Morgunblaðið - 31.03.2011, Blaðsíða 14
14 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 31. MARS 2011
ÚR BÆJARLÍFINU
Skapti Hallgrímsson
Akureyri
Tveir nýir fréttamenn hefja senn
störf hjá RÚV á Akureyri; Snæfríð-
ur Ingadóttir og Þórhildur Ólafs-
dóttir sem koma í stað Freyju Dagg-
ar Frímannsdóttur og Óskars Þórs
Halldórssonar.
Þriðji „nýliðinn“ hjá RÚV á Ak-
ureyri er Sveinn Guðmarsson, eigin-
maður Þórhildar. Hann hefur sagt
erlendar fréttir í útvarpið og heldur
því áfram úr stól norður í landi.
Það er sem sagt endanlega stað-
fest að álíka langt er frá útlandinu til
Akureyrar og til Reykjavíkur. Og
jafn auðvelt að skrifa erlendar frétt-
ir hvar sem er á landinu hafi maður á
annað borð aðgang að erlendum
fréttaveitum. Hafi einhver efast …
Áhugamenn um framtíð Íslands
takið eftir: Lee Buchheit, formaður
síðustu Icesave-nefndarinnar, held-
ur klukkustundar fyrirlestur um
samninginn – kosti hans og galla,
eins og segir í tilkynningu – í Há-
skólanum á Akureyri í hádeginu í
dag. Buchheit hefur mál sitt kl.
12.30.
Um 150 norðlensk ungmenni
taka þátt í Leiklistarhátíð Þjóðleiks
Norðurlandi sem haldin verður í
Listagilinu um helgina. Upphafið er
markað af skrúðgöngu frá Rósen-
borg niður Listagilið á morgun,
föstudag, kl. 16 og er fólk hvatt til að
mæta og taka þátt.
Leiksýningar verða síðan á
klukkutíma fresti á föstudag frá
klukkan 17 til 19 og laugardag
klukkan 10 til 19. Þrjú glæný verk
eru sýnd: Mold eftir Jón Atla
Jónsson, Kuðungarnir eftir Krist-
ínu Ómarsdóttur og Iris eftir
Brynhildi Guðjónsdóttur og Ólaf
Egil Egilsson.
Áhugamenn um íþróttir á Akur-
eyri hafa nóg fyrir stafni í kvöld;
geta séð handboltaleik og fótbolta-
leik strax á eftir.
Söguleg stund verður í Höllinni
þegar Akureyri – handboltafélag
tekur á móti Aftureldingu, en að
honum loknum fá heimamenn af-
hentan fyrsta bikarinn sem þeir
vinna. Hið sameiginlega lið KA og
Þórs, sem lýkur senn fimmta keppn-
istímabilinu, er deildarmeistari.
Leikurinn hefst kl.19.30.
Grannaslagur Þórs og KA í
Lengjubikarnum í fótbolta er á dag-
skrá í kvöld – en félögin ákváðu að
seinka honum vegna handboltans.
Flautað verður til leiks í Boganum kl.
21.15 þannig að eflaust hendast
margir þangað strax eftir að deild-
arbikarinn fer á loft. Flott framtak
hjá stjórnum knattspyrnudeildanna.
Unnendur tónlistar ættu að kíkja
á ókeypis tónleika í Hofi á laugar-
dagskvöld. Þar spilar 100 manna
lúðrasveit, skipuð gestum frá Fær-
eyjum, og nemendum úr Stórsveit
Tónlistarskólans. Stjórnandi er eng-
inn annar en Bernharður Wilkinson,
fyrrverandi stjórnandi Sinfóníu-
hljómsveitar Íslands.
Mugison heldur tónleika á Græna
hattinum í kvöld. Á morgun og laug-
ardaginn verða hins vegar Helgi
Björnsson og Reiðmenn vindanna á
sama stað.
Morgunblaðið/Skapti Hallgrímsson
Stemning Áhorfendur hafa skemmt sér konunglega á leikjum Akureyrar -
handbotlafélags í vetur. Þessir hressu strákar mæta hugsanlega í kvöld.
Brjálað að gera í
kvöld í boltanum
Hólmfríður Gísladóttir
holmfridur@mbl.is
Í heildarendurskoðun á almannatryggingakerfinu, sem
nú er að fara af stað, mun felast heildarendurskoðun á
því greiðslufyrirkomulagi sem hefur verið viðhaft varð-
andi lífeyrisgreiðslur og innheimtu á dvalargjöldum
dvalarheimilanna. Þetta er meðal þess sem kemur fram í
svari velferðarráðherra, Guðbjarts Hannessonar, við
bréfi sem Kristín H. Tryggvadóttir, íbúi á Hrafnistu í
Hafnarfirði, sendi fjórum ráðherrum 30. janúar síðast-
liðinn.
Í bréfi sínu gagnrýndi Kristín að eftir að hafa eytt æv-
inni í að borga háa skatta og greiða í lífeyrissjóð ætti hún
aðeins lágmarkslífeyri eftir þegar dvalargjöld hefðu ver-
ið greidd, jafn mikið og þeir sem engar tekjur hefðu og
tækju engan þátt í dvalarkostnaðinum. Var spurning
hennar einföld: Til hvers að greiða í lífeyrissjóð?
Svarbréf ráðherra barst Kristínu í byrjun marsmán-
aðar en að hennar sögn virðist hann ekki eiga svar við
spurningu hennar. „Hann byrjar bréfið á því að þakka
mér fyrir og segir mig varpa fram áleitnum spurningum
um velferðarkerfið. Hann segir síðan að samkvæmt lög-
um og reglugerðum sé þetta svona og svona og það vissi
ég fyrir. Það þarf þá að breyta lögunum,“ segir Kristín
sem hefur ritað ráðherra svarbréf til baka þar sem hún
bendir m.a. á að íbúar á dvalarheimilum eigi sér engan
málsvara.
