Morgunblaðið - 31.03.2011, Síða 21
UMRÆÐAN 21
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 31. MARS 2011
Þá eru loftárásir
„Alþjóðasamfélagsins“
á Líbíu hafnar, líkt og
þegar innrásin í Írak
var undirbúin hafa
verið notaðar vafa-
samar aðferðir til að
fá fram stuðning í Ör-
yggisráði Sameinuðu
þjóðanna og meðal
annarra þjóða. Fyrst
ber þar að nefna að
vel vopnaðir uppreisnarmenn í Líb-
íu hafa jafnan verið kallaðir saklaus-
ir almennir borgarar. (Það að þeir
voru með hríðskotariffla í hönd-
unum hefur væntanlega bara verið
vegna þess að þeir hafa verið á leið í
veiðiferð?) Svo er talað um að
stöðva flug yfir Líbíu til að Gaddafi
geti ekki varpað sprengjum á sak-
lausa borgara úr flugvélum. Loft-
árásir á fjölda staða í Líbíu voru
aldrei nefndar í þessu sambandi.
Væntanlega segja fulltrúar þjóð-
anna sem standa að loftárásunum að
þeir varpi aðeins sprengjum á hern-
aðarlega mikilvæga staði og alls
ekki nærri almennum borgurum.
Reynslan frá Írak segir okkur
hins vegar að það er mjög hæpið að
allar sprengjur rati á réttar bygg-
ingar eða staði og er þá líklegt að
engir almennir borgarar verði fyrir
sprengjum björg-
unarsveitanna? Enda
hefur nú Arababanda-
lagið lýst yfir andstöðu
við framkvæmd flug-
banns yfir Líbíu og
segir að aldrei hafi ver-
ið talað um umfangs-
miklar loftárásir í því
sambandi. Þetta minnir
um margt á það þegar
Bandaríkjamenn lögðu
fram hjá Öryggisráði
Sameinuðu þjóðanna
„sannanir“ fyrir því að í
Írak væru bæði gereyðingar- og
efnavopn. Síðar kom í ljós að þetta
var lygi en þá var innrásin að baki
og þeir sem studdu innrásina urðu
að búa við það að hafa verið blekkt-
ir. Þá sneru menn við blaðinu og
sögðu: „Saddam þarf að víkja“.
Svipað er að gerast með Líbíu,
Gaddafí var gjarnan fyrir ekki löngu
kallaður Líbíu-leiðtogi en núna m.a.
hér í Mogganum „einræðisherra
Líbíu“. – Eins og ég hef skrifað um
áður þá er það fyllilega rétt að Gad-
dafí er enginn engill, síður en svo,
en eins og Kristur sagði: Sá ykkar
sem syndlaus er, kasti fyrsta stein-
inum! – Munurinn er sá að í dag
þykjast allir helstu leiðtogar heims-
ins vera „nánast syndlausir“ og þeir
geti því vel hent grjóti í hinn illa
Gaddafí.
Nú er það svo að jafnvel þeir sem
eru slæmir hafa eitthvað gott í sér
og ég veit til þess að Líbíu-leiðtog-
inn Gaddafí hefur veitt efnahags-
aðstoð til landa í Afríku, m.a. til
Gambíu, reyndar mun meiri aðstoð
en Bretar hafa veitt þessari fyrrver-
andi nýlendu sinni. – Það kann vel
að vera rétt að Gaddafí hafi pyntað
og farið illa með andstæðinga sína.
En hver veit hversu margir fangar
eru í haldi í fangelsum Bandaríkja-
manna í Írak og á Kúbu og víðar án
dóms og laga og sæta þar pynt-
ingum.
Já, þeir sem eru syndlausir –
kasti fyrsta steininum. – Kannski
hefði eftir allt verið besta lausnin að
Hugo Sanchez og Arababandalagið
hefðu fengið tækifæri til að stilla til
friðar? – Jú, þá hefðu menn ekki
fengið að kasta grjóti í hinn illa
Gaddafí, og það er svo gott að eiga
illa þokkaðan andstæðing.
Líbía – Annað Íraksævintýri
Eftir Heiðar Ragn-
arsson
Heiðar Ragnarsson
» Svipað er að gerast
með Líbíu, Gaddafí
var gjarnan fyrir ekki
löngu kallaður Líbíu-
leiðtogi en núna m.a.
hér í Mogganum „ein-
ræðisherra Líbíu“.
Höfundur er matreiðslumaður og
heilsuráðgjafi.
Á sama tíma og
harðar deilur standa
yfir á höfuðborg-
arsvæðinu um að fjár-
magna tvöföldun Suð-
urlandsvegar með
veggjaldi berast fréttir
af því að sprengingar
við Vaðlaheiðargöng
geti hafist seint á þessu
ári ef þeim seinkar
ekki meir en orðið er.
