Morgunblaðið - 31.03.2011, Side 22

Morgunblaðið - 31.03.2011, Side 22
22 MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 31. MARS 2011 ✝ Þórdís Ingi-björg Sverr- isdóttir fæddist í Klettakoti á Skóg- arströnd, Dala- sýslu, 7. september 1946. Hún lést á sjúkrahúsinu á Sauðárkróki 21. mars 2011. Foreldrar henn- ar voru Sverrir Guðmundsson, f. 11. sept. 1910, d. 20. apríl 1986, og Ólöf Guðrún Guðbjörnsdóttir, f. 18. jan. 1915, d. 8. maí 2003. Þór- dís var næst yngst af sjö systk- inum, hin eru í aldursröð, Jón Ingiberg, f. 1934, d. 2000, Guð- mundur Viggó, f. 1938, Ólafur, f. 1940, Gunnar Guðbjörn, f. 1943, d. 2002, Hulda, f. 1945, og Bjarn- fríður, f. 1952. Sambýlismaður Þórdísar var Einar Jakobsson, f. 3. sept. 1943 að Dúki í Sæmundarhlíð, Skaga- firði. Foreldrar Einars voru Jak- ob Jóhannes Einarsson, bóndi að Dúki, f. 9. jan. 1902, d. 18. júlí Ríkharð Óla, f. 29. júní 2008. 3) Sigríður Helga, f. 6. des. 1967, börn hennar eru a) Einar Þór, f.10. sept. 1982, b) Kristján Fenr- ir, f. 18. sept. 1987, c) Jón Hauk- ur, f. 1. nóv. 1989, hann á eina dóttur, Bergnýju Klöru, f. 9. maí 2007. d) Sigrún Ágústa, f. 9. ágúst 1995. Þórdís ólst upp í foreldra- húsum að Straumi á Skógar- strönd, um fermingu fór hún ásamt foreldrum sínum suður til Reykjavíkur og vann þar hjá Grænmetisverslun landbúnaðar- ins á Álftanesi. Um tíma vann hún við fiskverkun í Keflavík ásamt foreldrum sínum, þar kynnist hún sambýlismanni sín- um, Einari, sem var á vertíð í Keflavík. Síðar fór hún að vinna á Hressingarskálanum og um vorið 1963 flyst hún norður í Dúk með Einari og hefja þau þar bú- skap. Eftir að tengdamóðir hennar lést haustið 1965 tók hún við húsmóðurstarfinu, þá aðeins 19 ára gömul, ásamt öðrum verk- um sem þurfti að ganga í. Þórdís bjó á Dúki og starfaði við búskap alla tíð, bæði með sauðfé og kýr. Útför Þórdísar fer fram frá Sauðárkrókskirkju í dag, 31. mars 2011, og hefst athöfnin kl. 14. Jarðsett verður í Reynistað- arkirkjugarði. 1987, og Kristín Jó- hannsdóttir, f. 25. okt. 1900, d. 10. sept. 1965. Börn Þórdísar og Einars eru 1) Jakob Jóhann, f. 5. ágúst 1963, sambýliskona Guð- björg Ósk Valgarðs- dóttir, f. 22. júní 1975, þau eru búsett á Sauðárkróki, börn þeirra eru a) Hrafnhildur Ósk, f. 20. júlí 2004, og b) drengur óskírður, f. 3. mars 2011, fyrir átti a) Jakob Einar Hans, f. 6. des. 1980, hann á tvo drengi, þá Daníel Arnar, f. 16. júlí 2002, og Jakob Ragnar, f. 15. ágúst 2010. 2) Ólöf Kristín, f. 22. mars 1965, gift Sigurði Árnasyni, f. 11. júlí 1967, búsett á Syðri Grund í Húnavatnssýslu, börn þeirra eru a) Anna Þóra, f. 3. feb. 1989, og b) Eydís, f. 13. des. 1995. Fyrir átti Ólöf, a) Ingimar Axel, f. 17. maí 1981, og b) Kristrúnu Huld, f. 22. jan. 1984, hún á einn son, Elsku fallega mamma mín. Lífið líður áfram og smápartur af því fjarar út. Fólki er skammt- aður tími, tími til að elska, tími til að gráta, tími til að brosa, já tími til að gleðjast og njóta samvista með fjölskyldu og vinum. Sumir fá stuttan