Morgunblaðið - 07.04.2011, Page 29

Morgunblaðið - 07.04.2011, Page 29
Nú legg ég augun aftur, ó, Guð, þinn náðarkraftur mín veri vörn í nótt. Æ, virst mig að þér taka, mér yfir láttu vaka þinn engil, svo ég sofi rótt. (Sveinbjörn Egilsson.) Blessuð sé minning góðrar konu, Guðlaugar Hallbjörnsdótt- ur. F.h. KR-kvenna, Björk Aðalsteinsdóttir. Deyr fé, deyja frændur, deyr sjálfur ið sama; en orðstír deyr aldregi, hveim er sér góðan getur. (Úr Hávamálum) Guðlaug Hallbjörnsdóttir, Lauga, var góð kona. Hún hafði góða nærveru og það voru aldrei nein vandræði þar sem Lauga var. Í mörg ár var Lauga ráðs- kona hjá Skíðadeild KR í Skála- felli um páska en þar dvaldi að jafnaði fjöldi krakka við skíða- iðkun. Þá skipti máli að fá góðan mat, að fötin væru þurr og hlý og allt færi fram í friði og spekt. Það var víst ekki alltaf sól og blíða í fjallinu og þá gat reynt á þolrifin hjá ungu athafnafólki sem beið af sér storminn. Þarna var Lauga í essinu og hafði stjórn á öllu með góðmennsku og gleði eins og enn sést á prúðu skíðafólki í KR. Lauga ól upp margan KR-inginn og gerði þá að enn betri mönnum. Hún var næm fyrir öllu og var alltaf að hjálpa til, og hafði nef fyrir því hvar neyðin var. Hún starf- aði mikið fyrir Rauða krossinn og lagði sig t.d. alla fram við að taka vel á móti flóttafólki frá Ví- etnam þegar það kom til lands- ins. Hún lét það ekki duga held- ur fylgdist vel með sínu fólki og var ætíð boðin og búin að að- stoða. Það fór vel á því að for- seti Íslands sæmdi Laugu ridd- arakrossi fyrir störf hennar í þágu nýbúa árið 2006. Ég kynntist Laugu fyrst í gegnum tengdamóður mína, Hönnu Fel- ixdóttur, en þær stöllur hafa verið í saumklúbbi saman í 60 ár. Þegar krakkarnir okkar Birgis voru litlir var gaman að fá hana í heimsókn og fengur var í lopavettlingunum og lopa- sokkunum sem Lauga kom með færandi hendi. Leiðir okkar Laugu lágu aftur saman í KR- konum en þar var ekki haldinn fundur án þess að Lauga mætti með sína margfrægu brauðtert- ur öllum til ánægju. Við KR- ingar þökkum Laugu allt það sem hún hefur gert fyrir okkur. Það eru einstaklingar eins og hún sem gera heiminn betri. Góð kona er gengin og við drúp- um höfði með þakklæti og virð- ingu í huga. Félagar í Skíðadeild KR færa fjölskyldu og vinum Laugu innilegustu samúðar- kveðjur. Fh. Skíðadeildar KR, Anna Laufey Sigurðar- dóttir, formaður. Á þessum degi langar mig að minnast stórvinkonu minnar Guðlaugar Hallbjörnsdóttur eða Laugu eins og flestir kölluðu hana. Guðlaug var sannkallaður original, í góðum skilningi þess orðs. Hún lét sig engu varða álit annarra og gerði hlutina alveg eftir eigin höfði. Allar mann- eskjur sem hún kynntist komu henni við og urðu vinir hennar ævilangt. Ég var svo lánsöm að kynnast Guðlaugu stuttu eftir að ég eignaðist frumburðinn minn, Bríeti Ólínu, 1995. Hún hafði haft af því veður að ég þyrfti á barnfóstru að halda. Hún reynd- ist okkur mæðgum afskaplega góð og varð mér fyrirmynd á margan hátt. Við áttum ýmislegt sameig- inlegt, báðar höfðum við eignast barn „svona hinsegin“ eins og hún orðaði það. Hún gætti Bríetar meðan ég var að vinna og talaði linnulaust við barnið svo stúlkan varð altalandi löngu áður en eðlilegt þótti. Ég hélt í fyrstu að við mæðg- ur værum einar af fáum sem nytu góðmennsku hennar og greiðvikni en það var mikill mis- skilningur. Hún prjónaði sokka og vettlinga á bláókunnug börn, útvegaði fólki húsgögn ef hún vissi til þess að það væri „eitt- hvað