Morgunblaðið - 04.05.2011, Qupperneq 11
Næsta stóra ferðalag Katrínar
hefst í lok mánaðarins þegar hún fer
til Afríku þar sem hún ætlar að vera í
fimm vikur. Þar hefur henni verið
boðið að halda erindi á ráðstefnu um
Viðskiptavinir Símans
fá 25% afslátt af
GSM aukahlutum í dag!
Magnaðir
miðvikudagar!
GSM
ferðahleðslutæki
á 25% afslætti
Fólk giftir sig að sjálfsögðu á öllum
árstímum en nú rennur þó upp sá
tími árs sem margir kjósa að gifta
sig. Njóta sólarinnar og sumaryls-
ins á þessum sérstaka degi. Að
mörgu er að hyggja fyrir
brúðkaup og kostnaður-
inn getur orðið mikill
enda vill fólk
gera þennan dag
alveg einstakan.
Á sumum sviðum
má þó vel spara með
sniðugum hug-
myndum. Vefsíðan zella-
guide.com er einmitt hugs-
uð fyrir brúðir sem hafa
glöggt auga fyrir föndri og
nostri þegar kemur að borða-
skreytingum og öðru slíku. Á
síðunni er að finna margar
sniðugar hugmyndir að því
hvernig nota má blóm á nýstár-
legan hátt og klippa og föndra
út ýmiss konar fallegt borð-
skraut. Á vefsíðunni er að finna
góðar leiðbeiningar og myndir og er
sjón sannarlega sögu ríkari.
Vefsíðan
www.zellaguide.com
Krúttlegt Þessar sætu uglur geta
skreytt borðið sem brúðhjónin sitja á.
Sniðugar
brúðkaups-
hugmyndir
sjálfbæran ferðaiðnað, en það er efn-
ið sem meistararitgerð hennar frá HÍ
og Berkeley-háskóla í Kaliforníu
fjallaði um.
og þannig var ég t.d. sex vikur í
Equador eitt sumarið. Stundum er ég
bara á bakpokaferðalagi um löndin
og er þá í styttri tíma á hverjum stað
– ég eyddi t.d. bara örfáum dögum í
El Salvador. Sum löndin hef ég heim-
sótt oft svo það er allur gangur á
þessu.“
Og það er enginn vafi á því hvað
heillar við ferðalögin. „Mér finnst
menntun mjög mikilvæg og m.a. þess
vegna er ég með meistaragráðu en ég
hef lært miklu meira á ferðalögunum
en í skólunum sem ég hef gengið í.
Ferðalög eru svo góð leið til að læra
um heiminn, annað fólk og menningu
og maður lærir jafnvel önnur tungu-
mál. Ég lærði t.d. spænsku af því að
ferðast um Suður-Ameríku í tvö sum-
ur. Um leið verður maður betri
manneskja af því að þurfa að spjara
sig við ólíkar aðstæður.“
Katrín Sif er styrkt af ferðavef-
síðunni www.dohop.com gegn því að
hún skrifi ferðapistla. „Það dugir hins
vegar ekki til framfærslu að fullu.
Draumurinn er að lifa af því að skrifa
um ferðalög í framtíðinni. Sem stend-
ur einbeiti ég mér að því að byggja
upp ferilskrána og smám saman von-
ast ég til að byggja upp orðspor mitt
sem ferðapenni. En mig langar líka
til að læra meira og er að sækja um
doktorsnám í ferðamennskufræðum.
Venjulega er slíkt nám styrkt með
einhverjum hætti svo ég gæti þá ver-
ið í námi að læra um ferðamennsku
um leið og ég nýtti ferðalögin til
rannsókna fyrir doktorsverkefnið.“
Veraldlegir hlutir lítils virði
Hún bætir því við að ferðalögin
hafi veitt henni nýja sýn á lífið. „Það
sem angrar mig mest við vestræna
lifnaðarhætti er að þeir eru svo orku-
frekir. Hver einstaklingur notar svo
Mikilfenglegur Við Kaiteur-fossinn í Guyana en mamma hennar er þaðan. Útsýni Á toppi Borðfjallsins, Table Mountain, í Cape Town í Suður-Afríku.
