Morgunblaðið - 07.04.2011, Síða 9
ÚR BÆJARLÍFINU
Skapti Hallgrímsson
Akureyri
Vorið er komið til Akureyrar – í enn
eitt skiptið á þessu ári. Sólin skín og
hlýtt er í veðri. Sumir þora að spá því
að veturinn sé farinn fyrir fullt og allt,
að minnsta kosti neðan Hlíðarfjalls.
Enn eykst fjölbreytnin í veit-
ingaflóru bæjarins. Opnaður hefur
verið tapasbar að spænskum hætti í
Listagilinu, nefndur Goya.
Formenn stóru íþróttafélaganna í
bænum voru báðir endurkjörnir á að-
alfundum þeirra í síðustu viku:
Hrefna Torfadóttir í KA og Sigfús
Helgason í Þór.
Aríur og íslensk sönglög óma í að-
alsal Hofs í kvöld á tónleikum Heimis
Bjarna Ingimarssonar baritóns. Með
honum leika Aladár Racz á píanó,
Lára Sóley Jóhannsdóttir á fiðlu og
Vihjálmur Ingi Sigurðarson á tromp-
et. Þá syngur Karlakór Akureyrar –
Geysir.
Áhugaverður opinn fundur verð-
ur í Hofi í dag, þar sem fjallað verður
um samgöngubætur, styttingu leiða,
jarðgöng og áhrif þessara þátta á lífs-
gæði og samkeppnishæfni atvinnu-
lífsins.
Jón Þorvaldur Heiðarsson, lektor
við HA, fjallar á fundinum um sam-
göngur og samfélagið, Njáll Trausti
Friðbertsson, viðskiptafræðingur og
flugumferðarstjóri, um styttingu
hringvegarins og nauðsyn góðra sam-
gangna fyrir Norðurland og Ágúst
Torfi Hauksson, framkvæmdastjóri
Brims, um flutningskostnað og áhrif
hans á samkeppnisstöðu fyrirtækja.
Charlotte Bøving sýnir Þetta er
lífið ... og om lidt er kaffen klar, í Hofi
föstudags- og laugardagskvöld.
Söngkeppni framhaldsskólanna
verður haldin í Íþróttahöllinni á laug-
ardaginn.
Skátar hafa komið upp skemmti-
legri sýningu á Amtsbókasafninu, til
að heiðra minningu Tryggva Þor-
steinssonar, sem hefði orðið 100 ára
24. apríl nk. Tryggvi var félagsforingi
Skátafélags Akureyrar í 28 ár og orti
á sínum tíma á annað hundrað skáta-
texta. Tryggvi starfaði lengst af við
Barnaskóla Akureyrar, síðasta ára-
tuginn sem skólastjóri.
Veturinn farinn?
Skapti Hallgrímsson
Veturinn fjarlægður Nína Rut, fjögurra ára, aðstoðaði frændfólk sitt í Gler-
árhverfi við að ryðja burt úr garðinum því litla sem enn var eftir af vetri.
FRÉTTIR 9Innlent
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 7. APRÍL 2011
- nýr auglýsingamiðill
569-1100finnur@mbl.is
Mikið úrval af
nýjum vörum
www.feminin.is • feminin@feminin.is
Bæjarlind 4, Kópavogi • sími 544 2222
Opið: mán.-fös. kl. 11-18 | lau. 10-16
Str. 38-56
Laugavegi 82,
á horni Barónsstígs
sími 551 4473
Þú minnkar
um eitt númer
Næg bílastæði
Laugavegi 53, s. 552 1555
TÍSKUVAL
Opið virka daga kl. 11-18, lau. kl. 11-16
Ný sending af
yfirhöfnum fyrir sumarið
Hæðasmára 4 · 201 Kópavogur
- Í sama húsi og Bílaapótek fyrir ofan Smáralind
Símar 555 7355 og 553 7355 - www.selena.is
Opið 11-18 virka daga, 11-15 laugard.
Bikini - Tankini - Sundbolir
A-FF
skálar
Vor og Páskavörur
Eigum e
innig
páskaeg
gjamót
- 5 stær
ðir
Klappastíg 44 – Sími 562 3614
Laugavegi 63 • S: 551 4422
NÝ SENDING
GLÆSILEGUR SPARIFATNAÐUR
Skoðið
fleiri v
örur á
www.l
axdal.i
s