Morgunblaðið - 31.03.2011, Qupperneq 18

Morgunblaðið - 31.03.2011, Qupperneq 18
18 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 31. MARS 2011 Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnargreinum Morgunblaðsins á http://www.mbl.is/mogginn/leidarar/ Núverandiríkis-stjórn hefur verið sér- staklega ósýnt um eðlilegan fram- gang í stjórnsýsl- unni og nauðsynlega virðingu fyrir stjórnskipuninni, eins og hún er grundvölluð með stjórnarskránni og almennum lögum ákvæðum hennar til fyllingar. Hefur það þegar valdið ómældum skaða. Og öll gengur sú framganga á svig við fögur fyrirheit sem gefin voru í framhaldi af svonefndri rannsóknarskýrslu Alþingis. Aðdragandi að ákærum á ráðherra fyrir landsdómi var af sama meiði og meirihluta Alþingis til ómældrar hneisu. Og þeir sem tóku við ókræsi- legu keflinu þaðan virðast enn sem komið er fylgja markaðri braut. Fréttir um að enn sé uppi þrýstingur á að breyta leikreglum varðandi lands- dóm eftir að ákæra hefur ver- ið ákveðin er til vitnis um þetta. Verjandi Geirs Haarde, fyrrverandi forsætisráð- herra, Andri Árnason hæsta- réttarlögmaður, á bágt með að dylja undrun sína og vand- lætingu, svo sem vonlegt er. Það kemur fram í frétt Morg- unblaðsins: „Andri segir að [það] sé grafalvarlegt mál hvernig þetta beri að. Lands- dómur sjálfur, eða forseti hans, sem fer með dómsvaldið í málinu, leggi til breyting- arnar, geri tillögu í samráði að því er virðist við ráðherra, sem var einn af þeim sem samþykktu máls- höfðunarálykt- unina, og fái síðan Alþingi, sem ákærir, til að breyta lögunum. „Venjulega þarf verjandi aðeins að glíma við ákæruvaldið. Þarna taka sig saman dómsvaldið, fram- kvæmdarvaldið og löggjaf- arvaldið og leggjast á sveifina með ákæruvaldinu, að laga málsmeðferðina og skipan dómsins til,“ segir Andri. Andri bendir á að samráð hafi verið milli saksóknarans í máli þessu annars vegar og dómsmálaráðuneytisins hins vegar, en verjandi var aldrei spurður álits. Þetta sé líklega einsdæmi í réttarsögunni. Andri bendir á að það viti allir að það er aðeins eitt mál til meðferðar hjá dómstólnum og því er lagabreytingunni ljós- lega beint gegn ákærða og að nokkru leyti honum óhag- felld. Þá sé einnig algjörlega óviðeigandi að saksóknari Al- þingis í þessu máli gegn Geir, sé að reka á eftir lagabreyt- ingum.“ Ákæran fyrir landsdómi á rót í pólitískum ofsóknum afla sem sjást ekki fyrir. Það eitt er nægjanlega slæmt. En góð ástæða átti að vera til þess að vænta vinnubragða sem hafin væru yfir minnsta vafa þegar málið væri loks komið úr hin- um ógeðfellda pólitíska far- vegi sem það fór af stað í. Því eru athugasemdir verjandans mjög skiljanlegar. Landsdómsákæra fór illa af stað og hefur enn ekki lagast} Landsdómsmál í slæmum farvegi Áður en ríkis-stjórnin ákvað að hætta við að af- létta gjaldeyris- höftunum og lét Seðlabankann kynna með sér áætlun um að viðhalda þeim þar til einhvern tímann í fjar- lægri framtíð töldu stjórnvöld að mikil ánægja yrði með tillög- urnar. Þetta reyndist mikill misskilningur. Viðbrögðin við áformum rík- isstjórnarinnar um að festa höftin í sessi hafa verið afar neikvæð, sem von er. Ríkis- stjórnin hafði sjálf og í gegnum Seðlabankann ítrekað sent frá sér skilaboð um að afnám haft- anna væri handan við hornið og hafði meðal annars haldið fram þeirri fjarstæðu að samþykkt Icesave III mundi flýta fyrir af- námi haftanna. Nú hefur ríkis- stjórnin viður- kennt í verki að samþykkt Icesave III mundi alls ekki fylgja afnám haft- anna. Og öllum þeim sem bera skynbragð á gangverk efnahagslífsins er ljóst að samþykkt Icesave III mundi tefja fyrir afnámi haft- anna enda væri þar með búið að auka áhættuna af miklu út- streymi peninga. En þrátt fyrir mikla og rök- studda gagnrýni á