tíma, aðrir lengri. Móðir mín fékk góðan tíma, hún nýtti vel þann tíma sem henni var gefinn. Á þessum degi leggur hún af stað í ferðalag, sitt síðasta ferðalag af þeim fjölmörgu sem hún hefur lagt upp í. Hún er loks á leiðinni heim þangað sem okkur öll langar að komast. Tár lekur niður kinn- ina, sorg í hjarta og kveðja í huga. Hinsta kveðjustund er komin. Drottinn er minn hirðir, mig mun ekkert bresta. Á grænum grundum lætur hann mig hvílast, leiðir mig að vötnum, þar sem ég má næðis njóta. Hann hressir sál mína, leiðir mig um rétta vegu fyrir sakir nafns síns. Jafnvel þótt ég fari um dimman dal, óttast ég ekkert illt, því að þú ert hjá mér, sproti þinn og stafur hugga mig. Þú býr mér borð frammi fyrir fjendum mínum, þú smyr höfuð mitt með olíu, bikar minn er barmafullur. Já, gæfa og náð fylgja mér alla ævidaga mína, og í húsi Drottins bý ég langa ævi. (23. Davíðssálmur) Hvíl í friði, elsku mamma mín, og hafðu hjartans þökk fyrir þann tíma sem okkur var gefinn saman. Minning þín lifir sem ljós í hjarta mínu. Þín elskandi dóttir, Sigríður Helga Einarsdóttir. Elsku mamma. Í dag er komið að kveðjustund eftir erfiða mán- uði í veikindum þínum. Mikið er ég glöð að hafa fengið að halda í hönd þína á hverjum degi í þess- ari miklu og erfiðu baráttu þinni. Ég dáist að því hversu sterk og dugleg þú varst og þú sýndir okk- ur öllum hversu mikil barátta var í þér og þú gafst ekki upp fyrr en í fulla hnefana. Þessar minningar ásamt fleirum sem koma í kollinn minn ætla ég ávallt að geyma í hjarta mínu. Afi Sverrir og amma Ólöf komu prúðbúin til að sækja þig ásamt fleiru skyldfólki og veit ég að það er glatt á hjalla hjá ykkur öllum núna. Guð geymi þig ávallt og vaki yfir þér, elsku mamma mín. Ég sendi þér kæra kveðju nú komin er lífsins nótt, þig umvefji blessun og bænir ég bið að þú sofir rótt. Þó svíði sorg mitt hjarta þá sælt er að vita af því, þú laus ert úr veikinda viðjum þín veröld er björt á ný. Ég þakka þau ár sem ég átti þá auðnu að hafa þig hér, og það er svo margs að minnast svo margt sem um hug minn fer, þó þú sért horfinn úr heimi ég hitti þig ekki um hríð, þín minning er ljós sem lifir og lýsir um ókomna tíð. (Þórunn Sigurðardóttir) Sofðu rótt, mamma mín. Þín dóttir, Ólöf. Í dag, fimmtudaginn 31. mars, kveðjum við í síðasta sinn tengda- móður mína Þórdísi Sverrisdóttur en hún verður jarðsett í kirkju- garðinum að Reynistað í Skaga- firði. Dísa eins og hún var alltaf kölluð hafði átt við veikindi að stríða síðan í október. Það var svo í janúar að hún greindist með krabbamein. Eftir vel heppnaða aðgerð á höfði varð ég bjartsýnn á að við fengjum að hafa hana leng- ur hjá okkur. Eftir að hafa verið heima um tíma eftir aðgerðina fékk hún blóðtappa í höfuðið og þá varð ekki til baka snúið og hún lést á sjúkrahúsinu á Sauðárkróki 21. mars síðastliðinn. Okkar kynni hófust þannig að 1985 var ég við verknám frá Bændaskólanum á Hvanneyri, í Útvík hjá þeim heiðurshjónum Halldóri Hafstað og Sólveigu Arnórsdóttur. Á