Morgunblaðið - 31.03.2011, Page 32

Morgunblaðið - 31.03.2011, Page 32
Inga Rún Sigurðardóttir ingarun@mbl.is Sjósunds- og sjóbaðsfélag Reykja- víkur (SJÓR) stendur fyrir sjóbíói í Nauthólsvík í kvöld kl. 22. Sýnd verður kvikmyndin Jaws 2 en þetta er í annað sinn sem sjóbíóið er haldið. Í fyrra sinn var á dagskrá myndin Jaws (en ekki hvað). Vel var mætt á síðasta sjóbíó og því var ákveðið að endurtaka leikinn á með- an enn er nógu dimmt á kvöldin til að horfa á bíó útivið. Synt milli mánaða Bíósýningin er haldin í tengslum við svokallað „millimánaðasund“ en þá fer fólk í sjóinn rétt fyrir mið- nættið og syndir síðan milli mán- aða. Myndinni er varpað á tjald í vík- inni en sjósundskapparnir horfa á hana úr heita pottinum. „Það skapaðist mjög sérstök stemning þarna síðast. Það hlógu allir allan tímann,“ segir Jóhanna Fríða Dalkvist, ritari félagsins. Hún segir að þessi galsi hafi síðan smit- ast yfir í miðnætursundið. „Það voru einhverjir að grípa í lappirnar á manni,“ segir hún. Jóhanna segir það góða byrjun á mánuðinum að synda milli mánaða. „Þetta er besta byrjunin, maður verður svo ferskur. Það er líka spes stemning að synda í myrkri. Það eru líka alltaf allir í góðu skapi. Þetta er svo upplífgandi og hress- andi. Það fer enginn í fýlu út í sjó,“ segir Jóhanna sem hefur stundað sjósund frá því í ágúst 2009. Miðaverð er 500 krónur og verð- ur popp og kók til sölu á staðnum. Aðeins er tekið við reiðufé. Óhuggulegt Það er húmor hjá sjósundsfólkinu að horfa á Jaws og fara svo að synda. Enginn í fýlu í sjósundi  Sjóbíó haldið í Nauthólsvík í kvöld  Á dagskrá er kvikmyndin Jaws 2 Nauthólsvík Myndinni er varpað á tjald í víkinni en sjósunds- kapparnir horfa á hana úr heita pottinum. 32 MENNING MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 31. MARS 2011 The Adjustment Bureau erleikstjórnarfrumraunhandritshöfundarinsGeorge Nolfi, sem skrifaði meðal annars handritin að Ocean’s Twelve (2004) og The Bourne Ulti- matum (2007). Nolfi hefur augljós- lega ekki viljað drekkja þessari frumraun sinni í íburðarmiklum tæknibrellum sem væri ágætt ef sagan sjálf væri nógu burðug til að standa undir sér svona berstrípuð. Myndin er afar frjálsleg aðlögun á smásögu eftir hinn merka vísinda- skáldsagnahöfund Philip K. Dick, frá árinu 1953. Frásögn Nolfi er í raun svolítið útþynnt, einfölduð og fegruð útgáfa. Vísindaskáldskapur- inn og tilvistarlegar vangaveltur verða hálf útundan í áferðarfagurri og stílhreinni afþreyingu. Myndin segir af ástarævintýri upprennandi bandarísks þingmanns (Matt Da- mon) og hæfileikaríkrar ballerínu (Emily Blunt) sem stefnt er í voða þegar dularfullir erindrekar yfir- skilvitlegrar alræðisskrifstofu reyna af öllum mætti að stía þeim í sundur. Þeir breyta grundvelli veruleika þeirra á róttækan hátt til að koma í veg fyrir að frávik verði á forskrifuðum örlögum parsins sem „formaðurinn“ hefur ákvarðað. Það væri hægt að útfæra þetta efni á afar spennandi máta en út- tekt Nolfi ristir ekki mjög djúpt. Leikarar gefa sig alla í hlutverkin en þeir þreyja að mestu þorrann á þönum um New York, þar sem ást- fangna parið flýr og erindrekar for- mannsins reyna að hindra för þeirra með því að stytta sér leið gegnum leynileg töfragöng. Erind- rekarnir líkjast helst spjátrungum úr tískuauglýsingum þar sem þeir eru óaðfinnanlega klæddir, stroknir og greiddir og hegða sér eins og hinir mestu herramenn. Fyrir vikið eru þeir frekar geldir skúrkar en að sama skapi skemmtilega bros- legir vegna þess að þeir