Morgunblaðið - 16.05.2011, Blaðsíða 2

Morgunblaðið - 16.05.2011, Blaðsíða 2
2 ÍÞRÓTTIR MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 16. MAÍ 2011 Íþróttir Morgunblaðsins Hádegismóum 2, 110 Reykjavík, sími 5691100, netfang sport@mbl. is Útgefandi Árvakur hf. Umsjón Víðir Sigurðsson, vs@mbl. is Auglýsingar sími 5691111 netfang augl@mbl. is Bréfsími 5691110 Prentun Landsprent ehf. Sigur í síðari úrslitaleiknum í EHF- keppninni í handknattleik kvenna í gær dugði Rut Jónsdóttur og sam- herjum hennar í Team Tvis Hol- stebro ekki. Eftir sjö marka tap í fyrri viðureigninni í Ikast um síð- ustu helgi var ljóst að allt þurfti að ganga upp hjá Holstebro á heima- velli í gær. Rut og félagar unnu með tveggja marka mun, 26:24, og skoraði Rut þrjú mörk í leiknum. Talsvert hefur verið um meiðsli í herbúðum Hol- stebro upp á síð- kastið og kom það verulega nið- ur á liðinu í úr- slitaleikjunum. Um tíma leit jafnvel út fyrir að þrír sterkir leikmenn þess myndi ekki vera með í gær, þar á meðal Rut. En menn hörkuðu af sér og tóku þátt. Lið Holstebro, sem var vel stutt af nærri 2.500 áhorfendum, var yfir allan leikinn í gær, m.a. einu marki að loknum fyrri hálfleik, 14:13. Því tókst hinsvegar aldrei að hrista gestina almennilega af sér. Rut fékk því silfur í Evrópu- keppni félagsliða að þessu sinni en hún er önnur íslenska handknatt- leikskonan sem vinnur til verðlauna í Evrópukeppni félagsliða í hand- bolta. Sú fyrsta var Anna Úrsúla Gunnarsdóttir sem lék fyrir þýska liðið Oldenburg í tapleik í Evr- ópukeppni fyrir 27 árum. iben@mbl.is Rut og félagar unnu en töpuðu samt Rut Jónsdóttir Gunnar Heiðar Þorvaldsson skoraði tvö mörk og Ragnar Sigurðsson eitt þegar Norrköping og Gautaborg skildu jöfn í sænsku úrvalsdeildinni í knattspyrnu í dag, 2:2. Fyrra mark Gunnars Heiðars kom eftir aðeins 13 sekúndna leik. Gunnar fékk einnig gult spjald snemma leiks. Öll mörk leiksins komu í fyrri hálf- leiknum. Gunnar Heiðar lék allan leikinn fyrir Norrköping og þeir Ragnar og Hjörtur Logi Valgarðsson léku allan leikinn í vörn Gautaborgar auk þess sem Theódór Elmar Bjarna- son lék með frá upphafi til enda á miðjunni fyrir IFK Gautaborg. Hjálmar Jóns- son sat allan leik- inn meðal vara- manna IFK Norrköping er í sjötta sæti sænsku úrvals- deildarinnar með 13 stig að loknum 8 leikjum. Staða IFK hefur verið að batna upp á síð- kastið eftir slaka byrjun liðsins í deildinni í vetur. Það er nú komið í 10. sæti með 10 stig. iben@mbl.is Gunnar og Ragnar skoruðu Gunnar Heiðar Þorvaldsson Sverre Andr-eas Jak- obsson, lands- liðsmaður í handknattleik og samherjar hans í þýska liðinu Grosswallstadt, töpuðu í gær fyrri viðureigninni í úrslitum EHF-bikarsins í hand- knattleik þegar þeir mættu Göpp- ingen, 23:21. Síðari leikurinn fer fram næsta laugardag á heimavelli Grosswallstadt.    Vignir Svavarsson var marka-hæstur hjá Burgdorf þegar lið- ið náði jafntefli við Magdeburg, 24:24, á heimavelli í þýsku 1. deild- inni í handknattleik í gær. Ásgeir Örn Hallgrímsson skoraði þrjú marka Burgdorf en Sigurbergur Sveinsson komst ekki á blað. Fjórði Íslendingurinn hjá félaginu, Hannes Jón Jónsson, var fjarri góðu gamni vegna meiðsla. Burgdorf er í fjór- tánda sæti af 18 liðum 1. deildar og hefur ekki alveg bjargað sér frá því að lenda hugsanlega í umspili um sæti í deildinni en þrjár umferðir eru enn óleiknar.    Þórir Ólafsson var markahæsturhjá Lübbecke með sjö mörk, þar af tvö úr vítakasti, þegar liðið lagði Wetzlar, 26:24, í þýsku 1. deild- inni í handknattleik. Kári Kristján Kristjánsson var ekki í leik- mannahópi Wetzlar í leiknum en lið- ið er í 11. sæti. Lübbecke er í sætinu fyrir neðan. Þetta var einn síðasta leikur Þóris með Lübbecke en hann fær ekki endurnýjaðan samning sinn við félagið þrátt fyrir að hafa leikið vel fyrir það á leiktíðinni og verið fyrirliði.    Stjórn WestHam hefur sagt knatt- spyrnustjóranum Avram Grant upp störfum hjá fé- laginu. Þess ákvörðun var tek- in skömmu eftir tap liðsins gegn Wigan í gær en með því tapi féll liðið úr ensku úr- valsdeildinni. Kevin Keen, einn úr þjálfarateymi West Ham, mun stýra liðinu í leiknum gegn Sunderland í lokaumferðinni um næstu helgi. Grant, sem áður stýrði Chelsea og Portsmouth, tók við knattspyrn- stjórastarfinu af Gianfranco Zola í janúar í fyrra og gerði fjögurra ára samning. Liðið hóf leiktíðina með fjórum tapleikjum og komst aldrei út úr vandræðunum.    