Morgunblaðið - 07.04.2011, Síða 33
Skapti Hallgrímsson
skapti@mbl.is
Afrek Vopnfirðingsins Björgvins
Guðmundssonar á tónlistarsviðinu
voru mikil; fáheyrð má segja, þegar
haft er í huga að hann var sjálf-
menntaður í músík. Þess verður
minnst með hátíð í Hofi á Akureyri á
sunnudaginn, að 120 ár eru síðar í
mánuðinum frá fæðingu tónskálds-
ins, sem bjó og starfaði í höfuðstað
Norðurlands síðustu þrjá áratugi
ævinnar.
Flutt verður ein kantata Björg-
vins, Til komi þitt ríki, undir stjórn
Roars Kvam, einnig nokkur ein-
söngslög og þá flytja leikararnir
Edda Björg Eyjólfsdóttir, Jóhann G.
Jóhannsson og Sunna Borg valda
þætti úr söngleiknum Skrúðsbónd-
anum eftir Björgvin, í leikstjórn
Maríu Sigurðardóttur.
Loks verður sýnd kvikmynd Vig-
fúsar Sigurgeirssonar um söngferð
Kantötukórs Akureyrar til Norður-
landanna árið 1951.
Það þótti hjákátlegt...
Björgvin fæddist að Rjúpnafelli í
Vopnafirði 26. apríl árið 1891. For-
eldrar hans voru Guðmundur Jóns-
son úr Vopnafirði og Anna Margrét
Þorsteinsdóttir af Héraði og bjó fjöl-
skyldan á heiðarkotinu Mælifelli þar
sem búskapur var afar erfiður.
Björgvin átti sér þann draum í
æsku að verða bóndi á Rjúpnafelli
og koma þar upp stórbýli en
snemma náði tónlistin tökum á hon-
um, þótt hann byggi í raun langt frá
nánast allri tónlist. Fyrirmyndir
voru engar nema söngur í kirkjunni
en eftir að hann lærði sálmana fór
Björgvin að velta því fyrir sér hvort
hann gæti ekki samið sjálfur slík lög.
Og hófst svo handa.
Nágranni fjölskyldunnar í sveit-
inni leiðbeindi Björgvin lítillega á
orgel en aðra leiðsögn fékk hann
ekki fyrr en löngu síðar.
„Mörgum fannst heldur hjákát-
legt að drengur í afdal væri að semja
músík en hann lét það ekki á sig fá.
Hann átti sér draum sem gat ekki
ræst – en rættist samt,“ segir Hauk-
ur Ágústsson á Akureyri sem hefur
ritað bók um Björgvin. Hún kemur
út á sunnudaginn.
Þorsteinn bróðir Björgvins hafði
flutt til Kanada en kom heim á ný
eftir að faðir þeirra lést og tók við
búinu. Þorsteinn virðist hafa haft trú
á því að Björgvin ætti erindi í tónlist
og gæti vegnað vel í Kanada, segir
Haukur. Þorsteinn fór því með bróð-
ur sinn, móður þeirra og systkini, ut-
an 1911 og Björgvin bjó og starfaði í
Kanada um 20 ára skeið. Hann gat
fráleitt lifað af tónlistinni og vann
ýmis erfiðisstörf, að sögn Hauks, en
notaði flestar lausar stundir til að
semja tónlist.
Árið 1913 hóf Björgvin að semja
fyrsta stórvirki sitt, Strengleika, og
þegar því lauk, 1917, var hann feng-
inn til að verða kórstjóri Vestur-
Íslendinga og varð fljótt vinsæll sem
slíkur. Hafði þó aldrei lært neitt í
kórstjórn!
