Morgunblaðið - 16.05.2011, Blaðsíða 4

Morgunblaðið - 16.05.2011, Blaðsíða 4
4 ÍÞRÓTTIR MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 16. MAÍ 2011 Í LAUGARDAL Ólafur Már Þórisson omt@mbl.is Framarar steinlágu í gær fyrir Stjörnunni á heimavelli, 5:2, þrátt fyrir að hafa tvisvar komist yfir í leiknum. Þeir virtust aldrei ná sér eftir að Arnar Gunnlaugsson, þeirra besti leikmaður í þessum leik, þurfti að fara af velli undir lok fyrri hálf- leiks. Spilið inná miðjunni hrundi en Arnar hafði verið duglegur að sækja boltann og halda honum inná miðj- unni. Mikilvægi hans í Framliðinu í þessum leik var of mikið og aðrir leikmenn tóku ekki við keflinu í fjar- veru hans. Ívar Björnsson reyndi hvað mest en mátti sín lítils gegn frá- bæru liði Stjörnunnar sem vann hvert einvígið á fætur öðru og nýtti færin sín vel. Það var því ekki að undra að Bjarni Jóhannsson þjálfari þeirra væri skælbrosandi þegar Morg- unblaðið náði tali af honum. „Mér fannst þessi leikur frekar fjörugur þó seinni hálfleikurinn hafi verið fjörugri, í það minnsta fyrir okkur, sagði Bjarni og hélt áfram. „Við vor- um kraftmeiri og djarfari að vaða á þá í seinni hálfleik. Við náðum að opna þá töluvert og nýttum okkar færi mjög vel.“ Dóri er mikill íþróttamaður Fram hefur verið þekkt fyrir allt annað undanfarin ár eða síðan Þor- valdur Örlygsson tók við þeim, að fá á sig mörg mörk. Í ljósi þess voru fimm mörk Stjörnunnar í gær óvænt og jafnframt gleðiefni fyrir Bjarna. „Þetta er lið sem spilar agað og hefur náð í stig á því að verja markið sitt. Í ljósi þess var magnað að skora fimm mörk á þá. Vinnusemin var ótrúleg, alveg ótrúleg.“ Bjarni sagðist hafa bent sínum mönnum á það í hálfleik að þeir hafi verið of ragir að spila boltanum á milli sín. „Um leið og við vorum til- búnir að stíga aðeins á boltann gát- um við opnað þá betur,“ og það gerðu þeir svo sannarlega en Stjarnan skoraði fjögur mörk í síðari hálfleik á 25 mínútum. Halldór Orri átti frábæran leik fyrir Stjörnuna og var að mati und- irritaðs besti maður vallarins. „Hann var tæpur fyrir þennan leik en Dóri er mikill íþróttamaður og hugsar vel um sig. Hann átti sinn besta leik á tímabilinu til þessa. Hann er stór hluti af sóknarleik okkar og átti flott- an leik, sérstaklega í seinni hálfleik.“ Tveir útisigrar í röð hjá Stjörnunni er mikið afrek ef litið er til síðustu leiktíða hjá félaginu. Þeir hafa nú þegar unnið jafnmarga útileiki í deildinni og allt síðasta tímabil, tvo talsins. Sumarið 2009 vann Stjarnan aðeins einn útileik en það var stór- sigur á Þrótti – einmitt í Laugar- dalnum, 6:0 á Valbjarnarvelli. „Við erum alsælir með það að ná í stig á útivelli, þau hafa ekki verið hryllilega mörg í Garðabænum undanfarin ár,“ sagði Bjarni kíminn.  Stjarnan raðar inn stigum á útivelli  Enginn tók keflið 1:0 10. Arnar Gunnlaugssonskoraði fyrsta mark Fram á þessari leiktíð. Eftir langa send- ingu frá Ögmundi markverði Framara var Arnar einn á auðum sjó og sparkaði boltanum í fyrstu snertingu rétt fyrir utan vítateig- inn miðjan. Glæsilegt og hnitmiðað skot. 1:1 14. Halldór Orri Björnssonskoraði eftir frábæra send- ingu út í teiginn frá Jesper Jensen. Halldór Orri kom á ferðinni inn í teiginn og skaut hnitmiðuðu skoti í nærhornið. Stjarnan var ekki lengi að jafna metin. 2:1 27. Jóhann Laxdal braut áÍvari Björnssyni sem var kominn í úrvals færi vinstra megin í teignum eftir góða sendingu frá Arnari Gunnlaugssyni. Engin spurning að þetta var vítaspyrna. Arnar Gunnlaugsson skoraði örugglega úr spyrnunni hægra megin við Magnús í marki Stjörn- unnar. 