Morgunblaðið - 07.04.2011, Síða 12
12 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 7. APRÍL 2011
landsbankinn.is 410 4000Landsbankinn
Komdu við í næsta útibúi, hringdu í 410 4000 eða stofnaðu
til reglubundins sparnaðar í Einkabankanum á landsbankinn.is.
„Ég held að maður
verði bara að byrja
einhvers staðar, byrja
á þúsundkallinum.“
Reglubundinn sparnaður er ein besta leiðin til að spara.
Þú setur þér skýr markmið og ákveður hve háa upphæð
þú vilt spara mánaðarlega. Byrjaðu að spara strax í dag.
J
Ó
N
S
S
O
N
&
L
E
’M
A
C
K
S
•
jl
.i
s
•
S
ÍA
N
B
IH
F
.(
L
A
N
D
S
B
A
N
K
IN
N
)
,K
T
.4
7
1
0
0
8
-
0
2
8
0
Ómar Friðriksson
omfr@mbl.is
„Það er ekkert sem bendir til þess að forsendur
fjárlaga yfirstandandi árs séu að raskast neitt,“
segir Steingrímur J. Sigfússon fjármálaráðherra.
Fjárlaganefnd fór í gærmorgun yfir nýja
hagspá Hagstofunnar og áhrif hennar á forsendur
fjárlaga. Fjármálaráðherra og sérfræðingar fjár-
málaráðuneytisins sátu fundinn.
Oddný G. Harðardóttir, formaður fjárlaga-
nefndar, segir að í ljós hafi komið að forsendur
fjárlaganna standist. Breytingar frá seinustu spá í
nóvember séu óverulegar.
„Forsendurnar fyrir árið 2011 virðast halda vel.
En það þarf að skoða langtímaáætlunina vegna
þess að þar eru vísbendingar um að árið 2012 verði
erfiðara en við áttum von á en árin 2013 og 2014
verði hins vegar betri en áætlanir gerðu ráð fyrir,“
segir hún.
Jákvæðar vísbendingar um tekjur
Mjög stórir óvissuþættir eru þó uppi sem munu
hafa umtalsverð áhrif á ríkisfjármálin á næstu
mánuðum, ekki síst væntanlegir kjarasamningar.
Spurður um tekjur ríkissjóðs að undanförnu
segir Steingrímur að fyrstu vísbendingar séu
frekar jákvæðar og það rími við þá staðreynd að
einkaneyslan byrjaði að þokast upp á við á síðari
hluta seinasta árs. Þá sé áætlað að fjárfestingar
muni heldur þokast upp á við og útflutningsstarf-
semin er heldur sterkari í þessari spá. „Það leggj-
ast með okkur hlutir eins og betri loðnuvertíð og
fleira. Við sjáum ekki að það séu nein tilefni til
breytinga á þessu stigi,“ segir hann.
En miklu stærri óvissuþættir eru í farvatninu
að sögn fjármálaráðherra og nefnir hann áhrif
væntanlegra kjarasamninga og útkomu kosning-
anna um Icesave-lögin á laugardaginn. „Við mun-
um meta þetta þegar líður á vorið og stefnum að
því að koma með endurskoðaða áætlun í maí.“
Ekki gert ráð fyrir launahækkunum í fjár-
lögum en 5 milljarðar eru í varapotti
Ekki er farið að meta hver gætu orðið áhrif
væntanlegra kjarasamninga á fjárlög yfirstand-
andi árs en Steingrímur segir alveg ljóst að áhrifin
geti orðið umtalsverð bæði í bráð og lengd.
„Jákvæðu áhrifin eru tvímælalaust þau ef menn
sjá fyrir sér sæmilega stöðugt umhverfi og frið á
vinnumarkaði næstu árin. Það er jákvætt í öllu
samhengi fyrir hagkerfið. En [kjarasamningar]
hafa að sjálfsögðu kostnaðaráhrif, bæði bein og af-
leidd áhrif sem snúa að ríkinu,“ segir Steingrímur.
Forsætisráðherra hefur í samtölum við fjöl-
miðla nefnt að kostnaður við aðgerðir í yfirlýsingu
ríkisstjórnarinnar til aðila vinnumarkaðarins í
seinustu viku geti verið nálægt 20 milljörðum kr.
