Morgunblaðið - 07.04.2011, Blaðsíða 4

Morgunblaðið - 07.04.2011, Blaðsíða 4
4 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 7. APRÍL 2011 Settu þig í stellingar 20% afsláttur af stillanlegum heilsurúmum Faxafeni 5 • Sími 588 8477 Gísli Baldur Gíslason gislibaldur@mbl.is Rekstraraðilar matsölunnar Hámu á Háskólatorgi Háskóla Íslands íhuga nú að skipta út stál- hnífapörum og leirtaui fyrir einnota plastborðbúnað. Ástæðan er sú að gríðarlegur fjöldi hnífapara, bolla og jafnvel diska hefur horfið á hverju ári síðan Háma hóf rekstur í húsnæðinu. Fjölmörg dæmi eru um að fólk hendi þessum hlutum í rusl- ið eftir notkun. „Stálhnífapör, postulín og allt þannig hverfur eiginlega hraðar en maður nær að snúa sér við og við erum í stökustu vandræðum með þetta,“ segir Rebekka Sigurð- ardóttir, upplýsingafulltrúi Fé- lagsstofnunar stúdenta. „Við erum búin að vera með Hámu í þessu húsi í rúm þrjú ár. Á þessu tímabili höfum við þurft að endurnýja al- gjörlega eða kaupa nýjar birgðir af hnífapörum nokkrum sinnum hvern einasta vetur.“ Rebekka nefnir einnig að postulínsbollar hafi verið endurnýjaðir árlega. Nú verður sú breyting gerð á að aðeins viðskiptavinir sem kaupa sér heitan mat fá stálhnífapör, en ekki aðrir. „Þannig að við erum ekki að hætta með þau, en við erum að breyta þessu aðeins, því við erum í vandræðum.“ Átján bollar í ruslagámi „Eins undarlegt og það er þá lendir mikið af þessu í ruslinu,“ segir Rebekka sem vonast þó til að þetta muni nú breytast þar sem bú- ið er að taka upp sérstakt endur- vinnslukerfi á háskólasvæðinu. Hún segir að eitt sinn hafi starfs- maður fundið átján postulínsbolla í ruslagámi háskólans og að það geti ekki talist tilviljun. „Það var eins og fólk hallaði bara diskunum og öllu sem á þeim var ofan í ruslatunnurnar, hnífapör- unum þar með töldum. Við gefum okkur það ekki að þetta sé gert vilj- andi, en þetta er algjört hugs- unarleysi.“  Háma á Háskólatorgi íhugar að skipta yfir í einnota borðbúnað  Birgðir af hnífapörum og bollum verið endurnýjaðar reglulega á þremur árum  „Algjört hugsunarleysi“ hjá nemendum Morgunblaðið/Valdís Thor Setið að snæðingi „Fólk fer út að reykja með bollana og í aðrar byggingar. Þetta endar hér og þar. Svo eru ef- laust margir bollar í íbúðum hjá stúdentum eða hjá fólki sem tekur þá með sér sem minjagripi.“ Stálhnífapör og leirtau í ruslið eftir notkun Norðanmenn biðu síðasta fundar veðurklúbbsins á dvalarheimilinu Dalbæ á Dalvík með eftirvæntingu í ár eins og endranær, enda þaul- vanir veðurspekingar á ferð. Hópurinn kom saman 29. mars sl. og voru fundarmenn 14, margir hverjir íbyggnir og sumir jafnvel dularfullir, að því er segir í tilkynn- ingu hópsins. Farið var yfir næstu tunglkomu þar sem tungl kviknar í suðsuð- vestri kl. 14:32 en þá er á ferð sunnudagstungl. Einn fundar- manna hafði dreymt mikinn snjó og sagðist ráða það svo að þetta væri fyrir þíðu og suðlægum áttum. Var niðurstaða fundarins sú að framundan væru suð- og vestlægar áttir en að eftir 20. apríl kæmi norðanátt og snjókoma. Fylgdi með sú spá að nokkuð mikinn snjó mundi setja niður í þessu hreti. Ekki náðist í talsmann veður- klúbbsins og var því leitað til Ein- ars Sveinsbjörnssonar veðurfræð- ings og spurt um páskaveðrið. Kvaðst Einar þá ekki hafa for- sendur til að spá um veður svo