Morgunblaðið - 04.05.2011, Blaðsíða 4

Morgunblaðið - 04.05.2011, Blaðsíða 4
4 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 4. MAÍ 2011 KAERA KONA taktu frá fimmtudaginn 5. maí kl. 18:00 ... BAKSVIÐ Steinþór Guðbjartsson steinthor@mbl.is Framkvæmdir við tvöföldun og breikkun Suðurlandsvegar frá Fossvöllum í Lögbergsbrekku, of- an við Lækjarbotna, að Drauga- hlíðarbrekku austan við Litlu kaffi- stofuna eru hafnar á ný, en hlé var gert á vinnunni eftir áramót. Vegakaflinn er um 6,5 km langur og á framkvæmdum að ljúka í haust, en reyndar er gert ráð fyrir að endanlegum frágangi ljúki ekki fyrr en á næsta ári. Að mestu leyti er um tvöföldun að ræða en þriggja akreina veg að hluta. Í fyrra var sett eins metra þykk fylling ofan á hluta vegarins til þess að láta hann síga og nú er verið að flytja fyll- inguna á þann hluta sem eftir er. Brú og göng Jónas Snæbjörnsson, svæðis- stjóri Vegagerðarinnar, segir að fljótlega verði byrjað að byggja nýja fjögurra akreina brú á móts við endann á flugbrautinni á Sand- skeiðinu. Auk þess verði senn hafist handa við að byggja undirgöng á móts við Litlu kaffistofuna, en þau séu hugsuð fyrir gangandi vegfar- endur, fólk á hestum og annað úti- vistarfólk. Meðan á framkvæmdun- um standi verði gerð lykkja á veginn til að verkið valdi vegfar- endum ekki truflunum. Um þessar mundir starfa um 15 til 20 manns við verkið, en síðan eiga smiðir eftir að bætast í hópinn. Vegagerðin vinnur líka að tvö- földun á Vesturlandsvegi, frá Ála- fosshringtorginu upp að Þingvalla- hringtorginu. Þar á framkvæmdum einnig að ljúka í haust. Suðurstrandarvegur á áætlun Framkvæmdir við Suðurstrand- arveg halda líka áfram og á þeim að ljúka endanlega á næsta ári. Um 33 km kaflanum milli Krísuvíkurvegar og Þorlákshafnarvegar á að ljúka í september, en um 14 km veginum á milli Ísólfsskála og Krísuvíkurveg- ar 2012. Annars vegar er um að ræða verk sem var boðið út í fyrra og hins vegar verk sem var boðið út 2008. Svanur Bjarnason umdæmis- stjóri segir að 23 menn vinni hjá Suðurverki í kaflanum sem á að ljúka 2012, en vinna hjá KNH við hinn hlutann hafi legið niðri í vetur. Verkið sé á áætlun en tveimur áföngum sé lokið og um 12 km séu eftir. Auk þessara verka vinnur Vega- gerðin smærri verk víðs vegar um landið. Þar má nefna verk á Vest- fjarðavegi við Skálanes, sem fór í gang um páskana. Í sumar verður auk þess unnið áfram á norðaust- urvegi til Vopnafjarðar, en verkinu á að ljúka á næsta ári. Síðan er um að ræða ýmis frágangsverk. Eftir er að ganga frá veginum við Hvít- árbrú og leggja þar slitlag. Sömu sögu er að segja um veginn að Dettifossi og svo má nokkuð lengi telja en allt eru þetta minni verk. Morgunblaðið/Kristinn Suðurlandsvegur Í fyrra var sett fylling ofan á hluta vegarins til þess að láta hann síga og nú er verið að flytja fyllinguna á þann hluta sem eftir er. Hjólin farin að snúast  Framkvæmdir við tvöföldun og breikkun Suðurlandsvegar og tvöföldun á Vesturlandsvegi hafnar á ný  Unnið að minni verkum víðs vegar um land Bráðabirgðaniðurstaða krufningar á ungu konunni sem lést í Árbæn- um síðastliðinn laugardag varpaði ekki ljósi á orsök andlátsins. Þetta segir Björgvin Björgvinsson, að- stoðaryfirlögregluþjónn hjá Lög- reglunni á höfuðborgarsvæðinu. Ýmislegt er talið benda til þess að konan hafi orðið fíknefnum að bráð, en óyggjandi