tómlegt hjá því“. Starf hennar í þágu flótta- manna frá Víetnam sem komu hingað á áttunda áratugnum er mörgum kunnugt og aðrir betur til þess fallnir að tíunda það, en þeir einstaklingar skipta tugum sem hún hefur komið til manns af þeim hópi sem þá kom til Ís- lands. Þar naut hún alla tíð full- tingis Svönu vinkonu sinnar sem nú lifir hana. Guðlaugu fannst alltaf ómögulegt að ég skyldi ekki vilja læra á bíl. Guðlaug var nefnilega með bíladellu, þekkti bíla eins og strákur og var sann- kallaður ökuþór. Það gat enginn keyrt neðan úr miðbæ upp í Breiðholt á fimm mínútum nema Guðlaug. Hún bar hins vegar takmarkaða virðingu fyrir hraðatakmörkunum sem kom henni stundum í koll þótt hún slyppi nú yfirleitt með skrekk- inn. „Æ, hvað heldurðu að þeir nenni að vera að handtaka svona kerlingar eins og mig.“ En það var ekkert kerlingarlegt við Guðlaugu. Hún hugsaði eins og ung manneskja, fordómalaus og glaðlynd og fylgdist með því sem henni fannst áhugavert. Tvisvar heimsótti Guðlaug okkur hingað til Kaliforníu. Mér er minnisstætt þegar hún og El- ín dóttir mín lentu í San Frans- isco seint að kvöldlagi. Guðlaug hafði oft sagt mér seinni árin að það væri ekkert vit að ferðast til Bandaríkjanna nema í hjólastól. Það stytti biðina í vegabréfa- skoðuninni og vopnaleitinni. Þetta ráðlagði hún fólki á öllum aldri burtséð frá líkamlegu ástandi. Næsta dag keyrðum við eldsnemma til Los Angeles þar sem hún sat frammí og hélt Stefáni við efnið með því að ávarpa hátt og snjallt aðra öku- menn á hraðbraut númer fimm og ávíta þá fyrir aksturslag. Góð vinkona er fallin frá. Það hefur verið mér ómetanlegt að eiga trúnað hennar og traust. Og atlæti hennar í garð barnanna minna verður aldrei fullþakkað. Fyrir hönd fjöl- skyldu minnar vil ég þakka Guð- laugu örlætið og skemmtileg- heitin. Samfylgdin við hana var engu lík. Hún var ein af þeim stóru. Afkomendum Guðlaugar, fjöl- skyldu hennar og vinum vil ég votta samúð mína. Steinunn Ólína Þorsteinsdóttir. Veraldlegum auðæfum í venjulegum skilningi hættir til að bera í sér fremur vafasama hollustuhætti, og þau eru í sjálfu sér hégómi einn, borin saman við ríkidæmi af því tagi sem Guðlaug Hallbjörnsdóttir geymdi í hjartanu og veitti ótæpilega af til þeirra sem þurftu aðstoðar við í stóru sem smáu. Í lífi Guðlaugar voru allar stundir gæddar þeirri ríkulegu lífsfyllingu, sem hún öðlaðist sjálf með látlausri fórnfýsi sinni í garð annarra, örlæti sínu og hjálpsemi. Sérgáfa hennar var einhver ofurnæm eðlisávísun varðandi allt sem raunverulegu máli skiptir fyrir manneskjur. Hún var fróð og áhugasöm um fólk og kjör þess, að sama skapi minnug og trölltrygg hverjum þeim er hún kynntist, geðrík að hæfilegu marki, spjallglöð og hreinskiptin. Við kveðjum Guðlaugu Hall- björnsdóttur með kærri þökk, einkum þó orðlausri, fyrir að verða á vegi okkar; fyrir alla viðkynningu og samfundi; fyrir alla hjálpina og greiðasemina sem henni tókst eins og átaka- laust að inna af höndum beðin sem óbeðin, jafnframt öllu hinu sem hún var samtímis að annast í öðrum stöðum, vakin og sofin. Mikill fjöldi fólks saknar nú vin- ar í stað, hollvættar úr „heim- inum sem er innan í þessum“, eins og Jóhannes úr Kötlum kemst að orði í Lofsöng um þá hógværu. Blessuð sé minning Guðlaug- ar Hallbjörnsdóttur. Guðrún Þorsteinsdóttir, Laufey Sigurðardóttir, Þorsteinn frá Hamri. Við kveðjum vinkonu okkar, Guðlaugu Hallbjörnsdóttur, sem við höfum átt samleið með í ára- tugi. Hún veiktist