Morgunblaðið - 31.03.2011, Qupperneq 12

Morgunblaðið - 31.03.2011, Qupperneq 12
12 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 31. MARS 2011 BAKSVIÐ Guðni Einarsson gudni@mbl.is Fangahópurinn í fangelsum landsins hefur mikið breyst á undanförnum árum. Æ fleiri sitja inni fyrir alvarleg brot á borð við mann- dráp, líkamsárásir, kynferðisafbrot, þ. á m. gegn börnum, stór fíkniefnabrot og síbrot. Um helmingur fanga í fyrra var að afplána meira en þriggja ára refsingu. Refsingum hefur fjölgað á síðustu árum um leið og þungum dómum vegna alvarlegra afbrota. Þetta veldur stöðugt vaxandi álagi á fangelsiskerfið sem hefur ekki undan að fullnusta refsingarnar. Aldrei hafa fleiri konur setið í fangelsi á Ís- landi en um þessar mundir. Nú afplána tólf konur refsingu í fangelsinu í Kópavogi. Gengjamyndun og útlendingar Útlendingum í fangelsum landsins hefur fjölgað ár frá ári. Þeir eru nú 18% allra fanga og er enn að fjölga. Páll Egill Winkel, forstjóri Fangelsismálastofnunar ríkisins, segir að yfir- völd hér viti oft lítið um þessa afbrotamenn þegar þeir koma í fangelsin. „Við höfum komist að því að einstaklingar sem sitja í okkar fangelsum hafa jafnvel verið dæmdir fyrir manndráp og alvarlegar líkams- árásir í útlöndum,“ sagði Páll. Ekki er langt síðan Brasilíumaðurinn Hosmani Ramos var tekinn á Keflavíkurflugvelli með falsað vega- bréf. Hann átti þá að vera að afplána margra ára fangelsisdóm fyrir mannrán, líkamsárásir og önnur alvarleg brot í heimalandi sínu. „Hann var það þekktur að þegar þetta fór í fjölmiðla á Íslandi hringdu í mig fjölmiðlar frá tugum landa í nánast öllum heimsálfum. Við vissum ekkert um Ramos í fyrstu og var hann vistaður í Hegningarhúsinu við Skólavörðustíg sem var tekið í notkun 1874.“ Lögreglan hefur varað við gengjamyndun, jafnt Íslendinga í samtökum á borð við Hells Angels og Outlaws, og útlenskum þjófagengj- um aðallega frá Póllandi og Litháen. „Þegar gengjafélagar eru handteknir vilja þeir áfram halda hópinn. Gengjamyndun í samfélaginu skilar sér alltaf inn í fangelsin,“ sagði Páll. Hann sagði að gengjunum og út- lendingunum fylgdi tvíþættur vandi. „Annars vegar þurfum við að geta skipt þessum hópum upp. Þessir einstaklingar geta sameinast um að leggja aðra í einelti. Það koma upp líkams- árásir og pústrar. Menn geta verið að skipu- leggja strok og fleira. Hins vegar eru menn misjafnlega valdamiklir í þessum hópum. Stundum þarf að skilja leiðtogann frá hinum og vista hann í öðru fangelsi. Nú getum við ekki gert það með fullnægjandi hætti.“ Ástæða þess er ástandið í fangelsismálum. Í landinu eru ekki nema sex fangelsi, tvö þeirra eru opin án rimla og girðinga og tvö eru rekin á árlegri undanþágu frá heilbrigðisyfirvöldum. Opin fangelsi og öryggisfangelsi Tölulegar upplýsingar Fangelsismálastofn- unar sýna að samsetning fangahópsins, með tilliti til afbrota, er mjög svipuð í opnu fangels- unum og í öryggisfangelsunum. Fangar með dóma fyrir ofbeldisbrot, kynferðisbrot, jafnvel gegn börnum, og stór fíkniefnabrot eru ekki síður vistaðir í opnum fangelsum á Kvía- bryggju og Bitru en í öryggisfangelsunum Litla-Hrauni, á Akureyri, Hegningarhúsinu og í Kópavogsfangelsinu. Páll telur að úr þessu verði ekki bætt nema með nýju