Morgunblaðið - 07.04.2011, Blaðsíða 2
FRÉTTASKÝRING
Rúnar Pálmason
runarp@mbl.is
Kjörtímabil dómara við Landsdóm
rennur út 11. maí og verði frumvarp
um að framlengja kjörtímabil ekki að
lögum þarf að kjósa aftur í dóminn.
Kjörið er í höndum alþingismanna en
það þykir ekki góð latína að þeir sömu
og taka ákvörðun um að ákæra mann
kjósi einnig dómara til að dæma í máli
hans. Saksóknari Alþingis hefur af
þessu áhyggjur.
Frumvarp um breytingar á lögum
um Landsdóm var lagt fram á Alþingi
18. nóvember í fyrra. Frumvarpið er
stutt og aðalatriði þess eru annars
vegar ákvæði um að kjörtímabil dóm-
ara skuli framlengt og hins vegar
ákvæði um hvernig fara skuli með
beiðnir um rannsóknarúrskurði. Mál-
ið var tekið til fyrstu umræðu af
þremur síðdegis hinn 24. nóvember í
fyrra en síðan frestað. Þar situr málið
enn.
Sigríður J. Friðjónsdóttir, ríkissak-
sóknari og saksóknari Alþingis, segir
að í raun skipti aðrar greinar frum-
varpsins en sú sem fjallar um fram-
lengt kjörtímabil minna máli, hvað
varðar sakamálið gegn Geir H.
Haarde. Hún hafi t.d. þegar fengið öll
þau gögn sem hún óskaði eftir og
muni ekki krefjast úrskurðar um
frekari gagnaöflun. Á hinn bóginn sé
mikilvægt að kjörtímabil dómara
verði framlengt þannig að tryggt sé
að sömu dómarar fjalli um málið frá
upphafi til enda. „Þetta snýst um heil-
brigða skynsemi,“ segir hún og bend-
ir á að í lögum um stéttarfélög og
vinnudeilur sé ákvæði um að dómarar
félagsdóms skuli klára mál sem þeir
hafi byrjað á, jafnvel þótt kjörtímabil
þeirra sé á enda.
Áhyggjur ræddar
Sigríður segir að það sé afar
óheppilegt, svo ekki sé meira sagt,
komi til þess að Alþingi kjósi nýja
dómendur í Landsdóm, enda hafi
meirihluti þingmanna ákveðið að
ákæra skuli Geir. Sigríður hefur rætt
um þessar áhyggjur sínar við sak-
sóknaranefnd Alþingis. „Þar virðast
allir sammála um að framlengja þurfi
kjörtímabilið. En svo heyrist ekkert
af framgangi frumvarpsins.“
Sigríður J. Friðjónsdóttir sinnir
þessa dagana bæði starfi saksóknara
Alþingis og ríkissaksóknara.
Nú á þriðjudaginn vann hún á
skrifstofu ríkissaksóknara en í gær
vann hún að málinu gegn Geir H.
Haarde. Sigríður segir að sér hugnist
það ekki illa og telji ekki óframkvæm-
anlegt að sinna báðum störfum. End-
anleg ákvörðun liggi þó ekki fyrir fyrr
en hún hafi fundað með saksókn-
aranefnd Alþingis.
Enn sé stefnt að því
að ákæra og gögn
málsins á hendur Geir
H. Haarde verði send
Landsdómi fyrir páska
eða skömmu eftir þá.
Rúmur mánuður
eftir af umboðinu
Kjörtímabil Landsdóms rennur út í maí Frumvarp fast
Morgunblaðið/Kristinn
Umræða Fyrstu umræðu um frumvarp um breytingar á lögum um Landsdóm er ólokið. Átta af 15 eru kosnir.
2 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 7. APRÍL 2011
Din smertestillende løsning til lokal
behandling af smerter i ryg, skuldre og muskler
Aumir og stífir vöðvar?
Voltaren Gel® (Díklófenaktvíetýlamín 11,6 mg/g) er notað sem staðbundin útvortis meðferð við vöðva- og liðverkjum. Lyfið má ekki bera
á skrámur, opin sár eða á exem, varist snertingu við augu og slímhúðir, notist eingöngu útvortis og má aldrei taka inn. Þegar lyfið er notað
án ávísunar læknis skal hafa samband við lækni ef einkenni batna ekki eða versna innan viku. Á meðgöngu skal ávalt leita ráða læknis eða
lyfjafræðings áður en lyfið er notað, þó skal það ek i notað á síðasta þriðjungi meðgöngu. Voltaren Gel® er ekki ætlað börnum yngri en 12
ára. Lítil hætta er á ofskömmtun vegna útvortis notkunar lyfsins. Lesa skal vandlega leiðbeiningar á umbúðum og fylgiseðli. Geymið þar
sem börn hvorki ná til né sjá. Markaðsleyfishafi: Novartis Healthcare. Umboð á Íslandi: Artasan ehf., Suðurhrauni 12a, 210 Garðabæ.
