Morgunblaðið - 31.03.2011, Síða 20
20 UMRÆÐANBréf til blaðsins
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 31. MARS 2011
Hræðsluáróðurinn fyrir samþykkt
nýjustu Icesave-samninganna við
Breta og Hollendinga að undanförnu
hefur varla farið
framhjá neinum.
Eins og við var að
búast er hann
nokkurn veginn
sá sami og okkur
var boðið upp
þegar reynt var
að fá okkur til
þess að sam-
þykkja Icesave II
samningana og
þar á undan Icesave I.
Það er kannski kaldhæðni að Ice-
save-samningarnir núna eru nánast
þeir sömu í aðalatriðum og hafnað var í
þjóðaratkvæðinu fyrir ári, fyrir utan
lægri vexti. Eins og áður er ætlast til
þess að við samþykkjum að bera alla
ábyrgð á málinu og tökum á okkur alla
áhættu vegna þess. Var það vegna
lægri vaxta sem Icesave II var hafnað?
Ýmislegt hefur verið reynt til þess
að fá okkur til þess að samþykkja að
borga Icesave og verður reynt. Þá-
verandi viðskiptaráðherra hótaði
okkur því til dæmis fyrir rúmu ári
síðan að ef við samþykktum ekki Ice-
save myndi Ísland einangrast og
verða Kúba norðursins. Háskóla-
kennari nokkur í hagfræði hótaði
okkur því af sama tilefni að engin lán
fengjust til Íslands yrði Icesave II
hafnað, krónan myndi hrynja niður í
áður óþekktar lægðir og „lífskjör
hrynja gjörsamlega“.
Ekkert hræðilegt gerðist hins veg-
ar í kjölfar þess að Icesave II var
hafnað sem rekja má til þess. Skulda-
tryggingarálagið á íslenska ríkið hef-
ur lækkað mikið síðan, íslensk fyr-
irtæki hafa í auknum mæli getað
fjármagnað sig erlendis á hagstæðum
kjörum og skilningur á afstöðu okkar
Íslendinga hefur stöðugt orðið meiri
utan landsteinana.
Hræðsluáróðurinn fyrir ári rættist
ekki og mun ekki rætast heldur nú.
AXEL ÞÓR KOLBEINSSON,
tölvutæknir. Er aðili að Samstöðu
þjóðar gegn IceSave (Kjósum.is).
Hræðsluáróður III
Frá Axeli Þór Kolbeinssyni
Axel Þór
Kolbeinsson
Sem Íslandsvinir höfum við tals-
verðar áhyggjur af þeirri stöðu Ís-
lendinga, að þeir þurfa enn á ný að
taka ákvörðun um Icesave eftir að
hafa áður tekið ákvörðun í málinu.
Hvaða hluta orðsins „nei“ skilur rík-
isstjórn Íslands ekki?
Áður en ákvörðun er tekin er ætíð
farsælast að fara aftur á byrj-
unarreit vandamálsins og skoða
staðreyndir málsins.
Gagnvart okkur, sem erum ut-
anaðkomandi og heimsóttum Ísland
fyrir tæpu ári síðan til þess að biðjast
afsökunar á framferði Gordon
Brown og jafnframt óska Íslend-
ingum til hamingju með „nei“ sitt við
Icesave, þá eru hlutirnir þónokkuð
skýrir.
Ísland var aldrei haft með í ráðum
og tók þar af leiðandi engan þátt í
ákvörðun bresku og hollensku rík-
isstjórnanna að bæta löndum sínum
fyrir skaðann, sem innistæðueigend-
ur Icesave urðu fyrir.
Að okkar mati er þess vegna ekki
um neinn lagalegan eða siðferðilegan
grundvöll að ræða til að samþykkja
þær fjárhagskröfur, sem Bretar og
Hollendingar nú setja fram.
Íslenskur almenningur hefur þeg-
ar gefið álit sitt til kynna og rík-
isstjórn Íslands hefur ekkert umboð
til að halda málinu áfram.
Engu að síður og vegna góðra
framtíðartengsla við Bretland og
Holland, viljum við koma með tillögu
að hugsanlegri samningaleið, sem
gæti hjálpað öllum ríkjunum, sem að
málinu koma.