fangelsi. „Við tökum þá menn inn sem við teljum hættulega og menn sem eru með alvarleg brot á bakinu. Fyrir vikið verður samsetningin svona,“ sagði Páll. Þeir sem eru með vægari dóma á herðunum, þó lengri en sex mánuði, mæta hreinlega afgangi. Páll kvaðst vilja sjá fjölbreyttari fangahóp í opnu fangelsunum. „Mér finnst hins vegar mjög eðlilegt að menn sem sérfræðingar okkar meta hæfa til að fara í opið úrræði fái að fara þangað, þrátt fyrir að þeir hafi verið dæmdir fyrir alvarleg brot. Það er mikilvægt að menn sem eru eitt- hvað að vinna í sínum málum af viti geti vistast í opnu fangelsi,“ sagði Páll. Hann nefnir til dæmis tvo menn sem fá 16 ára fangelsisdóma á svipuðum tíma fyrir manndráp. Annar ákveður að lúta reglum og nýtir tímann til náms. Hinn streitist við í vitleysunni. Ellefu árum síðar er annar á leið á áfangaheimili en hinn situr enn í lokuðum klefa á Litla-Hrauni. Einstaklingar með allt að sex mánaða dóma, óskilorðsbundna eða blandaða dóma, afplána gjarnan með samfélagsþjónustu. „Endur- komuhlutfall manna sem hafa afplánað með samfélagsþjónustu á Íslandi er langlægst á Norðurlöndunum. Það eru ekki nema 16% þeirra sem koma aftur innan tveggja ára.“ Eitt fyrsta verk Páls, eftir að hann sneri aft- ur til Fangelsismálastofnunar, var að auka nýtingu fangarýma. Hún fór úr 86% árið 2002 upp í 108% í fyrra. Frá árinu 2008 hefur nýt- ingin verið yfir 100% á hverju ári. Það hefur náðst með því að tvímenna í nokkra klefa í Hegningarhúsinu, Kópavogsfangelsinu og á Litla-Hrauni. Það er gert þótt fangaklefarnir séu ætlaðir fyrir einn mann. Páll sagði að þessi mikla nýting væri ekki forsvaranleg til lengri tíma, hvorki fyrir starfsfólk né fangana. Úrbætur í áföngum Páll telur að grípa þurfi til aðgerða í þremur liðum til að bæta ástandið. Í fyrsta lagi þurfi að gera breytingu á lögum um fullnustu refsinga. Unnið er að slíku frumvarpi í innanríkisráðu- neytinu og segir Páll að til standi að leggja það fram fljótlega. Í því felist rýmkun á samfélags- þjónustu þannig að menn með allt upp í 12 mánaða dóma geti sinnt samfélagsþjónustu í stað sex mánaða hámarksins nú. Einnig sá möguleiki að taka upp rafrænt eftirlit með föngum í lok afplánunar. „Það þarf að byggja gæsluvarðhalds- og móttökufangelsi á höfuðborgarsvæðinu og loka þar fangelsunum tveimur sem bæði eru rekin á undanþágum. Nýja fangelsið þarf að vera sérhannað nútímalegt fangelsi á einni hæð með miðlægri varðstofu því það sparar rekstrarkostnað og mannafla,“ sagði Páll. Miðað er við að nýtt fangelsi rúmi 56 fanga. Með lokun 26 rýma í gömlu fangelsunum tveimur mun plássið aukast um u.þ.b. 30 rými. Páll kvaðst gera ráð fyrir áframhaldandi rekstri á Bitru. Með byggingu nýja fangelsis- ins verði gæsluvarðhaldsdeildinni á Litla- Hrauni lokað og hún notuð sem öryggisgangur eða afplánun. Með þessum aðgerðum verði hægt að bæta úr hinni brýnu þörf fyrir fang- elsispláss. Páll segir að gæsluvarðhaldsfangelsið verði að vera nálægt helstu lögregluembættum landsins og stærstu dómstólunum. Móttöku- fangelsið eigi að vera á höfuðborgarsvæðinu þaðan sem flestir fangar koma. „80% fanga eru af höfuðborgarsvæðinu. Hæstiréttur Íslands er og verður þar og eins stærstu héraðsdómstólarnir, í Reykjavík og á