Morgunblaðið - 31.03.2011, Qupperneq 17
FRÉTTIR 17Erlent
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 31. MARS 2011
Bashar al-Assad, forseti Sýrlands,
sagði þegar hann ávarpaði þjóðina í
þinghúsinu í Damaskus í gær að
hann myndi sigra þá sem staðið
hefðu að „samsæri gegn landinu“.
Þetta er í fyrsta sinn sem forsetinn
kemur fram opinberlega síðan mót-
mæli hófust í landinu. Tugir manna
liggja í valnum eftir árásir öryggis-
sveita á mótmælendur.
Assad sagði að umbóta væri þörf
í Sýrlandi og leiðtogar landsins
yrðu að hlusta á rödd þjóðarinnar.
Ráðgjafi Assads sagði fyrr í mán-
uðinum að forsetinn hygðist aflétta
neyðarlögum sem hafa verið í gildi
frá árinu 1963. Búist hafði verið við
því að hann myndi í ræðunni gefa
skýra yfirlýsingu um hvenær lög-
unum yrði aflétt, en hann gerði það
ekki. Hann sagði aðeins að unnið
væri að undirbúningi frumvarps
um málið, en undirbúningurinn
hefði tekið lengri tíma en hann
hefði vænst.
Sýrlenski mannréttindalög-
fræðingurinn Haitham Maleh
kvaðst hafa orðið fyrir miklum von-
brigðum með ávarpið. „Hann sagði
ekkert. Við höfum heyrt þetta áður.
Þeir segja alltaf að þörf sé á umbót-
um en í raun breytist ekkert.“
Ávarp
Assads olli
vonbrigðum
Sagði ekkert nýtt um
boðaðar umbætur
Reuters
Sama tuggan Assad flytur ávarp í
þinghúsinu í Damaskus.
Sérfræðingar í Japan íhuga nú ýms-
ar leiðir til að afstýra frekari geisla-
mengun frá Fukushima Daiichi-
kjarnorkuverinu. Þeir kanna meðal
annars þann möguleika að þekja
kjarnakljúfsbyggingar versins með
sérstöku efni til að koma í veg fyrir
að geislavirk efni berist út í and-
rúmsloftið.
Á meðal annarra möguleika, sem
sérfræðingarnir kanna, er að tank-
skip leggist við akkeri nálægt einum
kjarnakljúfanna til að hægt verði að
dæla í það geislavirku afrennsli sem
safnast hefur upp í skurðum við
kjarnakljúfinn. Óttast er að ella
flæði geislavirka vatnið í sjóinn.
Þá kemur til greina að nota vél-
menni sem Bandaríkjamenn hafa
látið Japönum í té. Bandaríkjaher
hefur beitt slíkum vélmennum í Írak
og Afganistan og talið er að hægt
verði að nota þau í kjarnakljúfsbygg-
ingum sem björgunarmenn geta
ekki farið inn í vegna geislunar.
Stjórnarformaður TEPCO, fyrir-
tækisins sem rekur orkuverið, sagði
í gær að litlar líkur væru á því að
hægt yrði að taka fjóra kjarnakljúfa
versins aftur í notkun.
Íhuga að nota vélmenni
Sérfræðingar kanna hvort hægt verði að þekja kjarna-
kljúfa í Fukushima til að afstýra frekari geislamengun
20 km
Tókýó
JAPAN
Heimild: MEXT
Samkvæmt mælingum í fyrradag
Fukushima Daiichi-
kjarnorkuverið
Fukushima Daini
20 km
30 km
rýmingarsvæði
Tohoku-
hraðbrautin
Inawashiro-
vatn
Ban Etsu-
hraðbrautin
Tohoku
Shinkansen-
járnbrautin
Futaba
Soma
Minamisoma
Koriyama
Tamura
Fukushima
Namie
Okuma
Naraha
Hirono
Iwaki
F U K U S H I M A
Kyrrahaf
Öryggis-
mörk
Yfir
öryggis-
mörkum >20 - 50
>1 - 7
>7 - 20
0 - 1
MIYAGIYAMAGATA
Míkrósievert á
klukkustund
Verslunarkeðjan
Wal-Mart er nú
fyrir hæstarétti
Bandaríkjanna
vegna ásakana
um að hún hafi
brotið jafnréttis-
lög með því að
greiða körlum
hærri laun en
konum í sam-
bærilegum störf-
um. Einnig er því haldið fram að
gengið hafi verið framhjá konum við
stöðuveitingar og stjórnunarstöður
hafi nær eingöngu verið ætlaðar
körlum. Rúm milljón manna starfar
hjá Wal-Mart og málið snertir því
marga.
Saka Wal-Mart
um brot á jafn-
réttislögum
Kynjamismunun
mótmælt.
Skannaðu kóðann
til að lesa það nýj-
asta um Japan.