Morgunblaðið - 07.04.2011, Side 21

Morgunblaðið - 07.04.2011, Side 21
UMRÆÐAN 21 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 7. APRÍL 2011 Í skaðabótarétti er hugtakið húsbóndaá- byrgð alþekkt en í því felst að húsbóndi eða vinnuveitandi ber ábyrgð á því tjóni sem starfsmaður hans kann að valda við starf sitt í þágu húsbónd- ans. Hver skyldi bera ábyrgð á tjóni sem stjórnmálamenn okkar kunna að valda einhverjum aðila (persónu, fyrirtæki eða þjóð)? Hverjir eru húsbændur þeirra? Mér sýnist eðlilegast að líta á okkur, hina almennu borgara, er völdum þá til starfa sem húsbændur þeirra. Við höfum ekki beint boðvald yfir þeim en við getum vísað þeim úr starfi í kosningum og þeir verða að sætta sig við höfnun af okkar hálfu. Nú, hvernig tengist þetta Ice- save? Jú, við völdum þá stjórn- málamenn sem ábyrgð bera á hrunadansinum mikla sem hófst skömmu eftir aldamót og skeyttu ekki um viðvaranir um hættuna sem blasti við ef stjórnlaus vöxtur bankakerfisins héldi áfram. Þær ríkisstjórnir sem stýrðu þjóðarskút- unni á þessum tíma gerðu það í okkar umboði. Eftir hrun hafa ráðherrar sem komið hafa að lausn Icesave- klúðursins sent þau skýru skilaboð til umheimsins að við mundum leysa deiluna með samningum við Breta og Hollendinga. Ráðherrar hafa samið við grannþjóðir (og við teljum vinaþjóðir) okkar um lán til þess að styrkja gjaldeyrisforða þjóðarinnar, en þjóð- irnar hafa sett það skilyrði fyrir lánveit- ingunni að við semjum um Icesave. Hér eru miklir hags- munir í húfi og flókið mál að bera saman. Þær raddir hafa heyrzt að það skipti litlu máli við hags- munamatið þótt dóm- stólar kæmust að þeirri niðurstöðu að við ættum einnig að greiða þann hluta innstæðna á ein- stökum Icesave-reikningum sem innstæðueigendur hafa ekki fengið greiddan. Munurinn mun vera 5,5 milljarðar dollara eða um 600 millj- arðar kr. Ekki verða neinir fjár- munir í þrotabúinu til þess að mæta þessari skuldbindingu svo reikning- urinn á hvern Íslending yrði litlar 2 milljónir! Enda þótt líkurnar á þeirri niðurstöðu séu litlar er áhættan af slíkri skuldbindingu óá- sættanleg. Þótt við gerum ráð fyrir til- tölulega hóflegri dómsniðurstöðu, þ.e. að okkur bæri að greiða þá fjárhæð sem um hefur samizt en hana yrði að greiða innan tiltekins tíma frá dómsuppkvaðningu. Hvernig mundi þjóðin afla lánsfjár til að uppfylla skyldur sínar sam- kvæmt slíkum dómi? Að vísu yrði hægt að nota fé úr þrotabúinu því við erum að tala um dóm eftir 2-3 ár. Dæmdir vextir mundu vafalaust verða allmiklu hærri en samnings- vextirnir og vextir yrðu þá örugg- lega af stærðargráðunni 100-150 milljarðar. Landsmenn standa nú frammi fyrir vali milli tveggja kosta, að samþykkja lögin um Icesave eða hafna þeim, já eða nei. Það er ekk- ert einfalt mál að bera saman þessa tvo kosti og velja á milli þeirra á grundvelli fyrirliggjandi upplýs- inga. Mig langar til að spyrja þig, les- andi góður, nokkurra spurninga og þú átt svarið fyrir þig. Mun það bæta ímynd þjóðarinnar í alþjóðasamfélaginu að segja nei? Mun það bæta lánstraust lands- ins, fjármálastofnana og fyrirtækja ef við höfnum lögunum? Munu vaxtakjör á lánum frá er- lendum aðilum batna ef við segjum nei? Mun gjaldeyrishöftum aflétt fyrr ef við segjum nei? Mun umræðan og óvissan um Icesave minnka ef við segjum nei? Mun atvinnuástand batna ef við höfnum lögunum? Spyrðu þig fleiri spurninga. Ég vona að svörin við þeim sem og þeim sem ég varpaði til þín hjálpi þér að taka ákvörðun. Húsbóndaábyrgð og Icesave Eftir Bjarna Þórðarson »Eftir hrun hafa ráð- herrar sem komið hafa að lausn Icesave- málsins sent þau skýru skilaboð til umheimsins að við mundum leysa deiluna með samn- ingum. Bjarni Þórðarson Höfundur er trygginga- stærðfræðingur. Valsmenn léttir í lund, leikum á sérhverri stund, kætin kringum oss er, hvergi er fjörugra en