Morgunblaðið - 07.04.2011, Qupperneq 6
6 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 7. APRÍL 2011
Ómar Friðriksson
omfr@mbl.is
„Við svörum umboðsmanni að sjálf-
sögðu og skýrum stöðu málsins fyrir
honum,“ segir Steingrímur J. Sig-
fússon fjármálaráðherra en Um-
boðsmaður Alþingis hefur farið
fram á skýringar fjármálaráðuneyt-
isins á því af hverju fjölmiðlar hafa
ekki fengið svör um kostnað við
gerð Icesave-samninganna.
Bæði Morgunblaðið og Ríkisút-
varpið hafa óskað eftir upplýsingum
um þennan kostnað og Björn Valur
Gíslason, þingmaður VG, lagði fram
fyrirspurn á Alþingi um kostnaðinn
nokkrum dögum eftir að Morgun-
blaðið bar fram sína ósk. Umboðs-
maður vill fá svör í síðasta lagi á
morgun, 8. apríl.
Steingrímur sagði að í gærmorg-
un hefði verið fundað um þetta mál í
ráðuneytinu. „Við viljum gera þetta
alveg rétt samkvæmt lögum og
reglum,“ segir hann og bendir jafn-
framt á að ráðuneytið hafi haft þá
vinnureglu að svara fyrirspurnum á
Alþingi á þinginu sjálfu.
Steingrímur tekur fram að kostn-
aðurinn sé ekki allur kominn í hús.
„Við höfum verið að taka þetta sam-
an en það verður að sjálfsögðu gerð
grein fyrir því öllu þegar þær upp-
lýsingar liggja fyrir,“ segir hann.
Vissulega sé dýrt að kaupa færa
erlenda lögfræðinga og ráðgjafa
vegna samningagerðarinnar um Ice-
save. „Það eru háir reikningar eins
og við þekkjum, en innlendi kostn-
aðurinn er allur á mjög hófsamleg-
um nótum. Þetta er orðið langt og
mikið ferli sem hefur kostað sitt.“
Hann segir alveg ljóst að kostn-
aðurinn komist fljótt í háar fjárhæð-
ir þegar keypt sé þjónusta erlendra
lögfræði- og ráðgjafarfyrirtækja.
„Það er bara samkvæmt töxtum:
Hefur yfirleitt tekist að semja um
afslætti frá þeim og alltaf verið
reynt að ná hagstæðustu kjörum
sem í boði eru en þjónusta slíkra að-
ila er dýr. Það var alger sátt og sam-
staða um að leita til mjög þekkts
lögfræðings og þá verða menn að
borga honum í samræmi við gjald-
skrá þess fyrirtækis sem hann starf-
ar hjá. Allar slíkar greiðslur eru
skv. gjaldskrám og tímamælingum.
Það er hægt að fullyrða að kostn-
aðurinn er bara sá sem hann er í
samræmi við þær gjaldskrár sem
við eiga og eftir atvikum þá afslætti
sem okkur tekst að kría út,“ segir
Steingrímur.
Ekki sundurliðuð svör fyrir
Icesave-kosningarnar
Spurður hvort upplýsingarnar
verði birtar áður en Icesave-kosn-
ingarnar fara fram á laugardaginn
segir Steingrímur: „Alla vega ekki
svona sundurliðuð svör. Það held ég
að sé alveg ljóst. Við höfðum ætlað
að veita þær upplýsingar sem við
gætum á því stigi málsins sem fyr-
irspurninni yrði svarað en væntan-
lega með fyrirvara um að ekki væru
öll kurl komin til grafar.“
Undirbúa svör og skýringar
Fjármálaráðherra segir að greiða þurfi erlendum lögfræðingum og ráðgjöfum
háar fjárhæðir vegna Icesave Innlenda kostnaðinum hafi verið mjög stillt í hóf
Reynt að ná hag-
stæðustu kjörum
sem í boði eru en
þjónusta slíkra að-
ila er dýr.
Steingrímur J. Sigfússon
Að mörgu þarf að huga áður en sumarið gengur
í garð. Á myndinni hér að ofan sjást Bragi Stef-
ánsson og bræðurnir Bernhard og Jón Jakob Jó-
hannessynir gera bátinn Bödda KÓ kláran fyrir
sumartíðina. „Þetta er gamall Færeyingur, góð-
ur bátur, og helvíti gaman að sigla á þessu. Við
förum hérna út fyrir á sumrin og veiðum okkur í
soðið,“ sagði Jón Jakob við blaðamann. Veiðin sé
yfirleitt góð og þeir fái stöku steinbít og þorsk.
