Morgunblaðið - 07.04.2011, Síða 25

Morgunblaðið - 07.04.2011, Síða 25
MINNINGAR 25 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 7. APRÍL 2011 ✝ Jóhanna Dag-bjartsdóttir fæddist á Velli í Grindavík 24. sept- ember 1915. Hún lést í Grindavík 2. apríl 2011. Foreldrar hennar voru Dagbjartur Einarsson, útvegs- bóndi á Velli og síð- ar í Ásgarði í Grindavík, f. 18. okt. 1876 í Garðhúsum í Grindavík, d. 14. jan. 1944, og kona hans Val- gerður Guðmundsdóttir, f. 12. des. 1885 á Klöpp í Grindavík, d. 4. apríl 1967. Systkini Jóhönnu voru: 1) Vilborg Júlía Kristín, húsfreyja í Reykjavík, f. 26. des. 1911, d. 20. jan. 1988, gift Peter Wigelund skipasmíðameistara. 2) Guðrún, húsfreyja í Grindavík, f. 24. mars 1913, d. 22. feb. 1990, gift Gísla Jóhannssyni sjómanni. 3) Margrét, f. 24. maí 1914, d. 14. jan. 1999, húsfreyja í Reykjavík, gift fyrr Þórði Helgasyni bifreiðarstjóra, síðar Guðlaugi Guðmundssyni vélstjóra. 4) Ein- d. 15. jan. 2004 í Grindavík. Þau bjuggu allan sinn búskap í Grinda- vík þar sem Óskar stundaði skip- stjórn og útgerð. Þau Jóhanna og Óskar eign- uðust tvö börn: a) Sævar, f. 25. des. 1941 í Litla-Gimli í Grindavík, skipstjóri, vélstjóri og útgerð- armaður í Grindavík. Hann var kvæntur Ólínu Guðbjörgu Ragn- arsdóttur verslunarmanni. Þau skildu. Börn þeirra: a) Óskar, út- gerðartæknir í Grindavík, kvænt- ur Guðbjörgu Eyjólfsdóttur og eiga þau þrjú börn. b) Jóhanna, kennari og húsfreyja í Grindavík, gift Viðari Geirssyni og eiga þau þrjú börn. c) Erlendur, sjómaður í Grindavík, giftur Örnu Björns- dóttur, eiga þau tvö börn. Seinni kona Sævars er Khamnuan og eiga þau soninn Kára Kham. B) Dagbjört, f. 14. nóv. 1946 í Grinda- vík, skrifstofumaður í Keflavík. Sambýlismaður hennar er Þorlák- ur Friðriksson bílamálari. Dóttir Dagbjartar er Dröfn Palmberg, starfsmaður hjá Flugleiðum, á hún þrjú börn. Barnabarnabörnin eru 12, og barnabarna- barnabörnin 4. Jóhanna bjó alla sína ævi í Grindavík. Hún fór á hjúkr- unarheimilið í Víðihlíð 2009. Útför Jóhönnu fer fram frá Grindavíkurkirkju í dag, 7. apríl 2011, og hefst athöfnin kl. 11. ar Jónsson, skip- stjóri í Grindavík, f. 24. júní 1917, d. 21. feb. 1981, kvæntur Laufeyju Guð- björgu Guðjóns- dóttur. 5) Guð- mundur, vélstjóri í Grindavík, f. 29. des. 1918, kvæntur Aðalheiði Jóns- dóttur. 6) Eiríka Katla, húsfreyja í Reykjavík, f. 18. júní 1920, gift Valgeiri Magnússyni versl- unarmanni. 7) Valbjört, hús- freyja í Bandaríkjunum, f. 4. apr- íl 1922, d. 17. des. 1989, gift Herbert Green hermanni. 8) Bryndís, húsfreyja í Grindavík, f. 16. júlí 1925 í Grindavík, d. 24. okt. 2010. Auk þess átti hún hálf- systur, Hrefnu Dagbjartsdóttur, saumakonu í Reykjavík, f. 3. júní 1906, d. 1. febr. 1973. Jóhanna ólst upp í Grindavík, fyrst á Velli og síðan í Ásgarði. Hún giftist 26. sept. 1947 Óskari Gíslasyni, skipstjóra í Grindavík, f. 26. sept. 1914 í Vík í Grindavík, Mér er efst í huga þakklæti fyrir að hafa fengið að eiga ömmu mína að svona lengi. Amma í Ás- byrgi bjó alla mína æsku