Morgunblaðið - 07.04.2011, Page 22

Morgunblaðið - 07.04.2011, Page 22
22 UMRÆÐAN Bréf til blaðsins MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 7. APRÍL 2011 Á næstu dögum kjósa félagsmenn í Félagi íslenskra hjúkrunarfræð- inga (FÍH) sér formann til tveggja ára. Elsu B. Friðfinns- dóttur þekki ég að góðu einu. Ég kynntist Elsu haustið 1998 þegar ég, ásamt níu öðrum, hóf fjarnám í hjúkr- unarfræði frá Háskólanum á Ak- ureyri. Elsa starfaði þá sem deild- arforseti heilbrigðisdeildar Háskólans á Akureyri. Þetta nám var nýmæli á Íslandi á þann hátt að í fyrsta sinn voru nemendur sem staðsettir voru í öðrum landsfjórð- ungi virkir þátttakendur í kennslu- stundum með hjálp fjarfundabún- aðar. Í þessu frumkvöðlastarfi komu mannkostir Elsu berlega í ljós, hún var óhrædd við að fara ótroðnar slóðir. Hún hélt vel utan um hópinn og var tilbúin að berjast fyrir því að þetta tækist sem best. Hún sýndi þarna dug, áræði og skýra framtíð- arsýn. Dugur, áræði og framtíðarsýn. Allt eru þetta eiginleikar sem ég hef einnig séð í starfi hennar sem for- maður FÍH. Mér finnst margt hafa breyst til batnaðar s.l. 8 ár. Elsa hefur náð að færa félagið nær hinum almenna félagsmanni, einnig okkur sem búum og störfum á landsbyggð- inni. Í hennar formannstíð hefur verið boðað til morgunverðarfunda, hún hefur farið í heimsóknir út á land auk þess sem betur er hugað að þátttöku allra hjúkrunarfræðinga gegnum fjarfundabúnað þegar mik- ilvæg málefni eru rædd. Formenn allra svæðisdeilda eru núna stjórn- armenn í FÍH. Elsa vann að breyt- ingum á lögum og skipulagi félags- ins með lýðræði og skilvirkni að leiðarljósi. Hún hefur unnið að breytingum á húsnæði sem og vef- svæði félagsmanna, hjúkrunarfræð- ingum til þæginda og hagsbóta. Elsa B. Friðfinnsdóttir býður af sér góðan þokka. Hún er alúðleg, hreinskiptin og sýnir fólki áhuga og sanngirni. Það eru mikilvægir kostir hjá formanni stéttarfélags. Elsa er fylgin sér, er vel máli farin og hefur lag á að láta menn leggja við hlustir þegar hún kemur málefnum á fram- færi. Hún hefur góð tengsl í stjórn- sýsluna og gott aðgengi að fjöl- miðlum. Það er hjúkrunarfræðingum til hagsbóta að njóta áfram starfskrafta Elsu B Friðfinnsdóttur sem formanns FÍH. ÞÓRUNN PÁLSDÓTTIR, hjúkrunarfræðingur B.Sc. og starfar á Fjórðungssjúkrahúsinu á Ísafirði. Kjósum Elsu B. Friðfinnsdóttur í formannskjöri FÍH Frá Þórunni Pálsdóttur Þórunn Pálsdóttir Þjóðinni blæðir af völdum verstu ríkisstjórnar allra tíma. Ungt fólk og barnafólk, sem reynt hefur að eignast eigið húsnæði er vægð- arlaust féflett og eignum þess stolið í skjóli verðtryggingar. Enginn þingmaður nema þá helst Lilja Mósesdóttir hefur rétt upp hönd gegn þeim siðlausu fjárglæframönn- um sem stefna að því leynt og ljóst að færa bönkum og ríki eignir fólks- ins í landinu. Fyrirtækin eru að dauða komin. Vægðarlausar skatta- hækkanir dynja á almenningi. Fólk stendur í biðröðum og á ekki fyrir mat. Fjöldagjaldþrot venjulegs launafólks eru skollin á. Atvinnu- leysi á Íslandi slær Norður- landamet. Níðst er á gamalmennum og öryrkjum og þeir mergsognir, lyfjaverð og sjúkrakostnaður marg- faldast og sjúkahúsin gerð nær óstarfhæf. ASÍ-gráskeggurinn (ný- rakaður) hefur aldrei unnið að gagni fyrir umbjóðendur sína, eða laununum sínum, en situr og fitnar í nýja leðurstólnum með ól um háls- inn