Enn erfiðara verður að
forgangsraða næstu árin þeim vega-
framkvæmdum á hringveginum sem
fyrrverandi samgönguráðherra lofaði
að loknum kosningum 2007 þegar
endanlegur kostnaður við hin um-
deildu Héðinsfjarðargöng liggur fyr-
ir. Þetta snertir líka fjölmörg styttri
veggöng á þjóðvegi eitt sem hefði átt
að ákveða á undan samgöngu-
hneykslinu í Héðinsfirði.
Of mikil umferð flutningabifreiða
sem komast ekki óhappalaust í
gegnum gömlu Oddskarðsgöngin
réttlætir ekki að ráðist verði í fram-
kvæmdir við Vaðla-
heiðargöng á undan
Norðfjarðargöngum. Í
umræðu undanfarinna
ára hefur mörgum
landsbyggðarþing-
mönnum árangurslaust
verið bent á að stutt
veggöng á hringveg-
inum geti frekar fært
nærliggjandi byggðum
forskot á aðra lands-
hluta heldur en jarð-
gangagerðin norður í
Fjallabyggð. Úti á
landi eru greiðar sam-
göngur í ört vaxandi mæli forsenda
þess að mannlíf dafni í öllum byggð-
um sem eiga undir högg að sækja
og að atvinnuvegirnir á landsbyggð-
inni standist harðnandi samkeppni á
markaði. Ástand eldri stofnvega úti
á landi er líka nógu slæmt til þess
að það haldi áfram að vinna gegn
þeim atvinnugreinum sem átt hafa
mikið undir landflutningum.
Allir landsbyggðarþingmenn og
sveitarstjórnirnar ættu að samein-
ast um nýja samgönguáætlun til
þess að forgangsraða nýjum jarð-
gangaverkefnum á hringveginum
sem ekki mega bíða lengur. Það eru
ný göng milli Eskifjarðar og Nes-
kaupstaðar sem best væri að ráðast
í á undan Vaðlaheiðargöngum. Sam-
hliða Almannaskarðsgöngum hefði
líka átt að ákveða veggöng undir
Lónsheiði til þess að slysagildran í
Hvalnes- og Þvottárskriðum hyrfi
endanlega eins og heimamenn á
suðurfjörðum Austurlands ætlast
til. Fyrr geta Hornfirðingar aldrei
fengið örugga heilsárstengingu við
Djúpavog. Nógu mikil er slysahætt-
an í Hvalnes og Þvottárskriðum til
þess að óhætt hefði verið að ákveða
Lónsheiðargöng fyrir löngu.
Skammarlegt er að þingmenn Norð-
austurkjördæmis skuli aldrei hafa
flutt tillögu á Alþingi um að flýta
undirbúningsrannsóknum á jarð-
gangagerð undir heiðina árið 2003
þegar Davíð Oddsson þáverandi for-
sætisráðherra tilkynnti óvænt í fjöl-
miðlum þetta sama ár þá ákvörðun
stjórnvalda um að Almannaskarðs-
göngin sem hart var deilt um skyldu
vera í fyrsta áfanga með Fáskrúðs-
fjarðargöngum á undan jarð-
gangagerðinni norður á Trölla-
skaga. Gegn þessari ákvörðun stóðu
siðblindir og fáfróðir stuðningsmenn
Héðinsfjarðarganga á Austurlandi
sem vildu frekar berjast á móti allri
jarðgangagerð í sinni heimabyggð
þegar þeir kröfðust þess að allt fjár-
magnið færi í uppbyggða heils-
ársvegi í meira en 500 m hæð á
snjóþungum og illviðrasömum
svæðum eins og Öxi. Þessi vinnu-
brögð og staðsetning Fjórðungs-
sjúkrahússins í Neskaupstað eru til
þess fallin að heimamenn búsettir
utan Fjarðabyggðar kjósa frekar að
sækja alla læknisþjónustu til
Reykjavíkur eða Akureyrar en að
leggja á sig samanlagt um 400 km
vegalengd frá suðurfjörðunum og
aftur heim. Fyrir Austfirðinga bú-
setta norðan Fagradals og íbúa
Seyðisfjarðar sem eiga erfitt með að
treysta á Fjarðarheiði yfir vetr-
armánuðina eru þetta samanlagt
200 km. Svona geta heimamenn á
Egilsstöðum, Héraði, Seyðisfirði,
Borgarfirði eystra, Jökuldal og suð-
urfjörðunum ekki með neinu móti
látið mismuna sér þegar Norðfirð-
ingar geta treyst á Fjórðungs-
sjúkrahúsið án þess að keyra yfir
fleiri illviðrasöm svæði í meira en
600 metra hæð.
