Morgunblaðið - 07.04.2011, Side 40

Morgunblaðið - 07.04.2011, Side 40
 Íslenski dans- flokkurinn mun halda út fyrir land- steinana í apríl- mánuði til að sýna á tveimur virtum alþjóð- legum danshátíðum. 12. apríl verður Ís- lenski dansflokkurinn á 10. International Tanztage í Oldenburg í Þýskalandi og þann 15. apríl á al- þjóðlegri danshátíð í Post- hof í Linz. FIMMTUDAGUR 7. APRÍL 97. DAGUR ÁRSINS 2011 VEÐUR » 8 www.mbl.is 5 6 9 1 1 0 0 Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is Auglýsingar: augl@mbl.is Áskrift: askrift@mbl.is | sími 5691100 mbl.is: netfrett@mbl.is Í LAUSASÖLU 399 ÁSKRIFT 4390 HELGARÁSKRIFT 2750 PDF Á MBL.IS 2550 1. Eiginmaðurinn tók á móti barninu 2. „Er með 4000 pund á tímann…“ 3. Lýst eftir 17 ára stúlku 4. Íslendingur í 14 ára fangelsi »MEST LESIÐ Á mbl.is FÓLK Í FRÉTTUM  Hljómsveitirnar Agent Fresco og Who Knew munu spila á Hróars- kelduhátíðinni í sumar. Þær munu leika á Pavilion Junior-sviðinu, sem er notað á upphitunardögunum fyrir hátíðina. Hátíðin hefst 30. júní. Agent Fresco og Who Knew á Hróarskeldu  Matthías Jo- hannessen, skáld og fyrrverandi rit- stjóri Morgun- blaðsins, mun lesa upp úr verk- um sínum á Bryggjunni í Grindavík á morg- un kl. 20.30. Auk ljóðalesturs mun Matthías lesa úr bókinni um Pál Ísólfsson og Grinda- víkursinfónían flytur nokkur lög Árna Johnsen við ljóð Matthíasar. Matthías Johann- essen les í Bryggjunni Íslenski dansflokk- urinn á faraldsfæti Á föstudag Sunnan og suðvestan 8-13 m/s og dálítil væta, en úr- komulítið á austanverðu landinu. Hiti 5 til 10 stig. Á laugardag Sunnanátt, víða súld eða rigning. Hiti 7-15 stig. SPÁ KL. 12.00 Í DAG Rigning eða slydda syðra og vestantil. Suð- vestan 13-20 m/s og skúrir síðdegis, hægari og úrkomulítið eystra. Hiti 5 til 10 stig síðdegis. VEÐUR KA vann auðveldan sigur á Þrótti R. í gær og tryggði sig þar með í úrslit í blaki karla. KA vann leikinn 3:0 en það var að- eins síðasta lotan sem var spennandi. Stjarnan jafnaði hinsvegar metin gegn HK þegar liðin mættust í Garðabænum. Oddahrinu þurfti til en þar voru heimamenn sterkari og tryggðu sér því oddaleik í Fagralundi sem fer fram á morgun. KA í úrslit en Stjarnan og HK mætast aftur Hólmfríður Magnúsdóttir, landsliðs- kona í knattspyrnu, glímir enn við meiðsli og óvíst er að hún geti spilað með Philadelphia Independence þegar banda- ríska atvinnu- deildin fer af stað á ný næsta sunnu- dagskvöld. „Ég píni mig ekki til að spila eins og ég gerði síð- asta haust,“ segir Hólmfríður við Morgun- blaðið. »1 Óvissa hjá Hólmfríði í upphafi tímabils Manchester United vann Chelsea 1:0 með marki frá Wayne Rooney í 8-liða úrslitum Meistaradeildarinnar í gær. Fernando Torres hefur ekki enn náð að skora og staða Chelsea er erfið fyrir seinni leikinn. Mikið þarf að ger- ast ef Chelsea ætlar sér í undan- úrslit. Þá gerðu leikmenn Barcelona það sem ætlast var til og unnu stór- sigur á Shakhtar 5:2. » 1 Torres ekki enn búinn að skora fyrir Chelsea ÍÞRÓTTIR Skannaðu kóðann með símanum þínum og fylgstu með veðrinu á Kristján Jónsson kjon@mbl.is „Ég veit að þetta er voðalega nörda- legt en ég ætla að verða forsætisráð- herra!