Morgunblaðið - 26.03.2011, Side 27

Morgunblaðið - 26.03.2011, Side 27
UMRÆÐAN 27 MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 26. MARS 2011 Látið hefur verið í veðri vaka að höfnun Icesave III í þjóð- aratkvæðagreiðslunni 9. apríl nk. muni ann- aðhvort leiða til þess að ríkið þurfi að borga yfir þúsund milljarða og okurvexti til Breta eða þá að Ís- land verði útilokað frá viðskiptum við ESB. Endanlegur dómur Verði Icesave III hafnað í þjóð- aratkvæðagreiðslunni verða inn- heimtumenn Bretastjórnar að fá atbeina íslenskra dómstóla til þess að komast í vasa íslensks almenn- ings: ríkissjóð. Íslenskir dómstólar dæma samkvæmt lögum sem eru skýr hvað þetta mál varðar. Hverfandi líkur eru því á að inn- heimtumennirnir komist þá leiðina í vasana. Þeir treystu sér ekki til þess eftir að Icesave II var synjað og litlar líkur til að þeir reyni þó Icesave III verði hafnað. En ef svo færi þá dæma íslenskir dóm- stólar ekki okurvexti svo að hót- unin um þúsund milljarðana er byggð á vanþekkingu. En verði Icesave III-samningurinn aftur á móti samþykktur flyst úrskurð- arvald um ágreiningsmál undir ensk lög og óvíst hvernig nið- urstöður þar yrðu. EFTA-dómstóllinn Eini erlendi dómstóllinn sem getur gefið út einhvers konar úr- skurð um Icesave er EFTA- dómstóllinn. Úrskurðir hans yrðu um hvort Ísland hafi brotið EES- samninginn og eru hvorki bind- andi né heldur duga þeir til að gera aðför að ríkissjóði Íslands. EFTA-dómstóllinn úrskurðar oft- ast samkvæmt áliti ESA (eftirlits- stofnun sem sér til þess að Ísland, Noregur og Liechtenstein fylgi til- skipunum ESB samkvæmt EES- samningnum). Hann gæti því úr- skurðað að Ísland bryti reglur veitti það ekki ríkisábyrgð á Ice- save en ESA gaf út álit í maí 2010, byggt á geðþóttatúlkun á reglugerðinni um innistæðutrygg- ingarnar, sem segir að ríkissjóður Íslands eigi að ábyrgjast Icesave. Slíkur úrskurður frá EFTA- dómstólnum yrði þó ekki í sam- ræmi við lög og reglugerðir sem dómstóllinn á að úrskurða eftir og þess vegna er möguleiki að hann úrskurði að ríkissjóði sé óskylt að veita ábyrgðina. En dómgæsla undir hatti ESB hefur á sér orð fyrir að vera „skapandi“ og því ekki hægt að treysta að dómstólar þar láti gildandi lög hemja sig um of. Reknir úr EES? Verði úrskurður EFTA- dómstólsins (sem reyndar hefur ekkert með EFTA sjálft að gera heldur aðeins ákveðin lönd þar) sá að ríkissjóður eigi að bera ábyrgð á Icesave verður Íslandi gert að laga sitt kerfi í framhaldi af úr- skurðinum og gefinn frestur til þess. Það þýðir ekki að ríkissjóður sé skyldugur að greiða Icesave. En rukkarar Bretastjórnar hér- lendis segjast nú vera orðnir hræddir um að borgi Ísland ekki muni ESB segja upp EES- samningnum. Samningur sem hefur runnið sitt skeið Margir virðast telja að afnám EES-samningsins yrði einhvers konar áfall fyrir Ísland. Mjög lítil umæða hefur verið um þennan samning hérlendis. En í Noregi, sem líka er aðili að EES, eru menn smátt og smátt að átta sig á að Noregur hefur ekki lengur hag af samningnum. Það sama á við um Ísland. Ef ESB segði EES- samningnum upp hefði það litla þýðingu fyrir viðskipti við ESB. Vöru- og þjón- ustuviðskipti Íslands við lönd sambandsins stjórnast að mestu af fríverslunarsamn- ingnum frá 1972, sem er í fullu gildi og í notkun og er sjálf- stæður samningur. Einnig hafa tolla- og viðskiptamál þróast eftir að Alþjóðavið- skiptastofnunin (WTO) tók til starfa og eru nú komin ákvæði um hámarkstolla í milliríkjaverslun