Fæst án lyfseðils
N J Ó T U M Þ E S S A Ð H R E Y F A O K K U R
Verkjastillandi og bólgueyðandi við
verkjum í mjóbaki, öxlum og vöðvum
Nýtt lok!
Auðvelt að opn
a
Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 5691100 Fréttir ritstjorn@mbl.is Fréttastjórar Sunna Ósk Logadóttir, sunna@mbl.is Sigtryggur Sigtryggsson, sisi@mbl.is Viðskipti
vidsk@mbl.is Ívar Páll Jónsson, fréttastjóri, ivarpall@mbl.is Menning menning@mbl.is Umræðan | Bréf til blaðsins | Minningar mbl.is/sendagrein, Arnór Ragnarsson Íþróttir sport@mbl.is
Víðir Sigurðsson, vs@mbl.is mbl.is netfrett@mbl.is Guðmundur Sv. Hermannsson fréttastjóri gummi@mbl.is Prentun Landsprent ehf.
Baldur Arnarson
Ómar Friðriksson
„Við erum ekki að fara ljúka þessu
fyrr en eftir helgina. Ég held að það
sé alveg ljóst. Það er það mikið eft-
ir,“ segir Gylfi Arnbjörnsson, forseti
Alþýðusambands Íslands, aðspurður
hvenær horft sé til þess að leggja
smiðshöggið á nýja kjarasamninga.
En miðar nýja tímaáætlunin við að
reyna að ná samningum fyrir páska?
„Það veltur svolítið á viðbrögðum
stjórnvalda, hvort takast muni að
koma einhverju saman þá. Ég verð
að viðurkenna það.“
Farið yfir stöðuna
Vilhjálmur Egilsson, fram-
kvæmdastjóri Samtaka atvinnulífs-
ins (SA), kvaðst boðaður á fund með
embættismönnum um stöðuna fyrir
hádegi í dag en að eftir hádegi tæki
við aðalfundur hjá samtökunum.
„Við ætlum að fara yfir þau við-
brögð sem hafa komið fram hjá ríkis-
stjórninni vegna þeirra athuga-
semda sem við gerðum. Við erum að
reyna að draga fram hvað stendur út
af hjá okkur og ríkisstjórninni.“
Á síðustu dögum hefur Icesave-
kosningin fléttast inn í kjaramálin.
Forseti ASÍ hefur talið brýnt að
afgreiða Icesave-málið enda opnist
þá fyrir erlendar lánalínur.
Þá hafa Vilmundur Jósefsson, for-
maður SA, og Vilhjálmur Egilsson
lýst því yfir að endurskoða þurfi for-
sendur kjarasamninga ef Icesave-
lögunum verður hafnað.
Inntur eftir þessari afstöðu SA
segir Steingrímur J. Sigfússon, fjár-
málaráðherra og formaður VG, að
allir viti að úrslit kosninganna hafi
margvísleg áhrif og allir áskilji sér
rétt til að skoða sína stöðu eftir helgi.
Tenging við Icesave trufli ekki
„En við höfum ekkert blandað
þessu saman. Það ræðst þá bara af
tímanum hvort menn ná þessu sam-
an fyrir helgi, um helgina eða eftir
hana. Það er ekki ætlunin af okkar
hálfu að láta það trufla neitt. Við er-
um að vinna í yfirlýsingu okkar og
skoða það sem frá þeim hefur kom-
ið,“ segir Steingrímur.
Kjaraviðræður
í hægagangi
Forseti ASÍ segir ljóst að samningar
muni ekki nást fyrr en eftir helgina
Áhrif Icesave-kosningar
» Forseti ASÍ lét þau orð falla í
mars að það væri „alveg ljóst
að kjarasamningar verði
byggðir upp á ákveðnum for-
sendum um uppbyggingu“.
» „Niðurstaða þessarar at-
kvæðagreiðslu mun auðvitað
hafa áhrif á þær forsendur.“
Gylfi
Arnbjörnsson
Vilhjálmur
Egilsson
Gæsluvarðhaldsúrskurður yfir
tveimur mönnum sem grunaðir eru
um að hafa beitt ungan dreng kyn-
ferðislegu ofbeldi rennur út í dag. Til
stendur að taka ákvörðun í dag um
hvert framhaldið í málinu verði og
hvort farið verði fram á áframhald-
andi gæsluvarðhald. Eins og fram
hefur komið í fjölmiðlum eru menn-
irnir frændur og báðir grunaðir um
gróf kynferðisbrot gegn 8 ára syni
annars þeirra.
