Morgunblaðið - 31.03.2011, Side 2
2 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 31. MARS 2011
Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 5691100 Fréttir ritstjorn@mbl.is Fréttastjórar Sunna Ósk Logadóttir, sunna@mbl.is Sigtryggur Sigtryggsson, sisi@mbl.is Viðskipti
vidsk@mbl.is Ívar Páll Jónsson, fréttastjóri, ivarpall@mbl.is Menning menning@mbl.is Umræðan | Bréf til blaðsins | Minningar mbl.is/sendagrein, Arnór Ragnarsson Íþróttir sport@mbl.is
Víðir Sigurðsson, vs@mbl.is mbl.is netfrett@mbl.is Guðmundur Sv. Hermannsson fréttastjóri gummi@mbl.is Prentun Landsprent ehf.
Helgi Bjarnason
Albert Kemp
Mikill áhugi var á uppboði á búnaði, sem notaður var til
ræktunar á kannabisplöntum, verkfærum og fleiri hlut-
um, sem fram fór á Fáskrúðsfirði í gær. Allt seldist og
slegist var um sumt. Kaupendur sáu þarna ýmislegt
nýtilegt og töldu sig gera góð kaup.
Sýslumaðurinn á Eskifirði stóð fyrir lausafjár-
uppboðinu að ósk Fangelsismálastofnunar. Helgi Jens-
son sýslufulltrúi segir að munir sem gerðir eru upptækir
í sakamálum séu seldir á uppboði, hafi þeir verðgildi.
Öðru sé eytt.
Á uppboðinu voru meðal annars munir sem lög-
reglan lagði hald á við húsleit á sveitabæ í Berufirði vorið
2009 vegna rannsóknar á ræktun kannabisplantna. Þar
hafði verið komið upp búnaði til ræktunar, meðal annars
með gróðurlýsingu og vökvunarbúnaði. Ræktun var haf-
in en búnaður kominn upp til stórfelldrar ræktunar.
Helgi Jensson segist ekki geta staðfest að munir úr
þessu máli hafi verið á uppboðinu.
Fjórir karlmenn voru sakfelldir í Héraðsdómi
Austurlands fyrir ræktunarstörfin og voru dæmdir í
fjögurra til sex mánaða fangelsi. Þá voru plönturnar
gerðar upptækar svo og munir, efni og verkfæri sem tal-
in voru upp í 69 liðum í ákæruskjali.
Töluverð umferð var um lögreglustöðina á Fá-
skrúðsfirði þar sem uppboðið fór fram og mikill áhugi á
garðyrkjuáhöldunum. Fólk af öllu Austurlandi kom til að
fylgjast með og kaupa. Sýslufulltrúinn bauð munina upp
í einingum. Allt seldist þó að yfirleitt væri verðið ekki
hátt. Í einstaka tilvikum færðist þó fjör í leikinn og boðin
hækkuðu.
Gerðu góð kaup
Andrés Elísson, rafvirki á Eskifirði, keypti mikinn gróð-
urlampa á 6 þúsund krónur. Hann taldi sig gera góð
kaup og gat þess til skýringar að peran ein kostaði 60
þúsund krónur.
Maður einn keypti fjölda röra. Sá böggull fylgir
skammrifi að rörin eru öll götótt þar sem borað hafði
verið í þau til að þau nýttust til vökvunar. Rörin lentu í
höndunum á fagmanni því pípulagningamaður frá Egils-
stöðum fjárfesti í þeim.
Morgunblaðið/Albert Kemp
Tilbúnir með peningana Helgi Jensson sýslufulltrúi bauð upp og Grétar Geirsson lögreglumaður aðstoðaði.
Beðið í röðum eftir að
kaupa garðyrkjuáhöld
Góss Gróðurhúsalampar og perur voru eftirsótt góss.
Munir úr fíkniefnaræktun
boðnir upp á Fáskrúðsfirði
Níu þingmenn Sjálfstæðisflokksins
lögðu í vikunni fram frumvarp til
breytingar á lögum um greiðsluað-
lögun einstaklinga. Frumvarpið
kveður á um það að dráttarvextir
sem fallið hafa til frá og með 1. jan-
úar 2008 skuli felldir niður af þeim
kröfum sem greiðsluaðlögunin nær
til. Þannig aukist líkur á því að
skuldari geti staðið í skilum. Hlut-
fallsleg niðurfærsla skulda lækki
þar að auki þann hluta skuldarinnar
sem er til kominn vegna dráttar-
vaxta einungis hlutfallslega, en felli
hann ekki niður. Þar sem drátt-
arvextir hafi verið gríðarháir á ár-
unum 2005 til 2009, yfir 20% að
jafnaði, sé oft um mjög háar upp-
hæðir að ræða.
