Morgunblaðið - 31.03.2011, Síða 6

Morgunblaðið - 31.03.2011, Síða 6
6 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 31. MARS 2011 Breytingar á fráveitugjaldi í Reykjavík og á Akranesi (m.v. 100 fm fasteign) Verðbreytingar í Borgarbyggð hafa ekki verið útfærðar. 40.000 35.000 30.000 25.000 20.000 15.000 10.000 5.000 0 Var Verður í raun 2011 Verður á ársgrundvelli 25.022 kr. 32.528 kr. 36.281 kr. Einar Örn Gíslason einarorn@mbl.is Aðgerðaáætlun Orkuveitunnar, sem kynnt var í gær, felur í sér umtals- verðar gjaldskrárhækkanir sem taka eiga gildi þann 1. maí næstkom- andi. Þetta verður önnur hækkunin á skömmum tíma, en þann 1. nóvem- ber á síðasta ári hækkaði verðið á dreifingu rafmagns. Þar að auki var tekin upp innheimta aukafráveitu- gjalds af fyrirtækjum. Síðasta áætlun dugði ekki til Þær breytingar voru, líkt og breytingarnar nú, kynntar samhliða viðameiri áætlun til þess að rétta af slæma fjárhagsstöðu fyrirtækisins og gera því kleift að standa við skuldbindingar við lánardrottna. Nú er ljóst að sú áætlun gekk ekki eftir. Samkvæmt áætluninni sem kynnt var í gær verður fráveitugjald hækk- að um lítil 45%, og gjald fyrir heitt vatn um 8%, frá og með 1. maí næst- komandi. Þessum hækkunum er ætl- að að skila Orkuveitunni 8 milljarða tekjuaukningu til ársloka 2016, bróð- urpartinum vegna fráveitugjaldsins, 6,1 milljarði, en 1,9 milljörðum vegna hækkunar heita vatnsins. Gjöldin hækka um fleiri þúsund Hvað heimilin sjálf varðar leiðir gjaldskrárbreytingin til töluverðrar útgjaldaaukningar. Samkvæmt út- reikningum Orkuveitunnar sjálfrar mun fráveitugjald þess sem á 100 fermetra fasteign í Reykjavík eða á Akranesi hækka um rösklega 11.000 krónur á ári. Hækkunin í ár nær ekki þeirri tölu, þar sem hún tekur ekki gildi fyrr en nokkuð er liðið á árið. Sé miðað við sömu stærð fasteignar verður hækkunin rúmlega 7.500 krónur í ár, hækkar úr 25.000 í 32.500. Gjaldskrárbreytingar hafa ekki verið útfærðar í Borgarbyggð, en tilkynningar um þær er að vænta á næstu dögum. Hefur áhrif á vísitöluna Þar sem gjaldskrárhækkanirnar eru umtalsverðar munu þær hafa áhrif á þróun vísitölu neysluverðs, og þannig hafa áhrif til hækkunar verð- tryggðra skuldbindinga, svo sem húsnæðislána. Greiningardeild Ís- landsbanka áætlar að hækkun vísi- tölunnar í maí verði um 0,2% frá því sem annars hefði verið. Athugun Hagstofunnar leiddi það í ljós að lík- lega yrði hækkunin á bilinu 0,2-0,3%, en áhrif hækkunar heita vatnsins hverfandi hluti af því. Fráveitugjald hækkar um þúsundir  Gjaldskrárhækkanir OR kalla á umtalsverða útgjaldaaukningu heimila og leiða til vísitöluhækkunar BAKSVIÐ Björn Jóhann Björnsson bjb@mbl.is Flestallar eignir utan kjarnastarf- semi Orkuveitu Reykjavíkur (OR) eru falar til kaups, en eins og fram kom í Morgunblaðinu í gær hyggst OR fá um 10 milljarða króna með eignasölu til ársins 2016. Að sögn Bjarna Bjarnasonar, for- stjóra OR, má reikna með að stærst- ur hlutinn, eða um helmingur, komi af sölu á Gagnaveitu Reykjavíkur. Óvissa sé hins vegar um hvort og þá hvernig Gagnaveitan verður seld. Í aðgerðaáætluninni er reiknað með sölu veitunnar árið 2013. Bókfært virði eignar í Gagnaveitunni, sem OR á alfarið, er 4,7 milljarðar króna. Höfuðstöðvarnar í Bæjarhálsi 1 eru ekki allar til sölu. Bjarni segir að byrjað verði á að selja austurhluta hússins og flytja fljótlega alla starf- semi þaðan yfir í vesturhlutann, sem kallaður hefur verið „Skipið“. Selja á fasteignir eins og Perluna, Hótel Hengil og Minjasafnshúsið í Elliðaárdal og jörðina Hvammsvík, auk hluta í félögum eins og Lands- neti og HS Veitum. Bókfært virði OR í HS Veitum er 1,5 milljarðar og 400 milljónir í Landsneti. Góðar söluhorfur Sverrir Kristinsson, fasteignasali hjá Eignamiðlun, segist telja að OR eigi góða möguleika á að selja sínar helstu fasteignir. Hann treystir sér ekki til að slá á upphæðir fyrir hverja eign, til þess þurfi hann að vita meira um leiguverð og rekstur, líkt og með Perluna. Væntanlegir kaupendur muni tengja arðsemi og verð saman og einnig skipti máli að vita hver fasteignagjöldin eru. Býst Sverrir við miklum áhuga á eignum eins og Hvammsvík, Hótel Hengli og Minjasafnshúsinu. Hann segir Eignamiðlun hafa