Með þessari staðsetningu sjúkra-
hússins tókst frekar að magna upp
pólitískan hrepparíg sem er öllum
Austfirðingum til tjóns. Heppileg-
asta leiðin til að kveða niður þennan
hrepparíg er að flýta útboði Norð-
fjarðarganga til þess að Fjórðungs-
sjúkrahúsið Í Neskaupstað fái
öruggari heilsárstengingu við Egils-
staðaflugvöll og geti um ókomin ár
þjónað öllum Austfirðingum Meira
þarf til að þeir losni endanlega við
Fagradal, Fjarðarheiði, Hellisheiði
eystri og fleiri snjóþunga og ill-
viðrasama þröskulda sem geta aldr-
ei rofið alla vetrareinangrun fjórð-
ungsins.
Norðfjarðargöng á undan
Eftir Guðmund
Karl Jónsson »Of mikil umferð flutn-
ingabifreiða sem
komast ekki óhappalaust
í gegnum gömlu Odd-
skarðsgöngin réttlætir
ekki að ráðist verði í
framkvæmdir við Vaðla-
heiðargöng á undan
Norðfjarðargöngum.
Guðmundur
Karl Jónsson
Höfundur er farandverkamaður.
Ævin er full af litlum
molum sætum og
beiskum, súrum og
sterkum. Molum sem
veita nýja sýn og
reynslu sem þú berð.
Þetta geta verið fúlir
molar, jafnvel harðir,
meiðandi og ógeðs-
legir. Stundum fylgja
þeim ný tækifæri og
stundum geta þeir leitt
til nýrra kynna. Jafnvel kanntu að
upplifa mikla gleði vegna þeirra, alla-
vega um stundarsakir. Sumir mol-
arnir geta orðið að gullmolum sem þú
hefðir ekki viljað missa af.
Ævin er full af svona molum. Hún
er samsett af litlum brotum sem
púslað er saman á óskiljanlegan og
jafnvel öfugsnúinn hátt. Útkoman er
algjörlega einstök ævi óendanlega
dýrmætrar manneskju.
Demantsperlur
Staldraðu við eitt augnablik og
líttu um öxl. Taktu síðan reynslu
þína, allt það neikvæða og sára sem
yfir þig hefur gengið og allt hið ljúfa
og jákvæða sem þú hefur upplifað.
Settu það síðan í pott minninganna,
hrærðu vel í, við rétt hitastig og út-
koman verður gegnheilar, gulli-
slegnar demantsperlur sem ekkert
fær afmáð eða eytt. Perlur sem gera
þig að veðraðri og
þroskaðri manneskju
sem kölluð er til þess
hlutverks að miðla í um-
hverfinu og til komandi
kynslóða. Slípaðar,
óafmáanlegar, fallegar
og dýrmætar demants-
perlur.
Litróf
Litróf mannlegrar til-
veru fær sín nefnilega
ekki notið nema allir lit-
irnir fái að koma fram
og fái að njóta sín, hver með sínum
hætti. Tilveran verður þá fyrst full-
komin, þegar daufu litirnir styðja þá
sterku og hinir sterku þá daufu.
Væri tilveran ekki fátækleg ef allt
væri bara svart og hvítt?
Ástarljóð
Í augum Guðs ert þú nefnilega
ekki mistök. Ekki einhver fánýtur,
lítilsverður einstaklingur. Ekki eins
og hvert annað óhapp, misheppnaður
aðskotahlutur eða slys. Heldur ljóð
sem hann hefur ort. Ástarljóð, sem
Guð hefur ort og er að yrkja með þér
frá degi til dags. Ljóð sem ætlað er
að bera birtu og yl inn í aðstæður
fólks. Stattu því vörð um sjálfan þig
og lífið dýrmæta sem í þér býr.
Boðberar kærleikans
Boðberar kærleikans eru jarð-
neskir englar sem leiddir eru í veg
fyrir fólk til að veita umhyggju, miðla
ást, fylla nútíðina innihaldi og til-
gangi og veita framtíðarsýn vegna
tilveru sinnar og kærleiksríkrar nær-
veru. Þeir eru jákvæðir, styðja, upp-
örva og hvetja. Þeir sýna hluttekn-
ingu, umvefja og faðma, sýna
nærgætni og raunverulega um-
hyggju í hvaða kringumstæðum sem
er án þess að spyrja um endurgjald.
Fegraðu því umhverfi þitt með
þeim gjöfum sem Guð hefur prýtt þig
með. Stráðu fræjum kærleika og um-
hyggju. Og þín verður minnst sem
þess sem elskaði. Þess sem bar raun-
verulega umhyggju fyrir fólki.
Jarðneskir englar
Eftir Sigurbjörn
Þorkelsson
Sigurbjörn Þorkelsson
» Boðberar kærleik-
ans eru jarðneskir
englar sem leiddir eru í
veg fyrir fólk til að fylla
nútíðina innihaldi og
veita framtíðarsýn.
