Morgunblaðið - 31.03.2011, Page 4
BAKSVIÐ
Helgi Bjarnason
helgi@mbl.is
Oddvitar ríkisstjórnarflokkanna
sýndu forystumönnum Alþýðusam-
bands Íslands og Samtaka atvinnu-
lífsins ekki á spilin á fundi í Stjórn-
arráðinu í gær. „Við fórum á þennan
fund til að fá svör. Þau svör fengum
við ekki,“ segir Gylfi Arnbjörnsson,
forseti ASÍ. Ákveðinn var nýr fundur
í dag til að fara yfir drög að þeim ráð-
stöfunum sem ríkisstjórnin er tilbúin
að ráðast í til að liðka fyrir kjara-
samningum.
Viðræður um kjarasamninga á al-
mennum vinnumarkaði eru í biðstöðu
eftir að forystumenn Samtaka at-
vinnulífsins tilkynntu ríkisstjórninni
að ekki væri unnt að hefja lokaatlögu
að gerð kjarasamninga vegna þess
hve mörg stór mál eru í óvissu.
Vilja auka fjárfestingar
„Ég get ekkert sagt um það. Okkur
var ekki sýnt mikið á spilin,“ segir Vil-
mundur Jósefsson, formaður SA, um
fundinn með forsætis- og fjármála-
ráðherra í gær. „Ég á eftir að sjá að
þeir geti komið með heilan pakka sem
dugi til að við sjáum framtíðina í það
björtu ljósi að við treystum okkur að
ljúka samningi til þriggja ára,“ segir
hann.
Jóhanna Sigurðardóttir for-
sætisráðherra sagði eftir fund-
inn að ríkisstjórnin væri að
leggja lokahönd á tillögur og
útreikninga á áhrifum
þeirra.
Hún sagði að meðal annars hefðu
verið ræddar leiðir til að örva fjárfest-
ingar í atvinnulífinu. Lækkun trygg-
ingagjalds og málefni áformaðs álvers í
Helguvík hafa verið til umræðu. Einn-
ig er búist við að innanríkisráðherra
kynni nýjar hugmyndir um fram-
kvæmdir í samgöngumálum. „Aðalat-
riðið er að við fáum innspýtingu sem
skapar störf en ekki hvaða verkefni
það eru,“ segir Gylfi Arnbjörnsson.
„Auðvitað er það svo að það mæðir
fyrst og fremst á atvinnufyrirtækjun-
um sjálfum að keyra upp atvinnulífið
en það er líka ýmislegt sem snýr að op-
inberum framkvæmdum og hvernig
umhverfi við sjáum fyrir okkur fyrir
atvinnulífið og hvernig við viljum
byggja það upp áfram,“ sagði ráð-
herra.
Líða ekki eyðileggingu
Samtök atvinnulífsins hafa lagt
áherslu á sjávarútvegsmálin í við-
ræðum við ríkisstjórnina. Vilmund-
ur segir uppi áform um að ganga
mjög langt í að eyðileggja sjávar-
útveginn með breytingum á fisk-
veiðistjórnarkerfinu. „Við getum
ekki liðið það, eins og staðan er nú í
íslensku atvinnulífi, að það sé verið
að reyna að vinna pólitíska sigra á
kostnað þjóðarinnar,“ segir hann.
Hann vekur jafnframt athygli á því
að ef sjávarútvegurinn geti náð
sæmilegri fótfestu fari í gang fjár-
festingar þar upp á 10 til 20 millj-
arða á næstu árum, fjárfestingar
sem nú séu í frosti vegna óvissu með
rekstrarskilyrði.
Ríkisstjórnin leggur
spilin á borðið í dag
Vinnuveitendur halda pressunni í sjávarútvegsmálum
FRÉTTASKÝRING
Einar Örn Gíslason
einarorn@mbl.is
Dagurinn í dag er sá síðasti sem hægt er að
leggja fram ný mál á Alþingi fyrir sumarhlé, en
síðasti þingfundur þessa þings verður, sam-
kvæmt starfsáætlun, þann 9. júní. Mikill fjöldi
mála bíður enn afgreiðslu, en þeim til viðbótar
var á annan tug nýrra mála dreift í gær, þar á
meðal 8 stjórnarfrumvörpum. Búast má við því
að enn bætist við í dag, en ekkert bendir til
þess að hið margumtalaða frumvarp um breyt-
ingar á fiskveiðistjórnunarkerfinu verði þar á
meðal. Það þýðir hins vegar ekki að frumvarp-
ið komi ekki fram á þessu þingi, því hugsanlegt
er að það verði afgreitt með afbrigðum, það er
að segja með samþykki Alþingis.
Landsdómsfrumvarp á langt í land
Eiginlegar samningaviðræður þingflokks-
formanna um hvaða málum skuli veita braut-
argengi á þinginu snúast fyrst og fremst um
það hvaða mál skuli kláruð, en ekki hver verði
lögð fram. Því hefur ekki reynt á þær viðræður
enn. Á meðal stórra mála sem ríkisstjórnin
mun að líkindum leggja áherslu á er frumvarp
um breytingu á lögum um landsdóm. Frum-
varpið felur það meðal annars í sér að dómarar
sem hefja meðferð máls skuli ljúka því, þó
kjörtímabili þeirra ljúki. Fyrstu umræðu um
frumvarpið var frestað eftir aðeins klukku-
stund þann 24. nóvember síðastliðinn. Við því
hefur ekki verið hreyft síðan. Náist málið ekki í
gegn er líklegt að mál Geirs H. Haarde, fyrr-
verandi forsætisráðherra, komist í uppnám.