framleng- ingu haftanna mun ríkis- stjórnin án vafa halda í höftin. Afnám þeirra mundi hleypa krafti í atvinnulífið og yrði ásamt öðrum nauðsynlegum aðgerðum til þess að stuðla að hagvexti og kjarabótum. Því miður er hvorugt á dagskrá þessarar ríkisstjórnar. Haftabúskap ríkisstjórnarinnar hefur hvarvetna verið illa tekið} Óánægja með haftatillögur Þ jóðmálaumræða dagsins er hörð og full af ósanngirni. Þetta endur- speglast ekki síst í umræðum um Icesave-málið. Þeir sem eru hvað harðastir í andstöðu sinni við að þjóðin ljúki málinu með skynsamlegri sátt víla ekki fyrir sér að gefa í skyn, eða segja beinum orðum, að þeir sem segja já á kjördag séu land- ráðamenn eða hugleysingjar sem nenni ekki að standa í lappirnar í stríðinu við vondu útlend- ingana. Þeir sem tala og hugsa í þessa átt ættu að velta því fyrir sér hvort það geti ekki verið að þeir séu komnir í rökþrot. Fólk á einfaldlega ekki að haga umræðu á þennan hátt. Það er ekkert upplýsandi við hana. En hér er ekki ætlunin að hafa mörg orð um Icesave. Aðrir eru svo duglegir við það að mað- ur lætur þeim það að mestu eftir og finnur sér eitthvað annað að gera en að elta þá. Önnur umræða er ekki síður hörð, kaldranaleg og heift- úðug en Icesave-umræðan, og rétt er að víkja að henni. Ekki verður betur séð en að það sé orðið ríkjandi viðhorf í þjóðfélaginu að hver sá Íslendingur sem býr að því að vera með milljón eða meira í mánaðarlaun sé líklegur fjár- glæframaður og siðspilltur kapítalisti. Þeir sem eiga sæmilega mikið af peningum þykja einfaldlega ekki leng- ur sæmilegir þjóðfélagsþegnar. Þeir flokkast undir ríkt forréttindapakk og rétt þykir að hirða af þeim gróðann, samkvæmt þeirri mjög svo sérkennilegu kenningu að pen- ingar séu uppspretta illra verka. Fjölmiðlar dunda svo við að birta myndir af „ofurlauna“-fólkinu, sem- sagt þeim sem eru með hærri laun en forsætis- ráðherra landsins. Engu er líkara en verið sé að birta myndir af sakborningum. Því miður – og það er skelfileg staðreynd – ýta ýmsir ráðherrar ríkisstjórnarinnar undir þennan hættulega hugsunarhátt. Kannski finnst þeim bara ágætt að þjóðin eigi óvin í ríka manninum. En vel launaði maðurinn er manneskja. Hann er til dæmis nágranninn sem fólk fer að öfunda af því hann á ýmislegt sem það sjálft getur aldrei veitt sér. Og ráð- herrar ala á þessari öfund með óvarkárum yf- irlýsingum um laun sem eru góð, en samt eng- in ofurlaun. Smám saman verður ríki maðurinn að glæpamanni í hugum fólks. Ríkisstjórn Íslands er eindregið þeirrar skoðunar að ekki sé æskilegt að til sé hópur fólks sem geti efnast af vinnu sinni. Og svo maður spyrji nú bara eins og fávís kona: Er ekki fremur óheppilegt að á krepputímum sé við völd ríkisstjórn sem hefur fyrirlitningu á fjármagni? Er það ekki einmitt uppskrift að sem mestri vesöld þegn- anna? Vonandi tekst að ljúka Icesave-málinu með sátt og von- andi hætta ofsamennirnir að tala um landráðamenn og hugleysingja. Og vonandi kemur að því að þjóðin hætti að líta svo á að það sé lögmál að þeir sem eigi peninga séu að starfa af illum hvötum. Þjóðfélagsumræðan á ekki að vera jafn heiftúðug og hún er, því um leið og menn gerast ofsa- fengnir þá glata þeir skynseminni. kolbrun@mbl.is Kolbrún Bergþórsdóttir Pistill Ofsafengin umræða STOFNAÐ 1913 Útgáfufélag: Árvakur hf., Reykjavík. Ritstjórar: Davíð Oddsson Haraldur Johannessen Aðstoðarritstjóri: Karl Blöndal Útgefandi: Óskar Magnússon FRÉTTASKÝRING Kristján Jónsson kjon@mbl.is E mbætti landlæknis og Lýðheilsustofnunar renna saman í eitt undir heiti þess fyrr- nefnda, var niðurstaða Alþingis í gær. Sjálfstæðismenn á þingi segja að málið hafi verið keyrt í gegn án þess að fram hafi farið þar fagleg umræða um kosti og galla breytinganna, ekki hafi t.d. verið fjallað í