mikið af auðlindum jarðar bara í dag-
legu lífi – allir eiga tvo bíla og kaupa
sér ný föt um hverja helgi. Þegar ég
kem aftur til Reykjavíkur eftir ferða-
lög reyni ég að passa inn í hópinn en
finn strax að það kostar mikið að gera
mjög lítið. Á stöðum eins og Arg-
entínu eyði ég hins vegar litlu
við að gera hluti sem eru al-
veg jafn spennandi og
menningarlegir og það
sem fólk er upptekið
af hér.“
Sjálf segir hún
veraldlega hluti lít-
ils virði í sínum
huga. „Mig langar
ekki að eyða pen-
ingunum mínum í
bíl eða kaupa íbúð
þegar ég er 25 ára
og ég vil ekki kaupa
ný föt um hverja helgi
því mér finnst þessir
hlutir einskis virði. Mig
langar frekar að eyða
peningunum mínum í
upplifanir. Jafnvel þótt
þær séu ekki áþreifanlegar
og vari bara í ákveðinn tíma
þá enda þær ekki sem rusl
sem þarf að urða. Mér finnst
líka mikill kostur að þessum
lífsstíl fylgir engin áhætta – ég á
ekki á hættu að missa húsið mitt ef ég
þéna ekki nógu mikið – upplifanirnar
eru mínar um leið og þær gerast og
þær verða mínar að eilífu. Þú getur
tapað svo miklu þar sem veraldlegir
hlutir eru annars vegar, en það er
ekki hægt að tapa reynslunni sinni.“
DAGLEGT LÍF 11
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 4. MAÍ 2011
Til að auðvelda sér ferðalögin fjárhagslega stundar Katrín það sem kalla
mætti á íslensku beddaflakk. „Beddaflakk er hægt að stunda í gegn um
vefsíðuna www.couchsurfing.org en í gegn um hana er hægt að komast í
samband við hina og þessa gestgjafa um allan heim, sem bjóða manni að
gista á sófanum hjá sér, endurgjaldslaust. Svo þegar ég er á Íslandi býð
ég fram sófann minn fyrir ferðalanga sem langar til að koma hingað til
lands. Þetta er heilt net ferðalanga sem annað hvort taka á móti gestum
endurgjaldslaust eða gista ókeypis hjá öðrum. Þannig eignast maður
nýja vini um leið og gistir hjá heimafólki og borgar ekki krónu fyrir.
Sjá fleiri myndir og ferðasögur á katrin.dohop.com
Stundar beddaflakk
GISTINGIN ÓKEYPIS
20% staðgreiðsla
Frá 1. janúar 2011 ber bönkum og öðrum fjármálastofnunum að reikna
og halda eftir 20% staðgreiðslu af vaxtatekjum og innleystum gengis-
hagnaði ársfjórðungslega. Sama gildir um arð sem greiddur er til eigenda
af eignarhlutum í félögum.
Athygli er vakin á breyttum reglum um úthlutaðan arð sem fer umfram
20% af skattalegu bókfærðu eigin fé viðkomandi félags í lok viðmiðunarárs
hjá þeim sem skylt er að reikna sér endurgjald vegna starfa í þágu félagsins.
Rafræn skil á fjármagnstekjuskatti
Nú er hægt að gera skil á fjármagnstekjuskatti á rafrænan hátt.
Farið er á þjónustusíðu ríkisskattstjóra, skattur.is, með kennitölu og aðallykli
eða skilalykli. Síðan er valið vefskil > staðgreiðsla fjármagnstekjuskatts
og opnast þá form útfyllingar. Fylgja þarf leiðbeiningum til enda og verður
þá til krafa í heimabanka gjaldanda. Hafi ekki verið um að ræða neinar skatt-
skyldar greiðslur arðs og vaxtatekna á tímabilinu skal gera grein fyrir því.
Gjalddagar
Fjármagnstekjuskattur er 20% frá 1. janúar 2011.
Gjalddagar afdreginnar staðgreiðslu eru 20. apríl, 20. júlí og
20. október 2011 og 20. janúar 2012. Eindagi er 15 dögum síðar.
Gjalddagi afdreginnar staðgreiðslu fjármagnstekjuskatts
á fyrsta ársfjórðungi 2011 er 20. apríl en eindagi er 5. maí.
Fjármagnstekjuskattur
Tímabilið 1. janúar - 31. mars
Skannaðu kóðann
til að fara inn á
vefsíðuna.