Morgunblaðið - 16.05.2011, Side 3
ÍÞRÓTTIR 3
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 16. MAÍ 2011
Í EYJUM
Júlíus G. Ingason
sport@mbl.is
Þriðja leikinn í röð skilja ÍBV og
Breiðablik jöfn og markatalan er
alltaf sú sama, 1:1. Þetta voru úr-
slit í leikjum liðanna sumarið 2010
og þau héldu uppteknum hætti á
Hásteinsvelli í gær þar sem Guð-
mundur Kristjánsson kom gest-
unum yfir í fyrri hálfleik en Þór-
arinn Ingi Valdimarsson jafnaði í
þeim síðari og skoraði þar með
annað mark sitt í jafnmörgum
leikjum.
Segja má að leikurinn hafi verið
tvískiptur þar sem Breiðablik var
sterkari aðilinn í fyrri hálfleik en
Eyjamenn öllu beittari í þeim síð-
ari. Þó var ekki mikið sem skildi
að, hvorki í fyrri né seinni hálfleik.
Bæði lið spiluðu boltanum ágætlega
sín á milli og eru greinilega bæði
að finna taktinn. En í fyrri hálfleik
voru Blikar beittari í sínum sókn-
araðgerðum og í raun var það
sanngjarnt að þeir væru yfir í fyrri
hálfleik. Blikar unnu sinn fyrsta
sigur í síðustu umferð og fylgdu
sigrinum eftir með góðum leik í
Eyjum. Styrkleikar liðanna liggja
þó sínum hvorum megin á vellinum
því Blikum fer betur að sækja á
meðan Eyjamenn tefla fram einni
af öflugustu vörnum Íslandsmóts-
ins, þar sem miðverðirnir Eiður
Aron Sigurbjörnsson og Rasmus
Christiansen fara fremstir í flokki.
Eyjamenn duttu svo sannarlega í
lukkupottinn með danska varn-
armanninn, sem hefur spilað eins
og herforingi í byrjun Íslandsmóts-
ins.
Ef eitthvað er, þá geta leikmenn
Breiðabliks nagað sig í hand-
arbökin enda small boltinn í tví-
gang í tréverkinu á Eyjamarkinu.
Þeir hefðu getað stolið sigrinum
undir lokin þegar Viktor Unnar Ill-
ugason átti þrumskot í stöng en til
þessa hafa Eyjamenn séð um það
að skora mörkin í uppbótartíma.
Leikmenn Fram og Vals hefðu
hugsanlega brosað út í annað ef
skotið hefði ratað inn enda skoruðu
Eyjamenn sigurmark í leikjunum
gegn Reykjavíkurfélögunum í upp-
bótartíma.
Heimir Hallgrímsson, þjálfari
ÍBV sagði eftir leikinn að nú tæki
við langþráð hlé á Íslandsmótinu
en liðin hafa leikið þétt fyrstu fjór-
ar umferðirnar. Næsti leikur ÍBV
verður í Keflavík eftir slétta viku.
„Nú eru bara heitir pottar í tvo
daga og svo afslöppun. Svo gírum
við okkur upp rólega af stað aftur.
Það bíður okkar mikilvægur leikur
í Keflavík og Keflvíkingar eru
sterkir. Það eru alltaf læti þegar
þessi tvö lið mætast og við eigum
ekkert sérlega góðar minningar úr
Keflavík síðustu tvö ár. Við verðum
að fara að snúa því okkur í hag.“
Ljósmynd/Sigfús Gunnar
Sókndjarfur Þórarinn Ingi Valdimarsson, leikmaður ÍBV, sækir að Ingvari Þór Kale, markverði Breiðabliks.
Enn eitt jafnteflið
Þriðji leikurinn í röð í Íslandsmótinu hjá þessum liðum þar sem úrslitin eru 1:1
Kærkomið frí framundan að mati þjálfari ÍBV Nú taka við heitir pottar
Hásteinsvöllur, Pepsi-deild karla, 4.
umferð sunnudaginn 15. maí 2011.
Skilyrði: Hiti 8 gráður, hæg gola og
völlurinn góður.
Skot: ÍBV 8 (7) – Breiðablik 7 (5).
Horn: ÍBV 3 – Breiðablik 2.
Lið ÍBV: (4-4-2) Mark: Albert Sæv-
arsson. Vörn: Kelvin Mellor, Eiður
Aron Sigurbjörnsson, Rasmus
Christiansen, Matt Garner. Miðja:
Guðmundur Þórarinsson (Arnór
Eyvar Ólafsson 65.), Andri Ólafs-
son, Bryan Hughes (Anton Bjarna-
son 80.), Þórarinn Ingi Valdimars-
son. Sókn: Jordan Connerton,
Denis Sytnik (Tonny Mawejje 46.).