Reykjanesi. Langstærsta lögregluliðið og stærsta rannsóknardeildin eru líka á þessu svæði,“ sagði Páll. Hann rifjaði upp nýlega birtar tölur um tuga milljóna kostnað sem hlýst af akstri með gæsluvarðhaldsfanga, lög- menn o.fl. milli höfuðborgarinnar og Litla- Hrauns á hverju ári. Hann segir að þeir sem leggi til nýtt fangelsi fjarri höfuðborginni gleymi því gjarnan að loka þurfi báðum fang- elsunum sem nú eru á höfuðborgarsvæðinu, því þau eru hreinlega ónýt. Hegningarhúsið með 14 pláss og Kópavogsfangelsið með 12 pláss eru rekin á árlegri undanþágu frá heil- brigðiseftirliti. „Þessi fangelsi eru okkur til skammar, þeim á að loka og það verður gert,“ sagði Páll. „Sú hugmynd að vera ekki með neitt fangelsi á höf- uðborgarsvæðinu er glórulaus í mínum huga.“ Páll segir að einnig þurfi að ráðast í alls- herjar uppbyggingu á Litla-Hrauni. Þar þurfi að byggja nýja starfsmannaaðstöðu og eins heimsóknaraðstöðu fyrir fanga. Um leið verði allur öryggisaðbúnaður fangelsisins styrktur. Þegar það er búið verði hægt að fjölga fanga- klefum á Litla-Hrauni með viðbyggingu. „Í mínum huga er ekki forsvaranlegt að fjölga fangarýmum á Litla-Hrauni nema allt hitt fylgi með,“ sagði Páll Afplánunarfangar 20 0 1 20 0 2 20 03 20 0 4 20 0 5 20 0 6 20 07 20 0 8 20 0 9 20 10 20 0 1 20 0 2 20 03 20 0 4 20 0 5 20 0 6 20 07 20 0 8 20 0 9 20 10 20 0 1 20 0 2 20 03 20 0 4 20 0 5 20 0 6 20 07 20 0 8 20 0 9 20 10 140 120 100 80 60 40 20 0 350 300 250 200 150 100 50 0 180 160 140 120 100 80 60 40 20 0 Meðaltalsfjöldi afplánunarfanga í fangelsum Þar af afpl. þyngri refsingu en 3 ár Refsitími Refsitími til fullnustu, í árum talinn Fjöldi fanga Meðaltalsfjöldi allra fanga Þar af í fangelsum Þar af útlendingar 87 85 98 100 97 97 104 118 116 134 241 179 215 209 235 220 300 298 332 309 124 118 133 138 139 145 141 155 160 171 152 137133 120118116120116 103107 12 11 9 10 15 17 18 24 23 26 35 34 28 29 29 31 42 53 55 65 Glórulaust að hafa ekkert fangelsi á höfuðborgarsvæðinu  Forstjóri Fangelsismálastofnunar segir orðið mjög brýnt að gera úrbætur í fangelsismálum Morgunblaðið/Júlíus Fangelsi Vegna plássleysis hafa fangar verið látnir tvímenna í eins manns fangaklefum. Páll Winkel, for- stjóri Fangelsis- málastofnunar, sagði að ástandið í fangelsismálum sé orðið óþolandi. Þörfin fyrir fleiri fangarými sé mikil. „Við lendum ítrekað í því að það losnar eitt pláss og við verðum að velja úr kannski 3-4 manna hópi hvern á að taka inn. Hóp- urinn er hins vegar þannig saman- settur að við vild- um geta sett þá alla inn og myndum hafa gert það strax í eðlilegu ástandi. Þetta er vandamál.“ Plássleysið kemur líka niður á þeim sem fá fangelsisdóm og verða svo bíða afplán- unar jafnvel árum saman. Páll nefndi til dæmis mann sem var búinn að bíða í fjög- ur ár eftir að komast í afplánun þegar hann var kallaður inn. Þá var maðurinn búinn að eignast konu og börn, kominn í vinnu og hættur öllu rugli. Nú varð að kippa honum inn í af- plánun svo dómurinn fyrntist ekki. Páll sagði að það væri átakanlegt að þurfa að standa svona að málum. „Þetta er alger- lega ferlegt og erfitt að verja,“ sagði hann. „Algerlega ferlegt“ MIKIÐ PLÁSSLEYSI Í FANGELSUNUM Páll E. Winkel

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.