Morgunblaðið - 26.03.2011, Blaðsíða 38

Morgunblaðið - 26.03.2011, Blaðsíða 38
38 MENNING MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 26. MARS 2011 Einar Falur Ingólfsson efi@mbl.is Á sýningunni Þorrablót, sem verður opnuð í Gerðubergi í dag klukkan 14, hyllir Aðalheiður S. Eysteinsdóttir myndlistarkona hina þjóðlegu þorra- blótsstemningu, og lofar slíkri stemningu á opnuninni. Gestir fá að tylla sér milli listaverkanna, sem Að- alheiður setur saman úr alls kyns timburafgöngum – þetta eru karlar, kerlingar, kindur og þorramatur! – og þeim verður boðið að narta í sviðakjamma meðan leikið verður á harmónikku og kveðnar vísur. „Það var árið 1996 sem ég setti upp fyrstu sýninguna með timb- urskúlptúrum,“ sagði Aðalheiður þar sem hún var að koma veisluborðum og persónum fyrir í Gerðubergi. „Ég er búin að vinna svo mikið í þessu gegnum árin að ég er komin með heilt samfélag sem er búið til úr timburafgöngum og alls kyns drasli. Mér finnst gaman að setja upp mis- munandi aðstæður, jafnvel með sömu verkunum. Svo bætast alltaf ný við.“ Þrítugasta sýningin í röðinni Þegar gestir koma á sýning- arsvæðið koma þeir fyrst að þremur kindum sem leiða þá inn á ganginn fyrir framan sýningarsalinn, þar eru fleiri kindur og fólk að reykja og dóla sér; síðan er gengið inn á þorrablótið og þar er mikil gleði, leikið á nikku og dansað. „Ég byrjaði að vinna með þetta þema þegar ég flutti í sveit, í Freyju- lund við utanverðan Eyjafjörð. Fjár- rétt hreppsins stendur tuttugu metra frá útidyrum heimilisins og þegar ég var komin þangað rifjuðust æskuárin upp, en ég var alin upp við sauðfjárbúskap. Mér fannst sem ég hefði alltaf verið að vinna með eins- konar bændalíf í verkunum mínum. Þegar haustið kemur og réttað er fyllist réttin af kindum og allt iðar af lífi, ég ákvað að vinna með það. Ég fór af stað með verkefni sem verður fimmtíu sýningar á fimm árum. Fjár- réttin er útgangspunktur á þeim öll- um. Ég hef nú unnið að þessu í tvö og hálft ár og Þorrablót er þrítugasta sýningin,“ segir Aðalheiður. Sýning- arnar hafa verið og verða settar upp víða um heim á tímabilinu júní 2008 til júní 2013 undir yfirskriftinni „Réttardagur – 50 sýninga röð“. Fyrsta sýningin var í réttinni sjálfri. „Ég hef fjallað um allt mögulegt á þessum sýningum,“ segir Aðal- heiður. „Um sauðburð, fé á fjalli, kindur á húsi, innmatinn, afurðirnar. Nú var komið að þorrablóti. Í fyrra þegar mér var boðið að sýna hér í Gerðubergi þá kom ég og skoð- aði salinn og fanst strax að þetta væri þorrablótsstaður, þetta er sann- kallað félagsheimili. Hingað koma allir saman og eiga glaðan dag.“ Eins og glögglega sést nýtur Að- alheiður þess að skapa heildarstemn- ingu með verkunum. „Ég er að búa til heildstæða ver- öld,“ segir hún, „búa til upplifun á ákveðinni stemningu í íslenskri menningu. Þorrablót eru tímalaus, þau eru eins í dag og þau voru fyrir 30 árum. Andinn er sá sami, mat- urinn er eins. Þetta er gamaldags en nútímalegt um leið.“ Þótt persónur Aðalheiðar séu sett- ar saman úr alls kyns timb- urafgöngum og fundnum hlutum eru þær á vissan hátt afar raunverulegar og búa yfir einhverju sem kalla má karakter. Hún segir að sumir geymi í minni sér hvað fólk segir, en hún muni hins vegar afar vel hvernig fólk lítur út og háttalag þess. „Ég horfi þrívítt á fólk,“ segir Að- alheiður og hlær. Sá eiginleiki nýtist henni vel við listsköpunina. „Þegar ég bý til fólk byggi ég venjulega á fólki sem ég þekki, ég þarf ekki bara að vita hvernig það lít- ur út heldur þekkja karakterinn. Margir hafa sagt að verkin mín séu eins og hugmynd um viðkomandi frekar en mynd af þeim. Svo getur ein spýta kallað á heila manneskju, eins og þessi,“ segir hún, gengur að konu sem dansar á gólfinu og tekur um hárið á henni sem kast- ast til þar sem hún snýst á gólfinu. „Þessi spýta minnti mig á sveifl- andi hár og þess vegna gerði ég þessa konu fyrir hárið.