sem forsætisráðherra hefur í hendi sér. Kommúnistar flykkjast í vel launuð málamyndastörf í ráðu- neytum og nefndum, en almenn- ingur skal þegja og borga. Er þetta velferðarþjóðfélagið sem Jóhanna Sigurðardóttir boðaði fyrir síðustu kosningar? Líklega á þessi útbrunna kona Íslandsmet í að vera ómerkingur orða sinna, ef litið er til orða hennar í stjórnarandstöðu, þar sem hún þóttist bera hag almenn- ings fyrir brjósti. Verst er þó, að hún kann ekki að skammast sín. Nú er boðskapur ríkisstjórnarinnar þessi: Ofan á aðrar skuldir skuluð þið nú öll, einnig börn ykkar og barnabörn, borga Icesave! Und- irlægjuhátturinn er algjör. Íslend- ingar eru hvattir til að beygja sig fyrir löglausum hótunum fyrrver- andi nýlenduþjóða. Eini maðurinn sem varið hefur málstað Íslendinga á erlendri grundu og talað af viti er forsetinn. Að lokum: Ætlar þú sem þetta lest að hafa það á samviskunni, að hafa með atkvæði þínu um Icesave, skuldbundið börn þín og barnabörn til að gerast þrælar Breta og Hol- lendinga um ókomin ár ? Sannir Ís- lendingar og sæmilega upplýstir segja nei! Hinir segja já. ÓLAFUR ÁSGEIR STEINÞÓRSSON eldri borgari í Reykjavík. Þjóðinni blæðir Frá Ólafi Ásgeiri Steinþórssyni „Erlendir hand- rukkarar hafa ítrekað ruðst inn á heimili okkar undanfarin tvö ár og heimtað að við greiðum skuld sem er fjölskyldu minni alls óviðkomandi. Við höf- um hingað til rekið þá á dyr – og það þótt þeir hafi áður fullyrt að ef við gerð- um það myndu þeir rústa heimili okkar. Sú hótun hefur reynst inn- stæðulaus. Við höfum margbent þeim á að láta dómstóla skera úr um það hvort við skuldum þeim eitthvað – en þeir vilja ekki heyra á það minnst. En nú erum við búin að nóg! Við erum orðin svo þreytt á hót- unum þessara handrukkara að við ætlum bara að borga þeim og snúa okkur að öðru! Við höfum að vísu ekki grænan grun um hversu háa upphæð við þurfum að borga, það kemur í ljós á næstu árum! Og ef þú endilega vilt vita hvað þetta annað er, sem við ætlum að snúa okkur að, er því fljótsvarað. Fjölskyldan verður upptekin af því næstu ár að skera niður öll möguleg og ómöguleg útgjöld til að eiga fyrir skuldinni!“ Rangt að ala á hræðslu Hér að framan er vitnað í ónefndan talsmann þeirra sem ætla að segja já í þjóðaratkvæða- greiðslunni um Icesave III á laugardaginn – talsmann þeirra sem ætla „bara“ að borga og snúa sér svo að öðru – blóð- ugum niðurskurði velferðarkerfisins og skattahækkunum. Undirritaður til- heyrir ekki þeim hópi. Ég ætla að segja nei og standa fast á lögvörðum og sjálfsögðum rétti mínum. Jafnframt lýsi ég furðu minni á mál- flutningi þeirra sem reyna að hræða landsmenn til að sam- þykkja þann ólánssamning sem fyrir liggur. Það er beinlínis rangt að halda því fram að þeir sem segja nei í kosningunum á laugardaginn neiti að taka þátt í að borga þjóðarskuldir eða standa við skuldbindingar þjóðar- búsins. Við sem segjum nei vilj- um einungis fá úr því skorið hvort okkur beri að borga óreiðu- skuldir einkafyrirtækis sem við áttum ekkert í. Flóknara er það ekki. Þess vegna ætti sérhver kosningabær þegn að segja nei og láta ekki ógna sér til annars. Fimm ástæður til að segja nei Ég hafði lengi vel 4 gildar ástæður til að segja nei – en nú eru þær orðnar 5: 1) Upphæð skuldarinnar er óþekkt og getur hækkað um hundruð milljarða króna vegna ýmissa óvissuþátta. 