Lið Breiðabliks: (4-3-3) Mark:
Ingvar Þór Kale. Vörn: Arnór Sveinn
Aðalsteinsson, Finnur Orri Mar-
geirsson, Elfar Freyr Helgason,
Kristinn Jónsson. Miðja: Guð-
mundur Kristjánsson, Jökull I. El-
ísabetarson, Andri Rafn Yeoman.
Sókn: Arnar Már Björgvinsson
(Viktor Unnar Illugason 73.), Krist-
inn Steindórsson (Olgeir Sig-
urgeirsson 67.), Tómas Óli Garð-
arsson (Haukur Baldvinsson 60.).
Dómari: Valgeir Valgeirsson – 7.
Áhorfendur: 864.
ÍBV – Breiðablik 1:1
FÆRI – 10. Bryan Hughessendi frábæra send-
ingu inn fyrir vörn Breiðabliks á
landa sinn Jordan Connerton sem
sendi fasta sendingu fyrir markið
ætlaða Denis Sytnik en Elfar Freyr
Helgason bjargaði á elleftu stundu.
Færi – 13. Fínn samleikur Breiða-
bliks í gegnum vörn ÍBV endaði
með því að Arnar Már Björg-
vinsson sendi hælsendingu á Krist-
in Steindórsson en Tómas Óli Garð-
arsson tók af honum ómakið og
skaut en beint á Albert í marki
ÍBV.
SLÁ – 24. Kristinn Stein-dórsson lét vaða á
markið utan vítateigs. Skotið var
gott en small í þverslánni og út í
vítateiginn þar sem varnarmenn
ÍBV náðu að hreinsa.
FÆRI – 25. Enn áttiBryan Hughes
sendingu inn í vítateig á landa sinn
Jordan Connerton. Í þetta sinn var
hann í upplögðu skotfæri í mark-
teig en hitti ekki boltann sem sigldi
aftur fyrir endamörk.
0:1 – 37. Kristinn Stein-dórsson fór upp að enda-
mörkum vinstra megin og negldi
með jörðinni fyrir markið. Við fjær-
stöng lúrði Guðmundur Krist-
jánsson einn og óvaldaður og gat
ekki annað en skorað úr markteig.
1:1 – 59. Þórarinn Ingi Valdi-marsson jafnaði metin af
miklu harðfylgi og skoraði í öðrum
leiknum í röð. Andri Ólafsson sendi
fram völlinn þar sem Þórarinn
hafði betur í kapphlaupi við Elfar
Frey og negldi boltanum í markið
frá vítateigslínunni. Vel gert hjá
baráttuhundinum Þórarni Inga.
FÆRI – 68. Andri Ólafs-son gerðist aðgangs-
harður upp við mark Blika þegar
hann skallaði að marki eftir fyr-
irgjöf Arnórs Ólafssonar. Skallinn
var reyndar
ekki eins góð-
ur og tilefni
gafst til en
Elfar Freyr
gerði vel í að
trufla Andra.
Færi – 78.
Guðmundur
Kristjánsson
átti svakalega
rispu inn í
teig ÍBV og
var kominn í skotfæri við mark-
teigshornið. En í stað þess að
skjóta reyndi hann sendingu inn í
vítateiginn þar sem Andri Rafn
Yeoman kom aðvífandi en Kelvin
Mellor bjargaði á elleftu stundu í
horn.
FÆRI – 83. Andri Ólafs-son vann boltann af
varnarmönnum Blika og var kom-
inn í skotfæri við vítateigslínuna.
Andri lét vaða á markið og skotið
var gott en Ingvar Þór varði vel.
STÖNG – 90 +5 Undirlokin náðu
Blikar fínni skyndisókn sem endaði
með því að Viktor Unnar Illugason
lék inn í vítateig og átti þrumuskot
að marki sem small í stöng, fór það-
an í varnarmann ÍBV og aftur fyrir
endamörk.
I Gul spjöld:Andri Rafn (Breiðablik) 35.
(leikaraskapur), Ólafur (Breiðablik)
40. (mótmæli), Eiður Aron (ÍBV)
45. (brot), Þórarinn (ÍBV) 53.
(brot).
I Rauð spjöld:Enginn.
MMM
Enginn.
MM
Enginn.
M
Kelvin Mellor (ÍBV)
Eiður Aron Sigurbjörnsson (ÍBV)
Rasmus Christiansen (ÍBV)
Bryan Hughes (ÍBV)
Þórarinn Ingi Valdimarsson (ÍBV)
Ingvar Þór Kale (Breiðabliki)
Elfar Freyr Helgason (Breiðabliki)
Andri Rafn Yeoman (Breiðabliki)
Tómas Óli Garðarsson (Breiðabliki)
Kristinn Steindórsson (Breiðabliki)
Þetta gerðist á
Hásteinsvelli
Bryan
Hughes