“ Aðalheiður vinnur gjarnan að list sinni í samstarfi við aðra og að þessu sinni taka þrír gestalistamenn þátt í sýningunni. Það eru þau Gunnhildur Helgadóttir sem leggur til glös á borðum, Jón Laxdal gerir flöskur á bar og Guðbrandur Siglaugsson hnífapör og texta. Listsmiðja fyrir börn Á morgun, sunnudag, klukkan 14 býður Aðalheiður til listsmiðju í Gerðubergi. Í smiðjunni gefst börn- um, með aðstoð aðstandenda sinna, tækifæri til að skapa verk í anda Að- alheiðar. Á staðnum verður efniviður og verkfæri, og listakonan veitir til- sögn. Smiðjan er öllum opin á meðan húsrúm leyfir – aðgangur ókeypis. Ein spýta getur kallað á heila manneskju  Aðalheiður S. Eysteinsdóttir opnar sýninguna Þorrablót í Gerðubergi í dag Morgunblaðið/Einar Falur Komin á þorrablót Listakonan Aðalheiður Eysteinsdóttir með gesti á þorrablóti hennar í Gerðubergi, við trog fullt af þorramat úr timbri. Á Tíbrártónleikum í Salnum á morgun, sunnudag, klukkan 20 leika Helga Bryndís Magnúsdóttir og Aladár Rácz á tvær slaghörp- ur. Á efnisskránni eru verkin Til- brigði við stef eftir Haydn eftir Brahms, Rondo eftir Chopin, Són- ata fyrir tvö píanó í D-dúr eftir Mozart og La Valse eftir Ravel. Frá árinu 1999 hefur Rácz starfað sem tónlistarkennari á Húsavík og komið fram með ein- leikurum, kórum og hljómsveitum hér. Helga Bryndís hefur um árabil verið virk í tónlistarlífinu, sem einleikari og í kammertónlist, með söngvurum og í Caput- hópnum. Helga og Aladár leika á tvö píanó Helga Bryndís Magnúsdóttir Aladár Rácz Vortónleikar Vox feminae, Þar skín sól í heiði, verða haldnir í Grens- áskirkju í dag, laugardag, klukkan 15. Listrænn stjórnandi kórs- ins er Margrét J. Pálmadóttir og honum til fulltingis munu hljóma raddir yngismeyja úr Stúlknakór Reykjavíkur, auk fleiri góðra gesta. Undirleikari er Antonía He- vesi. Sólin skín á vortón- leikum Vox feminae Margrét J. Pálmadóttir Tolli opnar sýningu í Gallerí Lista- mönnum á Skúlagötu 32 í dag klukkan 16. Sýningin nefnist Græð- andi kraftur og eru á henni stór málverk sem sýna sannkallaða nátt- úrukrafta. „Þetta eru nýjar myndir sem eru með jarðtengdari litum en oft áður; á vissan hátt dimmari en um leið er ljósið sterkara,“ segir Tolli. Þetta eru mikilfenglegir mynd- heimar. „Það er drama í þessu, ekki er hægt að neita því,“ segir hann. „Kraftbirtingarhljómur almætt- isins. Enn og aftur leitast ég við að fanga þennan kraft sem ljósið er í náttúrunni.“ Með orðinu græðandi segist Tolli vera að skírskota til hinnar heilandi orku sem er í íslenskri náttúru. „Sá debatt sem er í gangi innra með okkur og ytra, um tilvist mannsins, endar alltaf á spurning- unni um sambúðina við náttúruna. Náttúran er takmörkuð en græðgin takmarkalaus. Það verður að finna heimspekilegt og pólitískt jafnvægi,“ segir hann. efi@mbl.is Morgunblaðið/RAX Málarinn „Það er drama í þessu, ekki er hægt að neita því,“ segir Tolli. Kraftbirtingar- hljómur á striga 11 20 H N O T S K Ó G U R g ra fí s k h ö n n u n Vísinda- og tækniráðs 2011 Hvatningarverðlaun Vísinda- og tækniráðs eru árlega veitt vísindamanni sem snemma á ferlinum þykir hafa skarað fram úr og skapað væntingar um framlag í vísindastarfi er styrki stoðir mannlífs á Íslandi. Óskað er eftir tilnefningum til Hvatningarverðlauna Vísinda- og tækniráðs 2011. Verðlaunin eru tvær milljónir króna. Tilnefningar geta komið frá öllum sviðum vísinda, tækni og fræða. Tilnefna má vísindafólk sem starfar á Íslandi við háskóla, rannsóknastofnanir, fyrirtæki eða er sjálfstætt starfandi. Öllum, sem eru í aðstöðu til að meta störf einstakra vísindamanna, er heimilt að senda tilnefningar. Ferilskrá vísindamannsins skal fylgja tilnefningu. Við val á verðlaunahafa er tekið tillit til námsferils viðkomandi vísindamanns, sjálfstæðis, frumleika og árangurs í vísindastörfum að loknu námi; ritsmíða, einkaleyfa og alþjóðasamstarfs, svo og annarra vísbendinga um líklegan árangur af störfum viðkomandi. Sérstaklega er litið til brautryðjendastarfs í vísindum. Þá er litið til faglegs framlags á vinnustað og miðlun þekkingar til íslensks samfélags. Fimm handhafar verðlaunanna skipa dómnefnd. Frestur til að skila inn tilnefningum er til og með 20. apríl 2011. Tilnefningum og upplýsingum um feril tilnefndra skal skilað með tölvupósti til Rannís á netfangið rannis@rannis.is Nánar á www.rannis.is Tilnefningar óskast! Laugavegi 13, 101 Reykjavík sími 515 5800, rannis@rannis.is www.rannis.is

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.