í lok sl. árs og komst ekki heim á Reynimelinn meir. Lauga var einstaklega vin- sæl kona eins og best mátti sjá á fjölda heimsókna til hennar á sjúkrahúsinu. Hún vildi allt fyrir alla gera eins og við sauma- klúbbssystur þekkjum best til. Við komum saman daginn eft- ir andlát Laugu og áttum góða stund saman. Ekki erum það að- eins við sem best þekkjum sem vita um elskusemi Laugu gagn- vart meðbræðrum sínum, því hér í okkar landi býr fjöldi fólks frá fjarlægu landi sem hún rétti ótrúlega hjálparhönd, ekki var sjaldgæft að heilu fjölskyldunum væri veitt húsaskjól meðan beð- ið var eftir varanlegu húsnæði sem þeim var ætlað. Guðlaug var heiðruð af for- seta Íslands í viðurkenningar- skyni og var vel að komin. Und- irrituð fékk að vera fylgdarkona hennar þann nýársdag og var stolt af, eins og við vinkonur hennar allar. Nafnið hennar, Guðlaug, virtist ekki vera auð- velt fyrir útlendingana svo að þar sem öll börnin kölluðu hana ömmu varð það úr að það varð nafnið hennar í þeirra munni. Lauga fór í reisu með vinum sínum í þeirra fjarlæga land ásamt öðrum sem rétt höfðu þeim hjálparhönd svo sem frá RKÍ og fleirum og kynntist þeim enn betur fyrir vikið. Við vinkonur fórum í nokkrar ferðir til útlanda saman, borguðum okkur „aðgangseyri“ í klúbbana og söfnuðum fyrir ferðunum eins og „hagsýnum húsmæðrum ber“ og skemmtum okkur kon- unglega. Lauga lét sig ekki muna um að fara í Ameríkuferðir ein, þó að skipta þyrfti um flugvélar og ferðalangurinn kominn nokkuð á níræðisaldur, en þar átti hún fjölda vina, sem hún ræktaði mikið samband við. Við eigum eftir að sakna Laugu vinkonu okkar mikið en fjölskylda henn- ar þó allra mest. Við sendum Sævari syni hennar, tengdadóttur, barna- börnum og ástvinum öllum okk- ar innilegar samúðarkveðjur. Guð blessi minningu hennar. Lilja Gunnarsdóttir. Nú er vinkona okkar Lauga farin í sína síðustu ferð, við vit- um að félagar okkar sem farnir eru á undan henni hafa tekið henni fagnandi. Við kynntumst Laugu þegar við unnum allar hjá Loftleiðum á Keflavíkurflug- velli. Við þökkum henni alla velvild og umhyggju á þessum tíma og öll árin síðan. Mikið var brallað og framkvæmt, sem best er geymt í minningunni og hægt að hlæja að þegar við hittumst yfir kaffibolla. En alltaf var Lauga sú sem við leituðum til er á þurfti að halda. Bjartsýni og já- kvæðni einkenndi hana og dugn- aður að framkvæma það sem þurfti að gera þó að það hafi oft á tíðum virst óyfirstíganlegt. Við munum hugsa um og muna Laugu sem þessa góðu vinkonu sem hún alltaf var. Syni hennar Hallbirni Sævars og fjöl- skyldu sendum við okkar dýpstu samúðarkveðjur. Farðu í friði góði vinur, þér fylgir hugsun góð og hlý Sama hvað á okkur dynur, aftur hittumst við á ný. (Magnús Eiríksson.) Anna, Ingibjörg, María Nína, Sigurborg, Sigurlína. Elsku Lauga okkar. Við þökkum þér samfylgdina og þær stundir sem við áttum með þér. Minning þín lifir. Hver minning dýrmæt perla að liðnum lífsins degi, hin ljúfu og góðu kynni af alhug þakka hér. Þinn kærleikur í verki var gjöf, sem gleymist eigi, og gæfa var það öllum, er fengu að kynnast þér. (Ingibjörg Sigurðardóttir) Hvíl í friði. Helga Pálmadóttir, Hjördís og Bryndís Sævarsdætur. Látin er í Reykjavík Guðlaug Hallbjörnsdóttir í hárri elli. Með henni er gengin einstök kona sem bjó yfir óvenjulegri víðsýni, hjálpsemi, mannúð og umhyggju sem náði til fjöl- margra einstaklinga utan eigin fjöskyldu. Árið 1979 ákvað ríkisstjórn Íslands að taka á