þannig að ríki geta ekki sett á háa tolla lengur. Tollar á iðnvarning eins og ál breytast ekki þó að EES falli úr gildi, tollar á sjáv- arafurðir breytast ekki heldur að undanteknum nokkrum flokkum sem hafa takmarkaða þýðingu og eru yfirleitt seljanlegir á öðrum mörkuðum. Aftur á móti mundu ýmis tæknileg höft á viðskipti við lönd utan ESB falla brott ef EES félli úr gildi og ný viðskipti við t.d. Bandaríkin og aðra heimshluta opnast. EES hamlar endurreisn Útrás bankanna byggðist á van- köntuðum Evrópureglum sem settar voru hér með EES. Ný lög og reglur um fjármálastarfsemi, sem setja þarf hér í kjölfar hruns- ins og áður en neyðarlögin verða afnumin, verða í mörgum þáttum ósamrýmanleg EES-samningnum, t.d. ákvæðinu um frjálst flæði fjár- magns sem ekki er hægt að láta gilda hér að öllu leyti eins og fyrir 2008 þegar spákaupmennska og brask komu fjármálakerfinu í upp- nám. Sjálfstæð peningamálastefna, sem er óumflýjanleg hér vegna sveiflna sem verða í íslenskum at- vinnuvegum, verður ómarkviss meðan EES-samningurinn og til- skipanir ESB um fjármálageirann gilda hér óbreyttar. Ísland gæti líka hótað! Eftir áföllin með banka- regluverkið, brot Breta og rang- túlkun ESA um Icesave, er ljóst að EES-samningurinn er að verða vafasamur fyrir Ísland. Kæmi síð- an til viðbótar úrskurður frá EFTA-dómstólnum um að rík- issjóði beri að gangast í ábyrgð fyrir Icesave yrði það í andstöðu við EES-samninginn og næg ástæða fyrir Ísland til að segja honum upp. ESB fær fúlgur fjár í styrki frá Íslandi vegna EES og ESB rennir auk þess hýru auga til íslenskra auðlinda, það er því lík- legt að menn þar á bæ hugsi sig tvisvar um í stuðningi sínum við ólöglega Icesave-kröfu Breta komi hótanir um uppsögn EES frá Ís- landi. Er áhætta að segja nei við Icesave III? Eftir Friðrik Daníelsson » Ísland hefur sterka stöðu í Icesave og betri efni á að beita hót- unum en Bretar og ESA. Friðrik Daníelsson Höfundur er verkfræðingur. Skattar og gjöld ríkis og sveitarfélaga eru misfrumleg. Ein þau frumlegustu á þessum „síðustu og verstu“ er „fimmtán metra tunnugjaldið“! Ef reynslan sýndi ekki annað mætti halda að þetta sé einn brandarinn í viðbót frá Besta flokknum. En hann virðist hætt- ur að grínast enda fáum hlátur í hug við margs konar niðurskurð og hækkandi gjöld. Hvað með þessa tölu „15“ – er hún heilög? Hvers vegna ekki 8 metrar? Kemur sú tala í næstu sparnaðaraðgerð? Ef þarf að rukka meira fyrir þessa þjónustu hvers vegna hækkar borgin ekki sorphirðugjaldið jafnt á alla? Eru menn búnir að hugsa málið til enda? Hvers eiga þeir að gjalda sem keypt hafa húsnæði í hverfum þar sem illgerlegt er að koma sorptunnum fyrir fram við götu? Þannig hagar til í mörgum eldri hverfum Reykjavíkur, til dæmis þar sem skipulagshugmyndir Guð- mundar Hannessonar voru útfærð- ar og húsum er skipað á lóðir mið- að við afstöðu til sólar (t.d. með randbyggð við götur). Er þeim íbú- um heimilt að hafa tunnurnar á gangstéttinni? Fellur það kannski að vel að hugmyndum skipulags- ráðs að tunnur standi „heið- ursvörð“ meðfram gangstéttum borgarinnar? Og þótt sumir hafi pláss fyrir „virðulegt skýli“ framan við hús, er svo ekki um alla. Borgin kemur með það snjallræði að þeir geti þá fært tunnur sínar nær gangstétt þá daga sem á að tæma þær! Hætt er við að flestir vilji hafa vaðið fyrir neðan sig t.d. til að þurfa ekki að byrja daginn með tunnutilfærslu og færa tunnur sínar að kvöldi fyrir sorphirðudag. Er borgin búin að semja við