þessum árum var oft spiluð félagsvist í félags- heimilinu Melsgili og fór Halldór með mig þangað svo ég sæi fleiri sveitunga. Þar sá ég Dísu fyrst ásamt dóttur sinni Ólöfu og alltaf mættu þær að spila því Dísa hafði mjög gaman af því að spila. Oft var gripið í spil heima á Dúki því flest heimilisfólkið hafði gaman af því að taka í spil. Á þessum tíma grunaði okkur ekki að í júní tveimur árum seinna yrðu Dísa og Einar komin austur á Húsavík til að gifta dóttur sína. Mér er minnisstætt þegar ég kom fyrst í Dúk, kornungur mað- ur, að Dísa var í matargerð allt haustið. Ef ekki fyrir sjálfa sig þá fyrir aðra og eru þau orðin ansi mörg bjúgun sem hún hefur gert heima í eldhúsi fyrir sjálfa sig og aðra og hengt svo upp í reykkof- ann hjá sér. Á þessum árum var Jakob tengdafaðir hennar orðinn gamall og lúinn maður, en hann var til heimilis að Dúki og hugsaði Dísa vel um hann ásamt öðrum heimilisverkum sem hún hafði tekið við eftir andlát tengdamóð- ur sinnar 1965, en þá var hún sjálf aðeins 19 ára. Fjósverkum sinnti hún í rúmlega 40 ár ásamt öðrum heimilisstörfum og oft hefur verið mannmargt á Dúki, fjölmörg systkinabörn og önnur börn hafa verið þar yfir sumarið og eitt barnabarnið Einar Þór ól hún upp. Hún hafði mjög gaman af að ferðast um landið sitt og fylgdist vel með afkomendum sínum, hvernig þeim vegnaði í námi, leik og starfi. Ekki varð þó af því að hún færi í flugferðina sem hana hafði langað til að fara með dótt- urdóttur sinni Önnu Þóru og fljúga yfir Skagafjörð. Það verður að bíða betri tíma, en viss er ég um það að hún lítur til með henni í háloftunum. Kæra Dísa. Við biðjum góðan Guð að varðveita þig og hlý minn- ing þín lifir meðal okkar hinna sem eftir lifum. Sigurður Árnason. Elsku amma mín, þú kvaddir okkur svo fljótt. Ég vil ekki sleppa þér strax. Ég vona að þér líði vel þar sem þú ert núna því ég get ekki fylgst með þér til að passa það. Ég mun sakna þín sárt, en ég mun aldrei gleyma þér og ég vona að þú gleymir mér ekki heldur. Þú varst yndisleg manneskja og mér þykir svo vænt um þig, elsku amma mín. Þú varst svo góð og hjartahlý og mér leið alltaf vel í kringum þig. Hver minning um þig er dýrmæt perla sem ég mun geyma í hjarta mínu að eilífu. Í dagsins önnum dreymdi mig þinn djúpa frið, og svo varð nótt. Ég sagði í hljóði: Sofðu rótt, þeim svefni enginn rænir þig. En samt var nafn þitt nálægt mér og nóttin full af söngvaklið svo oft, og þetta auða svið bar ætíð svip af þér. Og þungur gnýr sem hrynji höf mitt hjarta lýstur enn eitt sinn: Mín hljóða sorg og hlátur þinn, sem hlutu sömu gröf. (Steinn Steinarr) Hvíldu í friði, elsku amma mín. Þín, Eydís. Í dag er til moldar borin norður í Skagafirði húsfreyjan á Dúki í Sæmundarhlíð, Þórdís I. Sverris- dóttir, oftast nefnd Dísa á Dúki. Andlát hennar bar skjótt að, en hún hafði háð snarpt stríð við ill- vígan sjúkdóm, sem lauk snögg- lega. Í þeirri rimmu komu glögg- lega í ljós æðruleysi, baráttuhugur, léttleiki og elsku- legheit þessarar