Kostaður til náms
Haukur Ágústsson segir að til hafi
orðið hreyfing á meðal Íslendinga í
Vesturheima um að koma þessum
unga manni til mennta; til þess að
hann gæti borið merki þeirra og
þjóðarinnar hátt í Vesturheimi. Auð-
menn komu ekki að, segir Haukur,
einungis almúginn en til varð sjóður
sem nýttur var til að senda Björgvin
til náms í Royal College of Music í
London. Eftir tvö ár á skólabekk
hélt Björgvin aftur til Kanada og
starfaði þar um hríð. En á þessum
árum var hart barist um störfin og
þegar Björgvini bauðst starf á Ak-
ureyri árið 1931 flutti hann þangað
ásamt eiginkonu sinni og dóttur og
varð kennari bæði við barnaskólann
og menntaskólann. Auk þess að
kenna tónlist var hann með kór í
báðum skólum og fljótlega eftir
komuna til Akureyrar stofnaði
Björgvin Kantötukór, blandaðan kór
eins og hann var vanur að stjórna
fyrir vestan. Honum fannst til-
hlýðilegt að konur fengju tækifæri
til þess að syngja í kór ekki síður en
karlar. Kórinn var starfræktur allt
þar til Björgvin dró sig í hlé, um
miðjan sjötta áratuginn.
Stórmerkilegt
„Sem tónskáld má segja að hann
hafi verið uppi 200 árum of seint;
Björgvin samdi í gömlum stíl. Áhrif
frá Händel eru greinileg, bæði í óra-
tóríum og öðru. En það er ekkert
hægt að setja út á músíkina; hand-
verkið er fínt, þótt segja megi að na-
ívismi sé í músíkinni og hana vanti
þá dýpt sem stóru meistararnir hafa,
en það er stórmerkilegt að hann
semji svona risatónverk, ómennt-
aður maðurinn. Það finnst mér alveg
magnað,“ segir Roar Kvam við
Morgunblaðið.
Það eru félagar úr Karlakór Ak-
ureyrar – Geysi, kór Akureyr-
arkirkju og kvennakórinn Embla
sem syngja á hátíðinni á sunnudag-
inn; alls nærri 70 manns. Þá koma
fram einsöngvararnir Helena Guð-
laug Bjarnadóttir, Sigrún Arna Arn-
grímsdóttir, Óskar Pétursson og
Benedikt Ingólfsson. Aladár Racz
leikur á píanó.
Hátíðardagskráin í Hofi hefst kl.
16.00 á sunnudaginn. Það eru nokkr-
ir velunnarar tónskáldsins sem efna
til hátíðarinnar og er Ingvar Gísla-
son, fyrrverandi menntamálaráð-
herra, formaður undirbúnings-
nefndar.
Ótrúlegt afrek hjá
sjálfmenntuðum manni
Hátíð í Hofi í tilefni
af 120 ára fæðingar-
afmæli Björgvins
Guðmundssonar
Afreksmaður Vopnfirðingurinn
Björgvin Guðmundsson tónskáld.
MENNING 33
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 7. APRÍL 2011
Brúðuheimar í Borgarnesi
530 5000 | hildur@bruduheimar.is
GILITRUTT
Sun 17/4 kl. 14:00 Lau 23/4 kl. 14:00
Tjarnarbíó
5272100 | tjarnarbio@leikhopar.is
Darí Darí Dance Company / Steinunn og Brian
Sun 10/4 kl. 20:00
sýn.ar hefjast 20 og 21
Sun 10/4 kl. 21:00
2 íslensk dansverk frumflutt!
Janis Joplin Stund með BryndísiÁsmunds
Lau 30/4 kl. 20:00
Daníel Ágúst - Útgáfutónleikar
Mið 13/4 kl. 21:00
Óperudraugurinn
Lau 7/5 kl. 20:00
Draumaraddir norðursins, Stúlknakór Norðurlands vestra og Ópera
Skagafjarðar
Íslenska óperan
511 4200 | midasala@opera.is
PERLUPORTIÐ - sprellfjörug óperuskemmtun!
Fös 8/4 kl. 20:00 Lau 16/4 kl. 20:00
Aðeins þessar tvær sýningar!
Landnámssetrið í Borgarnesi
437 1600 | landnamssetur@landnam.is
Mr. Skallagrímsson eftir Benedikt Erlingsson
(Söguloftið - sýningum lýkur í vor)
Fös 29/4 kl. 20:00
Tvær Grímur 2007 - Besti leikari - Besta handritið
Þetta er lífið
5629700 | opidut@gmail.com
Þetta er lífið...og om lidt er kaffen klar.
Fös 8/4 kl. 20:00
sýnt í hofi - akureyri
Lau 9/4 kl. 16:00
sýnt í hofi - akureyri
Lau 9/4 kl. 20:00
sýnt í hofi - akureyri
Sun 10/4 aukas. kl. 20:00 Ö
SÝNT 8. OG 9. APRÍL Í HOFI AKUREYRI. ALLRA SÍÐUSTU SÝNINGAR!