,,Við gáfum aldrei út þá tölu en það er alveg ljóst
að þetta eru umtalsverðar fjárhæðir, bæði launa-
greiðslurnar og endurskoðun fjárhæða í bótakerf-
unum og síðan er verið að tala um ákveðnar að-
gerðir á sviði menntamála, vinnumarkaðsmála og
ferðamála, sem fela í sér kostnað en það eru ekki
stóru tölurnar í þessu. Stóru tölurnar eru fyrst og
fremst launahækkanirnar og áhrifin á bótafjár-
hæðirnar og fleira af því tagi,“ segir Steingrímur.
Ekki gert ráð fyrir hækkun launa opinberra
starfsmanna eða grunnfjárhæða bóta á þessu ári í
fjárlögum ársins en hins vegar voru settir til hlið-
ar fimm milljarðar vegna þessa í nokkurskonar
varapott.
Fjárlög halda enn, en mikil
óvissa vegna kjarasamninga
Vísbendingar um að þörf verði á enn meira aðhaldi í ríkisfjármálum á næsta ári
Morgunblaðið/Ómar
Fjárlögin Óvissa er með fjárlagavinnu næsta árs vegna endurnýjunar kjarasamninga, sem ekki hefur
tekist enn. Fundað verður um þessi mál í Stjórnarráðinu, Karphúsinu og á fleiri vígstöðvum.
Í dag, fimmtudag, kl. 14-17, verður
efnt til málþings um norræn tjá-
skipti í Norræna húsinu. Að mál-
þinginu standa sendiráð Svíþjóðar,
Noregs, Danmerkur og Finnlands,
ásamt Svensk-Isländska Sam-
arbetsfonden og Dansk-Islandsk
Samarbejdsudvalg og Stofnun Vig-
dísar Finnbogadóttur í erlendum
tungumálum.
Meðal ræðumanna eru kennarar
á öllum skólastigum í norrænum
málum og fulltrúi frá Norrænu ráð-
herranefndinni.
Skráning á málþingið er með
pósti á reykjavik.invit@for-
eign.ministry.se. Dagskrána má
lesa á www.vigdis.hi.is.
Málþing um norræn
tjáskipti haldið í
Norræna húsinu
Nýlega lagði tollgæslan hald á tölu-
vert magn af fölsuðum Gillette Fus-
ion Power-rakvélablöðum. Um var
að ræða hraðsendingu frá Hong
Kong. Er þetta í fyrsta skipti sem
tollgæslan hér á landi leggur hald á
fölsuð rakvélablöð en talið er lík-
legt að rakvélablöðin hafi verið ætl-
uð til sölu hér á landi. Reynst getur
erfitt fyrir almenning að þekkja
muninn og ekki fyrr en við rakstur
sem spurningar vakna um lögmæti
vörunnar. Hafa ber í huga að blöðin
eru oft mun ódýrari, litamunur er á
pakkningum og gæðamunur er
áberandi auk þess sem greinilegur
munur er oftast á útliti þeirra.
Íslensk Ameríska er umboðsaðili
fyrir Gillette á Íslandi. Fyrirtækið
mun fyrir hönd framleiðanda fara í
lögbannsmál gagnvart þeim aðilum
sem flytja inn og/eða selja fölsuð
eintök frá Gillette.
Hald lagt á fölsuð
Gillette-rakvélablöð
Andvirði verkefna til eflingar atvinnu á Vest-
fjörðum, sem ríkisstjórnin kynnti í fyrradag
var sagt 5,4 milljarðar. Þar af væru 1,5 millj-
arðar nýtt fjármagn. Í reynd eru þó eingöngu
450 milljónir kr. af þessum 1,5 milljörðum
viðbótarútgjöld úr ríkissjóði því stærsti hluti
þessa eru framkvæmdir sem kostaðar eru af
Ofanflóðasjóði. Af þeim 450 milljónum sem
þarf að afla með aukafjárveitingu eru 350
milljónir vegna vegagerðar.
450 milljónir eru
ný viðbótarútgjöld
VERKEFNIN Á VESTFJÖRÐUM
STUTT