frábæru bónda- konu að norðan. Vel studd af dætrum sínum tveim, syni og sambýlismanninum, Einari Jak- obssyni, voru allir vegir færir í hennar augum. En líf vort endar skjótt. Er leiðir skilur er margs að minnast. Þá er gott að leita í minjasjóðinn og öðlast hugarró frá önnum hins daglega amsturs. Þó að bregðist birta og þrá, blæði stundum hjarta. Sæktu í minjasjóðinn þá sólargeisla bjarta. (Sigurbjörg Hjálmarsdóttir) Það var afar ánægjulegt að heimsækja þau Dísu og Einar. Gestrisnin var í hávegum höfð, glaðværð og umræða um menn og málefni skemmtileg og þar heyrð- ist aldrei hnjóðsyrði um nokkurn samferðamann. Kræsingar voru á borðum og þeirra nutu gestir og gangandi ásamt mörgum að- komubörnum sem voru þar í sveit á sumrin, þar á meðal tvær dætur mínar ungar að árum. Dísa og Einar leystu allan vanda. Það var oft harðbýlt í norðlenskum sveit- um á árum áður, en húsbændur á Dúki voru harðduglegt fólk, sem ekki mátti vamm sitt vita. Bú- smalinn var aðallega sauðfé, nokkrar kýr og hestar. Fé var vel fóðrað, enda flestar ær tví- og þrí- lembdar. Við viljum hér með þakka innilega allar stórkostlegu móttökurnar í áranna rás. Það var dásemd að koma að Dúki í Sæ- mundarhlíð. Aðalsmerkið: elska fórna yfir þínum sporum skín. Hlý og björt í hugum okkar, hjartkær lifir minning þín. (Ingibjörg Sigurðardóttir) Þegar svo kær vinur eins og Dísa fellur frá er svo erfitt að festa á blað þær yndislegu minn- ingar sem hrannast upp í hugann. En tilfinningum þeim sem bærast í brjóstinu er þó enn erfiðara að henda reiður á, því þær flökta svo um og eru oft óskýranlegar og manninum einum eignaðar. Minn- ingin um hina blíðu og mildu drengskaparkonu vaka og verma þótt um leið svíði í sárinu, sem þó grær er fram líða stundir. Við sendum Einari, börnum, barna- börnum, öllu venslafólki og vinum Dísu á Dúki innilegustu samúðar- kveðjur norður í sveitir Skaga- fjarðar sem hún unni svo heitt. Guð sá að þú varst þreyttur og þrótt var ekki að fá, því setti hann þig í faðm sér og sagði: „Dvel mér hjá“. Harmþrungin við horfðum þig hverfa á annan stað, hve heitt sem við þér unnum ei hindrað gátum það. Hjarta, úr gulli hannað, hætt var nú að slá og vinnulúnar hendur verki horfnar frá. Guð sundur hjörtu kremur því sanna okkur vill hann til sín hann aðeins nemur sinn allra besta mann. (Þýð. Á. Kr. Þorsteinsson) Fari hún í friði, kær vinkona. Ásta Pálsdóttir og Friðleifur Stefánsson. Í dag kveðjum við ástkæra vin- konu okkar Þórdísi Sverrisdóttur eða Dísu á Dúki eins og hún var alltaf kölluð í okkar fjölskyldu, nema kannski af yngstu kynslóð- inni sem kallaði hana Dísu ömmu. Dísa var konan hans Einars á Dúki og segja má að hann sé upp- eldisbróðir föður míns sem kom í sveit að Dúki sem barn og hefur okkur ávallt verið tekið sem ein- um af fjölskyldunni frá Dúki. Margar góðar minningar eig- um við um hana Dísu okkar enda voru þau hjónin höfðingjar heim að sækja og nutum við góðs af því. Einnig varð dóttir okkar þeirrar gæfu aðnjótandi að fá að