í sömu götu og ég, fyrst bjuggu amma og afi í Ásbyrgi á Ásabraut 1 og seinna á Ásabraut 13 og ég á milli, fyrst á æskuheimili mínu og síðar í Sóltúni. Það voru forréttindi að alast upp með ömmu og afa svona nærri, afi var á sjónum en amma var heima. Við systkinin sóttum mikið til ömmu og afa og vorum mikið hjá þeim, ég var þá oft að leika við Döbbu frænku, hanga yfir ömmu og masa á meðan hún steinkaði og straujaði rúmföt, spjalla við Diddu, fá kannski mat- arkex í soðnu vatni og mjólk með miklum sykri, eða heimabakað heilhveitibrauð. Amma var skemmtileg kona sem hafði sterkar skoðanir og mér fannst mjög gaman að sitja við eldhús- borðið hjá henni, fá appelsín og rökræða málin. Ef fleiri sátu við borðið t.d. Binna, Gunna eða afi og kannski verið að taka í spil, þá gat stundum hitnað aðeins í kol- unum og jafnvel tekist aðeins á í rökræðum, en það var einnig mik- ið hlegið. Mér fundust amma og þær systur hennar sem ég þekkti best, Binna, Gunna og Magga, einstakar konur, svo áhugaverðar og ótrúlega skemmtilegar og amma svo heppin að eiga þessar frábæru systur. Ég er skírð í höf- uðið á ömmu og er ákaflega stolt af því og einnig af því að vera stundum líkt við ömmu. Ég gleymi aldrei fallegu kart- öflugörðunum hjá ömmu og afa, beðin öll rétt og slétt og göturnar þráðbeinar. Þannig fannst mér að kartöflugarðar ættu að vera og ég man að mér fannst þeirra garður langflottasti garðurinn. Ömmu fannst gaman að dútla og dekra við kartöflurnar sínar og gerði það eins lengi og hún gat, hún vildi hafa garðinn sinn fallegan og það var hann sannarlega. Ég er ákaflega þakklát fyrir að hafa haft ömmu svona nálægt mér og þakklátust er ég fyrir tím- ann með henni þegar ég var ung- lingur en það voru ófáar stund- irnar sem við sátum seint á kvöldin og spjölluðum. Amma var hress á kvöldin og vakti oft lengi og ég mátti ekki vera úti en ég mátti skreppa til ömmu. Það var nefnilega svo gott og einnig skemmtilegt að spjalla við ömmu seint á kvöldin því hún sýndi mín- um málum áhuga og við fórum á trúnó. Ég sagði ömmu hluti sem ég sagði ekki neinum og fannst svo gott að eiga hana að. Stund- um gaf hún mér ráð en oftast hlustaði hún og við ræddum mál- in, stundum spiluðum við líka eða lögðum kapal. Ástamál voru stundum rædd og þá sagði hún mér líka frá sér þegar hún var ung og hvað hún var hissa á því að hann afi, svona myndarlegur, skyldi velja sig. Nú eru þau aftur saman, amma og afi. Ég votta pabba, Diddu og Döbbu samúð mína. Dabba frænka sem alltaf er litla stelpan hennar ömmu, Didda og pabbi hafa verið vakin og sofin yfir ömmu síðustu vikurnar og Didda hefur verið hjá henni öllum stundum, óþreytandi svo um- hyggjusöm og sterk. Ég kveð yndislega ömmu mína, þakka samfylgdina og geymi minningu hennar í hjarta mínu. Jóhanna Sævarsdóttir. Hvernig er hægt að skrifa minningargrein um hana ömmu mína þegar minningarnar eru svo margar að hægt væri að skrifa heila bók? Hvernig er hægt að skrifa um hana grein sem myndi aldrei geta lýst henni sem eins