heilbrigðisnefnd um skýrslur sem áður hafi verið gerðar um sameiningu stofnana. Óljóst sé einnig hver kostnaðurinn verði. „Við báðum um að þetta yrði tekið fyrir og rætt en það var ekki fallist á það,“ segir Guðlaugur Þór Þórðarson, einn liðsmanna heil- brigðisnefndar Alþingis. Peningalega hagkvæmnin er reyndar í lausu lofti, þótt fjár- málaráðuneytið fullyrði í umsögn sinni að margvísleg samlegðaráhrif verði af breytingunni. Einnig verði hin nýja stofnun vel í stakk búin til að halda sig innan þeirra marka sem fjárlög kveði á um fyrir árið 2011. „Ekki hefur þó verið unnin sérstök úttekt á fjárhagslegum samlegðar- áhrifum stofnananna tveggja eða rekstraráætlun gerð fyrir sameigin- lega stofnun á vegum heilbrigðis- ráðuneytisins,“ segir í umsögninni. Fram kemur í frumvarpinu að markmiðið sé að stuðla að heilbrigði landsmanna, m.a. með því að „efla lýðheilsustarf og tryggja gæði heil- brigðisþjónustu“. Í nýju lögunum er kveðið á um að umsýsla og eftirlit með lækningatækjum verði fram- vegis ekki á hendi landlæknis heldur Lyfjastofnunar en eftir sem áður mun landlæknir hafa eftirlit með lyfjaávísunum. Leigusamningur til 17 ára Ljóst er á fylgiskjölum að ágreiningur er milli fjármálaráðu- neytis og heilbrigðisráðuneytis um húsnæði fyrir nýju stofnunina; fyrr- nefnda ráðuneytið vill að leigt verði á Laugavegi 178 en hið síðarnefnda vill mun dýrara húsnæði í gömlu Heilsuverndarstöðinni. Á niður- skurðartímum hlýtur að stinga í augun að með sameiningunni er gert ráð fyrir auknum kostnaði á næsta ári upp á minnst 30 milljónir króna. Leigusamningur landlæknis- embættisins á Seltjarnarnesi er til 17 ára og verðið rösklega 2000 kr. á fermetra, þeir eru fáir sem halda að auðvelt verði að finna einhvern sem vilji taka samninginn yfir á þessum kjörum. Aukakostnaður vegna þess- ara útgjalda gæti því vel orðið aðrar 30 milljónir á næsta ári og reyndar hundruð milljóna alls næstu 17 árin ef allt fer á versta veg. Velferðar- ráðuneytið tekur því um 60 milljóna aukakostnað á sig sem merkir að einhvers staðar þarf að spara á móti, á tímum þegar brakar og brestur í heilbrigðiskerfinu vegna fjárskorts. „Fyrst og fremst var horft á það að styrkja báðar þessar stofn- anir faglega,“ segir Þuríður Back- man, formaður heilbrigðisnefndar. „En síðan segir sig sjálft að þegar stofnanir eru sameinaðar, nýtt skipurit sett upp, þá verður einn for- stöðumaður, sviðsstjórum fækkar um helming, ýmiss konar dag- legur rekstur verður ódýrari.“ Nýju stöðurnar verða ekki auglýstar, að sögn Þuríðar sem segir að markmiðið sé að standa vörð um starfsöryggi allra. Þannig hefur vafalaust átt að tryggja að sameiningin rynni í gegn. En menn hljóta að velta því fyr- ir sér hvort fram- tíðarsparnaður geti orðið um- talsverður. Skurðhnífnum beitt af nokkurri varfærni Hraustleg Starfsemi og skyldur Lýðheilsustöðvar eiga framvegis að falla undir embætti Landlæknis en störf stofnananna hafa oft skarast nokkuð. Ráðherraskipuð nefnd undir forustu Stefáns Ólafssonar pró- fessors gerði fyrir rúmu ári til- lögur sem ljóst er að heilbrigð- isráðuneytið hefur stuðst mjög við en þar var tekið mikið mið af skipulagi á hinum Norðurlönd- unum. En nefndin bendir samt á að velferðar- og heilbrigðisþjón- usta sé þar að mestu á hendi sveitarfélaga, hérlendis vanti þetta millistig. Nefndin taldi rétt að stefna að færri og stærri opinberum stofn- unum „og búa þannig til virka stærð (criti- cal mass) með sam- legðaráhrifum milli skyldra sviða“. Emb- ætti Landlæknis, þar sem um 30 manns vinna, væri ef til vill of veikt en efla mætti það með samruna við Lýð- heilsustofnun þar sem liðlega 20 manns starfa. Verði færri og stærri NEFND UM STOFNANIR Geir Gunnlaugsson landlæknir

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.