Morgunblaðið - 04.05.2011, Qupperneq 35

Morgunblaðið - 04.05.2011, Qupperneq 35
MENNING 35 MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 4. MAÍ 2011 STYRKUR TIL TÓNLISTARNÁMS Minningarsjóður um Jean Pierre Jacquillat mun á þessu ári veita tónlistarfólki styrk til framhaldsnáms erlendis á næsta skólaári 2011-2012. Veittur er styrkur að upphæð kr. 600.000. Umsóknir, með upplýsingum um námsferil og framtíðaráform, sendist fyrir 31. maí nk. til formanns sjóðsins: Arnar Jóhannssonar, pósthólf 8620, 128 Reykjavík. Umsóknum fylgi hljóðritanir, raddskrár frumsaminna verka og/eða önnur gögn sem sýna hæfni umsækjenda. Skagfirska söngsveitin í Reykjavík heldur tónleika í Salnum í Kópavogi á föstu- dagskvöld kl 20:00. Gesta- söngvari söngsveitarinnar verður Sigrún „Diddú“ Hjálm- týsdóttir, en einnig leikur hljómsveit undir, skipuð þeim Birni Thoroddsen á gítar, Vigni Þór Stefánssyni á píanó, Jóni Rafnssyni á bassa og Jó- hanni Hjörleifssyni á tromur. Á efnisskrá tónleikanna eru lög eftir ýmsa er- lenda og innlenda höfunda, þar á meðal Leonard Cohen, Charles Chaplin, Eric Clapton, Magnús Eiríksson, Bubba, Sigfús Halldórsson og fleiri; létt og klassísk tónlist í bland. Tónlist Skagfirska söng- sveitin í Salnum Sigrún Hjálmtýsdóttir Fjórtánda tölublað tímaritsins Jóns á Bægisá er komið út. Jón á Bægisá er tímarit um þýð- ingar og birtir þýðingar á er- lendum bókmenntum og efni um þýðingafræði, þýðinga- starfið og gildi þýðinga fyrir ís- lenska menningu. Í ritinu eru birtar ritsmíðar í íslenskri þýðingu eftir heims- þekkta höfunda. Einnig eru í heftinu greinar eftir Ingibjörgu Elsu Björnsdóttur og Magnús Fjalldal og þýðingar Sigurður A. Magnússonar á ljóðum frá Suður-Afríku. Gauti Kristmannsson skrifar síðan grein í minningu þýðingafræðingsins Hans J. Vermeers. Þýðingafræði Fjórtánda tölublað Jóns á Bægisá Kápa 14. tölublaðs Jóns á Bægisá. Vetrarstarfi Karlakórs Kefla- víkur lýkur með árlegum vor- tónleikum kórsins í Ytri- Njarðvíkurkirkju á fimmtu- dagskvöld kl. 20:30. Á efnis- skránni eru hefðbundin karla- kóralög og vinsæl dægurlög. Stjórnandi kórsins er Guð- laugur Viktorsson, sem stjórn- að hefur kórnum undanfarin sex ár. Einsöngvari er Davíð Ólafsson bassi og undirleik annast Jónas Þórir. Kórinn heldur einnig tónleika ásamt Karlakór Rangæinga í félagsheimilinu Hvoli á Hvolsvelli laugardaginn 14. maí kl. 16:00. Karlakór Keflavíkur er stofnaður 1. des. 1953 og hefur starfað óslitið síðan. Tónlist Vortónleikar Karla- kórs Keflavíkur Guðlaugur Viktorsson 20. starfsári Karlakórs Kjalnesinga lýkur með tónleikum í Langholts- kirkju kl. 20:00 í kvöld, en tónleik- arnir verða endurteknir á laugar- dag kl. 16:00 á sama stað. Framundan er þó frekara starf á næstu vikum, því kórinn heldur í tónleikaferð til Pétursborgar og Tallinn í lok sumars. Tónleikarnir í dag og á laugardag verða síðustu vortónleikarnir sem Páll Helgason stjórnar, en hann lætur af stjórn kórsins eftir utanferðina í sumar. Yfirskrift tónleikanna er „Trallað með Palla í 20 ár“. Þetta afmælisstarfsár hefur ver- ið annasamt, enda einsetti afmæl- isnefnd kórsins sér að kórinn kæmi tuttugu sinnum fram á afmælis- árinu. Meðal tóneika á árinu má nefna orgelsöfnunartónleikar í Guðríðarkirkju, jólatónleika í Langholtskirkju, söng í sjóminja- safninu Víkinni á safnanótt, tón- leika með kórum úr Mosfellsbæ í mars og söng á Skjaldbreið og Esju. Efnisskrá tónleikanna verður þverskurður af þeirri tónlist sem kórinn hefur verið að fást við með útsetningar Páls Helgasonar í fyrirrúmi og taka hljómsveit og einsöngvarar úr röðum kórfélaga þátt í flutningnum ásamt Guðrúnu Gunnarsdóttur söngkonu. Trallað Páll Helgason, kórstjóri Karlakórs Kjalnesinga í tuttugu ár. Trallað með Palla í tuttugu ár 20. starfsári Karlakórs Kjalnesinga lýkur Árni Matthíasson arnim@mbl.is Helsta markmið listahátíðarinnar Listar án landamæra er að koma list fólks með fötlun á framfæri og að koma á samstarfi milli fatlaðs og ófatlaðs listafólks. Liður í því er sýn- ing á verkum Jóns B.K. Ransu og Guðrúnar Bergsdóttur sem opnuð verður í Sverrissal Hafnarborgar á morgun kl. 16:00. Ransu sýnir óhlut- bundin málverk en