stórbrotinni manneskju og hún var? Hún amma mín var fyndin, góð, kaldhæðin, trygg, hlý, köld, sterk, klár, mjúk vel lyktandi. Hún kenndi mér að syngja, lesa, gera krossgátur, bulla og ropa hátt. Hún kenndi mér að öryggi fjölskyldunnar ætti alltaf að vera númer eitt, ég vissi alltaf að ég væri örugg sama hvar ég var og sama hvað gerðist af því ég átti hana að, þetta kenndi hún mér og henni mömmu og vonandi kem ég þessari tilfinningu í börnin mín, að vera öruggur í hjartanu af því svona sterk manneskja elskar mann og stendur alltaf með manni sama hvað á dynur, sama hvort hún var sátt við það sem maður gerði eða ekki, alltaf var hún til staðar fyrir mann. Hún amma mín var ótrúlega úrræðagóð og snögg að hugsa, einu sinni þegar ég kom úr búð- inni með mjólkurfernu sem lak, þá var hún fljót að skola tóma mjólkurfernu, ná í trekt og hella á milli til að mjólkin læki ekki út um allt, hún náði ekki í könnu eða skál eins og ég hefði sennilega gert, nei hún nýtti heldur tómu mjólkurfernuna og ég bara sat og glápti hissa á, þá leit hún á mig, glotti og sagði: „Ég var ekki köll- uð Jóka klóka fyrir ekki neitt.“ Amma var 95 ára, það er frek- ar gamalt og þegar ég spurði hana: „Hefði þér dottið í hug að þú yrðir svona gömul?“ Þá hnuss- aði hún: „Nei, ég skil ekkert í þessu af hverju ég er svona göm- ul.“ Samt var hún eiginlega ald- urslaus þótt hún væri 95, hún gat talað við alla á öllum aldursskeið- um, litlu krakkana, unglingana, unga fólkið, gamla fólkið og henni þótti ekkert leiðinlegra en fólk sem hafði ekkert að segja og var „gamalt“ í anda. Hún var ung kona í gömlum líkama. Þegar Binna systir hennar dó varð hún mjög döpur af því þær voru ekki bara systur heldur mjög góðar vinkonur, en Binna var 10 árum yngri en hún, og ég held að svona inn við beinið hafi amma verið hálfsvekkt yfir að Binna fór á undan, samt var amma búin að tala um að vera komin með aðra löppina ofan í gröfina síðan ég var fjögurra ára en meinti það loksins eftir að Binna dó. Það gerir söknuðinn ekki eins sáran að vita til þess og vera alveg viss um að hún var sátt við að fara. Núna er örugglega nóg að gera hjá þeim systrunum, mikið spilað og hlegið, þannig að hann afi kemst varla að. Í dag kveð ég hana ömmu mína í síðasta sinn. Mig langar að segja henni að ég er óendanlega þakk- lát að hafa kynnst henni, glöð að hafa fengið að hafa hana svona lengi, og hreykin að vera barna- barnið hennar. Elsku amma, takk fyrir allt og allt, ég sé þig aftur seinna. Dröfn (Dabba). Laugardagurinn 2. apríl rann upp bjartur og fallegur eins og vordagar gerast bestir og fugla- söngurinn fyllti loftið. Þessi fal- legi dagur var sá síðasti í lífi Jó- hönnu Dagbjartsdóttur, eftir langa og farsæla ævi var hún hvíldinni fegin, tilbúin í sína hinstu för. Ég kynntist Hönnu eins og hún var oft kölluð þegar ég var 16 ára og hann Óskar sonarsonur henn- ar fór með mig í Ásbyrgi til þess að kynna mig fyrir ömmu og afa. Ég kveið fyrir að hitta þessa konu sem gat verið hvöss og lá ekkert á skoðunum