Frumvarpinu, hvers fyrsti flutn-
ingsmaður er Guðlaugur Þ. Þórð-
arson, hefur ekki verið fundinn
staður í dagskrá þingsins.
Dráttarvextir
verði felldir niður
Frumvarp um að létta á skuldurum
Lög um greiðsluaðlögun
» Samkvæmt frumvarpinu
verða dráttarvextir sem fallið
hafa til frá og með 1. jan. 2008
felldir niður af kröfum sem
skuldaaðlögun nær til.
„Þetta er mesta viðurkenning sem
maður getur fengið og kemur á
óvart því við höfum ekki rekið
þetta nema í þrjú ár,“ segir Þor-
mar Þorbergsson, súkkulaði-
gerðarmaður í Odense Choko-
ladehus í Óðinsvéum. Tilkynnt
hefur verið að Þormar og Tine
Buur Hansen, eiginkona hans,
hljóti heiðursverðlaun
Dönsku matargerðarlist-
arakademíunnar fyrir
afurðir sínar.
Þormar rak Café
Konditori Copen-
hagen í Reykjavík
í tíu ár. Eftir að
þau fluttu til Óð-
insvéa keyptu þau sælkeraverslun
fyrir matvæli og hafa breytt henni
í sérvörubúð með súkkulaði og
nafninu um leið. Þau framleiða all-
ar sínar vörur sjálf, úr bestu hrá-
efnum og eftir eigin upp-
skriftum. Í hillunum er konfekt,
kökur, eftirréttir og súkku-
laðidrykkir svo nokkuð sé
nefnt og á sumrin er mikið
selt af ís og ávöxtum.
„Það sem við erum að
gera hefur vakið athygli
og gengið ágætlega,“
segir Þormar. Hann held-
ur einnig vinsæl námskeið
um súkkulaðigerð.
helgi@mbl.is
Verðlaunuð fyrir besta
danska súkkulaðið
Morgunblaðið/Árni Torfason
Súkkulaði Þormar Þorbergsson hefur mestan áhuga á að vinna með súkkulaði.
Flokkur Vinstri grænna treystir
ekki NATO enda er hann mótfallinn
aðild Íslands að hernaðarbandalag-
inu og hernaðarbandalögum yfir-
leitt. Þetta kom fram í máli Álfheiðar
Ingadóttur á Alþingi í gær. VG hefði
stutt ákvörðun öryggisráðs Samein-
uðu þjóðanna um flugbann yfir Líbíu
og teldi að SÞ væru réttur vettvang-
ur til að meta stöðuna þar sem átök
geisuðu.
„Við treystum þeim og þeirra leið-
sögn. Við treystum hins vegar ekki
hernaðarbandalaginu NATO til að
framfylgja samþykktum SÞ og hvers
vegna ættum við að gera það?“
Ragnheiður Elín Árnadóttir, þing-
maður Sjálfstæðisflokks, sagði að
ótrúlegt væri að fylgjast með mál-
flutningi VG í Líbíumálinu. Þegar
ákveðið var að NATO ætti að taka
yfir stjórn hernaðaraðgerða hefði Ís-
land haft tækifæri til að stöðva þá
ákvörðun.
Þórunn Svein-
bjarnardóttir,
þingmaður Sam-
fylkingarinnar,
sagði að sam-
þykkt öryggis-
ráðs SÞ kvæði á
um flugbann og
ekki væri hægt að
framfylgja flug-
banni nema gerð-
ar væru loftárásir
á herþotur, flugvelli og önnur hern-
aðarmannvirki.
„Það er ekki fallegt, það er ekki
friðsamlegt en það var samþykkt í
öryggisráði Sameinuðu þjóðanna,“
sagði Þórunn. kjartan@mbl.is
Vinstri grænir treysta
ekki NATO fyrir Líbíu
Álfheiður
Ingadóttir
Ragnheiður Elín
Árnadóttir
Þórunn
Sveinbjarnardóttir
Ótrúlegur málflutningur VG, segir Ragnheiður Elín