2) Alþingi er óheimilt sam- kvæmt stjórnarskrá lýðveldisins að skuldbinda þjóð sína fjárhags- lega ef umfang skuldbinding- arinnar er ekki fyrirfram vitað. 3) Bretar og Hollendingar axla hvorki ábyrgð né taka áhættu samkvæmt þeim óheillasamingi sem fyrir liggur – bara við. 4) Krafa þeirra er ólögvarin en þeir hafa ekki vísað henni til dómstóla og munu varla gera það úr þessu. Hættan á að spilaborg evrópska fjármálakerfisins hrynji er of mikil, tapist málið. Senni- lega þurfum við því aldrei að greiða krónu! 5) Nýjasta ástæða mín fyrir nei-inu er sú að 20 fyrrv. ráð- herrar hafa hvatt okkur til að segja já. Í þeim hópi eru margir sem bera beina ábyrgð á því að rík- isbankarnir voru einkavæddir (lesist: gefnir vildarvinum) á sín- um tíma). Þeir ætla seint að reynast þjóð sinni ráðhollir. Ást- kæra, íslenska þjóð! Oft var þörf en nú er nauðsyn! Segjum nei í þjóðaratkvæðagreiðslunni á laug- ardaginn! Nei og aftur nei er hið eina rétta svar. Nei og aftur nei! Eftir Braga V. Bergmann » „Við erum orðin svo þreytt á hótunum þessara handrukkara að við ætlum bara að borga þeim og snúa okkur að öðru!“ Hverju? Jú, nið- urskurði! Bragi V. Bergmann Höfundur starfar við almannatengsl. Ég bar í síðustu viku fram fyrirspurn hér í blaðinu til þeirra háttvirtu alþing- ismanna, sem með auknum meirihluta samþykktu Icesave- lög nr. 13/2011. Spurningarnar vörð- uðu stjórnskipulegt gildi laganna og ástæður þess, að nauðsynlegt var talið að virða ekki skilyrði og heimildir ríkisábyrgðalaganna við setningu Icesave-laganna. Ég hefi engin svör fengið. „Byrði betri berrat maðr brautu at, an sé mannvit mikit.“ Í Fréttablaðinu og eins í Morg- unblaðinu 2. apríl sl., auglýsa hvorki meira né minna en tuttugu fyrrverandi ráðherrar, allt val- inkunnir sómamenn, að þeir ætli að segja já í atkvæðagreiðslunni 9. apríl. Allir hafa þessir ágætu menn mikla þekkingu, reynslu og vit, enda margir vélað um atvinnu-, efnahags- og fjármál í ráðuneytum sínum auk þess sem nokkrir þeirra hafa verið við stjórn banka- og lánastofnana og jafnvel sjálfs Seðlabankans. Þó að ekki hafi verið greint frá því í auglýsingunni, hver rök liggi að baki ákvörðun þeirra, þá efast ég ekki um, að þau hafi verið nægilega sannfærandi til að friða samvisku þeirra. En, þar sem ég velkist í vafa um að þeirra af- staða sé hin rétta, langar mig til að biðja þá um að líta með mér um öxl svolitla stund og reyna að rýna jafnframt fram á veg. „Gáttir allar áður gangi fram of skyggnast skyli.“ Menn eru að halda því fram, að eignasafn þrotabús Landsbank- ans hf. sé svo magnað, að skattgreiðendur, börnin okkar, barna- börn og barna- barnabörn þurfi ekk- ert að greiða. Ef svo væri, hvers vegna er þá ekki Bretum og Hollendingum bara af- hent búið til ráðstöf- unar, sem fulln- aðargreiðsla og hvers vegna þiggja þeir ekki svoddan kostaboð? Munið þið hvað efnahagsreikn- ingar gömlu bankanna voru bólgnir fyrir hrun? Munið þið, hvað við vorum ánægðir, þegar matsfyrir- tæki úti um allan heim áttu engin orð um snilli okkar Íslendinga á sviði bankastarfsemi? Voruð þið ekki jafnánægðir og ég, þegar við fengum tilkynningu um að hluta- bréfin hefðu hækkað verulega meira heldur en innlánsreikningar bankanna eða ríkisskuldabréf greiddu í vexti, auk þess sem við fengum arðinn sendan heim, í hlutabréfum í öðrum hlutafélögum, sem alltaf voru