Morgunblaðið - 31.03.2011, Side 28
28 DAGBÓK
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 31. MARS 2011
Grettir
Smáfólk
Hrólfur hræðilegi
Gæsamamma og Grímur
Úthverfið
Kóngulóarmaðurinn
Ferdinand
HUGLEIÐING
DAGSINS ER Í BOÐI ODDA
NÁKVÆM, EINFÖLD
OG HEIMSKULEG
HRÓLFUR, MÁ
ÉG SPYRJA ÞIG
EINNAR
SPURNINGAR?
SJÁLFSAGT!
ÞÚ BORÐAR ÞRJÁ
FERMETRA AF MAT Á HVERJUM
DEGI, HVERNIG FERÐU AÐ ÞVÍ AÐ
VERA SVONA KRINGLÓTTUR?
EIGA
SKÝ FEÐUR OG
MÆÐUR?
FÆÐAST SKÝ, DEYJA ÞAU?
HAFA SKÝ TILFINNINGAR?
EIGA ÞAU SÉR DRAUMA?
ÞURFA ÞAU AÐ VINNA?
VIÐ SKULUM BYRJA
Á FYRSTU SPURNINGUNNI
ENDUR-
RÆSIÐIÐRIST
ÆTLARÐU
EKKI AÐ
ELTAST VIÐ
SANDMAN?
EKKI
NEMA HANN
BRJÓTI AF SÉR
AFTUR
HANN
LOFAÐI
MÉR AÐ BÆTA
RÁÐ SITT
BANKARÁN Í
GANGI Í
MIÐBÆNUM...
... VOPNAÐIR MENN
ERU AÐ RÆNA COLUMBIA
NATIONAL BANKANN
ÞAÐ ER
VÍST ALLTAF
NÓG AÐ GERA
ÞAÐ
HLAUT AÐ
KOMA AÐ
ÞVÍ
AMMA, HVAÐ
GERÐIRÐU EFTIR
AÐ ÖRYGGIS-
GÆSLAN FÓR Í
VASKINN?
ÉG
REYNDI AÐ
HLUSTA Á
TÓNLISTINA
ÞAÐ
ER FÓLK Á
SVIÐINU
DRULLIÐ
YKKUR
NIÐUR
KRAKKA-
ORMAR
GASTU EKKI
BARA FYLGST
MEÐ Á
RISASKJÁNUM?
*AND-
VARP*
ÞETTA VORU
AÐRIR
TÍMAR
„Á ÞESSUM
TÍMAPUNKTI
VAR ORÐIÐ
SVO
MARGMENNT
AÐ VIÐ SÁUM
SAMA OG
EKKI NEITT”
Icesave
Nú er runnin upp ög-
urstund fyrir okkar
íslensku þjóð. Að vera
eða vera ekki segir
hið mikla skáld
Shakespeare í verki
sínu um Hamlet
Danaprins. Íslenska
þjóðin þarf að fara að
gera það upp við sig
hvort hún vill hafa
hér allt um vefjandi
Icesave-umræðu
hangandi yfir sér í
þriðja eða fjórða
hverjum fréttatíma
útvarps og sjónvarps
næstu fjögur árin eða ekki, en það
er sá tími sem dómstólameðferð
kynni að taka þar til endanleg nið-
urstaða lægi fyrir. Munum að öll él
birtir upp um síðir. Nú er talið að
hægt og sígandi sé viðsnúningur
hafinn í íslensku efnahagslífi að
mati ASÍ.
Kjósum öryggi fram yfir óvissuna
sem dómstólaleið í
Icesave kynni að hafa í
för með sér fyrir okk-
ur.
Kjósum já með Ice-
save-lögunum 9. apríl.
Sigurður Guðjón
Haraldsson.
Ómakleg gagnrýni
Mér fannst ummæli
Jónasar Sen um feril-
plötu Kristjáns Jó-
hannssonar fyrr á
árinu ómakleg. Krist-
ján er á heims-
mælikvarða og hinn
almenni borgari á Ís-
landi er mjög hrifinn af honum. Mér
finnst þetta alveg frábærir diskar
hjá honum og aðdáendur Kristjáns
hafa tekið þeim fegins hendi.
Lilja.
Ást er…
… það sem setur varan-
legt mark sitt á ykkur.
Velvakandi
Svarað í síma 5691100 frá 10–12
velvakandi@mbl.is
Félagsstarfeldriborgara
Aflagrandi 40 | Vinnustofa kl. 9, göngu-
hópur kl. 10.30. Vatnsleikfimi kl. 10.45,
myndlist og prjónakaffi kl. 13, bók-
menntaklúbbur kl. 13.15, jóga kl. 18.
Árskógar 4 | Handavinna/smíði/
útskurður kl. 9. Botsía kl. 9.30. Helgi-
stund kl. 10.30. Myndlist kl. 13.30.
Árskógar 4 | Handverkssýning kl. 13.30 í
dag, föstud. 1.4 og laugard. 2.4.
Dalbraut 18-20 | Stóladans með Sig-
urrósu kl. 10.30, bókabíll kl. 11.15.
Dalbraut 27 | Handavinnustofa kl. 8.
Digraneskirkja | Leikfimi ÍAK kl. 11.
Félag eldri b., Reykjavík | Brids kl. 13.
Félagsheimilið Boðinn | Jóga kl. 9.
handavinna kl. 13.
Félagsheimilið Gjábakki | Rammavefn-
aður kl. 9.05, leikfimi kl. 9.15, málm- og
silfursmíði kl. 9.30, bókband kl. 13, mynd-
listarhópur kl. 16.10.