sínum, en áhyggjur mínar voru óþarfar, mér var vel tekið og eftir því sem árin liðu þá kom í ljós hvern mann hún hafði að geyma, alltaf var hægt að leita til hennar með hvað sem er og reyndist hún sínu fólki alltaf vel. Kynni mín af henni urðu meiri þegar við Óskar fengum að inn- rétta kjallarann á Ásabraut 13 og bjuggum við þar í 7 ár og tvö elstu börnin okkar fæddust þar og eftir það var hún alltaf kölluð „amma uppi“. Hanna var ótrúlega ná- kvæm og vandvirk í öllu sem hún tók sér fyrir hendur, hvort sem hún var að setja niður kartöflur, baka eða sinna heimilinu yfirleitt, allt var gert af mikilli nákvæmni, það var sko ekkert „dass“ og nýtnin var mikil. Henni fannst gaman að ferðast og nutum við þess að fara með þeim hjónum í nokkrar útilegur og veiðiferðir á meðan aldur og heilsa leyfði. En fyrst og fremst var Jóhanna Dagbjartsdóttir Grindvíkingur og undi sér alltaf best í Grindavík. Þegar lang- ömmubörnin fóru í skóla þá var gott að koma við á leiðinni heima hjá ömmu, spila og fá ristað brauð með sultu eða kanaosti og ekki vílaði hún fyrir sér að fara með þeim út að hjóla eða renna í brekkunni við húsið á snjóþotu og var hún ótrúlega hress langt fram á aldur. Krakkarnir tala oft um þessar stundir og þakka ég sér- staklega fyrir þær. Ég hugsa til þín, Jóhanna, með virðingu og þakklæti fyrir að hafa fengið að vera þér samferða í 35 ár. En nú er komið að leiðarlok- um, þú hefur farið í þína hinstu för sátt við Guð og menn. Hafðu þökk fyrir allt og allt. Kveðja Guðbjörg. Jóhanna Dagbjartsdóttir Hreinn hann var og beinn. Allt pott- þétt, aldrei vesen. Reglusamur, samviskusamur með afbrigðum og annálað snyrtimenni. Fyrstu kynni okkar æskuvin- anna af Hreini Óskarssyni voru eins og margra annarra; sjö ára eða þar um bil mættum við í fyrsta skipti með leikfimipokann í íþróttaskemmuna á Akureyri. Þar tók á móti okkur þessi góð- legi kall sem allir báru virðingu fyrir og vissu að ekki þýddi ann- að en breyta eins og hann sagði. Þegar sveinarnir hófu að æfa íþróttir í Þór hittum við hann auðvitað títt, bæði í Skemmunni og á íþróttavellinum þegar skerpt var á hæfileikunum á moldarvellinum. Unglingavinnan beið handan við hornið, þar stigum við ein fyrstu skrefin í atvinnulífinu, lík- lega 13 ára; reittum arfa og drápum njóla en litum fljótt Hreinn Óskarsson ✝ Hreinn Ósk-arsson fæddist á Akureyri 7. maí 1926. Hann lést 24. mars 2011. Útför Hreins fór fram frá Akureyr- arkirkju 4. apríl 2011. löngunaraugum á völlinn; Völlinn, eins og við kölluð- um Akureyrarvöll jafnan – með stóru Vaffi. Draumurinn rættist strax árið eftir þegar við feng- um vinnu hjá Hreinsa hluta úr sumri. Vitaskuld var það ekki draumur ungra athafnamanna að týna rusl, slá eða raka, en tíminn var dýrmætur. Fulla vinnu fengum við á vell- inum 16 ára og störfuðum þar saman í fjögur eftirminnileg sumur, allt til tvítugs þegar önn- ur verkefni tóku við utan bæj- armarkanna. Þótt báðir værum við í burtu í all mörg ár var aug- ljóst að Hreinsi bar hag okkar ætíð fyrir