Höfundur er ljóðskáld og rithöf-
undur, umsjónarmaður starfs eldri
borgara í Laugarneskirkju og hefur
undanfarna mánuði haldið fyrirlestra
og sinnt ráðgjöf fyrir Vinnu-
málastofnun.
Haustið 2008 féll
bankakerfið, allt
hrundi sem hrunið
gat. Gordon Brown og
Co ákváðu að greiða
Icesave í London og
Hollendingar sínu
fólki, það var þeirra
mál, ekki okkar. Svav-
ar nennti ekki að
hanga yfir samningum
og skrifaði undir það
sem honum var sagt að undirrita.
Jóhanna og Steingrímur vildu
borga, en þjóðin sagði Nei. Þökk sé
forseta vorum og þjóð. Nýir samn-
ingar hafa verið gerðir og nú vilja
margir samþykkja, en af hverju? Ef
Englendingar og Hollendingar
teldu að þeir væru með unnið mál
þá væri það löngu komið fyrir rétt,
en þeir hafa ekki stefnt enn, vegna
þess að þeir vita sem er að þeir eru
með tapað mál, annars
væru þeir löngu búnir
að stefna Íslendingum
fyrir rétt, þess vegna
eru þeir að bíða.
Hver myndi bíða
með að stefna til
greiðslu skuldar ef
hann teldi sig vera með
unnið mál? Enginn. Sú
biðlund Breta og Hol-
lendinga segir sína
sögu, þeir einfaldlega
vita að það er tapað
mál og þess vegna vilja
þeir semja til að bjarga eigin skinni,
annars fengju þeir ekkert. Það er
með ólíkindum að stjórnmálamenn
á Íslandi skuli láta hafa sig að fífl-
um ár eftir ár, eyða stærstum tíma
alþingis í tilgangslaust karp um mál
sem okkur kemur ekkert við. Nema
ef vera skyldi ESB aðildarumsókn,
það skýrir málið. Við komust ekki
inn í þetta bandalag ef við ekki
segjum já, Verðum Kúba norðurs-
ins. Ef Kúbverjar hafa það ekki
verra en þetta þá er allt í lagi þar.
Jóhanna er nýbúin að lýsa hve vel
hefur tekist til á Íslandi á síðasta
ári og að þjóðfélagið sé að rísa frá
botninum, hagkerfið sé á siglingu
upp á við, þrátt fyrir að hafa hafnað
Icesave II lögunum. Nú síðast hafa
7 virtir lögmenn skorað á þjóðina að
hafna Icesave 3 lögunum (Frétta-
blaðið) Það hljóta að vera ein-
hverjar undarlegar hvatir sem
liggja að baki því að stjórnvöld eru
svona áfjáð í að greiða þessar
skuldir óreiðumanna.
Nú ríður á að standa saman og
hafna þessum lögum allir sem einn
og segja nei í þjóðarafgreiðslunni.
Látum Breta og Hollendinga stefna
okkur, sem þeir munu ekki gera,
það er of áhættusamt fyrir þá, enda
ber okkur engin skylda til að greiða
þetta. Málið, ef svo undarlega vildi
til að okkur yrði stefnt, yrði dæmt á
Íslandi fyrir héraðsdómi og síðan
Hæstarétti. Og við gætum verið
áfram stoltir Kúbverjar norðursins.
Það sem Bretar gætu gert er við-
skiptabann, hvað þýðir það fyrir
Breta? Þeir þurfa að geta keypt af
okkur fisk, því ef ekki þá glatast 10
þúsund störf í Bretlandi á Humber-
svæðinu í fiskvinnslu (að sögn fisk-
vinnslufyrirtækja þar), sem byggist
á útflutningi á fiski frá okkur Kúb-
verjum norðursins, svo einfalt er
það. Það er skortur á fiski í Evrópu
sem eykst og það verður ekkert
vandamál hjá okkur að selja okkar
fiskafurðir,og svo getum við unnið
fiskinn hér heima í okkar fisk-
vinnsluhúsum og við það skapast
störf,og atvinnuleysi minnkar. Segj-
um nei, nei, nei, við Icesave og
sendum Jóhönnu og Steingrím til
Kúbu til þess að læra kúbversku.
Það vantar nýja og betri stjórn.
Þjóðin á skilið betri stjórn.
Höfnum Icesave 3
Eftir Guðjón
Jónsson
Guðjón Jónsson
» Sá tími segir okkur
að þeir eru vissir um
að tapa málinu ef það
kemur til málaferla,
þess vegna verða engin
málaferli þó við höfnum
þessum samningum.
Höfundur er fv. skipstjórnarmaður.