Þeir rói stundum langt út og taki gjarnan heil-
ann dag í túrinn í góðu veðri. Hann segir vélina í
bátnum algjörlega ódrepandi. hjaltigeir@mbl.is
Gamli Færeyingurinn er vorboði veiðimannanna
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Aðstandendur Advice-hópsins, sem
talar gegn því að Icesave-lögin verði
samþykkt í þjóðaratkvæðagreiðslu á
laugardaginn, segja enga ákvörðun
hafa verið tekna um það hvort nöfn
styrktaraðila verði gefin upp. Frosti
Sigurjónsson, einn meðlima hópsins,
segir það standa til að ræða þau
sjónarmið sem við eigi, meðal ann-
ars um rétt styrktaraðila til nafn-
leyndar og rétt kjósenda til þess að
vita hverjir fjárhagslegir bakhjarlar
séu. Aðspurður segir Frosti heildar-
fjárhæðina sem varið hafi verið í
auglýsingar undanfarið ekki liggja
fyrir. Hann segir þó að framlög hafi
aukist til muna eftir að „hákarls-
auglýsingin“ umtalaða birtist í dag-
blöðum fyrir helgi.
Öruggar heimildir Morgunblaðs-
ins herma að meðal styrktaraðila
Áfram-hópsins, sem hefur þá op-
inberu afstöðu að farsælast sé að
samþykkja Icesave-lögin, séu Sam-
tök fjármálafyrirtækja (SFF).
Stjórn SFF samþykkti í síðustu viku
að styrkja Áfram-hópinn um eina
milljón króna, eftir að beiðni þar að
lútandi barst frá Áfram-hópnum.
Stóru bankarnir þrír, Landsbank-
inn, Íslandsbanki og Arion banki
halda utan um meirihluta atkvæða í
stjórn SFF. Eftir því sem næst
verður komist hafa forsvarsmenn
Advice ekki óskað eftir styrk frá
SFF. Heimildir Morgunblaðsins
herma jafnframt að Samtök atvinnu-
lífsins og Samtök iðnaðarins hafi
styrkt Áfram um sömu upphæð og
SFF. Margrét Kristmannsdóttir,
einn forsvarsmanna Áfram-hópsins,
sagðist í samtali við Morgunblaðið í
gær ekki vilja tjá sig um styrki frá
einstökum lögaðilum.
Bankar
styrkja
Áfram
Advice og Áfram gefa
ekki upp bakhjarla
Um 13.000 kjósendur höfðu greitt
utankjörfundaratkvæði vegna Ice-
save-kosninganna á laugardag þeg-
ar kjörstöðum var lokað klukkan
22.00 í gærkvöldi, að sögn Bryndísar
Bachmann, aðstoðardeildarstjóra
sýslumannsins í Reykjavík. Þar af
greiddu um 2.050 manns atkvæði í
Laugardalshöll í gær en hægt er að
kjósa hjá sýslumönnum um land allt.
Aðspurð um þátttökuna segir
Bryndís hana vera „tvöfalt meiri og
rúmlega það“ en vegna Icesave-
kosningar 6. mars í fyrra og svipaða
og fyrir þingkosningar að jafnaði.
13.000 hafa
þegar kosið
Lán frá Depfabank í Þýskalandi til
Hafnarfjarðarbæjar upp á 4,2 millj-
arða er á gjalddaga í dag og bærinn á
ekki peninga til að greiða lánið. Guð-
mundur Rúnar Árnason bæjarstjóri
segir að viðræður um endurfjár-
mögnun séu í eðlilegum farvegi. Ver-
ið sé að ræða við marga aðila.
Annað lán frá Depfabank upp á 5,3
milljarða er á gjalddaga 30. janúar á
næsta ári. Búast má við að takist að
semja um endurfjármögnun verði ný
lán á mun verri kjörum. Áætlað er að
vaxtagreiðslur bæjarins muni aukast
um 385 milljónir vegna þeirra.
Guðmundur Rúnar sagðist í gær
ekkert geta rætt efnislega um þær
viðræður sem nú hefðu staðið yfir í
allangan tíma.
Fyrir skömmu féll 1,8 milljarða
lán frá Depfabank til Reykjanesbæj-
ar á gjalddaga en þá var samið um
frestun á gjalddaga en að lánið
myndi bera 7% vexti.
4,2 milljarða lán
á gjalddaga í dag
Segir viðræður í „eðlilegum farvegi“
Morgunblaðið/Ómar
Byggt Fjárfestingar eru baggi.