eru ekki al- veg firrtir persónuleika. Vanda- málið er að það stafar ekki mjög mikil ógn af þeim og ávinningur strits þeirra virðist harla lítilfjör- legur auk þess sem forræðishyggja formannsins virðist með öllu óþörf. The Adjustment Bureau væri áhugaverðari ef hún rýndi dýpra í vef örlaga mannanna, ábyrgðina sem fylgir frjálsum vilja, og kúg- andi ítök alsjáandi alltumlykjandi valds í stað þess að skauta einungis á yfirborðinu. Brennandi spurn- ingar um orsök og afleiðingu sækja tíðum á flesta áhorfendur og mynd- in gæti auðveldlega gert þeim safa- ríkari skil. Þess í stað eru kerfis- karlarnir guðlegar verur sem halda verndarvæng yfir mannanna börn- um, óvitum sem færu sér að voða og kölluðu ógæfu heimsins yfir sig ef ekki kæmi til forsjón „formanns- ins“. Sagan sem myndin er byggð á er ágeng, bölsýn og hranaleg, þar sem kerfið er bákn sem fullburða mað- urinn etur kappi við en myndin leggur blessun yfir ríkjandi ástand og heimsmynd í klassískri hugljúfri sögu um ástina sem sigrar allt. Myndin er þó ekki alveg mistæk, persónur eru áhugaverðar eins og áður segir og rómantíkin milli að- alhetjanna er langt frá því að vera niðursoðin. Það er upplífgandi neisti milli þeirra og bakgrunnur parsins er þéttur. Samtölin eru sömuleiðis hnyttin og frásögnin af tilhugalífi þeirra er sterk framan af en hún fjarar svolítið út í lang- dregnum eltingaleik þegar líða tek- ur á. Í heildina er myndin létt og áreynslulaus afþreying sem hrífur meðan á henni stendur en skilur lít- ið eftir sig. Sambíóin The Adjustment Bureau bbbnn Leikstjórn og handrit: George Nolfi. Að- alhlutverk: Matt Damon, Emily Blunt, Anthony Mackie, Terence Stamp og John Slattery. 99 mín. Bandaríkin, 2011. HJÖRDÍS STEFÁNSDÓTTIR KVIKMYNDIR Dressmann? Erkióvinir söguhetjanna líkjast helst spjátrungum úr tískuauglýsingum og hegða sér eins og hinir mestu herramenn. Fyrir vikið eru þeir frekar geldir skúrkar en að sama skapi skemmtilega broslegir vegna þess að þeir eru ekki alveg firrtir persónuleika. The Adjustment Bureau er létt og áreynslulaus afþreying. Meinbugur kerfiskarlanna  Í kvöld halda tónlistarmaðurinn Loji og hljómsveitirnar Hellvar, Baku Baku og Hljómsveitin Ég tónleika á Sódómu Reykja- vík og hefjast þeir kl. 22. Baku Baku er ný hljómsveit sem flytur dansvæna tónlist hlaðna áhrifum frá síðpönki og ögrandi ný- bylgju. Skemmtileg blanda og traust, eins og því er lýst í tilkynningu. Aðgangseyrir er 500 krónur og mun allur ágóði renna til japanska Rauða krossins. Dansvæn tónlist og fjölbreytt á Sódómu Reykjavík  Hönnuðurinn Daggalá og fyrirtækið Tanna sameinuðu krafta sína við gerð sér- staks EVE Online kjóls fyrir CCP-kynninn Stevie Ward sem kemur að framleiðslu leikj- anna fyrir CCP og vinnur við gerð kynning- arefnis. Ward var kynnir á EVE Fanfest há- tíðinni sl. helgi og klæddist kjólnum góða. Á kjólinn var prentað merki EVE svo úr varð skrautlegt mynstur. Daggalá hannaði EVE Online kjól á kynni EVE Fanfest Skannaðu kóðann til að horfa á stiklu úr Jaws 2. Jaws 2, eða Ókindin 2, var frum- sýnd árið 1978 og er hún fram- hald kvikmyndarinnar Jaws sem skaut fólki skelk í bringu þrem- ur árum fyrr. Fyrri myndinni leikstýrði Steven Spielberg en mynd nr. 2 Jeannot Szwarc. Í Jaws 2 segir, líkt og í þeirri fyrstu, frá lögreglustjóranum Martin Brody í strandbænum Amity sem þarf að drepa skæð- an hákarl sem kann að meta mannakjöt. Roy Scheider leikur lögreglustjórann. Ógn í hafi ÓKINDIN 2

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.