langt fram í tímann en bætti þó við: „Það getur hins vegar vel verið að Dalvíkingarnir hafi rétt fyrir sér. Þeir nota aðrar aðferðir sem hafa reynst þeim ágætlega. Þeir nota alþýðuvísindin, íslensku al- þýðutrúna, sem ég ætla alls ekki að gera lítið úr. Síður en svo. Vorkoman er skrykkjótt. Það getur komið gott veður en svo slær í bakseglin. Svona hret eru fylgi- fiskur þessa árstíma. Hret í apríl og maí eru algeng. Ef veðrið er skoðað mörg aftur í tímann kemur í ljós að flest árin verða páskahret.“ Veðurklúbburinn spáir páskahreti  Spáir snjókomu daginn fyrir skírdag Morgunblaðið/Kristján Skíðafæri Norðanmenn sóla sig í Akrafjalli páskahelgina árið 2002. Hjalti Geir Erlendsson hjaltigeir@mbl.is Þjóðareign á náttúruauðlindum, aukið beint lýðræði, skýrari aðskiln- aður löggjafar- og framkvæmd- arvalds og kynning á helstu ein- kennum lands og þjóðar er á meðal þess sem finna má í hugmyndum stjórnlaganefndar að nýrri stjórn- arskrá Íslands. Ómar Ragnarsson, aldursforseti Stjórnlagaráðs, tók formlega við skýrslu stjórnlaga- nefndar úr höndum Guðrúnar Pét- ursdóttur, formanns nefndarinnar, við setningu stjórnlagaráðs í gær. Hugmyndir nefndarinnar að nýrri stjórnarskrá voru meðan annars unnar með hliðsjón af niðurstöðum þjóðfundarins 2010. Stjórnlagaráði er ætlað að hafa skýrsluna til hlið- sjónar við undirbúning á frumvarpi að endurbættri stjórnarskrá Ís- lands. Lagt er til að ákveðinn fjöldi kjósenda, ekki undir 15%, geti óskað eftir þjóð- aratkvæðagreiðslu til staðfestingar eða synj- unar lagafrumvörpum frá Alþingi. Þá er einnig nefnd sú hugmynd að þriðjungur þingmanna geti með sama hætti skotið málum til þjóðarinnar og jafnvel rofið þing. Rétt hugtakanotkun mikilvæg Stjórnlaganefnd teflir fram þeim hugmyndum að binda ákvæði um þjóðareign á náttúruauðlindum í stjórnarskrá landsins. Skúli Magn- ússon, ritari EFTA-dómstólsins og fulltrúi í stjórnlaganefnd, ritar lög- fræðilega úttekt á álitaefnum um auðlindaákvæði í stjórnarskrá. Þar bendir hann meðal annars á mikil- vægi réttrar hugtakanotkunar en leggur þó ekki mat á hvort ákvæði um þjóðareign sé æskilegt. Að mati Skúla kann að vera réttara að tala frekar um „almannarétt“ eða „ríkis- eign“ eftir því sem við á. Stjórnlagaráð form- lega tekið til starfa  Ákvæði um þjóðareign og beint lýðræði má finna í hugmyndum stjórnlaganefndar um nýja stjórnarskrá Stjórnlagaráð var sett við hátíðlega athöfn í húsnæði ráðsins við Of- anleiti 2. Í Stjórnlagaráði sitja 25 fulltrúar og er þeim ætlað að taka við og fjalla um skýrslu stjórnlaganefndar, undirbúa frumvarp að endurbættri stjórnarskrá og hafa til hliðsjónar við þá vinnu nið- urstöður Þjóðfundar 2010. Ómar Ragnarsson er aldursforseti ráðsins og stýrði því fyrsta fundinum en forseti Stjórnlagaráðs verður kosinn í dag. Setning ráðsins var send út í beinni út- sendingu á heimasíðu Stjórnlagaráðs. Fyrsta verkefni stjórn- lagaráðs var að syngja kvæðið Þingvallasöng eftir Steingrím Thorsteinsson, sem er betur þekkt undir nafninu „Öxar við ána.“ Byrjuðu á Þingvallasöng STJÓRNLAGARÁÐ SETT MEÐ ATHÖFN Ómar Ragnarsson Morgunblaðið/Golli Stjórnlagaráð Við setningu stjórnlagaráðs í gær hlýddu fulltrúar m.a. á barnakór syngja. Skannaðu kóðann til að sjá mynd- skeið frá fund- inum í gær.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.