Morgunblaðið - 07.04.2011, Page 17

Morgunblaðið - 07.04.2011, Page 17
Reuters Viðskipti Nokkrir liðsmenn Ouatt- ara kaupa sér mat í grennd við stór- borgina Abidjan í gær. Vopnaðir liðsmenn Alassane Ouatt- ara, sem að mati Sameinuðu þjóð- anna er réttkjörinn forseti Afríku- ríkisins Fílabeinsstrandarinnar, réðust í gær inn í forsetahöll Laur- ents Gbagbo, fráfarandi forseta, í stærstu borg landsins, Abidjan, og lögðu hana undir sig. Skothríð heyrðist frá höllinni og stuðnings- menn Gbagbos sökuðu sveitir Ouatt- ara um að reyna að myrða Gbagbo. Talskona Ouattara sagði síðdegis að ekki væri enn búið að handtaka Gbagbo sem hafði búið um sig í byrgi undir höllinni. Hann hefur verið þar í hálfgerðu stofufangelsi umsátursmanna síðustu dagana á meðan fulltrúar SÞ reyndu að semja við hann um afsögn. Fílabeinsströndin var lengi frönsk nýlenda og Frakkar hafa þar mikil áhrif. Nokkur hundruð franskir her- menn voru nýlega sendir til að taka flugvöll Abidjan og tryggja þannig að erlendir ríkisborgarar gætu haft sig á brott en hafnir voru þá mann- skæðir bardagar milli fylkinganna. Fréttastofan AFP hafði eftir frönsk- um embættismönnum að hersveitir Ouattara hefðu ráðist á höllina til að binda enda á átökin en markmiðið væri að ná Gbagbo á lífi. Liðsmenn Ouattara lögðu fyrir viku undir sig höfuðborgina Yamo- ussoukro. Ouattara er almennt tal- inn hafa sigrað í forsetakosningum í fyrra en hann er frá norðurhéruðum landsins og múslími. Gbagbo, sem er kristinn og sunnanmaður, neitaði því og lét embættismenn sína stað- festa að hann hefði sjálfur fengið flest atkvæði. Ljóst er að mörg hundruð manns hafa fallið í átök- unum milli mannanna tveggja síð- ustu mánuði. Um 125 þúsund manns hafa flúið til Líberíu og 10 þúsund til annarra grannríkja. kjon@mbl.is Réðust inn í forsetahöll Gbagbos í Abidjan FRÉTTIR 17Erlent MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 7. APRÍL 2011 Kristján Jónsson kjon@mbl.is Sinnaskipti suðurafríska dómarans Richards Goldstone í tengslum við skýrslu Mannréttindaráðs Samein- uðu þjóðanna um innrás Ísraela á Gazaspilduna um áramótin 2008- 2009 hafa vakið mikla athygli en hann álítur ekki lengur að árásir á vopnlausa borg- ara hafi verið hluti af stefnu Ísr- aelshers. Goldstone segist hafa fengið nýjar upplýsingar sem hafi valdið því að hann hafi skipt um skoðun. Hann fór fyrir sérstakri nefnd Mannréttindaráðsins sem rannsakaði ásakanir um stríðsglæpi af hálfu Ísraela og Hamas. Niður- stöður hennar voru birtar 2009 og kom þar fram að ef til vill hefðu báð- ir aðilar drýgt stríðsglæpi í átök- unum sem stóðu í þrjár vikur. Talið er að 1200-1400 manns hafi fallið, að- allega Palestínumenn og margir þeirra óbreyttir borgarar. Ísraelar krefjast þess nú að skýrslan verði dæmd ógild en ráðið hafnar því. Talsmaður þess sagði að Goldstone yrði að leggja fram skrif- lega beiðni ef hann vildi að skýrsl- unni yrði breytt. Ásakanir um hlutdrægni Ísraelar töldu Goldstone- nefndina frá upphafi vera hlutdræga og neituðu samstarfi við hana en efndu sjálfir til rannsóknar á um 400 málum og hafa þegar birt nokkrar endanlegar niðurstöður. Hamas- menn, sem stjórna Gaza, hafa hins vegar ekki kannað nein atvik þar sem þeir eru sakaðir um stríðsglæpi, segir í frétt The New York Times. Goldstone er 72 ára, af gyð- ingaættum og mikill vinur Ísraels, hann hefur áratugum saman notið alþjóðlegrar virðingar fyrir sjálf- stæði, heiðarleika og djörfung. Guardian í Bretlandi rakti feril hans á mánudag, benti m.a. á að hann hefði beitt sér ákaft gegn aðskiln- aðarstefnunni í Suður-Afríku. Á undanförnum árum hefur Goldstone oft verið fenginn til að aðstoða nefndir á vegum SÞ við að rannsaka afbrot á átakasvæðum. Hafðir fyrir rangri sök  Ekki stefna Ísraela að myrða vopnlausa Ýkjurnar um Jenin » Talsmenn Palest- ínumanna fullyrtu að mörg hundruð og jafnvel þúsundir óbreyttra borgara hefðu fallið þegar Ísraelsher réðst inn í flóttamannabúðir í Jenin á Vesturbakkanum vorið 2002. » » En rannsóknir hlutlausra aðila sýndu fram á það síðar að enginn fótur var fyrir þess- um ásökunum. Minnst 52 Pal- estínumenn, meirihluti þeirra vígamenn, og 23 ísraelskir her- menn féllu, að sögn SÞ. Richard Goldstone Græningjar og óháðir með spjöld þar sem andmælt er kjarnorku og mælt með vindorku á fundi Evrópuþingsins í gær. Fjallað var um áhrifin sem óhappið í Fukushima-verinu í Japan myndi hafa á mat manna á öryggi kjarnorkuvera í Evrópu. Búið er að stöðva lekann