“ segir Íva Marín Adrichem, 12 ára nemandi í Hofstaðaskóla í Garðabæ, þegar spurt er um framtíð- ardraumana. Íva Marín sigraði ný- lega í alþjóðlegri ritgerðasamkeppni Lions-hreyfingarinnar fyrir blind og sjónskert ungmenni en viðfangsefnið var friður. „Ég skrifaði um það hvernig við skilgreinum það að búa við frið, það getur verið ófriður þó að ekki sé stríð,“ segir Íva Marín sem segist fylgjast talsvert með fréttum. „Ég sagði líka frá því hvernig ég vona að við vinnum að friði þegar við verðum orðin fullorðin, að minnsta kosti vona ég að við gerum það.“ En tala krakkar á hennar aldri mikið saman um málefni eins og frið og stríð? Íva Marín hikar. „Nei, ekki mikið. Það er mest talað um föt og tísku, allavega gera stelpurnar það!“ svarar hún hlæjandi. Hún fæddist blind en lætur það ekki aftra sér í námi og félagslífi. Henni hefur gengið vel í ritgerð og var með 9,5 í íslensku á samræmdu prófunum. Íva Marín byrjar í ung- lingadeild í Garðaskóla í haust. Hún fæddist á Íslandi en ólst að hluta upp í Hollandi, pabbi hennar er hollenskur. „Ég tala alltaf hol- lensku við hann og held að mér finnist mest gaman að tungumálum. En mér gengur líka vel í stærð- fræði þó að sumar form- úlurnar geti verið erfiðar. Líklega læri ég seinna mál- vísindi í háskóla. En svo langar mig líka að læra um bókmenntir og fara í fram- haldsnám í bæði söng og pí- anóleik.“ Íva Marín hefur verið í tím- um hjá Sönglist í Borgarleikhúsinu, er að læra á píanó og er nú í ung- lingakór í Langholtskirkju. Þarf að skipuleggja daginn „Það getur stundum verið erfitt að finna tíma til að læra heima,“ segir hún, oft þurfi að skipuleggja daginn vel. Hún hefur síðustu tvö árin átt mjög fullkomna tölvu. Á henni er sér- stakur skjár með galdrabúnaði sem hvorki blaðamaður né Íva Marín geta lýst vel en virkar þannig að hún getur lesið blindraletur á skjánum með því að snerta hann. Sjálft lykla- borðið er annars hefðbundið. „Hljóðgervillinn er ekki alltaf nógu góður, stundum blandar hann saman ensku og íslensku! En tölvan bilaði einu sinni og þá komst ég að því hvað það var erfitt að vera án hennar,“ segir Íva Marín. Framtíðin er björt ef maður vill  Íva Marín vill læra söng – og verða forsætisráð- herra Verðlaun Frá athöfn í Lionsheimilinu í Reykjavík, tvö önnur börn voru einnig heiðruð fyrir framlög sín í keppninni, þau Sandra Sif Gunnarsdóttir og Ólafur Einar Ólafsson en Íva Marín Adrichem er önnur frá hægri á myndinni. Lengst t.v. er Kristinn Hannesson, fjölumdæmisstjóri Lions á Íslandi og lengst t.h. Guðrún Yngvadóttir í Lions- klúbbnum Eik í Garðabæ og alþjóðastjórnarmaður Lions. Þema ritgerðasamkeppni Lions- hreyfingarinnar var „Kraftur friðarins“, markmiðið var að hvetja 11-13 ára ungmenni til að leggja sitt af mörkum í friðarumræðunni. Vinn- ingsritgerð Ívu Marínar hefur verið þýdd á ensku og send í alþjóðlegu keppn- ina, úrslit verða kynnt í lok júní. Samband Lionsklúbba stendur fyrir keppninni um allan heim, í samstarfi við Menningarmálastofnun Sam- einuðu þjóðanna, UNESCO. Samkeppni um gerð friðar- veggspjalds hefur verið haldin ár- lega í rúm 20 ár. Er 11-13 ára ung- mennum þá gefinn kostur á að tjá sig í myndlist og túlka hugmyndir sínar um frið og framtíðarsýn, í lit- um, línum og formum. Um fjórar milljónir ungmenna í yfir 100 lönd- um hafa tekið þátt í þessari sam- keppni Lionshreyfingarinnar. Að þessu sinni var ákveðið að gefa blindum og sjónskertum einnig kost á að skrifa ritgerð um efnið. „Kraftur friðarins“ kannaður RITGERÐASAMKEPPNI LIONSHREYFINGARINNAR Friðargyðjan Irene

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.