Morgunblaðið - 04.05.2011, Qupperneq 38

Morgunblaðið - 04.05.2011, Qupperneq 38
Arnar Eggert Thoroddsen arnart@mbl.is Hinir árlegu Stuttmyndadagar í Reykjavík fara fram í Bíó Paradís dagana 15.-16. júní næstkomandi. Keppt er um bestu stuttmyndina og verða veitt þrenn peningaverðlaun fyrir bestu myndirnar. Frestur til að skila inn myndum rennur út þann 24. maí. Líkt og venja er munu áhorf- endaverðlaun verða veitt sérstaklega. Auk þess mun Sjónvarpið sýna þær myndir sem hljóta áðurnefnd verð- laun. Þá verður leik- stjóra þeirrar myndar sem hlýtur fyrsta sætið boðið á Kvikmyndahá- tíðina í Cannes að ári þar sem mynd- in tekur þátt í hinu svokallaða Short Film Corner. Stuttmyndadagar hafa verið gras- rótarvettvangur íslenskra kvik- mynda allt frá 1991. Þar hafa fjöl- margir kvikmynda- gerðarmenn, sem síðar hafa getið sér gott orð, stigið sín fyrstu spor. „Við erum mjög spennt fyrir því að þetta sé komið hingað, í Bíó Paradís, þar sem þetta á að sjálfsögðu heima,“ segir Ásgrímur Sverris- son, dagskrárstjóri í Bíó Paradís og kvikmyndagúrú með meiru. „Þetta er tveggja daga hátíð nú en ekki eins og venjan hefur verið und- anfarið. Við erum að gera aðeins meira úr þessu. Innsendar myndir eru margar að vanda og það minnk- ar ekkert áhuginn á þessu. Það er mikil gróska í grasrótinni, og bara það að virknin sé mikil gefur til kynna að einhverjir góðir hlutir séu að gerast.“ Ásgrímur segir að þróunin í stutt- myndagerð hérlendis, hvað efnistök og slíkt varðar, sé athyglisverð. Minna sé í dag um að fólk sé að apa eftir, sem var giska algengt á tíma- bili. „Það var mikið um þetta a.m.k. þegar Tarantino var sem heitastur. En það er minna um það nú. Það verður enginn meistari á því að herma eftir öðrum meisturum, höf- um það hugfast!“  Stuttmyndadagar í Reykjavík fara fram 15.-16. júní í Bíó Paradís Samskipti Úr sigurmyndinni 2010, Áttu vatn?, eftir Harald Sigurjónsson. 38 MENNING MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 4. MAÍ 2011 Inga Rún Sigurðardóttir ingarun@mbl.is Sýningin Verði þér að góðu verður frumsýnd í Kassanum í Þjóðleikhúsinu á laugardags- kvöldið en í henni er manneskjunni fagnað sem „marglaga félagsveru“ eins og segir í til- kynningu. Það er félagsskapurinn Ég og vinir mínir sem býður til þessa samkvæmis en dansarinn Margrét Bjarnadóttir er einn for- sprakkanna. „Umfjöllunarefnið er ekki ósvipað og í sýn- ingunni okkar Húmanimal fyrir tveimur ár- um. Þá vorum við að vinna með manninn og dýrið í manninum, þetta dýrslega eðli. Núna erum við aftur að vinna með manninn en leggjum áherslu á hann sem félagsveru,“ seg- ir Margrét en óhætt er að segja að sýningin Húmanimal hafi slegið í gegn. Vinna sem hópur að sýningunni Sami hópur er að baki þessari sýningu fyrir utan að Sveinn Ólafur Gunnarsson kemur í stað Jörundar Ragnarssonar. Aðrir leikarar og dansarar í hópnum eru Álfrún Helga Örn- ólfsdóttir, Dóra Jóhannsdóttir, Friðgeir Ein- arsson og Saga Sigurðardóttir auk Gísla Galdurs Þorgeirssonar, sem kemur fram í sýningunni auk þess að semja hljóðmyndina í verkinu. Leikstjóri er Friðrik Friðriksson og Rósa Hrund Kristjánsdóttir sér um leikmynd og búninga. Sýningin er samstarfsverkefni leikhópsins og Þjóðleikhússins og hlaut styrk frá Leiklistarráði og Prologos. „Við vinnum sem hópur að sýningunni og erum öll höfundar henn- ar. Hugmyndin sem við lögðum af stað með fór í mjög marga hringi á leiðinni,“ segir Margrét sem út- skýrir að þetta geti verið erfitt en sé sömuleiðis gefandi. „Þegar maður finnur að hlutirnir eru að fara að ganga upp verður þetta alveg tífalt meira gefandi en maður hár- reytir sig mjög mikið þess á milli. Við erum níu Níu manna lýðræði Margrét Bjarnadóttir var í Þýskalandi í átta mánuði á síðasta ári. „Ég fékk vinnuaðstöðu í leikhúsi í Hamborg og samdi þar nýtt verk sem ég frumsýndi í lok nóvember,“ segir hún en verkið ber nafnið On Misunderstanding og leikhúsið heitir Kampnagel og er vel þekkt. Elín Hansdóttir gerði leikmyndina og bún- ingana fyrir sýninguna en leikhúsið útvegaði ekki aðeins vinnuaðstöðuna heldur fram- leiddi líka þetta nýja verk. „Saga er einmitt í þessu verki. Það er ekki búið að sýna verkið á Íslandi en við gerum það eftir að barnið hennar er komið í heiminn.