móti flóttafólki frá Víetnam og fól Rauða krossi Íslands að annast undirbúning fyrir komu þeirra og aðlögun að íslensku samfélagi. Af því tilefni var leitað til sjálfboðaliða til þess að aðstoða við það verk. Meðal þeirra sem þá gengu til liðs við RKÍ voru þær Guðlaug og vinkona hennar Svanfríður Jónasdóttir, en þær bjuggu í ná- grenni við það húsnæði sem RKÍ hafði fengið til að hýsa flóttamennina. Víetnömsk fjöl- skylda, hjón með tvo unga drengi, flutti í sama hús og þær Guðlaug og Svanfríður og ekki leið á löngu þar til þeir höfðu eignast „ömmur“ í húsinu. „Ömmurnar“ gættu þess að þeir hæfu skólanám og stæðu jafn- fætis jafnöldrum sínum í námi og leik. Og hér var aðeins byrjunin. „Amma Lauga“ átti eftir að greiða götu fjölda annarra flóttamanna. Árið 1990 kom annar hópur Víetnama til lands- ins og aftur gerðist Lauga stuðningsaðili – í þetta skipti við sjö manna fjölskyldu, sem hús- næði fékk í Kópvogi. Hún að- stoðaði fjölskylduna við innkaup, húsnæðismál, læknisskoðanir, skólagöngu barnanna og hún tengdi saman víetnamskar fjöl- skyldur til hagsbóta fyrir alla fjölskyldumeðlimi. Fórnfýsi Guðlaugar í garð skjólstæðinga sinna var einstök. Oft rýmdi hún fyrir þeim í íbúð sinni, þegar tímabundnar þarfir þeirra kölluðu á það. Hún var jafnan ótrúlega örlát á tíma og fjármuni í þágu vina sinna og skjólstæðinga í hópi flóttamanna og fjölskyldna þeirra. Og hún hélt áfram störfum sínum í þeirra þágu þótt ellin sækti að henni sjálfri. Rauði kross Íslands þakkaði „ömmunum̈ fyrir árangursríkt mannúðarstarf með því að veita þeim sérstaka viðurkenningu sjálfboðaliða fyrir framlag sitt og einnig var Guðlaug sæmd hinni íslensku fálkaorðu fyrir sitt mikla starf í þágu flótta- fólks. Þeir fjölmörgu flóttamenn sem Guðlaug aðstoðaði á sinn persónulega og árangursríka hátt sakna nú náins vinar og velgjörðamanns. Guð blessi minningu hennar. Björn Friðfinnsson og Hólmfríður Gísladóttir. MINNINGAR 29 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 7. APRÍL 2011 Við fráfall Önnu Júlíu Magnúsdóttur frá Siglufirði sem lést 6. mars 2011 hrannast upp góðar minningar um mæta konu og eiginmann hennar, Guð- brand Magnússon. Anna og Guðbrandur sköpuðu fjölskyldu sinni einstakt menning- arheimili því bæði voru þau list- feng og flest sem þau unnu að varð ógleymanlegt. Fljótlega eftir að þau komu til Siglufjarðar lágu leiðir okkar sam- an. Guðbrandur kenndi okkur Hannesi í Gagnfræðaskóla Siglu- fjarðar á kirkjuloftinu og duldist engum að þar var hæfileikamaður á ferð og við nemendurnir nutum góðs af því. Önnu lærðum við að þekkja og meta á öðrum vettvangi, í starfi með leikfélagi Siglufjarðar. Þar starfaði hún af lífi og sál og miklum dugnaði. Bæði lék hún þar stór hlutverk og smá og öll túlkaði hún af alúð og listfengi. Minnis- stæðust er hún okkur í hlutverki Guðnýjar í Lénharði fógeta og Höllu í Fjalla-Eyvindi, þeirri túlk- un gleymir maður aldrei. Önnu fylgdi orka, dugnaður og einstök ósérhlífni við allt sem hún tók sér fyrir hendur. Anna söng árum saman í kirkjukór Siglu- fjarðarkirkju og Guðbrandur var þar meðhjálpari til margra ára. Þetta leystu þau vel af hendi eins og allt annað sem þau tóku að sér. Árið 1968 varð Anna einn af stofn- endum kvennakórs Siglufjarðar ásamt fyrsta söngstjóranum okk- ar, Silke Óskarsson, undirritaðri, Línu Boga, Bínu Þorgeirs, Svövu Bald. og fleiri. Þar störfuðum við Anna saman í stjórn í mörg ár. Minnisstæð er vinna okkar í ferða- Anna Júlía