Morgunblaðið - 31.03.2011, Page 1
F I M M T U D A G U R 3 1. M A R S 2 0 1 1
Stofnað 1913 76. tölublað 99. árgangur
–– Meira fyrir lesendur
fylgir
með
Morgu
nblaði
nu í da
g
BIRNA ER
Í ÞREMUR
LANDSLIÐUM
REIMLEIKAR
Í KAUP-
HÖLLINNI
MATARFRAMLEIÐSLA
TEKUR TOLL AF
JÖRÐINNI
VIÐSKIPTABLAÐ OG
FINNUR.IS DAGLEGT LÍF 10ÍÞRÓTTIR 4
Þórður Gunnarsson
thg@mbl.is
Vegna setningar neyðarlaganna munu breskir og
hollenskir innistæðueigendur fá allar eignir
Landsbankans í sinn hlut, tæplega 1.200 millj-
arða, sé miðað við nýjasta mat skilanefndar bank-
ans. Hefðu neyðarlögin ekki verið sett og inni-
stæður ekki settar í forgang, hefðu inni-
stæðutryggingasjóðir Breta og Hollendinga
aðeins fengið um helming þeirrar upphæðar, eða
um 600 milljarða króna. Þetta kemur fram í að-
sendri grein Jóns Gunnars Jónssonar í Viðskipta-
600 milljarða króna á kostnað almennra kröfu-
hafa Landsbankans, sem eru til að mynda ís-
lenskir lífeyrissjóðir, Seðlabanki Íslands, alþjóð-
legir bankar og skuldabréfasjóðir sem lánuðu
íslensku bönkunum.
Jón Gunnar bendir á að Ísland hafi sýnt mikla
sanngirni í Icesave-málinu. Miðað við fyrirliggj-
andi samning við Breta og Hollendinga sé hins
vegar öll áhætta sem neyðarlögunum fylgir færð
yfir á Ísland, en Bretar og Hollendingar njóti alls
ábata sem af þeim stafar.
M Ísland hefur sýnt sanngirni »Viðskipti
blaði Morgunblaðsins í dag. „Með yfirlýsingum –
ekki lagasetningum – ábyrgðust stjórnvöld ein-
ungis innstæður á Íslandi, en ábyrgðirnar náðu
einnig til innstæðna erlendra aðila, sem nú eru
tæpir 200 milljarðar. Stjórnvöld ábyrgðust heldur
ekki Icesave-innstæður í eigu Íslendinga í Bret-
landi eða Hollandi. […] Nýju bankarnir höfðu
hins vegar engar viðskiptalegar forsendur fyrir
að taka innstæður gömlu bankanna úr útibúum
þeirra. Bresku hryðjuverkalögin gerðu þeim það
einnig ókleift, og íslenska ríkinu að ábyrgjast
þær,“ segir í grein Jóns Gunnars. Neyðarlögin
hafi fært Bretum og Hollendingum áðurgreinda
600 milljarða neyðarlög
Með því að samþykkja neyðarlög og gera innistæður að forgangskröfum færðu
íslensk stjórnvöld breskum og hollenskum innistæðueigendum 600 milljarða
Árleg danssýning World Class var haldin í Borg-
arleikhúsinu í gærkvöldi. Var þetta stærsta sýn-
ingin til þessa en rúmlega fimm hundruð nem-
endur tóku þátt að þessu sinni.
Tvær sýningar voru haldnar í gærkvöldi og
var uppselt á þær báðar.
Morgunblaðið/Golli
Dans og fjör
Fangar með dóma fyrir ofbeldisbrot,
kynferðisbrot og alvarleg fíkniefna-
brot eru ekki síður vistaðir í opnu
fangelsunum á Kvíabryggju og
Bitru en í öryggisfangelsunum á
Litla-Hrauni, Akureyri, í Kópavogi
og Hegningarhúsinu.
„Við tökum þá menn inn sem við
teljum hættulega og menn sem eru
með alvarleg brot á bakinu. Fyrir
vikið verður samsetningin svona,“
sagði Páll E. Winkel, forstjóri Fang-
elsismálastofnunar.
Byggja verður nýtt gæslu-
varðhalds- og móttökufangelsi á höf-
uðborgarsvæðinu, að mati Páls.
Hann bendir á að nýja fangelsið
þurfi að vera sem næst helstu lög-
regluembættum, rannsóknar-
deildum og dómstólum landsins.
Auk þess komi um 80% fanga af höf-
uðborgarsvæðinu. Fangelsin tvö
sem nú eru á svæðinu eru bæði ónýt
og rekin á undanþágum. Þeim verð-
ur báðum lokað að sögn Páls. „Sú
hugmynd að vera ekki með neitt
fangelsi á höfuðborgarsvæðinu er
glórulaus í mínum huga,“ sagði Páll.
Fangelsin
löngu
sprungin
Með þunga dóma
í opnum fangelsum
MGlórulaust »12
Morgunblaðið/Heiðar
Hegningarhúsið Er á undanþágu.
„Lífeyrissjóðir eiga þarna ákveðið
frumkvæði og það kom ekki til fyrr
en okkur var kunnugt um að Orku-
veitan hefði ekki burði til að ráðast í
þessa virkjun,“ segir Arnar Sigur-
mundsson, formaður Landssamtaka
lífeyrissjóða, en sjóðirnir samþykktu
ályktun í gær þar sem lýst er áhuga
á að koma að eða fjármagna Hvera-
hlíðarvirkjun Orkuveitu Reykjavík-
ur, en orkan þaðan var ætluð til ál-
vers Norðuráls í Helguvík. Um
fjárfestingu upp á 25-30 milljarða
króna er að ræða.
Að sögn Arnars stendur til að
funda með Orkuveitunni og Norður-
áli á morgun til að fara yfir málin. Ef
áhugi komi fram þar muni lífeyris-
sjóðir koma saman til fundar á ný og
fela ákveðnum aðilum að fara í við-
ræður um framhaldið.
Fulltrúar lífeyrissjóðanna hafa
einnig verið í viðræðum við Magma
Energy um aðkomu að HS Orku.
Arnar segir að þar geti dregið til tíð-
inda eftir rúman mánuð. Þar sé unn-
ið eftir ákveðnu skipulagi og viðræð-
ur í eðlilegum farvegi.
„Þetta er áhugavert og verður
skoðað með opnum huga,“ segir
Haraldur Flosi Tryggvason, stjórn-
arformaður OR, um áhuga lífeyris-
sjóðanna á Hverahlíðarvirkjun.
Hann segir þennan möguleika ekki
hafa komið upp í vinnu síðustu mán-
uði innan OR. »6, 19 og Viðskipti
Lífeyrissjóðir í viðræðum
við OR og Magma Energy
Því fer fjarri að núverandi rekst-
ur OR geti ekki að óbreyttu
staðið undir skuldum. Þetta
segir Stefán Svavarsson endur-
skoðandi í aðsendri grein í
Morgunblaðinu í dag.
Guðlaugur G. Sverrisson,
fyrrverandi stjórnarformaður
OR, segir að viðhorf lánastofn-
ana til OR hafi skyndilega
breyst um áramótin 2010-2011.
Stendur und-
ir skuldum
MÁLEFNI ORKUVEITUNNAR