Ekki nóg að fylgjast með úr fjarlægð
„Okkur vantar talsmann og hann þyrfti að vera lög-
fróður, getað gefið okkur ráð og svör,“ segir Kristín.
Hún segir marga hafa sett sig í samband við sig eftir að
fjölmiðlar fjölluðu um fyrra bréf hennar og sumir séu
hreinlega gráti næst yfir því að eiga ekkert eftir þegar
það er búið að innheimta af þeim dvalargjöldin.
Í svari ráðherra kemur fram að meðal þess sem verð-
ur til skoðunar verður að breyta fyrirkomulaginu þann-
ig að lífeyrir verði greiddur beint til íbúa og þeir greiði
sjálfir fyrir búsetu, fæði og annan kostnað en hjúkr-
unarkostnað, og eigi þannig meira val um það hvaða
þjónustu þeir kjósa að nýta sér og greiða fyrir. Enn
fremur að hækka verði frítekjumark lífeyristekna hið
fyrsta.
Kristín fagnar því að endurskoða eigi almannatrygg-
ingakerfið og í svarinu frá ráðherra er hún hvött til þess
að fylgjast með þróun mála. Hún segist hins vegar vilja
gera meira en að fylgjast með úr fjarlægð. „Ef maður
fylgist bara með úr fjarlægð hefur maður ekkert að
segja, svo maður verður annaðhvort að koma sínum
skoðunum á framfæri áður en nefndin fer að fjalla um
þetta eða hafa einhvern hóp með sér,“ segir hún og
hyggst sinna þessu máli eftir getu.
Fékk svar og hyggst
fylgja málinu eftir
Morgunblaðið/Ómar
Vantar svör Kristín segir marga hafa spurningar um
fjárhagsleg réttindi sín, lög og reglugerðir.
Stefán Einar Stefánsson fram-
kvæmdastjóri Hins íslenska biblíu-
félags var kjörinn formaður VR til
næstu tveggja
ára, en úrslit í for-
mannskjöri voru
tilkynnt í gær.
Hann hlaut 977
atkvæði eða
20,6%. Núverandi
formaður, Krist-
inn Örn Jóhanns-
son, hlaut 470 at-
kvæði.
Stefán Einar
sagði þegar úr-
slitin lágu fyrir, að aðalverkefni nýs
formanns væri að „koma á starfsfriði
í stjórn og græða þau sár sem ýfð
hafa verið upp á skrifstofu félagsins“
þannig að félagið yrði betur í stakk
búið til að takast á við erfið og vanda-
söm verkefni.
„Það verður mitt verkefni að finna
út úr því og það verður mjög veiga-
mikill þáttur í mínu starfi,“ segir
Stefán Einar í samtali við mbl.is.
Þá segir hann að verkefnin fram-
undan séu bæði mörg og ærin. Hann
bendir á að VR hafi vakandi augu á
kjaraviðræðum. Samningar séu enn
lausir og það verði hlutverk VR að
reyna að lenda málum með heill fé-
lagsmanna og þjóðarinnar að leiðar-
ljósi.
„Fyrst og fremst er ég þakklátur
fyrir að mér sé treyst fyrir þessu.
Maður verður hálf-meyr yfir því, jafn
ungur og maður er, að þá skuli manni
vera treyst fyrir þessu risavaxna
verkefni,“ segir Stefán Einar.
Kosningaþátttaka 17,13%
Á kjörskrá voru alls 28.419 og at-
kvæði greiddu 4.867. Kosningaþátt-
taka var því 17,13%.
Atkvæðatölur voru eftirfarandi:
Stefán Einar Stefánsson, 977 at-
kvæði, 20,6%, Helga Guðrún Jónas-
dóttir, 860 atkvæði, 18,2%, Páll Örn
Líndal, 733 atkvæði, 15,5%, Rann-
veig Sigurðardóttir, 669 atkvæði,
14,1%, Guðrún Jóhanna Ólafsdóttir,
602 atkvæði, 12,7%, Kristinn Örn Jó-
hannesson, 470 atkvæði, 9,9% og
Lúðvík Lúðvíksson, 421 atkvæði,
8,9%.
Ásta Rut Jónasdóttir, Ragnar Þór
Ingólfsson, Eyrún Ingadóttir, Bene-
dikt Vilhjálmsson, Pálmey Helga
Gísladóttir, Birgir Már Guðmunds-
son og Kristjana Þorbjörg Jónsdóttir
voru kjörin í stjórn til tveggja ára.
Óskar Kristjánsson, Benóný Valur
Jakobsson og Bjarni Þór Sigurðsson
voru kjörnir varamenn í stjórn VR.
Stefán Einar nýr
formaður VR
Aðalverkefni nýs formanns að koma
á starfsfriði í stjórn og græða sárin
Stefán Einar
Stefánsson
Listamaðurinn Tolli afhenti í gær formönnum þing-
flokkanna geisladiska fyrir alla þingmenn með íhug-
unarmöntru Dalai Lama.
Hefur hann framleitt þúsund eintök en þau má að-
eins gefa en ekki selja. Segir hann þetta möguleika fyr-
ir þjóðina til að íhuga, fyrirgefa og halda áfram í sátt.
Morgunblaðið/Kristinn
Íhugunarmantra Dalai Lama til þingmanna