Morgunblaðið - 07.04.2011, Qupperneq 11

Morgunblaðið - 07.04.2011, Qupperneq 11
endurtaka leikinn síðar. „Margir sem hafa upplifað heimilaskipti hafa fundið út að svona vilji þeir ferðast um heiminn eigi þeir þess kost. Mað- ur kynnist löndunum á svo persónu- legan hátt með því að gista inni á heimilum fólks. Fólk reynir líka að hafa heimilið huggulegt við komu gestanna – það er kaffi inni í skáp, ostur og brauð á staðnum svo maður getur strax sest niður og látið líða úr sér. Svo nær maður í innkaupakörf- una og labbar út í búð eða fer í hjól- túr um nágrennið á hjólum þeirra sem búa þarna. Þetta er svo ótrúlega þægilegt,“ segir hún með mikilli áherslu. Hún bætir því við að fólk sé mjög samviskusamt þegar kemur að því að standa við sinn hluta samn- ingsins. „Við fjölskyldan vorum t.d. búin að undirbúa skipti sem voru þannig að það ætlaði fólk að koma í húsið okkar um páskana og við ætl- uðum að vera í íbúð þeirra í sumar. Svo komu veikindi upp hjá þeim svo þau gátu ekki komið en engu að síður segja þau okkur að sjálfsögðu vel- komin í húsið þeirra í sumar. Fólk hleypur ekkert undan sínum lof- orðum.“ Sesselja segir vissulega mikinn kost við slík heimilaskipti að þau auðveldi fólki ferðalögin fjárhags- lega, en skiptin séu þó aðeins ódýr í þeim skilningi. „Að öllu öðru leyti eru ótrúleg verðmæti fólgin í þessu – að einhver sé tilbúinn að segja: „Gjörðu svo vel, hér er heimilið mitt.“ Það er ekki hægt að setja flottari verðmiða á lífið.“ Mikil aðsókn að Íslandi Sjálf er hún búin að vera félagi í samtökunum frá því skömmu fyrir kreppu. „Kortér fyrir hrun sáum við fjölskyldan hús suður á Ítalíu og ákváðum að skella okkur þangað. Svo þegar allt hrundi héldum við að við gætum þetta ekki enda fækkaði mjög í samtökunum um það leyti – fólk trúði því einfaldlega ekki að það gæti ferðast. Við byrjuðum því á að skrifa þessum Ítölum til að aflýsa ferðinni okkar út en þegar við hugs- uðum málið betur skiptum við aftur um skoðun. Við sáum að við myndum bara þurfa að kaupa flugmiða og á meðan við færum út kæmu útlend- ingar á okkar vegum til landsins sem myndu eyða peningum hér. Þannig myndu allir græða um leið og við kæmumst í ódýrt frí til útlanda.“ Fleiri virðast hafa séð ljósið í þessu að sögn Sesselju. „Það hefur verið gríðarleg fjölgun í samtök- unum undanfarin misseri enda spyrst þetta fljótt út. Það eru líka mjög margir tilbúnir að koma til Ís- lands, sérstaklega frá Frakklandi, Ítalíu og Spáni og víðar frá Evrópu. Það er mjög mikill áhugi á að koma hingað og ef maður skipuleggur fríin sín tímalega gengur yfirleitt mjög vel að finna sér samastað þar sem ferðinni er heitið.“ Egyptaland „Við fórum til Kairó 2009, við Halla Rún Tryggvadóttir, Sólrún Mjöll Kjartansdóttir (sem var fermingarbarn þeirrar ferðar), maður minn Kjartan Guðnason og ég.“ DAGLEGT LÍF 11 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 7. APRÍL 2011 Skannaðu kóðann til að fara inn á vefsíðuna. Það er dásamlegt að dvelja í sumar- húsi til lengri eða skemmri tíma, slaka á, fara í göngutúr, liggja í heita pottinum, grilla og bara njóta þess að vera með sjálfum sér eða öðru fólki. En það eiga ekki allir sumarbústað og því er vefsíðan bungalo.is tilvalin fyr- ir þá sem langar að leigja sér sumar- bústað. Þar er hægt að skoða og panta sumarbústaði um allt land sem eru til leigu. Hægt er að slá inn hvar á landinu óskað er eftir bústað, fyrir hversu marga þarf að vera svefnpláss og hvaða verð að hámarki fólk er tilbúið til að borga. Einnig er hægt að haka við net, hvort gæludýr eru leyfð, hvort aðgengi er fyrir hreyfihamlaða, hvort það er heitur pottur, gasgrill og fleira sem óskað er eftir. 140 bústað- ir eru á skrá. Vefsíðan www.bungalo.is Morgunblaðið/RAX Sumarhús til leigu Heimilaskiptin fara fyrst og fremst fram í gegnum heimasíðuna www.intervac.com, en þar er hægt að ganga í samtökin. Árgjald samtakanna miðast við eina nótt á þriggja stjörnu hóteli og er sem stend- ur 65 evrur eða um 10.500 krónur. Að skráningu lokinni er hægt að komast í fyllri upplýsingar um þau heimili sem eru í boði á ákveðnum stöðum og ákveðnum tímum, en ís- lensk síða Intervac er á íslensku svo auðvelt er að leita. Næsta skref er svo að setja sig í samband við þá sem bjóða fram heimili sín á vefnum. Lögð er áhersla á persónuleg samskipti enda byggi þau upp traust á milli aðila, sem sé nauðsynlegt í slík- um skiptum. Oft fær fólk margar fyrirspurnir áður en það gerir upp hug sinn um hvern þeir vilji skipta við, enda eru margvíslegir skiptimöguleikar í boði. WWW.INTERVAC.COM Persónuleg samskipti lykilatriði

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.