Leikhúsin í landinu
www.mbl.is/leikhus Uppselt Örfá sæti laus FarandsýningU Ö F
Forsala á alla viðburði í Eymundsson
Fim. 7. apríl
Opnunarhátíð – DJ kvöld kl. 21:00
Danni Deluxe, Futuregrapher, Beatmakin Troopa & DJ Andre.
Græni Hatturinn Akureyri
sími 461 4646 / 864-5758
Fös. 8. apríl
Tónleikar – kl. 22:00
Agent Fresco, Cliff Clavin & Who Knew.
Lau. 9. apríl
Tónleikar – kl. 22:00
Captain Fufano, Endless Dark & Forgotten Lores.
ÞJÓÐLEIKHÚSI
SÍMI: 551 1200 • WWW.LEIKHUSID.IS
Ð
Bjart með köflum (Stóra sviðið)
Fim 7/4 kl. 20:00 Forsýn. Lau 16/4 kl. 20:00 4.sýn. Lau 7/5 kl. 20:00 8.sýn.
Fös 8/4 kl. 20:00 Frums. Fim 28/4 kl. 20:00 5.sýn. Fös 13/5 kl. 20:00
Lau 9/4 kl. 20:00 2.sýn. Fös 29/4 kl. 20:00 6. sýn. Lau 14/5 kl. 16:00 Br.sýn.tími
Fös 15/4 kl. 20:00 3.sýn. Fös 6/5 kl. 20:00 7.sýn. Fim 19/5 kl. 20:00
Allt að verða uppselt í apríl. Sýningar í maí komnar í sölu.
Allir synir mínir (Stóra sviðið)
Mið 13/4 kl. 20:00 Lau 30/4 kl. 20:00 Mið 11/5 kl. 20:00
Fim 14/4 kl. 20:00 Mið 4/5 kl. 20:00 Fim 12/5 kl. 20:00
Mið 27/4 kl. 20:00 Fim 5/5 kl. 20:00 Mið 18/5 kl. 20:00
Fjórar og hálf stjarna í Mbl. I.Þ og DV J.V.J
Ballið á Bessastöðum (Stóra sviðið)
Sun 10/4 kl. 14:00 Sun 1/5 kl. 14:00 Sun 15/5 kl. 14:00
Sun 10/4 kl. 17:00 Sun 1/5 kl. 17:00 Sun 22/5 kl. 14:00
Sun 17/4 kl. 14:00 Sun 8/5 kl. 14:00
Sun 17/4 kl. 17:00 Sun 8/5 kl. 17:00
Fálkaorður og fjör - sýning fyrir alla fjölskylduna!
Brák (Kúlan)
Fös 8/4 kl. 20:00 Þri 12/4 kl. 20:00 Fös 15/4 kl. 20:00 Síð.sýn.
Síðasta sýning 15. apríl!
Sindri silfurfiskur (Kúlan)
Sun 10/4 kl. 15:00 Sun 17/4 kl. 15:00
Yndisleg sýning fyrir yngstu áhorfendurna.
Hedda Gabler (Kassinn)
Lau 9/4 kl. 20:00 Lau 16/4 kl. 20:00 Lau 30/4 kl. 20:00
Sun 10/4 kl. 20:00 Sun 17/4 kl. 20:00 Sun 1/5 kl. 20:00
Ein mest ögrandi og umdeildasta kvenpersóna leikbókmenntanna.