brjósti. Fylgdist vel með og átti í okkur hvert bein. Genginn er afar góður maður sem við vorum lánsamir að fá að umgangast og erum þakklátir fyrir. Hann kenndi okkur margt ungum mönnum og að því búum við enn. Við vottum Sigurjónu, börn- um þeirra Hreinsa og öðrum í fjölskyldunni okkar innilegustu samúð. Skapti og Reynir. ✝ Ástkær eiginkona mín, móðir okkar, tengda- móðir, dóttir og amma, ÞÓRDÍS HJÖRVARSDÓTTIR leikskólakennari, andaðist fimmtudaginn 31. mars. Útför hennar fer fram frá Fossvogskirkju föstudaginn 8. apríl kl. 11.00. Blóm og kransar eru vinsamlegast afþakkaðir en þeim sem vilja minnast hennar er bent á Krabbameinsfélag Íslands. Guðmundur Kristinn Erlendsson, Sigríður Ólöf Guðmundsdóttir, Árni Geir Valgeirsson, Óskar Guðmundsson, Auður Ævarsdóttir, Ólöf Þórðardóttir, Karl Sölvason, Andrea Óskarsdóttir og Óliver Óskarsson. ✝ Maðurinn minn, faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi, ARINBJÖRN HJÁLMARSSON frá Vagnbrekku í Mývatnssveit, Lindasíðu 2, Akureyri, lést á Sjúkrahúsi Húsavíkur mánudaginn 4. apríl. Halldóra Sigríður Þórarinsdóttir, Kristín Arinbjarnardóttir, Sigurður R. Ragnarsson, Þórarinn Arinbjarnarson, Ingibjörg Antonsdóttir, Halldór Arinbjarnarson, Edda Aradóttir, Hjálmar Arinbjarnarson, Gizelle Balo, Ásdís Arinbjarnardóttir, Þórður Pálsson, barnabörn og barnabarnabörn. ✝ Ástkær eiginmaður minn, faðir, tengdafaðir, afi, langafi og bróðir, GUÐMUNDUR BJÖRN SVEINSSON, Kirkjuteig 13, Reykjavík, andaðist á Landspítala Landakoti föstu- daginn 25. mars. Útförin fer fram frá Laugarneskirkju þriðjudaginn 19. apríl kl. 15.00. Esther Ósk Karlsdóttir, Sævar Sveinn Guðmundsson, Elísabet Anna Guðmundsdóttir, Bengt Wallin, Auður Björk Guðmundsdóttir, Siegfried Gudmundsson, Sabina Gudmundsson, Sarah Gudmundsson, Belinda Wallin-Tolf, Nicklas Tolf, Isabelle og Patricia, Nathalie Wallin, Ozzy Wallin, Philip Wallin, Arthúr Sveinsson, Már Sveinsson, Margrét Björnsdóttir, Sveina M. Sveinsdóttir, Runólfur Sölvason, Linda M. Runólfsdóttir, Birgir Þór Runólfsson, Jón Guðmann Jónsson, Karítas Sól Jónsdóttir og aðrir aðstandendur. ✝ Elskulegur eiginmaður minn, faðir og afi, ERLING ÞÓR PROPPÉ, andaðist á hjúkrunarheimilinu Skógarbæ mánudaginn 4. apríl. Útför hans fer fram frá Fossvogskirkju mánu- daginn 11. apríl kl. 11.00. Blóm vinsamlega afþökkuð en þeim sem vilja minnast hans er bent á FAAS, Félag aðstandenda alzheimersjúklinga, www.alzheimer.is eða í síma 533 1088. Fanney Proppé Eiríksdóttir, Anna María Proppé, Þormar Sigurjónsson, Ástráður Þór Proppé, Erling Proppé Sturluson. ✝ Þökkum auðsýnda samúð og stuðning við fráfall móður okkar, tengdamóður, ömmu og langömmu, GUÐNÝJAR EINARSÍNU HJARTARDÓTTUR frá Skagaströnd, sem lést mánudaginn 14. mars. Sigríður Ágústsdóttir, Guðmundur Þórir Guðmundsson, Kristinn Ágústsson, Guðfinna Þorgeirsdóttir, Hallbjörn Ágústsson, Elín Helga Jóhannesdóttir Sanko, Guðrún Ágústsdóttir, Jóel Friðriksson, barnabörn og barnabarnabörn.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.