndir á áfanga stað En staldraðir við báðum megin. Það veit enginn hvort eða hvað. Né hver var sem vísaði veginn. Ég kveð einstakt ljúfmenni með söknuði. Pálína. Ásgeir Kristinsson Morgunblaðið birtir minn- ingargreinar endurgjalds- laust alla útgáfudaga. Skil | Greinarnar skal senda í gegnum vefsíðu Morgunblaðsins. Smellt á reitinn Senda inn efni á forsíðu mbl.is og viðeigandi efn- isliður valinn. Skilafrestur | Ef óskað er eftir birtingu á útfarardegi verður greinin að hafa borist eigi síðar en á hádegi tveimur virkum dög- um fyrr (á föstudegi ef útför er á mánudegi eða þriðjudegi). Þar sem pláss er takmarkað get- ur birting dregist, enda þótt grein berist áður en skilafrestur rennur út. Lengd | Minningargreinar sem birtast í Morgunblaðinu séu ekki lengri en 3.000 slög. Ekki er unnt að senda lengri grein. Minningargreinar

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.