Tilboðið til Bretlands og Hollands
gæti verið þannig, að löndin flyttu
inn vörur og þjónustu frá Íslandi um
árabil fyrir upphæð, sem ákveðin er
fyrirfram og ríkisstjórn Íslands
greiddi fyrir. Innflutningsfyrirtækin
greiddu andvirði innflutningsins
beint til ríkisstjórna Bretlands og
Hollands. Ríkisstjórn Íslands myndi
endurgreiða útflutningsfyrirtækjum
Íslands í íslenskum krónum, sem
Seðlabankinn býr til án skuldsetn-
ingar eða vaxta.
Ávinningur þessarar tillögu væri
sá, að tilboðið væri til marks um vel-
vild á grundvelli Íslands, án þess að
neinar lagalegar skuldbindingar séu
viðurkenndar.
Tillaga þessi myndi auka hagsæld
Íslands og ríkisstjórnin fengi auka-
tekjur af viðbótarskatti af þeim
hagnaði, sem leiðir af tillögunni.
Af áðurnefndum ástæðum sjáum
við enga gilda ástæðu fyrir því, að
ríkisstjórn Íslands eða skattgreið-
endur eigi að samþykkja neina laga-
lega ábyrgð vegna hagsmuna, sem til
er stofnað af ríkisstjórnunum tveim-
ur.
Við óskum Íslendingum alls hins
besta og vonumst til, að þeim takist
að leysa þetta mæðusama mál á
sanngjarnan og göfuglyndan hátt.
Virðingarfyllst,
DONALD MARTIN
er blaða- og bókaútgefandi,
ANTHONY MILLER
er endurskoðandi á eftirlaunum.
Enginn lagalegur eða
siðferðilegur grund-
völlur fyrir Íslendinga
að samþykkja Icesave
Frá Donald Martin og
Anthony Miller
Anthony Miller og Donald Martin.
Þegar ég var ungur maður þá sagði
faðir minn við mig. „Mundu, hversu
sem fagurgalinn er mikill hjá vinstri
mönnum að kjósa
þá aldrei. Ég kaus
þá einu sinni og
þeir komust til
valda. Það kostaði
það að lífskjör í
landinu versnuðu,
laun lækkuðu,
skattar hækkuðu,
vöruverð rauk
upp, og allt í einu
sáum við atvinnu-
leysi sem við höfðum verið lausir við í
fimmtán ár. Fyrir nú utan alla vina-
væðinguna og klíkuskapinn.“
Er þetta ekki kunnuglegt í dag?
Ég hef lifað fjórar vinstristjórnir, og
allar eru þær nákvæmlega þessu
sama marki brenndar. Hins vegar
hafa þær alltaf versnað, og sú sem nú
situr er versta ríkisstjórn lýðveld-
issögunar, það geta þó allir verið
sammála um. Við vorum reið og
svekkt eftir að glæpamenn höfðu hol-
að bankana innan, sem er ástæða
hrunsins. En við vorum ekki að biðja
um kommúnisma eins og við höfum
fengið í andlitið. Hrunið er barna-
skapur miðað við að takast á við
hörmungar kommúnismans og við
verðum að hrinda honum af höndum
okkar svo fljótt sem auðið er. Spyrjið
fólkið í Sovétríkjunum heitnu, eða
Kúbumenn, eða fólkið í Norður Kór-
eu. Ég er ekkert að grínast með það
sem ég segi, þetta er full alvara, í
þetta stefnir hjá okkur undir leiðsögn
Steingríms J. Sigfússonar og vinstri
villunnar. Nýlega birtist viðtal við eitt
fremsta ungstirni Vinstri grænna þar
sem hann talaði um að þetta væru
þau ríki sem þeir horfðu til.
Þá er athyglisvert að hugleiða
hvers vegna Steingrími er svo um-
hugað um að koma skuldum óreiðu-
og óráðsíumanna yfir á almenning í
landinu. Svarið liggur augljóslega í
pólitískri skoðun fjármálaráðherra.
Hann ætlar að nota aðferðafræði
kommúnismans, brjóta almenning
niður, og gera alla að bónbjargafólki,
við eigum öll að fara í biðröðina eftir
mat með skömmtunarmiða frá fjár-
málaráðherra, eins og fólk hefur
þurft að gera í Sovétríkjunum, á
Kúbu og Norður-Kóreu.