veðurguðina um að það komi ekki aftakarok og tæmi tunnurnar um allar götur og gangstéttir áður en sorp- hirðan mætir? Það gæti líka orðið algengt næturgaman hjá ölvuðum næturhröfnum að fella tunnur! Hver ætlar að sjá um að hreinsa allt „góðgætið“ af götunum? Eiga rottur og mávar að sjá um það? Og enn ein spurning: Hvað ef menn gleyma (eða eru í fríi) að færa tunnur sínar, fá þeir þá reikning upp á 4.800 kr. inn um lúguna? Hvers vegna er gjaldið það sama á svartar tunnur og grænar sem tæmdar eru mun sjaldnar? Og hvað með hverfi sem eru staðsett langt frá losunarstöðvum Sorphirðunnar, væri ekki jafn sanngjarnt að rukka íbúa þeirra um aukagjald? Það kostar væntanlega töluvert meira að sækja sorpið þangað! Annað sem ber að hafa í huga er að þegar borgin tók upp þá sjálf- sögðu nýbreytni að skipta málm- tunnum út fyrir plasttunnur gaf Brunamálastofnun út orðsendingu (nr. 20/1994) vegna aukinnar eld- hættu. Þar segir í stuttu máli að „…eitt eða tvö sorpílát skuli ekki standa nær timburvegg en 3 m en 2 m sé veggurinn járnklæddur eða með yfirborð í flokki 1, og þau mega þó standa upp við vegg á steinhúsi. Fjarlægðin skal þó aldrei vera minni en 3 m miðað við stystu láréttu fjarlægð í næsta glugga eða timburvegg en 5 m sé mælt lóð- rétt“…. „Séu sorpílátin 3 eða fleiri skal miða við ofangreindar fjar- lægðir að viðbættum 2 m.“ Svo, kæru borgarbúar, fari nú allir út að mæla! Kannski ykkur sé nauðugur einn kostur, að hafa tunnurnar í yfir 15 m fjarlægð frá götu. Að lokum: Hvernig stendur á því að stærsta sveitarfélag landsins er svona langt á eftir mörgum öðrum hér á landi (t.d. Stykkishólmi) að bjóða mönnum ekki upp á það að fara með flokkað sorp eins og pappír, glerkrukkur og lífrænan úrgang, í söfnunargáma. Tunnur fyrir flokkaðan úrgang við hvert hús er í raun sjálfsögð krafa í nú- tíma borgarsamfélagi! Sjálfur hef ég flokkað allan lífrænan úrgang í safntunnur inni á minni lóð í ára- tugi, en ekki fengið neina lækkun gjalda vegna þess. Ég er því miður hræddur um að þessi ákvörðun borgaryfirvalda sé ekki bara léleg- ur brandari – en útfærslan gæti orðið það! Fimmtán metra tunnugjaldið Eftir Árna Þorvald Jónsson » Svo, kæru borg-arbúar, fari nú allir út að mæla! Kannski ykkur sé nauðugur einn kostur að hafa tunn- urnar í yfir 15 m fjar- lægð frá götu. Árni Þorvaldur Jónsson Höfundur er arkitekt. Stórhöfða 21, við Gullinbrú, s. 545 5500 www.flis.is • netfang: flis@flis.is Allt fyrir baðherbergið Markmið sjóðsins er að auka almenna þekkingu á íslenskri náttúru svo að umgengni okkar og nýting á verðmætum hennar geti í ríkari mæli einkennst af virðingu og skynsemi. Samhliða er leitast við að bæta tengsl Íslendinga við náttúru landsins og efla með því gott hugarfar, mannlíf og atvinnustarfsemi í sátt við umhverfið. Auglýst er eftir umsóknum um styrki Virðing · Vægi · Verðmæti Markmiði þessu verði náð með því að styrkja verkefni sem fást við sköpun og miðlun þekkingar um náttúruna í víðum skilningi. Farvegurinn getur verið í gegnum listir, hvers kyns fræði og vísindi. Auglýst er eftir umsóknum um styrki úr Náttúru- verndarsjóði Pálma Jónssonar. Skilafrestur er 20. apríl. Heildarúthlutun á þessu ári nemur allt að 25 milljónum króna. Umsóknareyðublöð og allar nánari upplýsingar má fá á vefsíðu sjóðsins: www.natturuverndarsjodur.is. Umsóknir sendist sjóðnum í Pósthólf 10, 550 Sauðárkróki. NÁTTÚRUVERNDARSJÓÐUR PÁLMA JÓNSSONAR STOFNANDA HAGKAUPS

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.