Morgunblaðið - 16.05.2011, Síða 1
GOLF
Ólafur Már Þórisson
omt@mbl.is
Birgir Leifur Hafþórsson náði sínum besta
árangri á Áskorandamótaröðinni í golfi um
liðna helgi. Mótið fór fram á Ítalíu en Birgir
Leifur lék samtals á 274 höggum eða 10 und-
ir pari. Sigurvegarinn, Anthony Snobeck frá
Frakklandi var á 12 undir pari. Besti árang-
ur Birgis Leifs var áður fimmta sætið en
þessi árangur skilaði honum í þriðja sætið
ásamt einum öðrum kylfingi. Hann fær fyrir
vikið um 10.000 evrur eða um 1,6 milljón
króna.
Ekki náðist í Birgi í gær vegna ferða-
tilhögunar hans sem var stíf en þjálfari hans
Andrés Jón Davíðsson var ekki síður ánægð-
ur með skjólstæðing sinn þegar Morg-
unblaðið náði tali af honum. „Þetta er frábær
árangur hjá honum, sérstaklega í ljósi þess
hversu stuttur fyrirvarinn var. Hann fékk að
vita það eftir hádegi á mánudegi að hann
tæki þátt. Þriðjudagurinn fór svo í það að
ferðast og miðvikudaginn notaði hann í að
skoða völlinn. Hann lék ekki æfingahring fyr-
ir þetta mót sem gerir árangurinn enn betri.“
Birgir Leifur hafði ekki leikið keppnisgolf
síðan í desember á síðasta ári. Leikæfingin
var því ekki mikil sem virðist þó greinilega
ekki standa í vegi fyrir Birgi sem er leik-
reyndur. „Við erum búnir að vera mjög dug-
legir í vetur að æfa bæði tæknileg atriði og
líkamann. Þar höfum við fengið frábæra að-
stoð frá Gauta Grétarssyni og Pétri Einari
Jónssyni og kunnum við þeim bestu þakkir
fyrir það. Síðan er þetta líka oft þannig að
þetta er bara eitt högg sem skoppar til hægri
en ekki vinstri, það getur hjálpað.“
Mikilvægt fyrir framhaldið
Þessi árangur Birgis nýtist honum til
framtíðar að komast inná fleiri mót að sögn
Andrésar. „Þetta var mjög mikilvægt. Hann
verður að öllum líkindum með á móti í Belgíu
á Áskorendamótaröðinni eftir tvær vikur. Nú
verður hann líklega, gróft áætlað, í 25. sæti á
peningalistanum eftir uppfærslu og það ætti
að gefa okkur fleiri mót. Við vorum með það
lélega stöðu á listanum að við gátum ekki
valið okkur mót. Þetta mót á Ítalíu er dæmi
um það. Undirbúningurinn verður alltaf erf-
iðari fyrir vikið.“
Besti árangur Birgis Leifs
Fær fleiri mót og lengri undirbúning Lék síðast keppnisgolf í desember Lék á 10 höggum
undir pari á Ítalíu Hélt utan með skömmum fyrirvara Fór í þrjár flugferðir í gær á heimleiðinni
Spáð í spilin Birgir Leifur Hafþórsson hefur oft velt vöngum yfir stöðunni síðustu daga á Ítalíu.
Morgunblaðið/Ómar
MÁNUDAGUR 16. MAÍ 2011
íþróttir
Fótbolti Yaya Touré tryggði Manchester City fyrsta stóra titil félagsins í enskri knattspyrnu í
35 ár þegar hann skoraði sigurmarkið í úrslitaleik bikarkeppninnar á Wembley 7
Íþróttir
mbl.is
Ágúst Björg-
vinsson heldur
áfram að safna
liði á Hlíð-
arenda en hann
tók á dögunum
við kvennaliði
Vals í körfu-
knattleik sem
leikur í efstu
deild á næstu
leiktíð. Telma
Björk Fjalarsdóttir hefur nú
skrifað undir samning við Val og
er fjórði leikmaðurinn sem geng-
ur til liðs við félagið á skömmum
tíma. Þrjár þeirra eru mjög leik-
reyndar, Telma, Kristrún Sig-
urjónsdóttir og Þórunn Bjarna-
dóttir. Sú fjórða er Guðbjörg
Sverrisdóttir sem á framtíðina
fyrir sér í boltanum. Ágúst hefur
einnig verið farsæll í því að fá til
sín snjalla erlenda leikmenn og
nýliðar Vals eru því til alls líkleg-
ir á næstu leiktíð.
Telma er framherji og styrkir
Val í baráttunni um fráköstin.
Telma lék lítið í vetur vegna
anna og ökklameiðsla en var fyr-
irliði Hauka þegar liðið varð bik-
armeistari í fyrra. kris@mbl.is
Telma Björk
Fjalarsdóttir
Telma
Björk til
Vals
Reuters
Heimsmeistarar Finnar fagna sigri á heimsmeistaramótinu í íshokkíi í gær en þeir lögðu Svía í úrslitaleik í Bratislava.