Serbneski tennisleikarinn NovakDjokovic lagði Spánverjann Rafael Nadal, stigahæsta tennisleik- ara heims, í úrslitum alþjóðlegs móts í Róm í gærkvöldi. Djokivic vann úrslitaleikinn 6:4, 6:4, og er ósigraður á nýju keppnistímabili tennismanna. Fólk sport@mbl.is HANDBOLTI Ívar Benediktsson iben@mbl.is „Þetta var einfaldlega mjög góður sigur hjá okkur og gerir næstu við- ureign liðanna bara ennþá stærri. Þá eigum við möguleika á að verða danskir meistarar að viðstöddum að minnsta kosti 35.000 áhorfendum í Parken,“ sagði Arnór Atlason, lands- liðsmaður í handknattleik og leik- maður danska stórliðsins AG Köben- havn, í samtali við Morgunblaðið í gær. Arnór og félagar unnu Bjerring- bro/Silkeborg, 29:27, í fyrstu við- ureign liðanna um danska meist- aratitilinn á laugardaginn á heimavelli Bjerringbro/Silkeborg. Þar með má segja að leikmenn AG séu komnir með aðra höndina á danska meistarabikarinn og þeir geta tryggt sér hann í stórleik í Par- ken í Kaupmannahöfn næsta laug- ardag þar sem ljóst verður að sett verður aðsóknarmet á handboltaleik í heiminum en hátt í 35.000 aðgöngu- miðar hafa þegar selst á viðureign- ina. Fari svo að AG tapi á laugardag- inn kemur til oddaleiks laugardaginn 28. maí. „Jafntefli eru tekin gild í úr- slitakeppninni í Danmörku þannig að jafntefli nægir okkur en við erum staðráðnir í að vinna leikinn og taka við danska meistaratitlinum í Parken í þeirri frábæru umgjörð sem þar verður,“ segir Arnór en ljóst að það kemur í hans hlut að taka við bik- arnum í leikslok í Parken á laug- ardaginn gangi allt eftir, þar sem hann er fyrirliði. Höfðu ekki tapað heimaleik Arnór segir leikinn á síðasta laug- ardag hafi verið erfiður eins við mátti búast. Bjerringbro/Silkeborg hefur ekki tapað leik á heimavelli í úr- slitakeppninni og því hafi leikmenn liðsins verið nokkuð vongóðir um að geta sett strik í reikning AG-liðsins. „Þetta var hörkuleikur frá upphafi til enda. Framan af var viðureignin jöfn en síðan fengum við á okkur nokkra brottrekstra undir lok fyrri hálfleiks. Á þeim tíma komust þeir fram úr og voru með tveggja marka forskot í hálfleik, 17:15,“ segir Arnór og heldur áfram. „Þegar stundarfjórðungur var til leiksloka vorum við enn þremur mörkum undir en náðum þá að skora sex mörk í röð án þess að leikmenn Bjerringbro næðu að svara. Við kom- ust þar með 26:23 yfir og forskotið létum við ekki af hendi,“ sagði Arnór sem skoraði sex mörk fyrir AG í leiknum og var markahæsti leik- maður liðsins. Snorri Steinn Guð- jónsson skoraði þrjú mörk, þar af tvö úr vítakasti. Arnór segir að gríðarleg eftir- vænting sé vegna viðureignar lið- anna í Parken á næsta laugardag. Nánast ekkert hafi verið fjallað um fyrsta leik liðanna í aðdraganda hans. Kastljósinu hafi nær eingöngu verið beint að stórleiknum í Parken enda hafi Jesper Nielsen, eigandi AG, teflt djarft með því að leigja Parken með það að markmiði að leika úrslitaleik- inn þar. Ekkert hugsað um leikinn „Aðalmarkmið okkar í síðustu viku var að tala ekkert um leikinn í Par- ken heldur einbeita okkur að fyrsta leiknum á útivelli. Nú er hinsvegar komið að því að hugsa um hann. Vik- an framundar fer í búa sig sem best undir hann en það er alveg ljóst að það verður frábært að ganga inn á Parken fyrir framan 35-40 þúsund manns. Eftir að hafa öfundað knatt- spyrnumenn í gegnum tíðina fyrir að ganga inn á Parken fyrir framan 40 þúsund manns í stórleikjum þá stefn- ir allt í að röðin verði komin að mér að gera slíkt hið sama næsta laug- ardag. Og það væri alveg draumur að geta tekið við bikarnum fyrir framan að minnsta kosti 35 þúsund manns,“ segir Arnór Atlason, fyrirliði danska handknattleiksliðsins AG Köben- havn. Morgunblaðið/Gísli Baldur Fyrirliði Arnór Atlason í leik með stórliði AG. Hans bíður spennandi leikur um danska meistaratitilinn um næstu helgi. Stefnt á að taka við bikarn- um fyrir framan 35 þúsund  Arnór og Snorri Steinn leika úrslitaleik að viðstöddum metfjölda áhorfenda Aðsóknarmet » AG Köbenhavn hefur selt nærri 35 þúsund aðgöngumiða á viðureign AG og Bjerringbro/ Silkeborg sem fram fer á Par- ken í Kaupmannahöfn. Ljóst er að heimsmet verður sett í að- sókn á handboltaleik. » Núverandi met var sett þeg- ar Lemgo og Kiel mættust í þýsku 1. deildinni haustið 2004. Þá greiddu 30.950 manns aðgang að knatt- spyrnuleikvanginum í Schalke sem útbúinn var sérstaklega fyrir leikinn.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.