2:2 62. Sam Tillen gerði sigsekan um skelfileg mistök þegar hann ætlaði að hreinsa bolt- ann í burtu. Það vildi ekki betur til en svo að boltinn féll beint fyrir fætur Halldórs Orra Björnssonar sem skoraði sitt annað mark í leiknum. Hann lék á einn varn- armann Framara í teignum og setti svo boltann hægra megin við Ög- mund. 2:3 76. Bjarki Páll Eysteins-son var ekki búinn að vera inná í nema tvær mínútur þegar hann fékk stungusendingu, líklega frá Þorvaldi, í gegnum miðja vörn- ina. Hann var yfirvegaður og renndi boltanum framhjá Ögmundi í markinu úr miðjum vítateignum. 2:4 80. Sjálfsmark hjá JóniGuðna Fjólusyni, varn- armanni Fram. Hörður Árnason tók góðan sprett á vinstri kantinn. Hann virtist vera búinn að missa boltann of langt frá sér en kom honum að lokum fyrir þar sem Jón Guðni varð fyrir því óláni að setja boltann í eigið net. 2:5 86. Garðar Jóhannssonskoraði fallegasta mark leiksins þegar hann tók auka- spyrnu um 25 metra frá markinu. Hann sendi boltann með vinstri fæti yfir varnarvegginn og í nær- hornið, óverjandi fyrir Ögmund í markinu. I Gul spjöld: Kristján (Fram)51. (brot), Halldór (Fram) 54. (brot), Jón Guðni (Fram) 83. (brot). I Rauð spjöld:Engin. MMM Enginn MM Halldór Orri Björnsson (Stjörn.) M Björn Pálsson (Stjörnunni) Jesper Jensen (Stjörnunni) Þorvaldur Árnason (Stjörnunni) Magnús K. Pétursson (Stjörnunni) Garðar Jóhannsson (Stjörnunni) Arnar Gunnlaugsson (Fram) Ívar Björnsson (Fram)  Bjarki Páll Eysteinsson skoraði sitt fyrsta mark í efstu deild, í 33 leikjum, þegar hann kom Stjörn- unni í 3:2.  Arnar Gunnlaugsson skoraði fyrir sitt fimmta félag í efstu deild hér á landi þegar hann gerði bæði mörk Fram gegn Stjörnunni. Arn- ar hafði áður skorað fyrir ÍA, FH, KR og Hauka en hann er 10. markahæstur í deildinni frá upphafi með 77 mörk. Arn- ar hefur leikið með sex fé- lögum í deild- inni en hann náði ekki að skora í fjórum leikjum með Val.  Á mbl.is er að finna myndbands- viðtöl við Þorvald Örlygsson þjálf- ara Fram og Halldór Orra Björns- son leikmann Stjörnunnar. Þetta gerðist á Laugardalsvelli Arnar Gunnlaugsson Laugardalsvöllur, Pepsi-deild karla, 4. umferð sunnudaginn 15. maí 2011. Skilyrði: Logn, átta stiga hiti og völlurinn ágætur. Skot: Fram 6 (5) – Stjarnan 15 (9). Horn: Fram 7 – Stjarnan 7. Lið Fram: (4-5-1) Mark: Ögmundur Kristinsson. Vörn: Daði Guðmunds- son, Kristján Hauksson, Jón Orri Ólafsson, Sam Tillen. Miðja: Tómas Leifsson (Kristinn Ingi Halldórsson 81.), Jón Gunnar Eysteinsson (Andri Júlíusson 64.), Halldór H. Jónsson, Jón Guðni Fjóluson, Ívar Björnsson. Sókn: Arnar Gunnlaugsson (Hlynur Atli Magnússon 43.) Lið Stjörnunnar: 4-3-3) Mark: Magnús Karl Pétursson. Vörn: Jó- hann Laxdal, Daníel Laxdal, Nikolaj Hagelskjær, Hörður Árnason. Miðja: Björn Pálsson, Halldór Orri Björns- son, Þorvaldur Árnason. Sókn: Aron G. Jafetsson (Bjarki Páll Eysteins- son 74.), Garðar Jóhannsson, Jes- per Jensen (Hrannar Heimisson 90.) Dómari: Guðmundur Ársæll Guð- mundsson – 7. Áhorfendur: 867. Fram – Stjarnan 2:5 Ólán Jón Guðni Fjóluson, sem er fremstur á markið. Ögmundur Kristinsson, markvörður Morgunblaðið/Ernir Góður Jóhann Þórhallsson Fylkismaður reynir hér að komast framhjá Valsaranum og Færeyingnum Jónasi Þór Næs. Jóhann átti þátt í báðum mörkum Fylkis. Ekki hryllilega mör

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.