fyr- ir nokkrum árum verið með áhuga- sama fjárfesta sem vildu kaupa Bæj- arháls 1. Fyrir „rétt verð“ ætti að vera hægt að selja þá eign sem og Perluna. Sverrir ráðleggur jafnframt stjórnendum OR að láta fagmenn annast sölu fasteigna frekar en að selja þær beint. Flestar eignir OR til sölu  Sala á Gagnaveitunni gæti skilað um helmingi af þeim 10 milljörðum sem eigna- sala OR á að skila  Enn er Perlan sett á sölu  Helmingur höfuðstöðvanna falur Eignasala OR » Perlan hefur áður verið til sölu hjá OR. Þannig var 600 milljóna tilboði hafnað árið 2002 og haft eftir stjórn- endum OR að Perlan yrði ekki seld fyrir minna en milljarð. » Selja á eignir Reykjavik Energy Invest, REI, í erlend- um félögum á borð við Ice- land American Energy og En- vent Holdings. Þá er nærri 20% hlutur í Enex Kína til sölu. » Hins vegar eru eignarhlutir OR ekki falir í félögum eins og Netorku og Vistorku. Morgunblaðið/Kristinn Fasteignir Orkuveita Reykjavíkur er með til sölu ýmsar fasteignir, m.a. Perluna í Öskjuhlíð, Hvammsvík í Hvalfirði og Minjasafnshúsið í Elliðaárdal. Morgunblaðið/ÞÖK Flaggskipið Orkuveituhúsið að Bæjarhálsi 1. Til að byrja með verður aust- urhúsið selt, t.h., og starfsemi OR flutt yfir í vesturhúsið, eða „Skipið“. Ljósmynd/OrkuveitanLjósmynd/Orkuveitan Bjarni Bjarnason Sverrir Kristinsson „Lífeyrissjóðir eiga þarna ákveð- ið frumkvæði og það kom ekki til fyrr en okkur var kunnugt um að Orkuveitan hefði ekki burði til að ráðast í þessa virkjun,“ segir Arnar Sigur- mundsson, for- maður Landssamtaka lífeyrissjóða, en sjóðirnir samþykktu ályktun í gær þar sem lýst er áhuga á að koma að eða fjármagna Hverahlíðar- virkjun Orkuveitu Reykjavíkur, en orkan þaðan var ætluð til álvers Norðuráls í Helguvík. Að sögn Arnars stendur til að funda með Orkuveitunni og Norður- áli á morgun til að fara yfir málin. Ef áhugi komi fram þar muni lífeyris- sjóðir koma saman til fundar á ný og fela ákveðnum aðilum að fara í við- ræður um framhaldið. „Ef áreiðanleikakannanir verða jákvæðar gæti þetta orðið áhuga- verður kostur. Við þurfum einnig að kynna okkur innihald orkusölu- samninga. Lífeyrissjóðirnir þurfa að leita nýrra fjárfestingakosta og okk- ur finnst orkugeirinn geta verið spennandi,“ segir Arnar. bjb@mbl.is Lífeyris- sjóðir vilja í Hverahlíð  Setjast til viðræðna við OR og Norðurál Arnar Sigurmundsson „Ég hef verið að bíða eftir því að lífeyrissjóðir fari að hreyfa sig inn í orkugeirann og fagna því þessum áhuga sjóðanna á Hverahlíðar- virkjun,“ segir Katrín Júlíus- dóttir iðnaðar- ráðherra. Hún segir stjórnendur Orkuveitu Reykjavíkur vera að taka hárrétt á málunum með því að halda sig við kjarnastarfsemina og vinna þannig úr stöðunni að fyrirtækið geti sótt fram á ný. Um mögulega aðkomu Landsvirkjunar að virkjunum OR segir Katrín mestu skipta að Lands- virkjun geri það á viðskiptalegum forsendum. Horfa þurfi á arðsemina fyrir þjóðarbúið þegar til lengri tíma sé litið. Fara þurfi yfir allar hliðar málsins og huga jafnframt vel að samkeppnissjónarmiðum. bjb@mbl.is OR tekur rétt á málum Katrín Júlíusdóttir Vegna óvissu um orkusölusamn- inga í Helguvík hafa tafir orðið á framkvæmd samninga við aðra aðila, eins og vélaframleiðendur og verktaka. Fram kemur í árs- reikningi OR að samninga- viðræður hafa staðið yfir um greiðslu bóta vegna slíkra tafa. Bjarni Bjarnason segir að ef allt fari á versta veg geti OR þurft að greiða þessar bætur en mikil óvissa sé uppi um það enn. Umfangsmestir eru samningar við japanska fyrirtækið Mitsubishi og þýska fyrirtækið Balcke Dürr um frestun á afhendingu véla- samstæðna. Er stærstur hluti tafabóta þegar greiddur vegna þeirra tveggja véla Hellisheiðar- virkjunar sem teknar verða í notk- un í haust eftir árstöf. Til viðbótar lágu fyrir pantanir á þremur vél- um, þar af tveimur vegna Hverahlíðarvirkjunar en hver vél kostar um 5 milljarða króna. Vegna þess að þessar vélar voru skemmra komnar í framleiðslu þegar tilkynnt var um tafir er tjón framleiðandans af töfunum talið minna og því var ekki talin ástæða til varúðarfærslu í árs- reikningi OR fyrir 2010. Gæti komið til greiðslu bóta ÓVISSA UM KAUP OR Á ÞREMUR VÉLASAMSTÆÐUM

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.