koma í sveit til þeirra í tvö sumur og er- um við þakklát fyrir það. Ekki eru mörg ár síðan þau tóku þá ákvörðun að hætta með kýrnar og nutu þau sín þá enn betur við það að keyra um sveitir landsins og taka hús á vinum og ættingjum enda vinmörg. Minningarnar streyma upp í huga okkar og munum við varð- veita þær í hjörtum okkar um ókomna tíð. Hún Dísa okkar kvaddi þennan heim allt of fljótt og eftir situr eig- inmaður, börn og fjölskyldur harmi slegin, en ótal góðar minn- ingar eiga þau til að hlýja sér við um ókomin ár. Að lokum viljum við þakka Dísu fyrir allt það sem hún hefur gert fyrir fjölskyldu okkar á liðn- um árum, og sendum við Einari, börnum og fjölskyldum þeirra okkar innilegustu samúðarkveðj- ur á þessum erfiðu tímum. Margs er að minnast og margs er að sakna. Helga Kristín og fjölskylda. Jæja Dísa mín. Þá er þessari baráttu lokið, sú barátta er búin að standa síðan í október. Barátta við illvígan sjúk- dóm sem leggur flesta að velli sem hann kemur nærri og trúlega aldrei verið meira á ferðinni en nú síðustu mánuði. Við Þórdís eins og hún hét fullu nafni vorum búin að vera nágrannar í Sæmundarhlíð- inni frá tvítugsaldri og aldrei bor- ið skugga á. Dísa var afskaplega jákvæð manneskja, aldrei nein vandamál borin á torg og aldrei heyrði ég hana segja styggðaryrði um eða til nokkurs manns. Einstaklega vinamörg persóna, alltaf mjög mikill gestagangur á Dúki hjá þeim hjónum. Ég fylgdist talsvert með veikindum Dísu frá því þau hófust í október sl. Ég hringdi oft og spurði um hvernig henni liði, alltaf var sama jákvæðnin: „Þetta er allt að koma“. Svo var hún komin heim og allir horfðu fram á bjartari tíð til einhvers tíma. En þá kom blóðtappinn í höfuðið og það tók rúma viku, þá var allt bú- ið. Sæmundarhlíðin verður miklu fátækari, ég kem allavega til með að sakna þín mikið. Við Mína þökkum þér sam- fylgdina og biðjum Guð að blessa Einar og alla fjölskylduna, börn, barnabörn og barnabarnabörn. Geirmundur Valtýsson Þórdís Ingibjörg Sverrisdóttir Mig langar að minnast Júlla vinar míns. Ég kynntist honum mjög vel þegar ég fór fyrst á vinnumarkaðinn á netaverkstæð- Júlíus Hallgrímsson ✝ Júlíus VilhelmHallgrímsson fæddist í Vest- mannaeyjum 20. ágúst 1921. Hann lést á Heilbrigð- isstofnun Vest- mannaeyja 20. mars 2011. Jarðarför Júl- íusar Vilhelms fór fram frá Landa- kirkju í Vest- mannaeyjum 26. mars 2011. inu 14 ára gamall og að vinna með þess- um snillingum og húmoristum, Júlla og Fúsa. Þeir tóku vel á móti ungling- um og voru ósparir á gamlar íþrótta- sögur. Dímon var þeirra félag og alltaf þegar maður var að monta sig af íþrótta- afrekum höfðu þeir gert miklu betur í Dímoni. Á póli- tíkinni höfðu þeir sterkar skoð- anir. Báðir miklir framsóknar- menn og var Óli Jó þeirra maður. Ég á margar góðar minningar um Júlla og á eftir að sakna hans. Blessuð sé minning góðs manns. Sigbjörn Þór Óskarsson. Ljúflingur með ljós lífsins svo undursterkt í augum, hlýr sem sólin sjálf, yndislegt veður eins og menn