Magnúsdóttir ✝ Anna JúlíaMagnúsdóttir fæddist í Vest- mannaeyjum 7. júlí 1920. Hún lést á dvalarheimilinu Grund 6. mars 2011. Útför Önnu Júlíu fór fram frá Graf- arvogskirkju 14. mars 2011. nefnd sem undirbjó ferð kvennakórsins til Þýskalands 1978 sem og vinna við ýmsa fjáröflun fyrir kórinn. Leiðir Önnu og Hannesar lágu saman á saumastof- unni Salínu. Þar vann hún í mörg ár af miklum dugnaði og var jafnframt meðeigandi. Við erum stolt af því að Anna og Guðbrandur skyldu velja okkur að vinum sínum. Og ekki má gleyma að þakka fyrir yndislegu barnapíurnar sem þau sáu okkur fyrir, Hildi og Önnu Gígju. Við kveðjum Önnu Júlíu með virðingu og þakklæti fyrir ára- langa vináttu og samstarf. Við hefðum svo gjarnan viljað fylgja henni síðasta spölinn en gátum það ekki sökum veikinda. Börnum hennar og fjölskyldum sendum við okkar innilegustu samúðar- kveðjur. Vinátta, dýrmæt sem gull Þú átt hana og gefur í senn. Vinátta, einstök sem demantur. Endist um aldur og ævi. Vinátta, verðmæti, ekki í krónum talin. Þú hvorki kaupir hana né selur. Vinátta, sterk sem stál. Þú getur ávallt leitað hennar hjá sönnum vini. Vinátta, kærleikurinn í vinarmynd. Þakkaðu Guði fyrir þá bestu gjöf sem þú færð og gefur. (Sigrún Gunnarsdóttir) Halldóra (Hadda) og Hannes, Siglufirði. Undarlega áleitnar eru huga mínum yndislegar æskuminning- ar frá mínum fyrstu kennsludög- um. Og nú er ein þeirra sem áttu þar svo lýsandi bjarta og blíða mynd horfin af heimi og húm- skuggar fara um hugans inni. Þessi ágæti unglingahópur á Fá- skrúðsfirði, sem sá nítján ára átti sem frumraun sína í kennslunni, var sem hugur manns og ekki var slegið slöku við lærdóminn. Ég hefi oft sagt að nemendur mínir á Fáskrúðsfirði hafi verið sannir giftugjafar. Hún Aðalheiður, hún Alla mín á þar einkar fallega sögu, átti þetta bjarta, svolítið feimnis- lega bros, prúð og kurteis var hún, en átti til þessa geislandi glettni, var samt einörð ef því var að skipta, átti einlæga skaphöfn og einbeittar skoðanir og þannig var hún alla ævitíð, hversu sem á gekk á lífsgöngunni. Hún var prýðilega greind, samviskusöm með af- Aðalheiður Karlsdóttir ✝ AðalheiðurKarlsdóttir fæddist á Fáskrúðs- firði 17. febrúar 1939. Hún lést á Landspítalanum í Fossvogi 29. mars 2011. Aðalheiður var jarðsungin frá Víði- staðakirkju í Hafn- arfirði 4. apríl 2011. brigðum og skilaði öllu frá sér með ágætum, hvort sem var á bóklega eða verklega sviðinu. Hjartahlýjan var þó öllu æðri, hún Alla var ein þeirra sem manni þótti einfald- lega svo vænt um og sama var hvenær fundum okkar bar saman þá var birtan í brosinu söm við sig, faðmlagið hlýtt, þessa alls er gott að minn- ast. Alla mín og systkini hennar eru öll miklir góðvinir okkar hjóna, afbragðsfólk í sjón og raun eins og þau eiga kyn til. Þær voru heldur ekki amalegar móttökurn- ar sem við Ingvar, kennararnir ungu, hlutum í heimsóknum til móður þeirra þar sem rausnin og góðvildin réðu allri ferð. Þar átti hún Alla sitt kærkomna frum- kvæði, sem við mátum svo mikils. Hún Alla mín var dugmikil kona og myndvirk, átti fallegt heimili og lífsvakt sína stóð hún meðan stætt var heilsunnar vegna. Þar eiga margir henni þökk að gjalda. Í björtum ljóma góðra minninga kveðjum við hana Öllu vinkonu okkar og biðjum öllu hennar fólki blessunar. Við Hanna þökkum einlæglega samfylgdina, þar gekk um lífsveg góð kona. Blessuð sé minning Aðalheiðar Karlsdóttur. Helgi Seljan.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.