hér, lífið er okkur svo kunnugt og kært, kringum oss gleðin nú hlær, látum nú hljóma í söngv- anna sal, já sveinar og meyjar í Val. „Sveinar og meyjar í Val“ munu hafa mörg tækifæri til að syngja þetta skemmtilega lag á þessu ári þegar Knattspyrnufélagið Valur fagnar 100 ára afmæli sínu. Fyrsti atburður tengdur afmæl- isárinu var afhjúpun nýs hátíðarfána á gamlársdag 2010 og dagskrá árs- ins lýkur formlega með útnefningu íþróttamanns Vals 2011 hinn 31. desember nk. Hápunktur hátíð- arhaldanna er þó á afmælisdaginn 11. maí og dagana næst honum. Innan Vals eins og í öðrum íþróttafélögum eru annars vegar iðkendur íþrótta og keppendur og hins vegar aðrir félags- og stuðn- ingsmenn, sem ýmist tengjast félag- inu sem fyrrum keppendur, úr for- eldrastarfi eða að þeir hafa orðið stuðningsmenn af öðrum ástæðum. Báðir þessir hópar geta lagt sitt af mörkum til að gera afmælisárið skemmtilegt og að lyftistöng fyrir framtíðarstarf félagsins. Árangur keppenda og iðkenda í upphafi afmælisársins Miklar væntingar um sigra á af- mælisárinu hefðu getað skapað ósanngjarnt álag fyrir keppnisfólk félagsins. En meistaraflokkar fé- lagsins náðu á síðasta ári markmiði, sem þeir höfðu sett sér fyrir 100 ára afmælið, þegar hundraðasti titill fé- lagsins í Íslandsmóti og bikarkeppni í mfl. vannst, og koma því afslapp- aðir til keppni á afmælisárinu. Og þessi árangur kveikti greini- lega bál, því árangur mfl. félagsins í keppni í öllum greinum á fyrstu vik- um afmælisársins er í raun stórkostlegur og félagið getur verið stolt af honum. Í síðustu viku unnu mfl. félagsins í körfu- knattleik karla og kvenna báðir athygl- isverða sigra í umspils- keppnum, og tryggðu sér sæti í úrvalsdeild í haust. Í knattspyrnu urðu Valsmenn nýverið Reykjavíkurmeistarar í mfl. karla og kvenna og í handbolta vann mfl. karla bik- armeistaratitilinn og mfl. kvenna varð deildarmeistari. Marsmánuður er ekki liðinn, þeg- ar þetta er skrifað og samt hefur þrengst nokkuð um í verðlauna- geymslum Vals. Keppnisfólk félags- ins í meistaraflokkum hefur örugg- lega ekki sagt sitt síðasta, enda metnaður mikill. Sá metnaður nær líka til yngri flokka félagsins, þar sem mikið og árangursríkt starf er unnið og iðkendum hefur fjölgað jafnt og þétt. Aðstaðan sem nú er boðin á Hlíðarenda er með miklum glæsibrag og yfir barna- og ung- lingastarfi félagsins vaka ein- staklingar með þekkingu og reynslu. Ungir iðkendur íþrótta hjá Val eru þeir sem halda munu merki félagsins, sögu og hefðum á lofti um ókomin ár og því er mikilvægt að skapa þeim ekki bara góða umgjörð heldur einnig góða leiðbeinendur. Af samtölum mínum við iðkendur, keppnisfólk og þjálfara hjá Val er ljóst að það þeir ætla allir að leggja sig fram um að gera afmælisárið mjög eftirminnilegt og vissulega gefur byrjun meistaraflokka vænt- ingar um að það gangi eftir. Tæki- færi annarra félagsmanna til að sýna styrk Vals. Við sem ekki erum keppnisfólk lengur getum líka lagt okkar af mörkum til þess að gera ár- ið eftirminnilegt og nú þegar aðeins er rúmur mánuður til 11. maí, er ekki úr vegi að við hugum að afmæl- isdeginum og hátíðarhöldum í kring- um hann. Í Valsblaðinu sem kom út um síðustu jól, á heimasíðu félags- ins, á afmælisalmanaki og víðar er að finna upplýsingar um þá dagskrá sem efnt er til á afmælisárinu og ég ætla því ekki að tíunda hana hér í smáatriðum. Mig langar þó að vekja sérstaka athygli Valsmanna á því að dagana 7. til 13. maí verður nær samfelld dagskrá í tengslum við afmælið og þá er tækifæri til að sýna fé- lagslegan styrk Vals. Þessa viku verður aðalíþróttasalur félagsins á Hlíðarenda færður í hátíðarbúning og nýttur til skemmtana- og sýning- arhalds af ýmsu tagi fyrir fé- lagsmenn og gesti þeirra. Sýning sem sett verður upp mun standa áfram út afmælisárið að minnsta kosti. Keppnistímabili í handknattleik og