“ Hún segir það frábært að hafa komist í þessa aðstöðu. „Þetta var algjör lúxus að hafa vinnuaðstöðu allan sólarhringinn í átta mánuði.“ Vinnuaðstaða allan sólarhringinn SETTI UPP DANSVERK Í HAMBORG „Mikil gróska í grasrótinni“ Margrét Bjarnadóttir Ef þú ert hjá Símanum skaltu grípa tækifærið og græja þig upp fyrir sumarið. Magnaðir miðvikudagar! 25% afsláttur af öllum GSM aukahlutum í dag  Ég og vinir mínir setja upp sýninguna Verði þér að góðu í Þjóðleikhúsinu  Bæði dans- arar og leikarar taka þátt og útkoman er líkamlegt leikhús  Sami hópur gerði Húm- animal Öðruvísi mannfræðingar Hér má sjá hluta hópsins sem frumsýnir Verði þér að góðu á laugardaginn. manns, þetta er níu manna lýðræði, sem get- ur verið rosalega erfitt. Stundum skiptir ein- faldlega máli hver er bestur í að selja hug- mynd!“ Nota spuna en ekki skrifað handrit Vinnuferlið hefur verið svipað og í Húm- animal. „Við héldum að við hefðum lært rosa- lega mikið af Húmanimal-ferlinu og þetta yrði allt miklu auðveldara núna en níu manna lýð- ræði er bara eins og það er. Þetta er okkar vinnuaðferð. Við vinnum mikið upp úr spuna og erum stanslaust að framleiða efni sem leið- ir okkur síðan áfram. Við komum aldrei að borðinu með skrifað handrit. Það sem við framleiðum á æfingum nuddast smátt og smátt inn í sýninguna,“ segir hún en sýningin hefur breyst mikið meðan á þessu ferli hefur staðið. „Við ætluðum í upphafi að fjalla um mat og matarmenningu, sem fór yfir í að fjalla um manninn í matarboði sem breyttist síðan í partí. Við skoðum hvernig fólk reynir að tengjast hvað öðru. Við reynum að finna fýs- íska nálgun á þessum efnivið,“ segir hún en sýningin er á mörkum dans og leikhúss. „Það væri kannski hægt að kalla þetta líkamlegt leikhús,“ segir hún en tvær í hópnum eiga von á barni, þær Álfrún og Saga og setur það mark sitt á sýninguna, sem er krefjandi fyrir alla. Til viðbótar á búningahönnuðurinn Rósa Hrund líka von á barni þannig að það er ald- eilis von á fjölgun innan hópsins. Ögrum okkur meira svona „Við erum alveg búin að gleyma því hver er dansari og hver er leikari, við pælum ekkert í því lengur, sem er bara mjög þægilegt og góð tilbreyting. Ég held það væri erfitt að vinna svona sýningu ef við værum upptekin af því hver lærði leik og hver ekki. Þetta er stíll hópsins. Það er svo mikilvægt að hugsa þetta sem hóp en ekki einstaklinga með ákveðinn bakgrunn,“ segir Margrét og bætir því við að það fylgi því ákveðið frelsi að losna úr fyrirfram skilgreindum hlutverkum. „Það er frelsandi tilfinning í svona samvinnu að henda sér út í hlutina. Leikararnir þurfa kannski að leggja meira á sig í hreyfiköfl- unum og við dans- ararnir að leggja meira á okkur þegar við erum að flytja texta. Við ögr- um okkur meira svona,“ segir Margrét og útskýrir að textinn sé líka meiri en í fyrstu sýningu leikhópsins. „Við erum með töluverðan día- lóg í sýningunni.“ Aftur að umfjöllunarefni verksins. „Við reyndum að nálgast þetta sem autt blað og settum Húmanimal til hliðar en enduðum á því að fara ekki langt frá því í efni. Við erum ennþá að fjalla um manninn og hvernig hann er eins og skrýtið dýr og hvernig hann hag- ar sér nema hvað með aðeins nýjan fókus.“ Ljósmynd/Jónatan Grétarsson

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.