að vaxa og sýna mikla hlutafjáraukningu og bætta eiginfjárstöðu? Eða allt unga fólkið, sem var að taka húsnæðis-, bíla- og námslán og var hvatt til að taka sem mest og helst með gengistryggingu af því að vaxrafóturinn væri miklu hagstæðari og stöðugleiki og gengi íslensku krónunnar nánast gulli betri, eins og matsfyrirtæki heims- ins gætu best um borið. Munið þið ekkert eftir þessu? Höfum við ekk- ert lært af þessu? Getum við betur treyst því mati, sem nú er lagt til grundvallar? Okkur er ætlað að greiða ein- hverja fjárhæð, sem við vitum að vísu ekkert um í dag, hve há verð- ur að lokum, en við vitum að hún er gengistryggð og með ríkis- ábyrgð samkvæmt Icesave-lögum, ef þau verða ekki felld í atkvæða- greiðslunni. Eruð þið, tuttugu fyrrverandi ráðherrar, sem allir njóta virðingar og trausts, sannfærðir um það, að allt fram til ársins 2016 verði hægt með handafli að halda gengi ís- lensku krónunnar svo stöðugu, eins og það er skráð í dag, eins og það væri sterkasti gjaldmiðill í heimi, meðan markaðsverðið er meira en tvö hundruð aflandskrónur fyrir eina evru? Hvernig var stöðugleiki gengis íslensku krónunnar meðan þið vor- uð við völd? Fyrir skemmstu var gerð gagnmerk greinargerð um kú- gildisverðmæti íslensku krónunnar fyrstu eitt hundrað ár heima- stjórnar. Það er fyrir tímabilið frá janúar 1904 til desemberloka 2003. Hvað haldið þið að kúgild- isverðmæti krónunnar hafi rýrnað mikið, þann tíma sem þið sátuð á Alþingi eða í stjórnarráði? Á engu tímabili 100 ára heimastjórnar rýrnaði kúgildisverðmæti krón- unnar meira en einmitt því, sem spannar þingsetu ykkar. Haldið þið, að núverandi stjórnvöld standi sig svo miklu betur í þeim efnum en þið gerðuð? Og jafnvel þótt þeim tækist jafn- vel upp og ykkur verður gengið valt. Finnst ykkur nokkur ástæða sé fyrir mig að velkjast í vafa? Finnst ykkur ég geti sagt annað en nei! Með kærri kveðju. Allt með gætni gjör ávallt, grannt um endinn hugsa skalt Eftir Svein Snorrason » Tuttugu fyrrverandi ráðherrar hvattir til að líta um öxl og horfa fram á veg. Sveinn Snorrason Höfundur er lögfræðingur. Fermingin er ekki sýning, færi- bandaafgreiðsla eða hópyfirlýsing heldur persónu- leg vitnisburðar- og bænastund. Hún er ekki manndómsvígsla, vottorð um að þú sért kominn í full- orðinna manna tölu eða útskrift úr kirkjunni. Held- ur er hún upphaf að meðvitaðri göngu með frelsaranum Jesú Kristi. Hún er vitnisburður þess að þú viljir áfram þiggja að vera barn. Barn Guðs, leitt af Jesú Kristi. Barn sem vill fá að þroskast og dafna í skjóli hans og leitast við að leyfa honum að hafa áhrif á þig, þiggja leiðsögn hans og nærveru með öllum þeim fyrirheitum og erfðarétti sem því fylgir. Fermingin er vitnisburður þess að vilja leitast við að lifa lífinu í kær- leika og sátt við Guð og alla menn. Hún er að segja já við lífinu, vilja læra að meta það, njóta þess og þakka fyrir það. Í fermingunni þiggjum við kórónu lífsins, dýrð- arsveig sem aldrei fölnar. Því er sannarlega ástæða til að koma saman, biðja og þakka, gleðj- ast og fagna. Haltu fast í kórónuna þína, svo enginn taki sigursveiginn frá þér. Spurning fermingardagsins er spurning dagsins, alla ævi. SIGURBJÖRN ÞORKELSSON rithöfundur. Spurning dagsins, alla ævi Frá Sigurbirni Þorkelssyni Sigurbjörn Þorkelsson

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.