körfuknattleik verður lokið á þessum tíma, en á knattspyrnuvöll- unum á Hlíðarenda verður líf og fjör og keppt í efstu deild karla og leik- urinn um titilinn „ meistari meist- aranna“ fer fram í meistaraflokki kvenna. Verið er að leggja lokahönd á dagskrá afmælisdagsins, en þó er vitað að hún hefst að venju með stuttri athöfn við styttu sr. Friðriks Friðrikssonar á Hlíðarenda og morgunkaffi. Það er von mín og annarra sem vinna að undirbúningi atburða á afmælisárinu að Vals- menn taki frá marga daga á næst- unni til að gleðjast í tilefni af 100 ára afmæli Vals. Valur í eina öld Eftir Reyni Vignir » Aðstaðan sem nú er boðin á Hlíðarenda er með miklum glæsi- brag og yfir barna- og unglingastarfi félagsins vaka einstaklingar með þekkingu og reynslu. Reynir Vignir Höfundur er endurskoðandi og er formaður afmælisnefndar vegna 100 ára afmælis Vals. Skilanefnd Lands- banka Íslands er ekki aðili að þriðju ICE- SAVE-samningatillög- unni sem fer í þjóð- aratkvæði nk. laugardag og hefur ekki sagt neitt til um hvort Innistæðutrygg- ingasjóðir Íslands, Bretlands eða Hollands hafi forgang með kröfur sínar í bú gamla Lands- bankans; Innistæðutryggingasjóður Íslands með sína 650 milljarða króna kröfu vegna greiðslu lágmarkstrygg- inga um 21,000 evrur á hvern ICE- SAVE-innistæðueiganda eða Inni- stæðutryggingasjóðir Bretlands og Hollands með sínar kröfur vegna um- framgreiðslu til sömu innistæðueig- enda samtals aðra 650 milljarða. Það er deginum ljósara að allir þrír innistæðutryggingasjóðir þessara landa munu krefjast forgangs í bú Landsbankans með kröfur sínar þeg- ar að útborgun kemur og sérstaklega sá íslenski skv. „Hall-ákvæðinu“ svo- kallaða um forgangskröfu lágmarks- greiðslna. Hvernig sem skilanefnd Landsbankans ákveður útborganir sínar, þá munu innistæðutrygga- sjóðir landanna þriggja leita til dóm- stóla til að hámarka greiðslur til sín úr búinu eins og aðrir kröfuhafar. Hvort sem menn velja að segja nei eða já í kosningunum um ICESAVE á laugardag þá fer málið fyrir dóm- stóla. Því segi ég nei og styrki þannig málflutn- ing okkar færustu ís- lensku og erlendu lög- fræðinga fyrir dómstólum hérlendis þegar þar að kemur og sem mun leiða til fjórða ICESAVE – samninga- tillögunar og vonandi án greiðslu nokkurra vaxta því þær eiga að lenda á þrotabúi Landsbankans, ef þær eiga nokkurn rétt á sér. Hingað til hafa þessar ICESAVE- samningatillögur bara farið síbatn- andi fyrir okkur Íslendinga! Breskir og hollenskir fjármálaeig- endur tóku mikla áhættu með því að leggja fé inn á ICESAVE-reikninga til að fá „himinháa“ vexti og sem þeir fengu greidda með nýjum inn- greiðslum á ICESVE, sama og í „Ma- doff-svikakeðjunni“. Dómstóll mun án efa taka tillit til þessarar augljósu áhættu sem ICESAVE var. Ég segi nei við Icesvave því málið fer hvort eð er fyrir dómstól Eftir Jón Hjaltalín Magnússon Jón Hjaltalín Magnússon »Hvort sem menn segja nei eða já í kosningunum um Ice- save þá fer málið fyrir dómstóla. Því segi ég nei og styrki málflutning okkar fyrir dómstólum. Höfundur er verkfræðingur. Á ENSKU OG DÖNSKU • Byggingafræði • Véltæknifræði • Byggingaiðnfræði • Markaðshagfræði • Byggingatæknifræði Á ENSKU • Tölvutæknifræði • Framleiðslutæknifræði • Útflutningstæknifræði • BS í Markaðsfræði Á DÖNSKU • Véltækni • Landmælingar • Vöruþróun og tæknileg sameining • Aðgangsnámskeið HJÁ VIA UNIVERSITY COLLEGE Í HORSENS BJÓÐUM VIÐ UPP Á MARGVÍSLEGA MENNTUN VIA UNIVERSITY COLLEGE Chr. M. Østergaards Vej 4 DK-8700 Horsens VIAUC.DK/HORSENS Tel. +45 8755 4000 Fax: +45 8755 4001 Mail: tekmerk@viauc.dk Í BOÐI ER: NÁM Í DANMÖRKU 02 6 6 3 Fulltrúi skólans 08.04-16.04.2011.Johan Eli Ellendersen, verður á Íslandi: Áhugasamir geta haft samband í síma 845 8715. Leggið inn skilaboð og við munum hringja til baka.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.