sannanir liggja ekki fyrir. Talið er að hún hafi neytt svonefnds PMMA-efnis en það er skynbreytandi amfetamíns- afleiða sem valdið hefur fjölda dauðsfalla í mörgum löndum síð- ustu árin. Björgvin segir að niðurstöðu sé ekki að vænta í bráð um orsök andlátsins. Verið sé að rannsaka töluverðan fjölda sýna. Björgvin segir það yfirleitt taka um þrjár vikur að fá niðurstöðu úr slíkri rannsókn. Lögreglan á Borgarnesi fann fyrst PMMA-efnið hér á landi, í töfluformi. Merki um fíkniefna- neyslu fundust í íbúðinni þar sem stúlkan lést. „Við erum ekki nærri því hvort þetta efni sem var notað þarna í partíinu er það sama og fannst í Borgarnesi. Við verðum bara að bíða eftir niðurstöðunum,“ segir Björgvin. Margir hafa verið teknir í skýrslutöku og yfirheyrðir út af málinu, eða um tuttugu manns. Orsök and- látsins er enn óljós  Niðurstöðu ekki að vænta í bráð Fundur Íslands, Bretlands, Ír- lands og Danmerkur, fyrir hönd Færeyja, um Hatton Rockall- málið var afar jákvæður, að sögn Tómasar H. Heiðar, þjóðréttar- fræðings utanríkisráðuneytisins og formanns samninganefndar Ís- lands. Fundurinn var haldinn í ut- anríkisráðuneytinu í Reykjavík í gær og tóku níu fulltrúar þjóð- anna þátt í fundinum. Hann segir að aðilarnir fjórir hafi m.a. rætt hugmyndir um skiptingu landgrunns Hatton Roc- kall-svæðisins sem þeir gera allir tilkall til. Tómas segir að þessar hugmyndir verði nánar ræddar á næsta fundi um Hatton Rockall- málið sem gert er ráð fyrir að verði haldinn í London í septem- ber nk. aij@mbl.is Jákvæður fundur um Hatton Rockall Eiríkur Tómasson, Greta Baldursdóttir og Þorgeir Örlygsson hafa verið skip- uð hæstaréttardómarar frá og með 1. september. Í tilkynningu kemur fram að forseti Íslands hafi fallist á tillögu innanríkisráðherra um að skipa þau þrjú í embætti. Eiríkur og Greta tóku við skipunarbréfum úr hendi Ögmundar Jón- assonar innanríkisráðherra í gær. Þorgeir Örlygsson er staddur erlendis. Skipuð hæstaréttardómarar Hreinn Haraldsson vegamálastjóri rifjar upp að gert hafi verið ráð fyrir sex milljörðum króna til nýrra vegaframkvæmda í ár. Þar af hafi verið búið að skuldbinda yfir þrjá milljarða í verk sem hafi verið boðin út áður. Viðbótin fari nokkuð víða í smærri verk og engin stór verk séu í augsýn. Á meðal verkefna sem á að bjóða út má nefna undirgöng á Reykjanesbraut við Reykjanesbæ og undirgöng við álverið í Straumsvík. Þá á að gera við brýr yfir Tunguá, Þambá, Hrófá og Fellsá á Inn- strandavegi og brúna yfir Þorskafjarðará á Vest- fjarðavegi. Fjármagn í smærri verk HENDUR VEGAGERÐARINNAR BUNDNAR Hreinn Haraldsson Herjólfur siglir tvær ferðir til Land- eyjahafnar í dag. Að sögn upplýs- ingafulltrúa Eimskips verður siglt inn í höfnina á flóði og þar með verði dýpið í hafnarmynninu nægjanlegt fyrir skipið. Þetta er í fyrsta skipti frá því um miðjan janúar sem Herj- ólfur siglir til Landeyjahafnar. Fyrsta ferð frá Vestmannaeyjum er klukkan 7:30 og siglt verður til Þorlákshafnar og aftur til Vest- mannaeyja frá Þorlákshöfn klukkan 11:15. Önnur ferð Herjólfs verður farin frá Vestmannaeyjum klukkan 16 í Landeyjahöfn og aftur til Vest- mannaeyja klukkan 17:40. Þriðja og síðasta ferð Herjólfs frá Eyjum er áætluð klukkan 19 í Landeyjahöfn og aftur til Eyja klukkan 20:15. Herjólfur siglir til Landeyja- hafnar

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.