Morgunblaðið - 31.03.2011, Qupperneq 8
8 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 31. MARS 2011
Ákafamenn um ólögmæta skuld-setningu Íslands leggja mikið á
sig þessa dagana til að sannfæra
þjóðina um að hagsmunir hennar fel-
ist í að taka á sig skuldir annarra.
Nýjasta útspilið íbaráttunni er
að fá nefndarmann-
inn Lee Buchheit í
fundaherferð til
landsins. Hann mun í
dag á að minnsta
kosti tveimur fundum norðan og
sunnan heiða fjalla um meinta kosti
þess fyrir Ísland að samþykkja
skuldsetninguna.
Þrátt fyrir afleitan árangur samn-inganefndarinnar, sem nýlega
breyttist í áróðursnefnd, hefur Buch-
heit fengið vel greitt. Ekki er þó vit-
að hversu vel því að fjármálaráð-
herra hefur ekki viljað gefa upp
hvaða greiðslur nefndarmenn hafa
fengið eða hver heildarkostnaðurinn
við þennan herleiðangur hefur verið.
Það sem þó er vitað er að her-kostnaðurinn er mikill og hleyp-
ur líklega á hundruðum milljóna
króna. Annað sem er vitað er að her-
leiðangrinum lauk með fullum ósigri
íslensku samningamannanna og yfir-
boðara þeirra. Þeir tóku á sig allar
byrðarnar sem krafist var þrátt fyrir
að hafa öll rök og alla löggjöf sín
megin.
Afleiðingarnar af hinni snautleguherför gætu orðið þær að þjóð-
in ákvæði að taka þátt í ósigrinum
með ríkisstjórninni og fylgis-
mönnum hennar. Þá yrði herkostn-
aðurinn ekki aðeins hundruð millj-
óna króna heldur tugir eða hundruð
milljarða króna.
Hinn möguleikinn er að neita aðtaka þátt í þessari skilyrðis-
lausu uppgjöf og láta þá bera tapið
sem það eiga.
Lee Buchheit
Ætlar þjóðin að
taka þátt í tapinu?
STAKSTEINAR
Anna Kristín Ólafsdóttir átti í gær
fund með embættismönnum í for-
sætisráðuneytinu um niðurstöðu
kærunefndar jafnréttismála. Engin
tillaga að lausn
var lögð fram á
fundinum. Anna
Kristín sagðist
hafa búist við að
hugmyndir um
lausn málsins
yrðu lagðar fram
á fundinum.
Kærunefnd
jafnréttismála
komst að þeirri
niðurstöðu að
Jóhanna Sigurðardóttir forsætis-
ráðherra hefði brotið jafnréttislög
þegar hún réð Arnar Þór Másson í
embætti skrifstofustjóra hjá skrif-
stofu stjórnsýslu- og samfélags-
þróunar í forsætisráðuneytinu í
fyrra. Anna Kristín sótti einnig um
stöðuna, en nefndin taldi ekki nein-
ar vísbendingar um að Arnar hefði
verið hæfari til starfans.
Á fundinum í forsætisráðuneyt-
inu með Önnu Kristínu voru við-
brögð við niðurstöðu kærunefndar
rædd. „Ráðuneytið lagði ekki fram
neinar tillögur um lausn málsins,“
sagði Anna Kristín um fundinn.
„Þau báru fyrir sig að þau væru að
bíða eftir einhverju áliti frá ríkis-
lögmanni. Ég sagði á fundinum að
ég væri tilbúin til að ná sáttum á
grundvelli jafnréttislaganna, þ.e.
þeirra laga sem úrskurðurinn er
byggður á. Þar er kveðið á um
bætur. Það er hins vegar ráð-
herrans að ákveða hvort hún vill
fara með málið fyrir dómstóla og
reyna að fá úrskurði kærunefndar
hnekkt.“
Anna Kristín sagðist ekki ætla
að bíða lengi eftir svörum frá ráðu-
neytinu. Ef ekki kæmu svör fljót-
lega myndi hún höfða skaðabóta-
mál á grundvelli úrskurðarins.
Engin til-
laga að
lausn
Funduðu um niður-
stöðu kærunefndar
Anna Kristín
Ólafsdóttir
Veður víða um heim 30.3., kl. 18.00
Reykjavík 7 rigning
Bolungarvík 2 alskýjað
Akureyri 3 skýjað
Egilsstaðir 7 skýjað
Kirkjubæjarkl. 7 rigning
Nuuk -3 skýjað
Þórshöfn 6 alskýjað
Ósló 3 heiðskírt
Kaupmannahöfn 7 skýjað
Stokkhólmur 3 léttskýjað
Helsinki 2 heiðskírt
Lúxemborg 12 skýjað
Brussel 12 skýjað
Dublin 13 skýjað
Glasgow 8 alskýjað
London 11 skýjað
París 11 skúrir
Amsterdam 11 skýjað
Hamborg 16 heiðskírt
Berlín 16 heiðskírt
Vín 18 léttskýjað
Moskva 1 snjókoma
Algarve 18 heiðskírt
Madríd 17 léttskýjað
Barcelona 15 léttskýjað
Mallorca 17 léttskýjað
Róm 16 þrumuveður
Aþena 17 skýjað
Winnipeg 2 alskýjað
Montreal 6 léttskýjað
New York 6 heiðskírt
Chicago 5 skýjað
Orlando 25 léttskýjað
Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnar-
greinum Morgunblaðsins á slóðinni
http://mbl.is/mogginn/leidarar/
VEÐUR KL. 12 Í DAG
31. mars Sólarupprás Sólsetur
REYKJAVÍK 6:50 20:15
ÍSAFJÖRÐUR 6:51 20:24
SIGLUFJÖRÐUR 6:34 20:07
DJÚPIVOGUR 6:19 19:45