Félagsheimilið Gullsmára 13 | Handa-
vinna kl. 9, ganga kl. 10. Brids og handa-
vinna kl. 13. Jóga kl. 18.
Félagsstarf eldri borgara, Garðabæ |
Qi gong kl. 8.15, vatnsleikfimi í Mýrinni kl.
11.15, handavinnuhorn og karlaleikfimi kl.
13, botsía kl. 14, kóræfing kl. 16.
Félagsstarf Gerðubergi | Helgistund kl.
10.30, sr. Guðmundur Karl Ágústsson. Frá
hádegi eru vinnustofur opnar, búta/
perlusaumur og myndlist. Jóga kl. 15.30.
Á morgun kl. 13 er lagt af stað í heimsókn
að Nesvöllum í Reykjanesbæ.
Furugerði 1, félagsstarf | Útskurður kl.
9. Handavinna kl. 9.30.
Hraunbær 105 | Handavi. kl. 9, leikf. kl.
9.30, botsía kl. 10.30. Félagsv. kl. 13.30.
Hraunsel | Morgunrabb kl. 9, qi-gong kl.
10, leikfimi kl. 11.20, glerskurður kl. 13, fé-
lagsvist og pílukast kl. 13.30.
Hvassaleiti 56-58 | Botsía kl. 10. Hann-
yrðir kl. 13. Félagsvist kl. 13.30.
Hæðargarður 31 | Rútuferð kl. 11 föstu-
dag 1. apríl að Hlöðum í Hvalfirði; kjöt-
súpa, rjómapönnukökur og rjúkandi kaffi.
Á staðnum er Herminjasafnið og gler-
listar- og málverkasýning eftir Bjarna Þ.
Bjarnason bæjarlistamann á Akranesi.
Hjördís Geirs og línudanshópur Ingu Hlín-
ar. Uppl. s. 411-2790.
Íþróttafélagið Glóð | Sundlaug Kóp.:
Ganga kl. 16.30 Hringdansar í Kópavogs-
skóla kl. 17.
Langahlíð 3, félagsmiðstöð | Hand-
verks- og bókastofa kl. 13, botsía kl.
13.30, Á léttum nótum - þjóðlagast. kl. 15.
Laugarneskirkja | Sr. Sigfinnur Þorleifs-
son sjúkrahúsprestur og lektor í sál-
gæslufræðum við HÍ fjallar um sálgæslu
og öldrun kl. 14. Sigurbjörn Þorkelsson
stýrir samverunni og hefur stutta hug-
vekju. Veitingar í boði safnaðar.
Norðurbrún 1 | Botsía kl. 10. Handavinna
kl. 9/13. Leirlistarnámskeið kl. 9/13. Út-
skurður kl. 9.
Safnaðarheimili Dómkirkjunnar | Opið
hús alla fimmtudag kl. 13.30-16.
Vesturgata 7 | Handavinna, glerskurður
(Tiffanýs), ganga kl. 9.15, kertaskreyt-
ingar/kóræfing, leikfimi kl. 13.
Vesturgata 7 | Föstudaginn 1. apríl kl.15
kynnir Lilja Jónsdóttir frá ferðaskrifstof-
unni Vita vor- og haustferðir.
Vitatorg, félagsmiðstöð | Smiðja, bók-
band og postulínsmálun kl. 9, morg-
unstund kl. 9.30, botsía kl. 10, framh.saga
kl. 12.30, handavinnustofa kl. 13, spil,
stóladans kl. 13.
Heimurinn liggur ekki alltafundir þegar andinn kemur yf-
ir hagyrðinga. Oft þarf ekki meira
til en að einhver sé til, eins og þeg-
ar viðtal var flutt við Kolbein Gísla-
son bæklunarskósmíðameistara á
RÚV. Þá varð Óttari Einarssyni að
orði:
Kolbeinn heitir seggur sá,
sem ég afar mikils virði,
tengdasonur Sigtryggs á
Svalbarði í Þistilfirði!
Eins og alþjóð veit voru mannlýs-
ingar einmitt sérfag Símonar Dala-
skálds, sem orti um Theodór Ólafs-
son á Borðeyri:
Theodór er hyggjuhreinn,
hreinum sóma vafinn,
eins og fagur eðalsteinn
upp úr dufti grafinn.
Björn Ingólfsson er einmitt þeirr-
ar skoðunar að ekkert sé góður
efniviður í vísu:
Blómailm og úldið smér
oft til ríms má virkja.
Þessa vísu þótti mér
þægilegt að yrkja.
Hallmundur Kristinsson tekur
undir það:
Þess vegna ég þetta nefni;
það er eitt:
Fátt er betra yrkisefni
en ekki neitt.
Ágúst Marinósson veltir þessari
hefð fyrir sér, að yrkja um ekki
neitt:
Á ýmsu er nú lítið lag,
logn í andans vöku,
Ort þó hef ég eina í dag
ofurlitla stöku.
Á lífsins skerjum flýti ferð
við flestum erjum þegi.
Saman berja vísu verð
en varla á hverjum degi?
Engilráð Sigurðardóttir segir
það hafa verið tilhlökkunarefni
þegar vinnuskyldu lyki að vakna
„þegar maður er búinn að sofa“.
Það sé ljúft í skammdeginu, en …
Vakna tekur vor í sál,
víkur drungi myrkra nátta
og nú er bara besta mál
að byrja daginn klukkan átta.
Pétur Blöndal pebl@mbl.is
Vísnahorn
Af vísum um ekki neitt