Guðrún óhlut- bundinn útsaum. Ransu er menntaður í myndlist frá Akademie voor Beeldende Kunst í Enschede í Hollandi og National Col- lege of Art and Design í Dyflinni á Ír- landi og hefur haldið fjölda einkasýn- inga og tekið þátt í samsýningum hérlendis og erlendis. Verkin sem hann hyggst sýna í Hafnarborg kall- ar hann popop. Þau eru frá 2003 til 2007 og nokkuð ólík því sem hann er að fást við í dag. Hann sýndi þau á sínum tíma í Gerðarsafni og í Gallery Turpentine, en þá með öðrum verk- um og hefur ekki sýnt þau stök. „Ég valdi verkin eftir að hafa skoð- að verkin hennar Guðrúnar og það verður skemmtilegt samtal úr þessu. Mér fannst áhugavert þegar ég skoð- aði verkin hennar að það er svo greinileg þróun frá geómetríu í að hún leysir upp formin sem er lógísk þróun hjá abstrakmálara. Efnistök okkar eru ólík, en verkin eiga það sameiginlegt að vera skynvillandi.“ Ransu segist ekki hafa þekkt mikið til verka Guðrúnar, en hann kannist við þau og muni eftir sýningu hennar með Gjörningaklúbbnum. Guðrún Bergsdóttir stundaði nám við Öskjuhlíðarskóla og hefur sótt námskeið í textíl og saumum hjá Full- orðinsfræðslu fatlaðra, nú Fjölmennt. Hún hefur haldið einkasýningar á verkum sínum, m.a. í Gerðubergi og á Mokka, og tekið þátt í samsýningum. Móðir Guðrúnar, Sigríður Skaft- fell, segir að Guðrún hafi lært að sauma í áteiknaða stramma, en síðan hafi hún byrjað að sauma frjálst þeg- ar vinkona hennar gaf henni óáteikn- aðan stramma og garn. „Hún er alltaf með stramma í gangi og gerir þetta algerlega eftir eigin höfði, hefur eng- ar fyrirmyndir,“ segir hún, en segja má að stærð strigans ákveði hvernig verkið verður. Eins og getið er verður sýningin opnuð í Hafnarborg kl. 16:00 á fimmtudag, en Guðrún Bergsdóttir og Margrét H. Nordahl verða síðan með listamannsspjall næstkomandi sunnudag kl. 15:00. Jón B.K. Ransu verður með listamannsspjall miðviku- daginn 1. júní kl. 20:00. Morgunblaðið/Sigurgeir S Samtal Guðrún Bergsdóttir og Jón B.K. Ransu í Sverrissal Hafnarborgar. Óhlutbundin málverk og útsaumur List án landamæra » Listahátíðin List án landa- mæra var sett í Ráðhúsi Reykjavíkur sl. föstudag og stendur fram á sumar. » Af viðburðum sem fram- undan eru næstu daga auk sýningar Guðrúnar Bergs- dóttur og Jóns B.K. Ransu má nefna að List án landamæra tekur þátt í Vatnsmýrarhátíð Norræna hússins í ár og opn- aður verður risavaxinn blóma- garður við Norræna húsið á laugardag, tilraunastofa í myndlist sýnir í Þjóðminjasafn- inu afrakstur námskeiðs sem Myndlistaskólinn hélt fyrir listamenn sem erfitt eiga með að nota hendurnar.  Jón B.K. Ransu og Guðrún Bergsdóttir sýna saman í Hafnarborg Í vikunni kom út ný ljóðabók Bjarna Bernharðs, Undir tjaldhimni veruleikans. Bjarni segir að það sé ekkert eiginlegt þema í bókinni, en lýsir ljóðunum svo að þau túlki sýn hans á lífið og tilveruna, „ef hægt er að kalla það þema og það birtist í ýmsum út- gáfum með margskonar sniði“. Hann segir að ljóðin hafi að mestu orðið til á skömmum tíma. „Ég vinn oft þannig að ég skrifa ekkert í marga mánuði en svo kemur hlaup fram, ef svo má segja, og þá gengur mikið á, þá er mikið skrifað og unnið og pælt.“ Síðasta sumar kom út fyrsta smásagnasafn Bjarna, Spunaþræðir úr tilverunni, en að þessu sinni er ljóðið ómengað, enginn prósi, „eins og klár ljóðabók og framast getur verið“. Hann segir að fyr- ir sér sé ljóðabókin meira andlegt þrekvirki en smá- sögurnar. „Fyrir mér er ljóðformið æðsta bók- menntaformið. Ef ég allt í einu fæ þá köllun að fara að skrifa prósa þá er það ekki vegna þess að ég sé að gera tilraun heldur liggur landið bara svona og ég veit ekkert hvort ég skrifa nokkurntímann aftur smásagnabók. Ég trúi á náttúrlegar sveiflur í sköp- un, að við séum hluti af náttúrunni og það flæði sem við rithöfundar upplifum sé í tengslum við náttúr- una.“ Ljóðformið er æðsta bókmenntaformið Morgunblaðið/Árni Sæberg Hlaup Bernharður segist trúa á náttúrlegar sveiflur í sköpun.  Bjarni Bernharður gefur út nýja ljóðabók Það var mikið um þetta a.m.k. þegar Tarantino var sem heit- astur. En það er minna um það nú. 38 »

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.