Að sögn Björgvins Björgvinsson-
ar, yfirmanns kynferðisbrotadeildar
lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu,
hafa skýrslutökur staðið yfir síðustu
daga en mennirnir hafa setið í
gæsluvarðhaldi á grundvelli rann-
sóknarhagsmuna frá 31. mars síðast-
liðnum. Lögregla hefur einnig lagt
hald á tölvur og tölvugögn í eigu
mannanna og sömuleiðis fíkniefni
sem þeir höfðu í fórum sínum.
hjaltigeir@mbl.is
Gæsluvarðhald
rennur út í dag
Morgunblaðið/Brynjar Gauti
Níð Mennirnir hafa setið í gæslu-
varðhaldi frá því á fimmtudaginn.
Hald lagt á tölvur og tölvugögn
Andri Árnason hrl., verjandi
Geirs H. Haarde, segir að Al-
þingi hefði getað breytt lögum
um landsdóm áður en greidd
voru atkvæði um ákæru gegn
Geir, þannig að þau yrðu al-
mennt séð nothæf. Alþingi
hefði hins vegar valið að gera
það ekki.
„Nú þarf væntanlega Alþingi
að kjósa sér nýja dómara, ann-
aðhvort þá sömu eða nýja,“
segir hann. Ekki sé gott að
segja til um áhrif þess á málið
en það sé óeðlilegt að sá sem
ákæri kjósi sér dómara til að
dæma málið eða krukki í kjör-
tímabilinu. „Margur gæti ef-
laust haldið því fram að það
gæti ónýtt málatilbúnaðinn,“
segir Andri.
Kjósi Alþingi, sem ákvað að
ákæra, nýja dómara
sé varla
hægt að
telja að
dómurinn
sé óvil-
hallur.
Óeðlilegar
breytingar
VERJANDI GEIRS
Gæsluvarðhald yfir karlmanni á
þrítugsaldri sem tekinn var með
36.000 skammta af e-töflum og á
fimmta þúsund skammta af LSD á
Keflavíkurflugvelli 23. mars sl. var
í gær framlengt til 20. apríl. Þetta
kom fram á vef RÚV í gær.
Maðurinn var á heimleið eftir
ferð til Kanaríeyja en með honum í
för var kona á þrítugsaldri. Var
konunni sleppt í síðustu viku.
Eitt það mesta í sögunni
Smyglið á e-töflunum var eitt það
mesta sem um getur en aldrei áður
hafði verið lagt hald á jafnmarga
LSD-skammta í einu. Samkvæmt
heimildum Morgunblaðsins voru
fíkniefnin falin í fölskum botni á
stórri ferðatösku.
Ekki náðist í sérfræðinga lög-
reglunnar í Keflavík í gær þrátt
fyrir ítrekaðar tilraunir.
Gæsluvarðhald
yfir smyglara hefur
verið framlengt
56,8% kjósenda ætla að segja nei við
Icesave-samningnum í nýrri könnun
sem MMR gerði fyrir Stöð 2. 43,2%
svarenda ætlar að segja já. Þetta er
fyrsta skoðanakönnunin sem sýnir að
fleiri séu á móti samningnum en
styðja hann.
Könnunin var gerð dagana 4.-6.
apríl. Svarhlutfall var rúmlega 60%.
Spurt var: Ef kosið yrði um nýjustu
Icesave-lögin í dag, hvort myndir þú
kjósa með eða á móti?
Samkvæmt könnuninni ætlar að-
eins fjórðungur kjósenda Sjálfstæð-
isflokksins að styðja samningana en
um 75% eru á móti þeim. Þetta er ívið
meiri andstaða við Icesave en hjá
kjósendum Framsóknarflokks. Flest-
ir kjósendur Samfylkingarinnar ætla
að styðja Icesave, en kjósendur VG
eru klofnir í sinni afstöðu.
Nokkrar kannanir hafa verið gerð-
ar á afstöðu kjósenda til Icesave-
samninganna síðustu vikurnar. Í
þeim öllum hafa fleiri sagst ætla að
styðja samningana en þeir sem sögð-
ust vera móti þeim. Síðasta könnun
Capacent, gerð fyrir Áfram-samtök-
in, sýndi að 55,3% þeirra sem tóku af-
stöðu ætluðu að segja já, en 44,7% nei.
57% á móti Icesave