568 8000 – borgarleikhus.is – midasala@borgarleikhus.is
NEI, RÁÐHERRA! (Stóra sviðið)
Fim 7/4 kl. 20:00 Lau 30/4 kl. 19:00 Sun 15/5 kl. 20:00
Lau 9/4 kl. 19:00 Lau 30/4 kl. 22:00 Fim 19/5 kl. 20:00
Lau 9/4 kl. 22:00 aukasýn Fim 5/5 kl. 20:00 Fös 20/5 kl. 19:00
Sun 10/4 kl. 20:00 Lau 7/5 kl. 19:00 Lau 28/5 kl. 19:00
Sun 17/4 kl. 20:00 Sun 8/5 kl. 20:00 Sun 29/5 kl. 20:00
Fös 29/4 kl. 19:00 Fös 13/5 kl. 19:00
Fös 29/4 kl. 22:00 aukasýn Fös 13/5 kl. 22:00 aukasýn
Tveggja tíma hláturskast...með hléi
Strýhærði Pétur (Litla sviðið)
Fim 7/4 kl. 20:00 aukasýn Sun 10/4 kl. 20:00 aukasýn Fös 29/4 kl. 20:00 9.k
Fös 8/4 kl. 20:00 5.k Sun 17/4 kl. 20:00 7.k Lau 30/4 kl. 20:00 10.k
Lau 9/4 kl. 20:00 6.k Fim 28/4 kl. 20:00 8.k
Krassandi ruslópera. Áhorfendur standa á sýningunni. Ekki við hæfi ungra barna.
Húsmóðirin (Nýja sviðið)
Fös 8/4 kl. 20:00 forsýn Fös 6/5 kl. 20:00 6.k Mið 25/5 kl. 20:00 16.k
Lau 9/4 kl. 20:00 Lau 7/5 kl. 20:00 7.k Lau 28/5 kl. 20:00 aukasýn
Sun 10/4 kl. 20:00 forsýn Sun 8/5 kl. 20:00 8.k Sun 29/5 kl. 20:00 17.k
Þri 26/4 kl. 20:00 forsýn Fös 13/5 kl. 20:00 9.k Þri 31/5 kl. 20:00 18.k
Mið 27/4 kl. 20:00 frumsýn Sun 15/5 kl. 20:00 10.k Mið 1/6 kl. 20:00 19.k
Fim 28/4 kl. 20:00 2.k Þri 17/5 kl. 20:00 11.k Fim 2/6 kl. 20:00 20.k
Fös 29/4 kl. 20:00 aukasýn Mið 18/5 kl. 20:00 12.k Fös 3/6 kl. 20:00 21.k
Lau 30/4 kl. 20:00 3.k Fim 19/5 kl. 20:00 aukasýn Lau 4/6 kl. 20:00 22.k
Þri 3/5 kl. 20:00 4.k Fös 20/5 kl. 20:00 13.k Sun 5/6 kl. 20:00
Mið 4/5 kl. 20:00 5.k Sun 22/5 kl. 20:00 14.k
Fim 5/5 kl. 20:00 aukasýn Þri 24/5 kl. 20:00 15.k
Samvinnuverkefni Borgarleikhússins og Vesturports
Afinn (Stóra sviðið)
Fös 8/4 kl. 19:00 Lau 16/4 kl. 20:00 Fim 28/4 kl. 20:00
Óumflýjanlegt framhald Pabbans
Nýdönsk í nánd (Stóra sviðið)
Fim 14/4 kl. 20:00 Fös 15/4 kl. 19:00 Fös 15/4 kl. 22:00
Sáldrandi brjáli sem aldrei fyrr
Eldfærin (Stóra sviðið)
Lau 9/4 kl. 13:00 3.k Lau 16/4 kl. 13:00 Lau 30/4 kl. 13:00
Lau 9/4 kl. 14:30 4.k Lau 16/4 kl. 14:30 5.k Lau 30/4 kl. 14:30
Sun 10/4 kl. 13:00 Sun 17/4 kl. 13:00 Sun 1/5 kl. 13:00
Sun 10/4 kl. 14:30 Sun 17/4 kl. 14:30 Sun 1/5 kl. 14:30
Sögustund með öllum töfrum leikhússins
Strýhærði Pétur – „Heillandi sýning!“ - E.B. Fbl
Leikfélag Akureyrar
Miðasölusími: 4 600 200, netfang: midasala@leikfelag.is
Farsæll farsi (Samkomuhúsið)
Fös 8/4 kl. 20:00 13.sýn Fim 21/4 kl. 20:00 16.sýn
Lau 16/4 kl. 19:00 15.sýn Lau 23/4 kl. 20:00 17.sýn
Krassandi kómík - framhjáhald, ruglingur og dúndrandi stuð
Í sannleika sagt (Samkomuhúsið)
Fös 15/4 kl. 20:00 Ný sýn
Uppistand með Pétri Jóhanni
Fáðu fréttirnar
sendar í símann þinn