Steingrím dreymir um að geta
ráðskast með okkur að vild. Við höfum
séð offorsið og ofbeldið í honum í söl-
um Alþingis.Við höfum líka séð rað-
irnar lengjast á hverjum mánuði sem
líður hjá vinstristjórninni. Við höfum
fundið forsmekkinn af þessu, mokað
hefur verið undir bankana en eignir
hirtar af saklausum almenningi, sem
neyðist til að vera upp á kommann
kominn með hýbýli. Og enn heldur
vinavæðingin áfram, nú ætlar Stein-
grímur að bora undir Vaðlahlíðina, í
kjördæmapoti, þetta er sama skömm-
in og Ábótarmálið þar sem hann færði
vinum sínum þrjátíu milljónir á silf-
urfati, af peningum almennings. Ég
veit ekki hvort þetta er nokkuð skárra
en hjá útrásarvíkingunum. Segjum
svo öll nei við ICE-SAVE.
ÓMAR SIGURÐSSON
skipstjóri
Aldrei aftur vinstristjórn
Frá Ómari Sigurðssyni
Ómar Sigurðsson
Þann 28. maí 1949 tókst Magnúsi
Guðbrandssyni flugskírteinishafa
nr. 33 á svifflugunni Weihe TF-SAG
að fljúga 50 km
yfirlandsflug frá
Sandskeiði til
Keflavík-
urflugvallar.
Magnús hafði áð-
ur lokið 5 klst
svifflugi og náð
1000 m hæð. Þar
með náði Magnús
silfur C gráðu nr.
1, þeirri fyrstu á
Íslandi.
Þann 29. maí, 1949, daginn eftir
flug Magnúsar, tókst undirrituðum
að sviffljúga Olympiu TF-SDB sömu
leið frá Sandskeiði að Keflavík-
urflugvelli með yfirflugi Reykjavík-
urflugvallar. Þar með náði sá sem
þetta skrifar silfur C nr. 2 á Íslandi.
Þessi flug okkar Magnúsar fóru
fram í norðan strekkingi og kulda og
fundum við fjölda lofbylgna (öldur)
sem fleyttu okkur langleiðina með
200 km hraða í 13.000 feta hæð og
komum við yfir Reykjanes í 5000
feta hæð. Nutum við þess að fljúga
um nesið fram og aftur áður en við
lentum á Keflavíkurvellinum, þar
sem ameríski herinn tók vel á móti
okkur og tók svifflugurnar okkar til
geymslu þar til við gátum sótt þær.
Vegna áskorunar um að skrifa rit-
gerð um svifflug fyrir þá sem vita lít-
ið um flug, þá vona ég að með þessu
stutta yfirliti hafi mér tekist að lýsa
svifflugi hér á Íslandi frá fyrri tíð.
Ýmsum sem þetta lesa mun finnast
þetta ógerlegt án vélarafls og vera
hrein lygi en svo er ekki. Sannarlega
er svifflug íþrótt með breitt svið sem
hentar bæði konum og körlum frá 15
ára aldri til iðkana með heilbrigða
sál og líkama að mati trún-
aðarlæknis Flugmálastjórnar.
Matthías Matthíasson,
fyrrv. yfirverkstj. Rafmv.Rvíkur,
flugskírteini nr. 139.
Fyrstu yfirlandsflugin
á svifflugum
Frá Matthíasi Matthíassyni
Matthías
Matthíasson
Sviffluga, Olympia sem greinarhöfundur flaug og var einn af eigendum
hennar. Keypt frá Englandi árið 1947.
–– Meira fyrir lesendur
PANTAÐU AUGLÝSINGAPLÁSS
Katrín Theódórsdóttir
Sími: 569 1105
kata@mbl.is
MEÐAL EFNIS:
Páskamatur.
Sælkerauppskriftir.
Páskaskreytingar.
Ferðir innanlands.
Landsbyggðin um páskana.
Skíðasvæðin.
Viðburðir um páskana.
Sæla í sveitinni.
Börn og páskar.
Páskegg.
Merkilegir málshættir.
Trúin og fólkið.
Ásamt fullt af
spennandi efni.
Pás
kab
laði
ð
NÁNARI UPPLÝSINGAR GEFUR:
PÖNTUNARTÍMI AUGLÝSINGA:
Fyrir kl. 16, mánudaginn 11. apríl.
Páskablaðið
SÉ
RB
LA
Ð
Morgunblaðið gefur út sérblað
tileinkað páskahátíðinni. Farið
verður um víðan völl og komið inn á
viðburði páskahelgarinnar.
Girnilegar uppskriftir af veislumat
og öðru gómsætum réttum ásamt
páskaskreytingum, páskeggjum,
ferðalögum og fleira.