segja í orðsins fyllstu merkingu. Júlli Hallgríms var einn af þessum mönnum sem maður saknaði um leið og leiðir skildu. Hann var glæsimenni, fríður og féll að umhverfinu eins og fjall að byggðinni hans, byggðinni okkar. Áran hans var eins og hlýr faðmur, skemmtileg- ur, hnyttinn og mikið jafnviðri þótt stundum ryki suðvesta- náttin í hann og þá blés af báli í augum og brim af vörum, en þó aldrei meir en minnti á þegar hvítnar í fuglsbringu með kalda á sjó. Sumir raða í sig vítamínum og alls kyns falsvonum en að þekkja og eiga vináttu manna eins og Júlla eyðir þeirri þörf. Hugsunin um hann er vítamín. Júlíus Hall- grímsson var einn af þessum föstu póstum út við Eyjar blár og nú er hann orðinn hluti af hinum Heimaklettinum, fjalli minning- anna. Aldrei ráðalaus, ævinlega með lausnir. Þegar hann þakkaði fyrir matinn, kvaddi fólk eða heilsaði þá var það stutt og laggott. „Æv- inlega,“ sagði hann. Á árunum fóru hann og Siggi Vídó skipstjóri og markvörður, Sigurgeir Ólafsson, til Reykja- víkur að taka próf í Stýrimanna- skólanum, mikilvægt sundpróf. Júlli var ósyndur, alltaf í sveit á sumrin þegar sundkennslan var heima í Eyjum, en Siggi sund- kappi. Fyrri daginn í prófinu synti Siggi fyrir sig, seinni dag- inn á nafni Júlla. Það gekk upp, en Júlli fékk hærri einkunn en Siggi. Það er sérstætt að það var allt- af eitthvað guðdómlegt sem fylgdi Júlla Hallgríms, eins og reyndar öllu fólki hans. Kannski er það speglunin af lífsgleðinni sjálfri, brosið og birtan sem fylgir þessu fólki og það er engin tilviljun þegar hugsað er til Júlla Hallgríms og ævi hans að staldra við söguna af Jesú þegar hann fór með fiskimönnunum og netin kokfylltust af fiski. Þá sagði hann við Símon Pétur, klettinn sjálfan, að héðan í frá skyldi hann verða mannaveiðari kristninnar. Júlli Hallgríms var netamaður af Guðs náð, fyrst sjómaður og síð- an netamaður lengst ævi. Hlut- verk Júlla Hallgríms var að afla árangurs öðrum til handa og vin- arþels manna á milli. Ekkert veiðist án veiðarfæra og það er ekki bara að allt handverk skipti máli, enn meira virði er þegar netamaðurinn gefur sál sína í handverkið, gefur veiðinef sitt í hnýtinguna. Það er beitan sem dugir best, netið sem aflar mest. Af öryggi og alúð vann hann við hvern hnút, milljónir hnúta. Of margir gera sér ekki grein fyrir því að grundvöllur Íslendinga sem þjóðar byggist á því að það finnist slorlykt í sem flestum byggðum landsins. Barngæska Júlla var áberandi og þannig var hann einnig í garð samfélagsins. Að vinna hörðum höndum, fylgjast með gangi mála á sjónum, gleðja börn og barna- börn, gera ekki á hlut neins og horfa á fótbolta, það voru hans ær og kýr. Megi góður Guð varðveita allt hans fólk og vernda blæ minning- anna í anda lífs þess góða drengs, Júlla Hallgríms. Það verður glatt í himnaranninum þegar í garð gengur ljúflingur með ljós lífsins svo undursterkt í augum, hlýr sem sólin sjálf, yndislegt veður. Árni Johnsen.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.