í Fukushima en nú óttast menn að sprenging verði í vetni og súrefni sem safnast hefur upp í verinu. Reuters Japanar stöðva lekann Mótmæli gegn kjarnorku á Evrópuþinginu Um 300 þúsund Danir stríða við sjúkdóma eins og magaverki, eymsli í vöðvum og liðum og hræði- lega, lamandi þreytu án þess að læknar finni nokkra áþreifanlega orsök, segir í Jyllandsposten. „Þessu fólki líður afskaplega illa og það er alrangt að tala um sefa- sýki eða ímyndunarveiki,“ segir Per Fink, yfirlæknir og prófessor við háskólasjúkrahúsið í Árósum. Oft sé beitt uppskurði eða annarri meðhöndlun þótt ekki sé vitað um orsökina. Dæmi séu um að fólk verði háð morfíni kjölfarið. Engin áþreifanleg orsök finnst Ráðamenn Face- book-vefjarins bandaríska hafa beitt ritskoðun og fjarlægt fræg nektarmálverk eftir sænska mál- arann Anders Zorn af nakinni konu, þ. á m. Flickan paa loft- et. Danski lista- maðurinn Uwe Max Jensen setti nokkrar af myndum Zorns af nökt- um konum á vefinn en þær hurfu nokkrum stundum síðar. Ástæðan er strangar reglur Facebook um nekt. Jensen er afar ósáttur og segir að Facebook eigi ekki að ákveða hvað sé klám í evrópskri list og hvað ekki en Facebook-vefurinn sé orðinn mjög mikilvægur við að kynna myndlist. Starfsmenn Facebook nota bæði sjálfvirkar síur og grípa inn í með handafli til að framfylgja reglunum. Talið er að notandi hafi kvartað yfir myndum Zorns. Nektarmyndir eru fjarlægðar og engu skiptir hvaða listrænt gildi myndirnar hafa, að sögn norrænna fulltrúa Facebook. kjon@mbl.is Öll nekt bönnuð á Facebook-vefnum Allsber Flickan paa loftet eftir Zorn. Kristján Jónsson kjon@mbl.is Alain Juppé, utanríkisráðherra Frakklands, segir að ráðamenn bandamanna hafi farið fram á það við flugmenn sína að gæta þess að sprengjuárásirnar á Líbíu valdi engu tjóni á óbreyttum borgurum, en þessi krafa geri erfiðara að halda uppi árásum til að tryggja að herjum Muammars Gaddafis Líbíuleiðtoga takist ekki að ganga á milli bols og höfuðs á upreisnarmönnum. „Ástandið er óljóst. Hætta er á að við lendum í kviksyndi og getum okkur hvergi hrært,“ sagði Juppé í útvarpsviðtali í gær. Talsmenn Atl- antshafsbandalagsins, NATO, sem hefur yfirstjórn aðgerðanna gegn Gaddafi á sinni hendi, segja að menn leiðtogans gangi á lagið og noti óbreytta borgara sem „mannlega skildi“ til að hindra loftárásir. En markmið bandalagsins sé fyrst og fremst að vernda óbreytta borgara. Líbískir uppreisnarmenn eru ósáttir, vilja að árásirnar verði hert- ar, þrátt fyrir hættuna á manntjóni. Bandamenn eru nú milli tveggja elda: annaðhvort herða þeir árásir og fleiri óbreyttir borgarar falla eða þeir halda aftur af sér og gera þá ef til vill uppreisnarmönnum ókleift að sigra Gaddafi. Eitt af því sem nú veldur vanda er að NATO þarf fleiri herþotur en lofthernaðurinn er geysilega dýr. Þannig munu aðgerð- irnar í Líbíu nú kosta Dani, sem sent hafa nokkrar F-16 þotur, álíka mikið og þátttakan í stríðinu í Afganistan. Vopnastuðningur þrátt fyrir sölubann SÞ? Jafnvel þótt reynt verði að fara í kringum vopnasölubann sem örygg- isráð Sameinuðu þjóðanna setti á Líbíu er ljóst að það tæki margar vikur að þjálfa agalaust lið uppreisn- armanna og kenna því á vopnin, að sögn hernaðarsérfræðinga. Herþotur bandamanna skutu sprengjum á skotmörk umhverfis borgina Misrata á mánudag. Varn- armálaráðherra Frakka segir að tryggt hafi verið að uppreisnarmenn geti nú komið vistum sjóleiðis til borgarinnar, sem er umsetin liði Gad- dafis. Ríkisstjórn Líbíu hafði ákveðið að brjóta niður alla andstöðu með því að láta myrða unnvörpum óbreytta borgara á götum úti, jafnvel áður en byltingin í landinu hófst. Þetta segir aðalsaksóknari Alþjóðlega stríðs- glæpadómstólsins í Haag, Luis Mo- reno Ocampo, en hann rannsakar nú framferði Gaddafis, sona hans og ná- inna samstarfsmanna. Ocampo segir að þeir hafi strax orðið hræddir um að mótmæli myndu hefjast í Líbíu eft- ir atburðina í Túnis og Egyptalandi. Óttast að bandamenn lendi í kviksyndi  Juppé segir reglur um að hlífa óbreyttum borgurum hefta aðgerðir flugherja bandamanna  Gaddafi ætlaði að láta myrða fólk unnvörpum á götum úti og hræða þannig almenning í Líbíu frá því að rísa upp Reuters Mótmæli Líbíumenn í Berlín heimta að fjöldamorð Gaddafis verði stöðvuð. Ástandið er óljóst. Hætta er á að við lendum í kviksyndi og getum okkur hvergi hrært. Alain Juppé Skannaðu kóðann til að sjá meira um Fílabeinsströnd.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.