Þá hefur frumvarp til nýrra laga um Stjórn-
arráð Íslands, sem samþykkt var í ríkisstjórn
fyrir helgi, ekki verið lagt fram. Eins er frum-
varps efnahags- og viðskiptaráðherra um
framlengingu gjaldeyrishafta enn beðið.
Veigamikil mál láta bíða eftir sér
Fresturinn til þess að leggja fram ný þingmál rennur út í dag Frumvarps um breytingar á fisk-
veiðistjórnunarkerfi enn beðið Fyrstu umræðu um breytingar á landsdómslögum er enn ólokið
Ný þingmál
» Frestur til þess að leggja fram ný mál
á Alþingi rennur út í dag.
» Ýmis veigamikil mál bíða þess enn að
vera kláruð, eða hafa hreinlega ekki verið
lögð fram.
» Ef fiskveiðifrumvarp lítur dagsins ljós
á þessu þingi þarf samþykki Alþingis til
þess að það verði tekið á dagskrá.
4 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 31. MARS 2011
Ögmundur Jónasson innanríkis-
ráðherra segir að ríkið hafi lagt til
að reist verði nýtt húsnæði vestan
Reykjavíkurflugvallar, þar sem nú-
verandi þjónustumiðstöð er eins
fljótt og kostur sé.
Fallið hafi verið frá því að reisa
samgöngumiðstöð við flugvallar-
svæðið Öskjuhlíðarmegin vegna
andstöðu borgaryfirvalda. Hafi þau
ekki talið miðstöðina henta fram-
tíðaráformum um samgöngur á
höfuðborgarsvæðinu. Þá hafi þau
horft til þess að flugvöllurinn verði
fluttur.
„Ég hef verið þeirrar skoðunar,
mjög eindregið, að Reykjavíkur-
flugvöll eigi ekki að flytja. En við
komust ekki hjá því að stórbæta
alla aðstöðu fyrir innanlands-
flugið,“ sagði Ögmundur á Alþingi í
gær. Sagðist hann hafa trú á því að
samkomulag næðist um skipan til
einhverra ára. Finna þyrfti mála-
miðlun sem þjónaði og gagnaðist
innanlandsfluginu. „Það verður
ekki gert öðruvísi en með því að
bæta aðstöðuna. Þetta er líka lang-
ódýrasti kosturinn,“ sagði Ög-
mundur.
Ekki útfært frekar
Samkvæmt upplýsingum frá inn-
anríkisráðuneytinu liggur ekkert
fyrir ennþá um útfærsluna. Þegar
hætt hafi verið við samgöngu-
miðstöðina hafi verið talað um að
útfæra einhvers konar miðstöð í
samráði við flugrekendur á vestur-
svæði vallarins. Það hafi enn ekki
verið útfært nánar að öðru leyti en
að flugstöðin og sú þjónustuaðstaða
sem þar er yrði endurnýjuð í því
skyni að koma þangað fleiri flug-
rekendum inn sem vilja nota
Reykjavíkurflugvöll. kjartan@mbl.is
Vill reisa nýtt hús-
næði við Reykja-
víkurflugvöll
Þörf á að endurbæta aðstöðu eftir
að hætt var við samgöngumiðstöð
Morgunblaðið/Golli
Flugvöllur Flugstöðvarbyggingin á
Reykjavíkurflugvelli.
„Tíminn er að renna út,“ segir Gylfi Arnbjörnsson, forseti ASÍ, um stöð-
una. Hann vonast til að góð efnisleg umræða fáist um hugmyndir ríkis-
stjórnarinnar á fundi í Stjórnarráðinu. Samninganefnd ASÍ muni
síðan hittast síðdegis. Þá reiknar hann með því að staðan í við-
ræðunum skýrist á fundi samninganefnda ASÍ og SA í kvöld.
„Við munum meta þarfir okkar félagsmanna til launahækk-
ana með tilliti til þess hvort við teljum að stjórnvöld séu að ná
tökum á stöðunni,“ segir Gylfi. Hann reiknar með að það
ráðist á þessum fundum hvort líkur séu á að samningar
náist um þriggja ára samning eða hvort nauðsynlegt
verði að kúvenda til að tryggja launahækkanir með
samningi til skemmri tíma. Reiknað er með að samn-
inganefndir sérsambandanna fundi á föstudag.
„Tíminn er að renna út“
STAÐAN Í KJARAVIÐRÆÐUM Á AÐ SKÝRAST Í DAG
Gylfi Arnbjörnsson
Morgunblaðið/Kristinn
Við Stjórnarráðshúsið Vilmundur Jósefsson, formaður Samtaka atvinnulífsins, og Vilhjálmur Egilsson fram-
kvæmdastjóri voru ekki bjartsýnir þegar þeir komu af fundi forsætis- og fjármálaráðherra í gær.
Settu þig í stellingar
20% afsláttur af stillanlegum heilsurúmum
Faxafeni 5 • Sími 588 8477